Morgunblaðið - 17.05.1977, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 17.05.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAI 1977 23 Oskar Sigurðsson, húsvörður—Minning Þau ótíðindi bárust mér til eyrna fyrir fáum dögum, að Óskar Sigurðsson, húsvörður við Breiða- gerðisskólann í Reykjavík, væri horfinn af heiminum. Hörmuleg fregn, en þó gleðifregn um leið, þvi að maðurinn var helsjúkur. Öskari mun sökum skapsmuna hafa orðið löng lega leið. — Hann var karlmenni til lundar og likama og þorði að ganga einn og óstuddur til hinna dimmu dyra. Öskar var f. að Bæjum á Snæfjallaströnd i Norður- ísafjarðarsýslu hinn 27. april 1911. — Foreldrar hans voru hjónin María Rebekka Ólafsd. og Sigurður Ólafsson, myndarhjón og með þeim jafnræði. María unni og kunni orðsins list til hinztu stundar og Sigurður var allra manna músikkalskastur. — Æskuheimili Óskars var því mik- ið menningarheimili og ætla ég að æskuheimili hans hafi staðið framarlega í þeim efnum við Isafjarðardjúp, þótt víða væri þar meiri auður i búi. Óskar var einn í hópi margra systkina. Hann hafði eins og þau, fleiri hendur til hvers sem gera skyldi, og heila til háskólanáms. — Hann valdi, eins og fleiri fátæklingar við Djúp, verklegt nám og var það honum fjötur um fót alla ævi, þvi að hugur hans stóð til annarra fræða, enda þótt honum léki allt i höndum eins og fyrr segir. Hann stundaði smíða- nám og varð auðvitað afbragðs- smiður, einnig stundaði hann nám við Búnaðarskólann á Hvanneyri og lauk þaðan prófi af mikilli prýði. — Hann stundaði búskap og smíðar um langt skeið, en hvorug þessara mennta entust honum ævilangt fyrir brauðstriti. Hann leitaði að einhverju sem hann aldrei fann. Hann réðst sem húsvörður að Laugarnesskólanum og síðar sem húsvörður við Breiðagerðisskólann. En Óskar átti sér „annan heim“ fjarri hversdagsstörfum, en skyldan þeim verkum, sem hann hafði þó ekki unað við. Hann náði tökum á landspildu sem hann ræktaði hart nær til fullrar hlítar og byggði þar bæ, sem var undra- verð eftirlíking af æskubæ hans. Hér var Óskar ekki að vinna fyrir gullnu gjaldi, því að hver króna, sem hann eyddi i þetta furðulega „fyrirbæri“ var kreist undan nöglum láglaunamanns. Fari þessi goðum vigði reitur og „Bæjarlfkingin" i óhirðu, grip ég til orða Bólu-Hjálmars: Rekkur mætur rýmdi hurt. rústin grætur eftir. Óskar kvæntist 13. okt. 1939 Ástu Tómasd bónda á Sandeyri á Snæfjallaströnd. Ásta var glæsi- leg kona. Hún andaðist fyrir fáum árum. — Þeim hjónum varð tveggja barna auðið; Þóris ljós- myndara i Reykjavík. — Hann er kvæntur Sonju Svansd. — og Ragnheiðar, en hún er gift Sigur- jóni Fjeldsted, skólastjóra og sjónvarpsþul i Reykjavik. Einnig gekk Óskar Tómasi Ellert syni Ástu, i föðrustað. Náin kynni tókust ekki með okkur Óskari, fyrr en hann réðst sem húsvörður við Breiðagerðis- skólann og við urðum samstarfs- menn. — Óskar náði þegar hylli samstarfsmanna sinna og hélt þeirri hylli til hinztu stundar. Óskar var harðgreindur maður, maður máls, sögu og ljóða. Ekki veit ég, hvort Óskar var ritfær, en mér þyki sennilegt, að