Morgunblaðið - 17.05.1977, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAI 1977
SumarliAi Guðbjartsson hefur reynzt Frömurum drjúgur í sumar og
skorað falleg mörk. Ilér bjargar Ragnar Þorvaldsson naumlega af tám
Selfvssingsins.
Gullmark Sumar-
Fleiri mörk voru ekki skoruð í
leiknum, sem lauk þvi með örugg-
um sigri Skagamanna, sem nú
hafatekið forystu í 1. deild.
Liðin
Hjá Blikunum áttu þeir Einar
Þórhallsson og Valdimar
Valdimarsson bestan leik af
varnarmönnum. Hinrik barðist
vel í framlínunni en mátti sín
lítils. Vignir og Gísli áttu þokka-
legan leik, en þeir njóta sin
greinilega ekki á möl.
Jón Alfreðsson barðist vel i
þessum leik, en hann og Jón
Gunnlaugsson voru bestu menn
liðsins. Aðrir leikmenn áttu
ágætan leik, einkum Sigurður,
Jóhannes og Karl Þórðarson.
Valur Benediktsson dæmdi Ieik-
inn.
í STUTTU MÁLI
1. deild 14. maí — Akranesvöllur
íA — UBK 2—0 (1—0)
Mörkin:
Kristinn Björnsson, ÍA á 43 mín.
Pétur Pétursson, IA á 62 mín.
Gul spjöld:
Engin
Ahorfendur: 850
Eyjamenn réðu c
sem skoraði tvö
VESTMANNEYINGAR sóttu ekki gull í greipar FH-inga er þeir komu I h<
Hafnarfirði á sunnudaginn. Frfskir og ákveðnir FH-ingar höfðu lengst :
sigruðu 2—0 með mörkum Ólafs Danfvalssonar, sem var sannkallaður k
nánast alltaf stórhættu, þegar hann var með knöttinn. Eftir gangi leiksin
mörkin hefðu verið mun fleiri, þar sem bæði liðin áttu góð færi sem e
markstengurnar t.d. fjórum sinnum í leiknum, og þrívegis var varið á línu.
Leikurinn á sunnudaginn var
nokkuð skemmtilegur á að horfa
og bæði liðin sýndu tilburði til
þess að leika knattspyrnu, eftir
því sem slíkt er hægt á malarvelli.
Náðust oft skemmtilegir sam-
leikskaflar, en þess á milli var
helzt til mikið um það að knöttur-
inn gengi mótherja á milli og þá
oftast á vallarmiðjunni.
Óhætt er að fullyrða að FH-
ingar eiga nú mun skemmtilegra
liði á að skipa en verið hefur
undanfarin ár. Það er góð barátta
í liðinu en oft hefur það einmitt
verið aðalgalli liðsins hversu það
hefur lagt árar í bát þegar ekki
hefur gengið sem skyldi í leikjum
þess. 1 leiknum á sunnudaginn
var baráttugleðin áberandi, og
aldrei gefið eftir. Þegar svo geng-
ur þarf ekki að sökum að spyrja,
því góðir knattspyrnumenn, hafa
verið i FH. Áberandi bezti maður
liðsins i leiknum var Ólafur Dan-
ivalsson, og réðu Vestmanneying-
arnir hreinlega ekkert við hann.
Bæði var að Ólafur átti jafnan
góðar og vel hugsaðar sendingar,
hann vann vel í knöttínn, og kom
Janus Guðlaugsson hefur náð að skalla knöttinn, en Valþór Óskarsso
sunn
Léttleikandi Blikar
bornir of urliöi af
haröjöxlum Akraness
BLIKAHNIH úr Kúpavogi, sem svo glæsilega hófu sig til
flugs í 1. deildar keppni með því að sigra íslands — og
bikarmeistara Vals í 1. umferð, lækkuðu sem kunnugt er
nokkuð flugið er þeir gerðu jafntefli við ÍBV í 2. umferð,
en þeir setlust alveg á Skaganum á laugardaginn er þeir
töpuðu þar í 3. umferð.
