Morgunblaðið - 17.05.1977, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAt 1977
29
fclk í
fréttum
‘VA»A~ÍV
§* 52*3?^ „
!t 5"/-’7£^2í'~ ^‘SpSi^S? Zs^SsgS gS?-
43Þí*V
!|fc~l iii ~ ÍÍ^ÍC^.':"
+ t danska blaðinu Aktuelt
rákumst við á grein um fimm
unga arkitekta og hugmyndir
þeirra um það, hvernig menn
eigi að búa. Myndir fylgdu og
kom þar fram að einn pilturinn
ber fslenzkt nafn, heitir
GUÐMUNDUR GUNNLAUGS-
SON. Með svolftilli eftir-
grennslan komumst við að því
að þetta er sami pilturinn, sem
komst f blöðin þegar hann var f
barnaskóla og var með tilrauna-
starfsemi með útungun á ha nu-
eggjum við rafljós f
Hafnarfirði. Seinna tók Guð-
mundur stúdentspróf frá MR
og er nú f arkitektanámi í
Kunstakademiets Arkitekt-
skole f Danmörk. En hann var
einn af þremur sem hlaut eftir-
sóttan námsstyrk frá Dansk
Islansk Samfund. Guðmundur
er Hafnfirðingur, sonur Gunn-
laugs Ingasonar og Helgu Guð-
mundsdóttur.
Hugmyndir ungu arkitekt-
anna fimm um bústaði eru skv.
Aktuelt, í þá átt að nú skulum
við fara að færa okkur aftur
niður á jörðina og búa í lágri
þéttri byggð, leggja meiri
áherzlu á tengsl og félagsskap
fbúanna en nú er. Með því að
pakka húsunum, sem þó mega
ekki vera hærri en 3—4 hæðir
þéttar saman, megi fá rými til
sameiginlegra nota svo sem
grænmetisræktunar og úti-
vistar. Öll byggðin skuli vera
sveigjanlegri, þannig t.d. að
ungu hjónin geti fengið að
byggja lftil kjarnahús, og bæti
svo 1—2 herbergjum við sfðar,
þegar fjölskyldan stækkar.
Einnig megi blanda vinnustöð-
um með léttum iðnaði innan
um b.vggðina. Sem sagt að gera
húsin minni og manneskju-
legri, og hafa fleira sameigin-
legt. T.d. sé spurning um hvort
hver íbúð þurfi sína eign frysti-
kistu, eigin þvottavél og öll
tómstundatæki út af fvrir sig.
Þetta megi allt hafa f samegin-
legri miðstöð hverfisins. Auð-
vitað skuli hver fjölskylda hafa
sfna eigin íbúð með eldhúsi,
baði o.s.frv., en hverfið sé sam-
an sett af mismunandi teg-
undum íbúða, svo kynslóðirnar
eigi kost á að búa nálægt hver
annarri og fólk geti verið meira
saman. eins og áður var meðan
á heimilunum voru 15—20
manns.
Brey tingar á skipulagi og verk-
efnum Æskulýðssambandsins
10. þing Æskulýðssambands ís-
lands var haldið á Hótel Loftleiðum
s.l. laugardag, 30. apríl. Þingið sam-
þykkti ný lög fyrir Æskulýðssam-
bandið. sem mun einbeita sér að
samskiptum við hliðstæð samtök í
öðrum löndum.
Jónas Sigurðsson, fráfarandi for-
maður, setti þingið Þingforseti var
Jónas Guðmundsson, SUJ. og þingrit-
ari Þórður Ingvi Guðmundsson. SHÍ
Jónas Sigurðsson flutti skýrslu
stjórnar. og Elías Snæland Jónsson,
formaður utanríkisnefndar. flutti
skýrslu um erlend samskipti ÆSÍ síð-
ustu tvö árin Garðar Sveinn Árnason.
gjaldkeri skýrði fjármál og reikninga
Meginverkefni þingsins var að fjalla
um drög að nýjum lögum fyrir Æsku-
lýðssambandið. og voru þau einróma
samþykkt Lögin gera ráð fyrir veiga-
miklum breytingum á verkefnum og
skipulagi Æskulýðssambandsins
Lagabreytingarnar fólu m.a í sér, að
ný sambandsstjórn tekur við þeim
verkefnum. sem stjórn og utanríkis-
nefnd hafði áður. Öll aðildarsambönd
ÆSÍ, sem nú eru 12 talsins, eiga
fulltrúa í sambandsstjórninni. en kjör-
tímabil hennar er tvö ár.
í samræmi við breytt verkefni Æsku-
lýðssambandsins fjölluðu samþykktir
þingsins eingöngu um erlendu sam-
skiptin. en þingið taldi mikilvægt. að
Æskulýðssambandið ynni að því að
auka möguleika íslensks æskufólks á
að taka virkan þátt í norrænu og al-
þjóðlegu æskulýðssamstarfi segir í
frétt frá ÆSÍ
Einhugur var um stjórnarkjör sem
aðrar gerðir þingsins. en Elías Snæ-
land Jónsson, blaðamaður, var kjörinn
formaður Æskulýðssambandsins
Norræn samkeppni um
Norrænt hús í Færeyjum.
Norræna ráðherranefndin og landsstjórn Færeyja hafa efnt til opinberr-
ar samkeppni um Norrænt hús í Færeyjum.
Hið nýja Norræna hús verður í Þórshöfn og á að geyma húsakynni fyrir
fjölþætta menningarstarfsemi,— allt frá leiksýningum, hljómleikum og
listsýningum til þjóðdanssýninga og ýmis konar fundarhalda.
í dómnefnd eru: Jan Stiernstedt skrifstofustjóri, Svíþjóð, Danjál Paulli
Danielsen landsstjórnarmaður, Færeyjum, Jacob Blegvad arkitekt
M.A.A. Danmörku, Ragnvald Bing Lorentzen arkitekt MNAL, Noregi og
Kristian Gullichen arkitekt SAFA. Finnlandi.
Upphæð verðlauna er samtals 175.000 - d. kr., þar af verða 1.
verðlaun a.m.k. 60.000 - d. kr.
Beiðni um útboðsgögn eru til afhendmgar hjá Arkitektafélagi íslands
og öðrum norrænum arkitektafélögum.
Tillögum skal skilað í síðasta lagi 1 5. september 1 977.
Búist er við að úrskurður dómnefndar liggi fyrir 8. október 1 97 7.
Ódýr
ÞAKMÁLNING
LITUM.
KR. 550-
PR.LÍTRI
MEÐ SÖLUSKAHI
Siðumúla 15 simi 3 30 70
„Hvað á ég að gera, ég
er umkringdur fíflum?”
+ Enski söngvarinn og
popp-stjarnan Elton John
varð skrítinn á svipinn þeg-
ar enska prinsessan Alex-
andra spurði hann eftir
konsert sem hann hafði
haldið fyrir góðgerðastofn-
un hvort hann notaði
kokain eða önnur eiturlyf
til að hressa sig. Það hefur
ekki verið látiS uppi hverju
hann svaraði, en í jakka-
kraganum bar hann merki
sem á stóS: „Hvað á ég að
gera, ég er umkringdur fífl-
um?"
•s -
Fiskiskip
Höfum til sölu 120 brt. stálfiskiskip,
smíöaö árið 1971, og 29 brl. tréfiskiskip,
smföað áriö 1973. Höfum fjársterkan
kaupanda aö 15—20 brt. bát.
Lögfræðiskrifstofa
Þorfinns Egilssonar hdl„
Vesturgötu 16, Rvk.,
sími28333