Morgunblaðið - 17.05.1977, Page 19

Morgunblaðið - 17.05.1977, Page 19
n viröist enn bfða eftir knettinum í þessum loftbardaga f Kaplakrika á udaginn. ^kki viö Ólaf falleg mörk pimsókn á Kaplakrikavöllinn í af betri tök á leik þessum og onungur vallarins og skapaði s hefði ekki verið óeðlilegt að kki nýttust. Þannig björguðu FH - ÍBV 2:0 Texti: Steinar J. Lúðvíksson. Mvndir: Ragnar Axelsson. sér skemmtilega framhjá and- stæðingum sínum. Janus Guð- laugsson átti einnig ágætan leik á sunnudaginn, en aðrir leikmenn FH-liðsins virðast mjög jafnir og sem heild vann liðið mjög vel í leiknum. Það má vissulega einnig hrósa Eyjamönnum fyrir skemmtilegan leik, þótt aðgerðir þeirra yrðu ekki eins árangursrfkar og hjá FH. Helzti galli liðsins í leiknum var hversu spilið var þröngt. Allt gekk upp á miðjuna, og var greinilegt að Tómasi Pálssyni var ætlað að vinna úr þvi sem þangað kom. En Tómasar var ágætlega gætt í leiknum, og fékk hann ekki mikið svigrúm. Betur gekk hins vegar í þau fáu skipti sem ÍBV- liðið nýtti breidd vallarins, og hornspyrnur liðsins voru stór- hættulegar, ekki sízt vegna hins hávaxna leikmanns Valþórs Sig- þórssonar, sem jafnan kom fram þegar þær voru teknar. Var Val- þór ásamt Óskari Valtýssyni bezti maður Eyjaliðsins í leiknum á sunnudaginn, en Karl Sveinsson gerði einnig margt gott í leiknunt, þótt honum hætti um of að vera of seinn að koma knettinum frá sér. Mörg tækifæri Sem fyrr greinir bauð leikurinn s sunnudaginn upp á mörg skemmtileg andartök. Fyrsta dauðafærið i leiknum átti Helgi Ragnarsson, þegar á 5. minútu, er hann komst einn innfyrir en skaut síðan í stöng, og þaðan hrökk knötturinn beint til Páls Pálmasonar markvarðar. Ör- skömmu síðar var mikil hætta á ferðum við FH-markið, en Viðar Halldórsson bjargaði þá á línu skoti Karls Sveinssonar utan frá kanti. Á 18. minútu skoraði svo Ólafur Danivalsson fyrra mark sitt í leiknum — algjörlega upp á eigin spýtur. Hann náði knettinum á miðjum vallarhelmingi Eyja- rnanna, lék á hvern andstæðing- inn af öðrum og kom sér i gott færi, þaðan sem hann skaut góðu og hnitmiðuðu skoti sem Páll átti ekki möguleika á að ná. í byrjun seinni hálfleiks gerðu Eyjamenn harða hrið að marki FH og munaði þá oft mjóu að þeim tækist að jafna, eins og t.d. er Magnús Þorsteinsson átti hörkuskalla i stöng, eftir horn- spyrnu og Viðar bjargaði síðan á línu, eftir pressu Eyjamanna, og er Pálmi bjargaði á línu skoti Snorra Rútssonar eftir horn- spyrnu. En um miðjan hálfleikinn gerði svo Ólafur Danívalsson út um leikinn. Eyjamenn voru þá komn- ir allir í sókn, en misstu af knett- inum og var hann sendur fram á völlinn til Janusar Guðlaussonar sem greinilega var rangstæður. Veifaði linuvörðurinn, en lét sið- an flaggið falla. Janus lék upp kantinn, og gaf fyrir markið, þar sem Ólafur var varnarmönnum ÍBV sprettharðari og skoraði með viðstöðulausu skoti. Tveimur mínútum síðar endur- tók nákvæmlega sama sagan sig, en þá hafði Ólafur hins vegar ekki heppnina með sér og skot hans fór i þverslá og út, og á næstu minútu átti svo Valþór skot í stöng FH-marksins. í STUTTL MÁLI: íslandsmótið, 1. deild Kaplakrikavöllur 15. maí (JRSLIT: FH — IBV 2—0 (1—0) Mörk FII: Ólafur Danívalsson á 18. mín. og 67. min. Bókanir: Ólafur Danivaisson fékk gula spjaldið fyrir að „brúka sig“ við dömarann. