Morgunblaðið - 17.05.1977, Síða 26

Morgunblaðið - 17.05.1977, Síða 26
26 MOHGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1977 raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar til sölu fundir — mannfagnaöir Frá Hofi Höfum fengið nýjar gerðir af smyrnapúð- um og teppum. Tvistsaumur nýkominn. Höfum ótrúlegt úrval af alls konar hann- yrðavörum. Ath. 10% afsláttur fyrir ellilíf- eyrisþega og öryrkja. Hof, Ingólfsstræti 1, (á móti Gamla bíó) Blindraiðn Brúðuvöggur margar stærðir, hjólhesta- körfur, bréfakörfur, smákörfur og þvotta- körfur, tunnulag. Ennfremur barnakörfur, klæddar eða óklæddar á hjólgrind ávalt fyrirliggjandi. B/inc/ra iön. Ingólfsstræti 16, — sími 12165. Rækjupillunarvél og hörpudiskavél til sölu strax. Vélarnar seljast báðar sam- an eða hvor í sínu lagi. Vélarnar eru tilbúnar til flutnings og niðursetningar strax. Hagkvæm kjör Rækjuverksmiðjan h. f. Hnífsda/. Símar 94-3867, 3604 og 31 20. Skipseigendur Höfum verið beðnir að auglýsa eftir 40 — 60 lesta fiskiskipi Góð útborgun fyrir rétt skip. Frá Handknatt- leikssambandi íslands Ársþing sambandsins verður haldið dag- ana 10. og 1 1. júní n.k. Þingið verður sett þann 10. júní kl. 18.00 í Félagsheimili Seltjarnarness. Þau mál og tillögur sem leggjast eiga fyrir þingið þurfa að hafa borist skrifstofu sambandsins í íþróttamiðstöðinni Laugar- dal, fyrir 1. júní n.k. H.S.Í. veiöi Silungsveiði Höfum fengið til sölu veiðileyfi í Laxá og Kráká í Þingeyjarsýslu. Landssamband veiðifé/aga, sími 15528. nauöungaruppboö Nauðungaruppboð 2 og síðasta á m/b Guðbjörgu Elínu SH 53, þmglesin eign Péturs Péturssonar en talin eign ívars Þórhallssonar, fer fram við bátinn sjálfan Njarðvíkurhöfn miðvikudaginn 18. maí 1977 kl. 16. Bæjarfógetinn í Njarðvík. Borgarskip s/f., skipasala Grettisgata 56, Sími 12320, Ölafur Stefánsson hdl. Skúli B. Ólafs viðskiptafr. heimasími 1 2077 heimasími 23676 Nauðungaruppboð 2. og siðasta á fasteigmnni Hólagata 29 efri hæð Njarðvik, þinglesin eign Svanbergs Þórðarssonar, ferm fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 18. maí 1977 kl. 14. Bæjarfógetinn í Njarðvík. óskast keypt Söluturn Góður söluturn óskast til kaups. Tilboð sendist Mbl. merkt: Söluturn 2203. fyrir 20. þ.m. Til sölu Volvo dráttarbifreið FB 89 árg. '74 með ropson. Einnig Fruehauf malarflutningavagn 3ja öxla (þar af ein lyftihásing). Magn 21 m.3. Uppl. í síma 81305 eftir kl. 4. 22ja sæta M. Benz Óska eftir 21 til 22ja manna M. Benz til kaups. Uppl. í síma 83351 eftir kl. 1 9. Akureyri Almennur fundur um stjórnmálaviðhorfið verður haldinn I Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn 19. mai n.k. kl. 20.30. Alþingismennirnir Jón G. Sólnes og Lárus Jónsson og Halldór Blöndal varaþmgmaður mæta á fundinn og halda stutt fram- söguerindi og svara fyrirspurnum. Mætið vel og stundvislega. Sjalfstæðisfélögin á Akureyri. — Afstýrum Framhald af bls. 15 hafa haff undanfarin ár, ef þcssi herlt'iðinK hefði ekki yfir okkur dunið. Til að veiða þetta viðbótarafla- magn liefur nú þegar veriö fjár- fest í skipum og fiskvinnslustöðv- um vítt um landið, og fjármagnaö af hinu vandmeðfarna atvinnu- uppbyggingarfjármagni lands- manna, sem lagt er til af spari- fjáreigendum, fjárfestingarsjóð- um atvinnuveganna og í gegnum beina skattlagningu á borgarana. Hver er staðan í dag? Síminnkandi afli á sóknarein- ingu og þar með stóraukinn til- kostnaður á hvert fiskkfló, sem fiskað er í öll veiðarfæri hvar sem er við landið. Sú spurning hlýtur að vakna, hvort útgerðarmenn hafi snögglega orðið brjálaðir og stjórnmálamenn ekki fengið við neitt ráðið? Svarið er hreinlega ekki svo einfalt. Sannleikurinn liggur að mestu i vanþekkingu stjórnmálamanna á veiðíþoli fisk- stofnanna við landið og kunnáttu- leysi i meðferð þessara mála i samskiptum við útlendinga. En ég hef grun um að það kunnáttuleysi stafi fyrst og fremst af þekkingar- leysi á sögu og efnisatriðum máls- ins eins og þau lágu fyrir og hafa legið fyrir i upphafi timabilsins og það allt. Svo langt gekk þetta í sambandi við uppbyggingu tog- araflotans, að aflanum, sem hin nýju skip áttu að fiska vegna út- færslu landheíginnar, hefur alltaf ' eríð búið að ráðstafa meira og ntinna tíl útlendinga með samn- ingum eða aðgerðarleysi Gæzl- unnar. Tækja- og skipakosti Gæzl- unnar verður ekki hér um kennt, því skip, sem gátu leyst landhelg- isgæzlustörf af hendi voru alltaf til staðar í togaraflota lands- manna, og bezt sýndi sig i árangri skuttogarans Baldurs, sem náðist á lokastigi siðasta þorskastríðs