Morgunblaðið - 17.05.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAI 1977
17
TÓK HREINN HEIMSFORYSTUNA
MED GLÆSILEGU ÍSLANDSMETI?
góös af, því það sem einmitt
hefur háð frjálsíþróttamönnum
hérlendis hefur verið skortur á
faglegri gagnrýni og hjálp
manna með næga þekkingu og
reynslu af viðkomandi íþrótta-
grein.
Óskar Jakobsson IR varð ann-
ar í kúluvarpinu nteð 16,95
metra kasti. Er það hinn ágæt-
asti árangur hjá Óskari svona á
fyrsta mótinu, þótt áreiðanlega
hefði hann sjálfur óskað þess
að fara yfir 17 metra strikið.
Þar sem ekki hafa borist
fréttir um lengri köst utanhúss
i ár, þá hefur Hreinn með þessu
kasti sennilega tekið forystu á
heimslistanum. Þá er þessi
árangur honum ómældur sál-
rænn styrkur fyrir keppnina
við Komar og Capes í London á
morgun, en þeim kempunum
hefur hann með þessu og skotið
skelk í bringu. Hreinn gerði
fjórða kast sitt ógilt, en i
fimmtu umferð kastaði hann
20,27 metra, og í síðustu um-
ferðinni undirstrikaði hann
20,70 metrana með þvi að kasta
20,58 metra. í því kasti virtist
Hreinn ekki taka svo ýkja mik-
ið á, heldur virðist sem atrenn-
an og útkastið hafi smollið bet-
ur saman í þessari umferð en
þeim fyrri.
Hreinn Halldórsson í kúluvarpskeppninni á Vormóti Kópavogs sl.
laugardag. Svo sem sjá má hefði kastið getað orðið 15 sm lengra ef
Hreinn hefði I atrennunni náð alveg að hvfta plankanum. (Ijósm.
Fiffó)
7,16 mtr hjá
Friðrik
Sú grein sem næst kom kúlu-
varpinu var án efa langstökkið.
Hér stökk Friðrik Þór Óskars-
son ÍR mjög glæsilega. Náði
hann lengst 7,16 metrum sem
teljast verður mjög gott svona á
fyrsta mótinu. Þá stökk Friðrik
Þrisvar sinnum 7,08 metra; en
bezt hafði hann áður stokkið
7,10 metra löglega. „Útaf fyrir
sig get ég verið ánægður með
seríuna þar sem þetta er fyrsta
keppnin. Þá var ég mjög illa
upphitaður þar sem ég mætti
ekki fyrr en 15 minútum fyrir
keppnina. Ég á vonandi eftir að
stökkva talsvert lengra i sum-
ar,“ sagði Friðrik að lokinni
keppninni í spjalli vió Mbl.
Ingunn Einarsdóttir ÍR sýndi
í 100 metrunum aö hún er lík-
leg til að fara vel undir 12
sekúndur i sumar, þvi á slæmri
braut til spre(thlaupa hljóp
hún á 12,1 sekúndu. Stökk hún
einnig 5,28 metra í langstökki,
og það fjórum sinnum. Árang-
urinn á vormóti Kópavogs bar
annars þess merki að þetta var
fyrsta keppni fjölmargra. En
einnig á hlaupabrautin þátt í
því að árangur í hlaupum var
slakur, þvi brautirnar eru mjög
lausar og fer þannig meiri hluti
spyrnunnar nánast út í loftið.
Keppni var þó yfirleitt jöfn og
skemmtileg.
— ágás.
„Jú, þetta er gott á fyrsta
móti. En hann á miklu meira
inni, allt að metra, þvi hann er
allur mjög stífur núna“, sagði
Guðni Halldórsson kúluvarpari
i spjalli við Mbl. eftir keppnina,
en Guðni fyigdist með Hreini i
keppninni og gaf honum
skýrslu um hvað fór aflaga og
hvað fór vel í hverju kastanna.
Svo sem sjá má er stlll Friðriks Þórs Oskarssonar I uppstökkinu í
keppninni sl. laugardag tæknilega mjög góður. En myndin sýnir að
þetta stökk hefði getað orðið a.m.k. 5 sm lengra. Afrek Friðriks er
vallarmet á Fífuhvammsvellinum.
„ÞETTA heppnaðist ekki nógu vel í þetta sinn. Ég
kláraði t.d. aldrei spyrnuna til fulls og átti alltaf um
eitt fet í plankann. En það kemur vonandi með
keppnunum“. Þannig mælti Hreinn Halldórsson í
spjalli við Morgunblaðið er hann hafði nýlokið við að
setja glæsilegt tsiandsmet í kúluvarpi, 20.70 metra, á
Vormóti UBK í frjálsíþróttum sl. Iaugardag. Hreinn
átti mjög glæsilega kastseríu þegar haft er í huga að
þetta er fyrsta keppni hans utanhúss í ár, en vanalega
þurfa menn að „keppa“ sig í form.
Þegar í fyrsta kasti flaug kúl-
an 20.08 metra. Var það næst
bezti árangur Hreins utanhúss
þvi hann hafði lengst kastað
20.24 metra, en auk þess 20.01
og 20,02 metra. Evrópumeist-
aratitil sinn innanhúss vann
hann sem kunnugt er mað 20,59
m kasti. Nýtt íslandsmet sá
dagsins ljós í annarri umferð
en þá kastaði Hreinn 20,38
metra. 20,70 metrarnir komu
siðan i þriðju umferðinni. Mikil
„sprengja" var i útkastinu hjá
Hr^ini í þessu kasti þótt eitt-
hvað virtist vanta á í atrenn-
unni.