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1977 19 Meistaralið Vals stóðst prófraunina EFTIR töp í tveimur fyrstu leikjunum var það að duga eða drepast fyrir íslandsmeistara Vals i Keflavik á laugardaginn. Og meistararnir stóðust prófraunina, þeir náðu sínum bezta leik í mótinu og báru sigurorð af spútnikliði ÍBK 2:1. Þar með eru Valsmenn áfram með í baráttunni um titilinn, en það hefði nánast mátt afskrifa möguleika þeirra ef ÍBK hefði borið sigur úr býtum í leiknum á laugardaginn. Þetta var mikill baráttu- leikur og vafalaust hefði þetta orðið skínandi góður leikur ef hann hefði farið fram á grasi. En þvl miður varð að leika hann á möl og það verður að segjast eins og er, að knattspyrna á grasi og möl er ekki sama íþróttin, aðstöðumunurinn er svo mikill. Valsmenn léku að þessu sinni betri knattspyrnu og sigur þeirra var verðskuldaður. Valsmenn höfðu norð-vestan gjóluna í fangið í fyrri hálfleik og þeir sýndu það strax fyrstu mínúturnar að þeir ætluðu að selja sig dýrt Þeir börðust grimmilega og sóknarlotur þeirra voru beittar Fyrsta markið lét ekki bíða eftir sér, boltinn lá í marki Keflvíkinga eftir 10 mínútur. Guðmundur Þorbjörnsson átti þá eina af sínum hárnákvæmu sendingum, í þetta skipti inn fyrir vörn ÍBK fyrir Inga Björn að elta. Ingi hafði betur í baráttunni við bakvörðinn og í vítateigshorninu hægra meginn lét hann skotið ríða af Þetta var fast bogaskot og boltinn fór milli handa Þorsteins markvarðar, sem hafði komið út úr markinu Vel gert hjá Inga en betra hefði verið fyrir Þorstein að reyna að slá boltann framhjá Á 30 mínútu munaði minnstu að Valsmenn bættu við öðru marki. Guð- mundur Þorbjörnsson lék þá upp að endamörkum vinstra megin og sendi góðan bolta þvert fyrir markið Atli Eðvaldsson kom á fullri ferð og skallaði að markinu og var boltinn á leið í netið þegar Rúnari Georgssyni tókst að henda sér fram á marklínu og skalla boltann frá á ævintýralegan hátt. Fjór- um mínútum síðar fengu Keflvíkingar bezta tækifæri hálfleiksins þegar Gísli Torfason skallaði boltann í hliðarnetið eftir aukaspyrnu Ólafs Júlíussonar Tíu mínútna bið varð á þvi að seinni hálfleikurinn hæfist vegna þess að áhorfendur vildu ekki gegna dómara og linuverði og fara frá hliðarlínunni Keflvikingarnir voru mun ákveðnari i seinni hálfleiknum en samt fannst manni Valsmennirnir enn hafa yfir- höndina En ekki var seinni hálfleikur- inn nema 10 minútna gamall þegar Keflvikingar höfðu jafnað metin Brotið var á Ólafi Júliussyni rétt utan vitateigs Vals og aukaspyrna dæmd Valsmenn röðuðu sér í vegg og vörðu annað horn marksins og Ólafur markvörður tók sér stöðu i hinu horninu Ólafur Júlíusson tók spyrnuna sjálfur og hún var alveg fullkomin, boltinn þaut i bláhornið fjær og kom nafni hans Magnússon engum vömum við, þótt hann stæði i horninu En Adam var ekki lengi i Paradis, þvi tveimur mínútum siðar skoraði Ingi Björn aftur. Atli Eðvaldsson galopnaði vörn ÍBK með frábærri sendingu og Inga Birni urðu ekki á nein mistök þegar hann lét skotið riða af frá vita- punkti einn og óáreittur Þetta reyndist vera sigurmarkið en bæði l.