undir frábærri stjórn Höskulds Skarphéðinssonar skipherra. Þegar litið er á þessar stað- reyndir sézt, að i algjört óefni er komið með bolfiskveiðar íslend- inga. Útgerðarmenn hafa nú loks- ins gengið fram fyrir skjöldu með Landssamband íslenzkra útvegs- manna í fararbroddí og krafist þess að stjórnvöld gérðu viðhlít- andi ráðstafanir i niðurskurði á okkar eigin afla svo ekki verði farið yfir hámarksaflamagn byggt á vísindalegum niðurstööum fiski- fræðinga. Því blasir við að leggja verði íslenzka fiskiskipaflotanum, sem sótt hefur i bolfiskinn strax á haustdögum. Eina tækifærið til þess að seinka þessu er að segja tafarlaust upp öllum núgildandi undanþágusamningum útlend- inga í íslenzkri fiskveiðiland- helgi. Hvað á það að þýða í þessari stöðu að láta í þaö skína við þá erlendu aðila, sem sækja hér eftir fiskveiðiheimildum, og er þar fyrst og fremst átt við Breta með Efnahagsbandalagið og Gunde- laeh sem grýlu, að hér sé hugsan- lega eitthvað út úr okkur hægt að pína. Hvernig hugsa menn sér að gera þjóðarkökuna raunverulega stærri, svo hægt verði að bæta afkontu almennings án óðaverð- bólgu eða atvinnuleysis, þess fólks, sem nú er farið að yfirgefa landið hundruðum saman. Á sið- astliðnu ári fluttust af landi brott 750 manns. íslenzk stjórnvöld eiga nú engra annarra kost völ en að byrja það uppbyggingarstarf sem verður að hefjast tafarlaust, ef íslenzk þjóð á að bjargast. Hatrammar deilur hafa nú risið út af þeim reitum, sem eru eftir í sjónum og eiga sjálfsagt eftir að haröna að mun. Ræktun, sem krefst fórna, kallar á samstarf og tillitssemi. Einkahagsmunasjón- armið landshluta eykur aðeins á vandann. Sliðrum sverðin inn- byrðis og hefjum ótrauðir rækt- unarstarfið. Fórnir verður að færa, en ef þeim verður jafnt dreift er ótrúlegt að nokkur sker- ist úr leik. Auðunn Auðunsson, skipstjóri. — Nixon-Frost Framhald af bls. 14 ætti kannski að segja af sér? Nixon: „Já, það gerði hann vafalaust. Ég vissi að hann talaði um það við Alexander Haig og Haldeman. Kissinger lenti mjög oft í útistöðum við aöra embættismenn og það var oft erfitt. T.d. lenti honum oft saman við William Rogers, sem var mjög erfitt fyrir mig því að við Rogers vorum mjög góðir vinir. Víð Kissinger vorum sam- starfsmenn en við vorurn ekki persónulegir vinir. Þeir voru báðir mjög stoltir og hæfir menn og því var óhjákvæmilegt að þeim lenti saman. Rogers var ekki á móti því að Kissinger sæi um leyniviðræður og samninga eins og um Vietnam, Kína, Rússland og Miðaustur- lönd, en það fór i taugarnar á honum að Kissinger skyldi fá allt hrósið og umtalið. Það var eðlilegt þvi að Rogers var stoltur maður. Ég held að hann hafi haft nokkuð til síns máls og ég held að Henry viðurkenni það lika. Rogers fékk ekki að vita allt sem var að gerast og hann var maðurinn, sem þurfti að standa opinberlega fyrir svörum. Henry kom oft til mín og við rifumst um þessi mál. Henry sagðist ekki segja Rogers frá hlutunum, því að hann myndi leka þeim. Ég sagði við Henry að hann vissi eins vel og ég að Rogers myndi aldrei leka, embættisbáknið i utan- ríkisráðuneytinu myndi leka, en ekki Rogers ef við segðum honum eitthvað i trúnaði. Henry þekkti Rogers ekki eins vel og ég gerði. Ég sagði hrein- lega við hann að utanríkisráð- herra Bandarikjanna yrði að fá að fylgjast með þróun mála, annað væri óhugsandi". Frost: Hótaði Kissinger að segja af sér ef John Conally yrði skipaður utanríkisráð- herra eftir Rogers? Nixon: „Hann sagði ekki slikt við mig, en ég hef lesið að hann hafi sagt það við aðra. Henry vissi að Connally væri mjög sterkur persónuleiki og réði yfirleitt hlutunum og það er ekkert óeðlilegt að hann hafi verið hræddur við það. Þetta var ein af ástæðunum fyrir því að ég valdi ekki Connally til að taka við af Rogers, en ég veit að Connally hefði orðið mjög góður utanrikisráðherra. Eftir að hafa staðið f deilum milli Kissingers og Rogers i 4 ár, var ég hreinlega ekki tilbúinn til að fara í gegnum önnur slík, svo að ég tók þá ákvöröun um að láta Kissinger fá það embætti líka“. Að lokum spurði Frost hvort Nixon sárnaði þau ummæli, sem höfð væru eftir Kissinger um hann. Nixon svaraði þvi til að persónulega sárnaði sér ekki, en fjölskyldu sinni hefði sárnað/ verulega. Nixon sagðist hafa sagt við Kissinger er hann hringdi í sig eftir að einhver ummæli hefðu birst og segði að þau væru tekin úr samhengi, að hann skyldi engar áhyggjur hafa af sér, áiit hans eða um- mæli um sig myndu engin áhrif hafa á samband þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.