Morgunblaðið - 17.05.1977, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 17.05.1977, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAl 1977 27 Páll G. Þorleifs- son-Minningarorð Páll G. Þorleifsson, starfsmaður hjá Olíuverslun Islands í Laugar- nesi, andaðist á Landakotsspítala 8. mai s.l., 66 ára að aldri. Páll fæddist á Staðarhóli i Siglufirði, 20. des. 1910, yngstur 11 barna þeirra hjónanna Þorleifs Þorleifssonar, skipstjóra frá Siglunesi og Valgerðar Kristjáns- dóttur. Sex systkinanna komust til fullorðinsára, fyrirmyndar fólk í alla staói, sem gott og ánægjulegt var að kynnast. Til Siglufjarðar fluttist Páll barn að aldri með fjölskyldu sinni og ólst þar upp. Móðir hans dó 1927, en faðir hans og bróðir, Þorvaldur, ásamt þriðja manni, drukknuðu i róðri 3. des. 1933 og var það mjög hörmulegt slys. Eftir það héldu systkinin heimili saman með Dýr- leifu móðursystur sinni, sem lengi hafði verið hjá þeim. Tvö systkinanna eru enn á lífi, Guð- finna og Halldór, bæði búsett á Siglufirði. Innan fermingaraldurs kynnt- ist Páll sjómennsku undir hand- leiðslu föður síns, en 15 ára réð hann sig á skip til vandalausra og um tvitugt lauk hann fiskiskip- stjóraprófi hinu minna, á Akur- eyri. Stundaði hann síðan sjóinn eingöngu um 15 ára bil, oftast sem stýrimaður á fiskiskipum. Ég kynntist Páli fyrst, er hann giftist mágkonu minni 30. mai 1936, Elku Guðbjörgu Þorláks- dóttur, frá Hafnarfirði. Hann var afar heimakær og þau hónin sér- staklega samhent um alla hluti. Bar hið einstaklega gestrisna og Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast I síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu linuhili. t Móðir okkar ÞÓRHILDUR HANNESDÓTTIR frá SumarliSabæ, Álfaskeiði 56, Hafnarfirði andaðist 15. mai i Landakots- spitala Börn hinnar látnu. S. Helgason hf. STEINIÐJA llnhoia 4 Slmar 24677 og U254 myndarlega heimili þeirra um það ljósan vott, bæði í sjón og reynd, þar var ætíð gott að korna og margur er sá einstæðingurinn, sem leitað hefur styrks og hvíldar hjá þeini hjónum á liðnum áratug- um. Páll var glaðlyndur jafnaðar- geðsmaður, traustur og grandvar í allri sinni hegðan, afar vel lióinn af samstarfsmönnum og naut óskoraðs trausts yfirmanna sinna, hvar sem hann vann. Einstaklega heilbrigð og notaleg kímnigáfa, sem Páll bjó yfir, kom oft frarn i vinahópi og brást aldrei, þegar börn komu við sögu, enda rnikill barnavinur og hændust þau að honum. Páll og Elka eignuðust eina dóttur, Valgerði, sem er gift Hreini Bergsveinssyni, fulltrúa hjá Samvinnutryggingum og eiga þau 5 börn Við hjónin þökkum kærum vini samfylgdina og allar góðu stund- irnar, sem víð höfum átt saman og biðjum góðan Guð að blessa minn- ingu hans og varðveita sálu hans að eilífu og megi hann einnig styrkja konu hans og fjölskyldu í sorg þeirra og söknuði. Ólafur Tómasson. + Móðir okkar, tengdamóðir, fósturmóðir og amma INGUNN ÁRNADÓTTIR frá Stórahrauni, andaðist í Landspítalanum 1 5 maí s I Elln Kristjánsdóttir, Árni Kristjánsson, Kristine Eide Kristjánsson, Áslaug Sigurðardóttir, Guðmundur Árnason, Elsa og Einar Benediktsson og barnabörn. + Móðir okkar INGVELDUR EINARSDÓTTIR, frá Garðhúsum, Grindavfk, andaðist í Landakotsspitala sunnudaginn 1 5. maí Ólafia R. Sigurðsson Sigurður Rafnsson + Eiginkona mín SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR, Melgerði 20, andaðist i Borgarspitalanum 14 mai Fyrir