svo hafi verið. Hitt veit ég, að Óskar var mikill ræðumaður. Siðasta ræðan, sem ég heyrði Óskar halda, var f til- efni af þvi, að gamall maður var að ljúka störfum við stofnun eina. — Ræðumenn voru margir. Oflof- ið keyrði úr hófi, eins gengur. — Óskari lét sér fátt um lofið finn- ast, en gat þess, að gamli maður- inn, sem verið var að hylla, hefði verið maður i orðs fyllstu merk- ingu. Ég kveð þennan vin minn og starfsfélaga með hans eigin orðum. — Óskar var maður. Hjörtur Kristmundsson fsak Eiríksson —Minning F. 8.3. 1899. D. 1.5. 1977. Síðbúin kveðja Af tveggja sálna sælu er sál hvers engils glödd en heimsbörn. sem hiinin gleðja til hæðanna verða kvödd. Það kann að þykja undarlegt að hefja minningargrein um látinn heiðursmann með brúðkaups- kvæði. En mér komu strax í hug þessar ljóðlínur Einars Bene- diktssonar, þegar ég frétti um andlát vinar míns ísaks Eiríks- sonar. Það er nefnilega erfitt að minnast hins Iátna, án þess að Kristínar konu hans sé jafnframt getið, svo samtvinnuð voru þau hvort öðru og svo mikil fyrirmynd var þeirra sambúð, þeim er fengu að kynnast. Ég ætla því hér með þessum fáu orðum ekki aðeins að sakna góðs vinar, heldur líka að minnast gleðistunda þeirra, sem við hjón- in nutum með þeim á heimilum okkar beggja. Kynni okkar stóðu ekki lengi. Ég held að ég hefi fyrst heyrt í ísaki í sima skömmu eftir að hann tók við rekstri útibús Kf. Rang- æinga á Rauðalæk. Þá hringdi hann oft til min að gera viðskipti fyrir bændur í sveitinni og mér fór að þykja vænt um manninn í símanum, ekki vegna viðskipt- anna, heldur vegna hans ljúf- mannlegu framkomu. Kannski var þetta gagnkvæmt. Mig langaði til að hitta manninn og bað hann að koma til min næst þegar hann 'yrði í bænum. Ég man alltaf þennan fyrsta fund okkar. Hlýr og góðlátlegur í framkomu, likt og röddin í síman- um. Við tókum spjall saman og fórum fljótt að tala um ættir Rangæinga. Kom þá upp úr kaf- inu að hann og kona min voru þremenningar og það var talin næg ástæða til að hittast sem fyrst aftur. Það var svo ákveðið að við hjónin kæmum við, næst þegar Pálína Guðjóns- dóttir—Kveðja Fædd 22 des. 1898 Dáin 8 maí. 1977. Nú, þegar amma okkar, Pálína Guðjónsdóttir er horfin sjónum finnum við sárt til þess að ef til vill hefðum við getað verið henni meira. Við munum alltaf muna bjarta, bliða brosið, hlýjuna og bjart- sýnina og hið góða og göfgandi fordæmi sem hún gaf okkur. Það veganesti ætti að endast okkur lengi. Það var mannbætandi að vera i nálægð hennar, alltaf jafn innileg, glöð og hress, hverju sem á gekk. Hún hafði fengið sinn skammt af erfiðleikum lifsins, ríf- lega útilátinn, en aldrei bognað, létt og glöð var hún til hinztu stundar. Guð blessi ömmu okkar og gefi henni góða heimkomu. Ástar- þakkir fyrir allt hið góða, sem hún ætið sýndi okkur. í orðskv. Salómons segir á ein- um stað: „Gott mannorð er dýr- mætara en mikill auður. Vinsæld er betri en silfur og gull“. Addý, Nanna og Alda. keyrt yrði austur og þá kynnt- umst við þeim báðum, ísaki og Kristinu, þessum tveim einstak- lingum með eina sál. Ekki var ætlunin