Guðni mun ekki hefja keppni
um sinn þar sem hann hefur
ekki náð sér fyllilega af meiðsl-
um, og er því hægri hönd
Hreins um þessar mundir. Og
ekki er að efa að Hreinn nýtur
NÝR UNGLINGA-
LIÐSMAÐUR í
STAÐ PÉTURS
Unglingalandsliðið I knattspyrnu heldur I dag utan til Belgfu, en á
morgun hefst þar úrslitakeppni EM unglinga. Leika Islendingarnir I
riðli með Belgum, Grikkjum og Englendingum og þó fslenzka liðið sé
sterkt þá verður eflaust við ramman reip að draga hjá strákunum.
Síðustu æfingar liðsins voru á
sunnudaginn og var þá æft tvi-
vegis. Á æfingar þessar mætti
ekki Akurnesingurinn Pétur
Pétursson, boðaði hann engin for-
föll og var ekki vitað annað en
hann myndi mæta. Þar sem Pétur
sýndi unglingalandsliðinu ekkí
meiri áhuga en þetta ákvað ung-
linganefndin að setja hann út úr
landsliðinu og fer hann þvi ekki
með iiðinu til Belgíu i dag. I stað
Péturs var valinn Ársæll
Kristjánsson úr Þrótti.
SKRÍLSLÆTI
í KEFLAVÍK
AHORFENDUR settu heldur leiðinlegan svip á leik, ÍBK og Vals f
Keflavík á laugardaginn. Tafðist leikurinn fjórum sinnum vegna þess
að hafa þurfti afskipti af áhorfendum og f eitt skipti vegna slagsmála á
áhorfendapöllum, sem færst höfðu inn á sjálfan leikvöllinn. Tafðist
leikurinn alls f einar 25 mfnútur af
Stór hópur tryggra aðdáenda
fylgir Valsliðinu og er ekki nema
gott eitt um það að segja. Hins
vegar voru innan um i þeim hópi
á laugardaginn nokkrir menn,
sem blótað höfðu Bakkus einum
um of og settu þeir ljótan blett á
hópinn. Það var i þessum hópi
sem áflogin byrjuðu. Við skulum
þessum sökum.
vona að þetta sé ekki upphafið að
einhverju meiru, þvi ástandi sem
er víða erlendis til vansa fyrir
íþróttina. Það sýndi sig á laugar-
daginn að löggæzla var alls ónóg
og þyrfti að kippa þvi I liðinn í
framtiðinni I Keflavik sem
annarsstaðar.
—SS.
AXEL OG OLAFUR
ÞÝZKIR MEISTARAR
DANKERSEN, lið þeirra Axels Axelssonar og Ólafs H. Jónssonar, varð
Þýzkalandsmeistari f handknattleik, er liðið sigraði Grosvallstadt
21:20 f úrslitaleik um þýzka meistaratitilinn á sunnudaginn.
Leikur iiðanna var æsispenn-
andi og úrslitin ekki ljós fyrr en
dómarinn flautaði til leiksloka. I
Jeikhléi var staðan 10:9 Gros-
vallstadt i vil og i seinni hálf-
leiknum munaði sjaldan nema
einu marki á liðunum. Gros-
vallstadt var þó ætið yfir fram á
síðustu minútu. Var staðan 20:20
er Axel var falið að framkvæma
vitakast. Skoraði Axel örugglega I
2. tilraun, en i þeirri fyrstu skaut
hann i slá, en dómari hafði þá
ekki flautað. Tryggði Axel liðinu
því meistaratitilinn með þessu
marki sínu. Gerði hann alls 3
mörk i leiknum, en Ölafur H.
Jónsson 2.
Rúmenar reiðir
N
og hættu keppni
HELDUR betur dró til tfðinda á Evrópumeistaramótinu í fimleikum
um helgina. Eftir kærur á báða bóga varð endirinn sá að Rúmenar
drógu lið sitt út úr keppninni, en þeir voru mjög óánægðir með
stjórnun mótsins og dómarastörf.
Nadia Comaeci, stjarnan frá OL
í Montreal, fékk hæstu verðlaun
fyrir stökk en þvi mótmæltu
Rússar og héidu þvi fram að
æfingar Nelli Kim væru mun
erfðari og verðskuldaði hún hærri
einkunn. Var þá tilkynnt að
stúlkurnar væru jafnar að stig-
um, en þrátt fyrir það var Nelli
Kom afhentur gullpeningurinn er
kom að verðlaunaafhendingu.
Gátu Rúmenar ekki unað þessu og
eftir að hafa fengið skipanir að
heiman héldu Rúmenar af
keppnisstað og til sendiráðs
Rúmeníu i Prag, en þar fór
keppnin fram.
Nadia Comaeci þótti sem fyrr
bezt fimleikastúlknanna á
mótinu, og hafði fengið tvenn
gullverðlaun er hún hætti. 1 efsta
sæti samanlagt varð Elena
Moukina, önnur Maria Filatova
og Nelli Kim þriðja. Þrefaldur
rússneskur sigur.