mina hönd og annarra vandamanna Pétur Lárusson. + Eiginkona min, móðir og tengdamóðir ÞÓRUNN ÞORKELSDOTTIR EINARSSON. andaðist á heimili sinu i New York 1 3. mai. Edward Einarsson, Eirtk Þór Einarsson. Anna Kristfn Einarsson. ViSar Jónasson. + Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUORÚN GUNNARSDÓTTIR, ÁlfaskeiSi 27. HafnarfirSi, andaðist að Sólvangi 1 5 maí Magnús Haraldsson. Sigriður Magnúsdóttir. Sveinbjörn GuSbjarnason, Haratdur Magnússon. Margrét Pálsdóttir, Gunnar Magnússon. GuSbjörg Á. Magnúsdóttir, Sveinn ÞórSarson og barnabörn. + Elskuleg eiginkona mín. dóttir min, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, SIGURLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR, Vorsabæ 7, sem andaðist að morgni hins 10 mai, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 18 maikl 1:30 Stefán ASalbjörnsson. Helga Einarsdóttir. Fanney Stefánsdóttir. Laufey Ninna Stefánsdóttir, Eygló Stefánsdóttir. ASalbjörn Stefánsson, GuSmundur Helgi Stefánsson, SigurSur Ingi Sigmarsson. Magnús Ólafsson, Gunnar Erlendsson, Anna Björg Stefánsdóttir. GuSni Falur Stefánsson, barnabörn og systkini hinnar látnu. + INGIBJORG BJÖRNSDÓTTIR (frá Auðkúlu) Glóru, Hraungerðishreppi, lézt á Landspitalanum föstudaginn 1 3 mai. Þórarinn Sigmundsson og börnin. + Eigmkona mín, móðir okkar, fósturmóðir og tengdamóðir sigþrúður pétursdóttir andaðist 14 mai Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaq 20 mai kl 10 30 Gissur Pálsson Pétur Kristjónsson Aðils Guðbjörg Kristjónsdóttir Einar Kristjánsson Sigrún Gissursdóttir Sigurður Jörgensson Margrét Gunnlaugsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á Minmngar- sjóð Bryndísar Gissursdóttur Minningarspjöld fást í Bókabúð Æskunn* + Elskuleg dóttir mm, eigmkona, móðir. systir, mágkona og tengdadóttir SVANHILDUR SALBERGSDÓTTIR Leirubakka 18 verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 18 maí kl 3 e h Blóm vinsamlega afbeðin, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Hjartavernd. Ingiríður Vilhjálmsdóttir Sigurður Mar Kristín Mar Birna Mar Steinunn Mar Ásthildur Salbergsdóttir Friðrik Söebech Vilhelmfna Salbergsdóttir Jóhann Hálfdánarson Guðmundur Salbergsson Karólína Árnadóttir Cæsar Mar Jóhanna Mar + Útför fröken RAGNHEIOAR JÓNSDÓTTUR fyrrverandi skólastjóra Kvennaskólans i Reykjavik fór fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 13. mai i kyrrþey að ósk hinnar látnu Þökkum sýnda samúð Vandamenn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ÞÓRÐAR ST. BENEDIKTSSONAR Fagradalsbraut 1 1, Egilsstöðum. Steinunn Guðnadóttir Benedikt G. Þórðarson Pétur F. Þórðarson Guðný H. Þórðardóttir Helgi J. Þórðarson Steinarr Þ. Þórðarson Guðrún M. Þórðardóttir Védís K. Þórðardóttir Guðrún Ólafsdóttir Óli J.K. Magnússon Svanborg Björnsdóttir Magnús Kristjánsson og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför. JÓNS RAGNARS HANSEN, frá Skutulsey, Lindargötu 1 3. Sérstakar þakkirfærum við læknum og hjúkrunarliði Borgarspítalans Steinunn Helgadóttir, Tómas Rögnvaldsson. + Þökkum af alhug sýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför GUÐBJARGAR BRYNDÍSAR JÓNSDÓTTUR frá Skógi. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks og allra þeirra sem heimsóttu hana og veittu henni gleðistundir á langri sjúkrahúsveru F h systkinanna, Halldór Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.