að dvelja lengi í það skiptið en mig minnir að i þessari fyrstu heimsókn hafi ekki verið komist hjá að þiggja góðgerðir og brjóstbirtu. Siðan var sest við hljóðfærið og sungið. Þetta varð svo upphafið af góðum kynnum okkar. Þá fann ég það líka fyrst hve samrýmd þau hjónin voru og hve mikið tillit þau tóku til hvors annars. Það var einhverjú sinni að vin- ur minn einn sagði við mig i há- væru vinahófi að það væri undar- legt, hve hátt mönnum þyrfti að liggja rómur í vinahópi. Raun- verulega væru orð óþörf milli vina, það væri nóg að vera í nær- veru þeirra til að liða vel. Þannig leið mér líka ávallt vei í návist við ísak, enda var þar prúðmennskan og ljúfmennskan í forsæti. Við hjónin nutsag Kristin um nokkur ár. Eftir að reiðarslagið hafði dunið yfir sögðum við svo hvort við annað, að skömm væri að því að heimsækja ekki ísak oftar. En kannski var það með þegjandi samþykkti að við vildum bæði muna hann eins og hann var þegar allt lék i lyndi. Það er nefnilega ljúf minning. Á hlýjunni og ljúfmennskunni hefði ísak getað komist langt. Ég veit lika að hann kemst alla leið í hinu góða ferðaveðri sem hann fékk. Höfuðsmiðurinn mikli mun líka halda öllum hliðum opnum. Hetjunni sem eftir lifir sendum við hjónin dýpstu samúðar- og þakklætiskveðjur. Árni Gestsson. Daghjört Eiríksdótt- ir—Minningarorð í dag er jarðsungin frá Foss- vogskirkju Dagbjört Eiriksdóttir, Hverfisgötu 83, Reykjavik. Dagbjört var fædd i Efra- Langholti í Hrunamannahreppi 20 júlí 1914, dóttir Eiríks Jónas- sonar fjallkóngs og Guðnýjar Jönsdóttur. Hún var yngst þriggja sýstkina er lifa bæði systur sína. Þau eru Sigurður bóndi í Lundi í Mosfellssveit og Jóhanna, frú i Reykjavík. Á unga aldri tók móðursystir hennar, Pálina Margrét Jónsdóttir, hana í fóstur og gekk henni i móðurstað og minntist hún hennar alltaf með mikilli hlýju og virðingu. Árið 1934 giftist hún M'agnúsi Einarssyni sjómanni og siðar starfsmanni í Garða-Héðni. Þeim varð sjö barna auðið, fjórir synir og þrjár dætur. Þau eru Jón f. 1934, Erla f. 1935, Margrét f. 1936, Þráinn f. 1938, sem dó af slys- förum 14. 1. 1966. Magnea f. 1939, Páll f. 1947 og yngstur Eðvald f. 1954. Barnabörnin eru fimm. Dagbjörtu kynntist ég fyrir um tólf árum er ég kynntist konu minni Margréti, dóttur hennar, og fann ég fljótt að þar fór kona með mikla skapgerð og fórnfýsi. Alltaf mátti leita til hennar í nauðum og þá skorti ekki fyrirgreiðslu i vandamálum og réð þá höfðings- lund. Dagbjört var dul kona og bar ekki tilfinningar sinar á torg og sást það bezt er Þráinn sonur hennar og augasteinn lézt, þá tók hún því með karlmennsku og styrk sem einstætt var. Trúuð var hún þó hún flíkaði þvi ekki. Ðagbjört átti hin siðari ár við vanheilsu og striða, en kvartaði aldrei, svo fáir vissu um veikindi hennar. Hún lézt að heimili sinu 8. maí og fékk hægt andlát. Höfðingskona er gengin og mín fátæklegu orð duga litt til að minnast minnar kæru tengda- móður. Öll tregum við hana sárt, og minnumst með þakklæti samveru- stundarinnar i þessu lifi. Hvil hún i friði. Kristján Einarsson. Páll Reynir