Knattspyrna sú er Skagamenn
hafa sýnt í undanförnum leikjum
er ekki fyrir augað, en hún hefur
gefið árangur, sigur og stig, en
það er það sem sóst er eftir.
Blikarnir, sem til þessa höfðu
leikið sína leiki á grasi, léku á
köflum skemmtilega knattspyrnu,
með stuttum samleik þar sem
knötturinn gekk frá manni til
manns. Þetta gekk ágætlega hjá
þeim úti á vellinum, en þegar að
\itateig hjá andstæðingunum
kom, mætti þeim varnarveggur,
sem þeir hiífðu ekki bolmagn til
að rjúfa. Framlinan hjá þeim var
mjög bitlaus og því fór sem fór, að
þeir áttu ekki eitt einasta mark-
tækifæri leikinn út í gegn.
Dauf byrjun.
Það skeði nánast ekkert mark-
vert fyrstu 30 mín. leiksins, en
ÍA — UBK 2:0
Texti: Helgi Daníelsson
Skagamenn léku þá undan þægi-
legri golu. Knötturinn barst á
milli vitateiganna, en þar enduðu
allar sóknarlotur, enda var t.d.
aðeíns ein hornspyrna í fyrri hálf-
leik og hún á 34. min. Blikarnir
voru skárri aðilinn, þ.e.a.s. þeir
sýndu betri samleik, en um mark-
tækifæri var ekki að ræða.
A 40. min. var Jón Alfreðsson í
dauðafæri, er hann fékk sendingu
frá Birni Lárussyni eftir auka-
spyrnu. Jön skallaði knöttinn nið-
ur i völlinn, en síðan fór hann yfir
þverslána.
Á markaminútunni, hinni 43.,
tókst Skagamönnum að skora eft-
ir Iangt útspark frá Jóni Þor-
björnssyni. Pétur Pétursson náði
að nikka knettinum tíl Kristins
Björnssonar sem skoraði með
hörkuskoti.
Síðari hálfleikur.
Pétur Pétursson bætti öðru
marki við á 62 mín. og var það
mikið heppnismark. Pétur fékk
knöttinn og lék út til vinstri og
var ekki sjáanlegt annað en að
hann ætlaði að gefa hann fyrir
því hann var ekki í aðstöðu til að
skjóta á markið. Ólafur Hákonar-
son markvörður hreyfði sig ekki
er knötturinn fór fyrir framan
hann og hafnaði i stönginni fjær
og síðan í netið.
Enn áttu Skagamenn sæmileg
tækifæri til að auka við marka-
töluna, sérstaklega þó Árni
Sveinsson á 83. min. er hann stóð
einn fyrir opnu marki eftir
skemmtilegan samleik þeirra
Björns Lárussonar og Péturs. En
Árni var of fljótur á sér og skot
hans fór víðsfjarri markinu.
SUMARLIÐI Guðbjartsson er svo sannarlega betri en enginn í 1.
deildinni í knattspyrnu. Þessi rauðbirkni, snaggaralegi leikmaður,
hefur nú leikið þrjá leiki í 1. deildinni og skorað þrjú mörk fyrir lið
sitt, Fram. Sumarliði hefur á undanförnum árum ævinlega verið einn
af markahæstu leikmönnum 2. deildar og hann virðist ekki hafa misst
neitt niður af sfnum fyrri hæfileikum við að skipta um félag og félaga
í knattspyrnunni. Ilætt að leika með Selfossi, en gerst Framari.
