Morgunblaðið - 17.05.1977, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAl 1977
21
Nauðlending finnskrar
flugkonu á hafi úti
EINS hreyfils sjóflugvél nauðlenti s.l. laugardag á hafi úti um 100 milur
vestur frá Reykjanesi eftir að hreyfill vélarinnar hafði stöðvazt á flugi.
Taldi flugmaðurinn, að um vélarbilun væri að ræða, en i Ijós hefur komið
að vélin var orðin benzinlaus. Flugmaðurinn, finnsk kona að nafni P.
Kuortti, var á leið frá Bandarikjunum til íslands þegar slysið varð.
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson var komið að flugvélinni tveimur timum
eftir nauðlendinguna og björguðu skipverjar konunni úr flugvélinni um
borð í skipsbát, en um svipað leyti stukku tveir fallhlifarmenn úr þyrlu frá
Varnarliðinu i sjóinn við vélina. Fóru þeir siðan um borð i skipsbát Áma en
þyrlan hifði þá og konuna um borð og flaug til Reykjavikur með konuna.
Flugvélinni var nauðlent við erfiðar aðstæður, þvi nokkur ölduhreyfing
var og reiknað er með eins metra hámarksölduhæð fyrir lendingar slikrar
vélar. Björgunaraðgerðir gengu einstaklega vel fyrir sig og unnu saman
f lugvélar, skip, loftskeytastöðvar og Slysavarnafélag íslands.
Það var kl. 8.30 á laugardag-
var
morgun að tilkynning barst frá
sænsku flugvélinni til flugstjórnar á
Reykjavikurflugvelli um að hún yrði
að nauðlenda á hafi úti um 280
gráður frá Keflavík, en ekki varflug-
maðurinn viss um fjarlægðfrá landi.
Flugvélin, eins hreyfils land- og sjó-
flugvél, er að gerðinni Lake og var
flugmaðurinn, sem er kona, einn um
boð. Flugmaðurinn, P. Kuortti hefur
nokkrum sinnum lent á íslandi I
ferjuflugi með vélar, en maður
hennar hefur umboð fyrir þessa
flugvélartegund í Skandinaviu.
Kuortti komst ekki í beint samband
við flugstjórn, en Loftleiðaflugvélar
á Evrópu- og Ameríkuleið báru boð-
in á milli vélarinnar og flugstjórnar-
miðstöðvarinnar á Reykjavikurflug-,
velli.
Varðstjóri í flugstjórn kvaddi þeg-
ar til Loftleiðavélar Landhelgis-
gæzlu, Varnarliðið og Flugmála-
stjórn og Slysavarnafélag íslands
sem hafði samband við nærstödd
skip Hafrannsóknaskipið Árni Frið-
riksson var ekki langt frá mögu-
legum slysstað og hélt skipið þegar
á vettvang Fyrsta flugvélin fór í
loftið um það bil hálfri klukkustund
eftir að tilkynningin hafði borizt og
var þaðflugvél Flugmálastjórnar.
Flugvél frá Pan Am á leið frá San
Franscisco til London heyrði i
neyðarsendi suðvestur af Keflavlk
um 100 mílur frá landi og var
leitarflugvélum og skipum beint á
þann stað Flugvél Flugmálastjórnar
náði einnig neyðarsendingum og
flaug yfir staðinn, sem reyndist vera
270 gráður misvisandi um 1 10 sjó-
mílur frá Keflavik. Sást flugvélin á
floti og flugmaður á lífi
Kl 9 05 barst Árna Friðrikssyni
orðsending frá flugstjórn á Reykja-
vikurflugvelli um að liklega heði
flugvél lent á sjónum 150 milur
suðvestur eða vestur af Reykjanesi.
Var skipið beðið um að svipast um
eftir flugvélinni sem hafði kallmerkið ■
SEGRS Kl 9.40 hafði Hannes Haf-
stein hjá Slysavarnafélaginu sam-
band við Árna og bað þá að halda á
63 gráður 05 N og 26 09 V, en
Árni var þá á 63.21 N og 26.10V.