ð fengu stórgóð tækifæri það sem eftir lifði leiksins. Atli komst einn innfyrir en skaut framhjá markinu og Þorsteinn markvörður ÍBK hirti boltann af tám Inga Bjöms, en Ingi hafði kom- ist einn innfyrir Þá skoraði Magnús mark eftir aukaspyrnu Atla, en markið var dæmt af vegna rangstöðu en ekki hrindingar á Þorstein markvörð eins og margir töldu. Tveimur mínútum fyrir leikslok fékk svo Gisli Torfason gullið tækifæri til að stela öðru stiginu Ólaf- ur markvörður missti þá boltann mjög klaufalega frá sér en Gísli brenndi af innan vitateigs þegar markið stóð opið Valsmenn sýndu nú að nýju þá takta, sem gerðu þá að íslandsmeistur- um i fyrra Vörnin var sterk og fram- línumenn og tengiliðið náði oft upp góðu samspili þrátt fyrir erfiðar að- stæður Þeir Guðmundur, Atli og Hörður sýndu sérstaklega næst auga fyrir samspili og Ingi var mættur á rétta staðinn á réttum tima til að binda ÍBK-Valur 1:2 Texti og myndir: Sigtryggur Sigtryggsson. endahnútinn á sóknirnar I vörninni var Magnús mjög góður. Keflvíkingarnir ungu börðust grimmilega eins og þeirra var von og vísa en þeir mættu nú ofjörlum sinum eins og við var að búast ef Valsmenn næðu að sýna sitt bezta Beztu menn liðsins voru ..gömlu' mennirnir Gisli Torfason og Ólafur Júliusson og hlýtur Ólafur að koma sterklega til greina i landsliðiðá nýjan leik Dómari var Rafn Hjaltalin Hann hafði góð tök á leiknum en lét alltof mörg brot átölulaus i seinni hálfleikn- um. í STUTTU MÁLI: Keflavikurvöllur 14 mai. íslandsmótið 1 deild. ÍBK — Valur 1 2(0: 1). MÖRK ÍBK: Ólafur Júliusson á 55 mínútu. MÖRK VALS: Ingi Björn Albertsson á 10 og 57 mínútu. AMINNING: Engin ÁHORFENDUR: 1299 „VONA AÐ VIÐ SÉUM KOMNIR Á SKRIÐ" — VIÐ vissum það vel að í þessum leik dugði ekkert minna en sigur. Það var góð barátta í liðinu og ég er geysilega ánægður með sigurinn, sagði Ingi Björn Albertsson fyrirliði Vals eftir leikinn gegn ÍKB á laugardaginn. — Við vorum ekki beint hræddir fyrir leikinn, miklu fremur óöruggir. Þetta gekk alit vel og Keflvíkingarnir reyndust ekki vera eins sterkir og ég átti von á. Þetta var að ýmsu leyti einkenniiegur leikur, t.d. þessi vandræði með áhorfendurna. Það var bara verst að geta ekki spilað á grasinu, þá hefði þetta orðið miklu betri leikur. Sigurinn var það sem okkur vantaði og ég trúi því og vona að við séum núna komnir almennilega i skrið. „ÓSANNGJARNT" — Ég ER ekkert óánægður með leikinn þótt við höfum tapað honum og ég tel það ósanngjarnt að við skyldum tapa miðað við gang leiksins, við höfum a.m.k. átt annað stigið skilið, sagði Gfsli Torfason fyrirliði ÍBK við Mbl. að loknum leiknum við Val. — Við höfum byrjað vel, fengið 4 stig af 6 og það er byrjun sem ég er alveg sáttur við. Ég er bjartsýnni en ég var í vor um að liðið muni spjara sig f I. deildinni f sumar. — Ég var mikill klaufi að jafna ekki rétt fyrir leikslok. Það var ekkert annað fyrir mig að gera en skjóta strax þegar markvörðurinn missti holtann frá sér og ég varð óskaplega vonsvikinn þegar ég hitti ekki opið markið. „MJOG MIKILVÆGUR SIGUR" — Þetta var mjög mikilvægur sigur, sagði Youri Ilitchev, þjálfari Vais, eftir sigurleikinn gegn ÍBK. — Þetta er búið að ganga mjög illa hjá okkur f tveimur fyrstu leikjunum og þessi leikur varð að vinnast. Ég vissi að strákarnir gátu spilað miklu betur en gegn Breiðablik og Akranesi og það gerðu þeir í þessum leik. Þetta er góður sigur þvf Keflvfkingarnir hafa mikið baráttulið, sem minnir mig á liðið þeirra sumarið 1973. Þessir piltar eru bara revnsluminni en þeir, sem léku með Keflavfkurliðinu 1973. Ingi Björn Albertsson sendir boltann framhjá Þorsteini markverði ÍBK og innsiglar sigur Vals, 2:1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.