A laugardaginn átti Sumarliði
drjúgan hlut að niálí er F'rarn
vann Þór frá Akureyri 3:1 á Mela-
vellinum. Gerði Suntarliðí fyrsta
mark leiksins og var það sannkall-
aö draumamark. Hann fékk knött-
inn um 25 metra frá ntarki Akur-
eyringanna á 17. mínútu fyrri
hálfleiksins, lagöi knöttinn í
rólegheitum fyrir sig og án þess
aö hafa nokkuð fyrir þvi sendi
hann boltann eldsnöggt að marki
Þórs. Ragnar Þorvaldsson kom
engum vörnum við, enda hafnaði
Fram-Þór 3:1
Texti: Agúst I.Jónsson
Mynd: Ragnar Axelsson
knötturinn í markhorninu,
vinstra megin uppi
Framarar höfðu mikla yfir-
burði í fyrri hluta þessa leiks og
sýndu þá oft mjög skemmtileg
tilþrif. Reyndu þeir aö láta knött-
inn ganga á milli og minna var um
kýlingar en oft áður hjá liöinu. Á
24. mínútu leiksins Kom annað
markið. Eftir langt innkast
Trausta Haraldssonar inn í mark-
teig Þórs, náöi Kristinn Jörunds-
son að sneiða knöttinn aðeins með
höfðinu þannig að Ragnar var
settur úr leik og yfir höfuð hans
fór knötturinn og í markið 2:0.
Undir lok fyrri hálfleiksins, á
40. minútu, var Sumarliði kominn
í gott færi í vitateig Þórs. Greip
Oddur Oskarsson þá til þess ráðs
liða gladdi mest
að brjóta á honum og var umsvifa-
laust dæmd vítaspyrna. Úr henni
skoraði Eggert Steingrímsson ör-
ugglega, staðan orðin 3:0 og gert
út um leikinn.
f Lið Þórs hafði verið með ein-
dæmum slakt og að því er virtist
áhugalaust i fyrri hálfleiknum. I
seinni hálfleiknum voru Þórsarar
mun hressari og veíttu þeir þá
Frömurum nokkra kepprii, þann-
ig aö leikurinn var í jafnvægi
mestan hluta hálfleiksins. Skor-
aði Þór þá eina markið. Sigþór
Ómarsson, fyrrum leikmaður með
IA, átti skalla í þverslá, knöttur-
inn hrökk út í markteiginn og
Sigurður Lárusson var fyrstur að
átta sig og afgreiddi knöttinn í
netið, 3:1.
Það er ljóst að lið Þórs verður i
erfiðri baráttu i sumar í neðri
helmingi deildarinnar. Reyndar
er varla von á öðru þar sem liðið
hefur á tveimur árum ferðast úr
3ju deild í þá fyrstu og munurinn
á deildunum er mikill. Leikmenn
Þórs hafa þó yfir mikilli reynslu
að búa og hún kemur liðinu ef-
laust til góða í mótinu, en ílestir
af fastamönnum liðsins léku ásín-
um tíma með ÍBA í 1. deildinni.
Knattspyrna Þórsara er ekki
áferðarfalleg, en t.d. í seinni hálf-
leiknum gegn Frani var allgóð
barátta i liðinu. Barátta, sem e.t.v.
fleytir liðinu yfir erfiða hjalla i
sumar. Berjist þeir ekki eins og
var uppi á teningnum í fyrri hálf-
leiknum geta þeir þess vegna
hætt strax.
Lið Fram verður ekki metiö eft-
ir þessum leik, en eftir að hafa
tapað fyrsta leik mótsins eru
Framarar nú búnir að fá 4 stig í 2
leikjum og hafa skorað 6 mörk.
Sumarliði er sá leikmaður, sem
mest gaman er að fylgjast með, en
t.d. Eggert Steingrímsson er í
mjög góöu ,,formi“ um þessar
mundir og sendingar hans margar
hverjar sérlega góðar. Þá er
Agúst Guömundsson sívinnandi
og þessi núverandi fyrirliði Fram
virðist geta leikiö hvaða stöðu
sem er á vellinum.
I STUTTU MÁLI:
Islandsmótið 1. deild, Melavöllur
14. maí, Fram—Þór3:l (3:0).
Mörk Fram: Sumarliöi Guðbjarts-
son á 17. mín, Kristinn Jörunds-
son á 24. mín og Eggert Stein-
grímsson á 40. minútu.
Mark Þörs: Sigurður Lfrusson á
63. mínútu.
Áminning: Oddur Óskarsson,
Þór.
Áhorfendur: 418.