Stefnan var sett á staðinn sem var i
um það bil 10 milna fjarlægð Um
kl 10 fékk Árni nýja staðsetningu á
vélinni 63 16 N og 26 24 V og var
stefnunni breytt í samræmi við það
Kristján Jónsson, skipstjóri á Árna
Friðrikssyni, tilkynnti þá að Árni yrði
,, „■
Froskmenn I VarnarliSsþyrlunni búa sig undir a8 stökkva i sjóinn viB
flugvélina. en áBur hofðu þeir hent tveimur gúmmibátum.
• •
Ámi FriBriksson meB flugvélina I togi til lands um 100 sjómilur vestur frá Reykjanesi. ÞaB var kynleg sjón aS sjá
skipiB meB flugvél I togi úti á reginhafi. Ljósmynd Mbl. Árni Johnsen.
konunnar og var hún flutt rakleiðis á
Slysadeildma til rannsóknar Fékk
hún að fara að lokinni rannsókn.
Árni Friðriksson kom hins vegar
með flugvélina til Keflavíkur
snemma á sunnudagsmorgun en
eftir að hafa verið með flugvélina i
togi um 20 sjómílna vegalengd á 4
mílna hraða var kominn sjór i vélina
að aftan og var þá ákveðið að taka
hana um borð Flapsar og hlifar á
vélinni skemmdust nokkuð þegar
vélin var tekin um borð, því í velt-
ingnum rakst vélin nokkuð utan i
skipið sem hefur mjög litla bómu til
hífingar Þegar menn frá rann-
sóknarnefnd flugslysa könnuðu vél-
ina um borð i Árna i Keflavik kom i
Ijós að vélin var benzínlaus, en flug-
maðurinn taldi sig hafa átt eftir
benzin til tveggja klukkustunda
flugs Flugvélin var síðan flutt á
vörubíl til Reykjavikur þar sem unn-
ið er að nánari rannsókn á vélinni
Árni Friðriksson var í karfarann-
sóknarleiðangri þegar hjálparbeiðn-
in barst og strax og flugvélinni hafði
verið skilað i land hélt Árni aftur á
miðin til rannsókna, en leiðangurs-
stjóri er Vilhelmina Vilhelmsdóttir
fiskifræðingur.
Finnska flugkonan Orvokka
Kuortti er hér viS hliS vélarinnar,
þar sem hún var komin i flugskýli
á Reykjavikurflugvelli t gær. Ljós-
mynd Mbl. RAX
Oldurnar
komu
ámóti
— Mér leizt ekkert á að lenda á
sjónum, hann var svo úfinn og vind-
ur var mikill og ég var alveg viss um
að ég myndi farast, sagði Orvokki
Kuortti, finnska flugkonan, sem varð
að lenda vél sinni í sjónum á laugar-
dag, um 110 mílur suðvestur af
landinu Vélin, sem er af gerðinni
Lake Buceaner, getur lent bæði á sjó
og landi og var hún að koma frá
Verksmiðjunum í Bandaríkjunum og
á leið til Svíþjóðar. Blm spurði
Kuortti hvað hún hefði hugsað þeg-
ar hún varað undirbúa lendinguna á
siónum:
lenda á sjónum og timinn fór í að
undirbúa það Ég lét vita af mér
þannig að aðrar vélar gætu miðað
mig út En ég var sem sagt viss að
þarna væri mín síðasta stund upp
runninn
En hvergnig gekk lendingin?