Kristjáns- son—Minningarorð Fæddur 3. mars 1954. Dáinn 7. ágúst 1976. Kveðja frá skólafélögum. Sá hörmulegi atburður átti sér stað þann 7. ágúst 1976 að slys varð um borð í skuttogaranum Dagnýju frá Siglufirði yst á Strandagrunni. Slysið varð er verið var að taka trollið inn og drukknaði Páll Kristjánsson frá Siglufirði. Páll var sonur hjón- anna Lilju Jóelsdóttur og Krist- jáns Rögnvaldssonar, Siglufirði. Páll var 22 ára er hann lést og hafði þá stundað sjómennsku í ótta sumur eða frá 14 ára aldri, en var við nám á veturna. Kynni okkar af Páli hófust er hann hóf nám i Menntaskólanum á Akureyri haustið 1970 en hann lauk stúdentsprófi þaðan vorið 1974. Um haustið hóf hann nám i liffræði við Háskóla Islands enda stóð hugur hans til náttúrufræða. Hafði hann lokið tveim þriðju af liffræðináminu er hann lést svo sviplega. Við sem þetta ritum vorum sam- ferða Páli i gegnum Menntaskóla og einnig völdum við sömu náms- ' leiðir er í Háskóla íslands kom. Höfðum við því fylgst að í námi i 6 ár og búið undir sama þaki i nokkur ár fyrst á Heimavist M.A. en siðar á Nýja-Garði í Reykjavík. Þekktumst við því mjög vel. Páll var góður drengur, rólegur og yfirlætislaus en engu að siður hafði hann sterk og að mörgu leyti sérstæð persónueinkenni sem allir minnast með söknuði. I dagsins önn og gleði skýtur minningunni um Pál heitinn oft upp í huga okkár og mörg voru þau atvik sem hann setti skemm- tilegan svip á, enda hafði hann ríka kimnigáfu. Sum tilsvör hans eru hreint ógleymanleg og eru raunar mál- tæki meðal þeirra sem Pál þekktu. Gott var að vinna með Páli jafnt utan skólans sem innan enda var hann óvenju lipur maður að eðlis- fari. Einungis góðar minningar eru tengdar nafni hans. Snemma hóf Páll að tefla skák og náði hann leikni í þeirri íþrótt sem allir muna sem við hann tefldu. Siðastliðið vor er við skólafélag- arnir héldum hver i sína áttina til vinnu í sumarleyfi hlökkuöu allir til að hittast aftur að hausti. Haustið kom en endurfundir okk- ar voru harmi blandnir. Páll var ekki lengur á meðal okkar og stórt skarð sem aldrei verður fyllt hafði myndast i raðir okkar. Við vottum foreldrum Páls, systkinum og öðrum vandamönn- um okkar dýpstu samúðarkveðjur um leið og við kveðjum þennan góða dreng og þökkum honum samfylgdina. Minningin lifir. K.S./J.B.K. Andófemönn- um hótað Belgrað. 13. maf. Reuter. YFIRVÖLD í Rúmeníu hafa hót- að þarlendum andófsmönnum að þeir verði ákærðir um samsæri og föðurlandssvik, láti þeir ekki af baráttu sinni gegn meintum brot- um á mannréttindum. Slík afbrot varða tvær greinar I refsilöggjöf landsins og er þar kveðið á um fimm til tuttugu ára fangelsisvist. Þá er haft eftir rúmenskum andófsmönnum, að sex prestar hafi nýlega verið handteknir fyrir að hafa undirritað skjal þar sem yfirvöldum er borið á brýn að standa fyrir viðtækum trúarof- sóknum í landinu. Hefði prest- unum síðan verið sleppt en þeir höfðu lofað því að tala ékki við útlendinga. Samkvæmt sömu heimildum segjast prestarnir hafa sætt misþyrmingum í fangelsisvistinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.