— Hún gekk vel Það var að visu
ómögulegt að velja einhverja
ákveðna öldu eða öldudal til að
lenda á. því mér fundust þær koma
úr öllum áttum á móti mér Ég
reyndi því bara að hægja ferðina
eins og mögulegt var og sneri vél-
inni á móti vindinum Þessar véla
eiga að geta lent á um eins metra
háum öldum, a.m k hjá góðum
flugmönnum, en þarna voru öldurn-
ar miklu hærri En ég geri ráð fyrir
mérúr
öllum áttum”
Þyrla VarnarliBsins hlfir sænsku flugkonuna um borB úr björgunarbát
Árna FriBrikssonar. Ljósmyndir Óskar Sæmundsson.
Árni Friðriksson og Varnarliðs-
þyrla komu samtímis á slysstað
kominn á slysstað kl. 10.40 og
nákvæmlega á þeim tima renndi
Ámi að flugvélinni Var gúmmíhrað-
bátur settur á flot og honum siglt að
flugvélinni. Á sama tima stukku tveir
froskmenn úr þyrlu Varnaliðsins í
sjóinn við vélina en þyrlan hafði
hent tveimur gúmmíbátum í sjóinn
Skipverjar á Árna tóku konuna síðan
um borð í gúmmíbátinn, en hún
gekk þurrum fótum í skipsbátinn.
Síðan tók skipsbáturinn fallhlífar-
menn Varnarliðsins einnig upp, en
þeir og skipsbáturinn höfðu komið
samtímis að flugvélinni. Skipverjar á
Árna buðu konunni far í land með
skipinu og mun henni hafa litizt
heldur betur á það heldur en láta
hífa sig upp í þyrluna, en það varð
úr að Varnarliðsmenn kipptu henni
um borð í þyrluna til þess að hún
kæmist fyrr i læknisskoðun Varð
konunni ekki meint af nauðlending-
unni, en þó kvartaði hún undan
eymslum í baki
Ámi tíndi síðan úpp gúmmíbjörg-
unarbáta Varnarliðsins og sitthvað
annað sem þyrlan hefði hent í sjóinn
við vélina og siðan var flugvélin
tekin í tog og siglt áleiðis til Kefla-
víkur á 4 mílna hraða. en þá var
farið að stillast mjög í sjóinn
Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli
kl 1 2.45 þar sem sjúkrabifreið beið
Flugvélin hífð um borð I Áma, en
vegna þess hve bóma skipsins er
lítil var erfitt um vik. Ljósmynd
Óskar Snmundsson.
— Það var nú ekki mikill timi til að
hugsa, vélin sveif hratt niður að
sjónum Vélin hafði stanzað og það
eina sem hægt var að gera var að
að ég hafi verið mjög heppin, þvi
vélin skemmdist ekkert við lending-
una sjálfa.
Orvokki Kuortti var ásamt manni
sínum, Pertti Kuortti. að skoða vél-
ina i gærdag ásamt mönnum frá
Tryggingafélögum og sagðist hún
ekki geta sagt um hvað hefði valdið
því að vélin stöðvaðist, en eitthvað
hefði gerzt. því hún hefði talið sig
eiga benzín til flugs í einn til tvo
tíma í viðbót. Gerði Kuortti ráð fyrir
því að vélin yrði flutt héðan. en
henni yrði ekki flogið Hún sagði að
skemmdirnar sem sáust á nefi og
..flöpsum" vélarinnar væru af völd-
um flutninganna með skipinu.til
Keflavíkur, en tók fram að hún hefði
ekkert skemmzt í lendingunni
En hvað gerðist eftir að hún var
lent?
— Þá beið ég og sendi út merki til
að flugvélar gætu miðað mig út og
fundið mig og ég verð að segja að
þið íslendingar eigið mjög góða
flugmenn því þeir brugðust mjög
skjótt við Siðan kom björgunarþyrla
og var áhöfn hennar mjog hjálpleg
og þægileg Það hefur liðið um það
bil einn tími frá því ég lenti í sjónum
og þar til mér var bjargað og þann
klukkutima var ég mjög sjóveik
Veltingurinn var mjöq mikill oq éq
Framhald á bls. 22