Morgunblaðið - 17.05.1977, Side 33

Morgunblaðið - 17.05.1977, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAl 1977 33 JT' VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI 2JL------------ ar þiö sögðuð frá og á sund var yfirleitt aldrei minnst, tæki þessi eini kappi ekki þátt i því. Nú eru kapparnir 3—4 af báðum kynjum samanlagt og sund ekki til nema þetta fólk sé með. Er þetta rétt og iþróttamannslega að farið? Ef þið fréttamenn getið ekki lagt á ykk- ur að fylgjast betur með sund- íþróttinni og þvi, sem er að gerast þar, má ekki ráða einn í viðbót, gamlan sundmann frá árunum '69—'74, sem sæi um allar fréttir af sundinu fyrir alla fjölmiðla? Ekki þyrftu þá launin að vera svo há, miðað við laun sundþjálfara yrðu þau e.t.v. — já þegar aurar væru til — svona tuttugu þúsund kr. á mánuði eða bara ánægjan af starfinu. Það er ósk min og ábyggilega ótal margra annarra, að úr rætist og við fáum að sjá i blöðum og heyra í útvarpi og sjá og heyra i sjónvarpi vikulega fregnir af sundiþróttinni. Þar er alltaf eitthvað að gerast. Þakka orðið Elín Ólafsdóttir.“ Hér þykir Velvakanda íþrótta- fréttamennirnir aldeilis skamm- aðir og gefið i skyn að þeir stígi ekki í vitið. Það er að áliti Velvak- anda algjör misskilningur og út í hött að halda þvi fram. Um vinnu- brögð þeirra varðandi val á frétt- um til að gera skil þekkir Velvak- andi ekki svo gjörla, en trúað gæti hann að ekki væri öllu hægt að sinna og stundum verði að taka það framyfir, sem vitað er að fleiri hafa áhug á og fleiri eru tengdir. Að öðru leyti er þeim frjálst að svara sjái þeir ástæðu til þess. 0 Ein vinna fyrir tvo? „Kæri Velvakandi. Ég er ein af eldri borgurum, sextug, og þó ég sé ekki ein hinna öldruðu þá á ég samt við sama vandamál að stríða og þeir, þar sem ég er ekki fær um að vinna heilsdagsvinnu, en hefi heilsu og þrek til þess að vinna hálfsdags- starf. Og til þess langar mig, en það er alveg sama hvar ég reyni að fá slika vinnu það er alls staðar sama svarið: Nei, þvi miður, við viljum aðeins hafa fólk allan dag- inn. Maðurinn minn er orðinn full- orðinn og getur þvi ekki unnið eftirvinnu og við lifum því ein- ungis af hans dagvinnulaunum og þau eru það lítil að endar ná ekki saman og þykir okkur það anzi hart að geta ekki t.d. farið í sum- arfri eða leyft okkur að fara í leikhús þegar okkur langar til. En slikt gætum við ef ég ynni eitt- hvað úti. Mér finnst að atvinnu- rekendur og stofnanir ættu að gera meira af þvi að skipta störf- um eins niður í störf fyrir 2 aðila og fá fleiri húsmæður út á vinnu- makaðinn. Ég þekki ótal húsmæð- ur sem stendur svipað á fyrir. Eldri kona.“ Svo er hérna dálítið til útvarps- ins. Okkur miðaldra fólki vantar meira af léttri tónlist, sérstaklega með eftirmiðdagskaffinu eins og var hér áður. Okkur finnst alltof mikið af þungri tónlist og popp- rnúsík." Þessir hringdu . . . 0 Forgangurinn til á Norðurlöndum Forráðamenn Strætisvagna Reykjavfkur hafa haft samband við Velvakanda og vildu benda á að á Norðurlöndunum er það við- ast komið í lög að almennings- vagnar hafi forgang. Mun svo vera i Svíþjóð, Danmörku og Nor- egi, en ekki í Finnlandi, í hinum hefði þetta verið komið í lög fyrir nokkrum árum. Þá sögðu þeir að þessi forgangur væri vitanlega ekki hugsaður þannig að strætis- vagnstjórarnir æddu beint út i umferðina, heldur að þegar merk- ið hefði verið gefið væri hægt að ætlast til þess að öðrum bifreiðar- stjórum að þeir gæfu vögnunum SKÁK tækifæri til að komast inn á ak- brautir frá biðstöðvunum. Þeir yrðu að halda sinni áætlun og það mætti t.d. benda á þann forgang, sem hinn almenni bifreiðarstjóri hefði, að geta farið niður á Skúla- götu þegar mikil og hæg umferð væri um Laugaveg. Það gætu strætisvagnarnir ekki. Þá má einnig vikja að þvi að i vögnunum eru frá 10 og upp i 50 farþegar, en 1,2 til 1,4 í einkabifreiðum að meðaltali og væri það sjálfsagt dæmi um lýðræði að geta veitt þennan forgang. Þetta voru helztu atriðin i sjón- armiðum hjá forráðamönnum S.V.R. Umsjón: Margeir Pétursson URSLITIN í viðureign skáksnill- inganna Tals, Sovétríkjunum, og Portisch, Ungverjalandi, á milli- svæðamótinu i Biel sl. sumar höfðu mikil áhrif á gang mótsins. Hér gefur að líta lok skákarinnar. Tal, sem hefur hvítt og á leik, gerir út um skákina í einu vet- fangi: 37. Rh6! (En ekki 37. Rd6 — Dc6+), svartur gafst upp, því að hann á enga vörn við hótuninni 38. Dg8 + !! — Hxg8, 39. Rf7 mát. HÖGNI HREKKVÍSI Anægjulegt að sjá að f brjðsti hans bærast þrátt fyrir allt viðkvæmni og hjartahlýja. Fullkoinió philips verkstæói Fagmenn sem hafa sérhæft sig í umsjá og eftirliti með Philips-tækjum s'á um allar viðgerðir. heimilistæki sf SÆTÚNI 8. SÍM1:1 3869. Hjólhýsi Vel með farið hjólhýsi Cavalier 4/40 GT til sýnis og sölu í porti Kassagerðar Reykjavíkur. Nánari uppl. gefnar á afgreiðslunni. Kassagerð Reykjavíkur, Kleppsveg 33. Við útvegum allar tegundir þorskaneta fyrir næstu vertíð. Lágt verð. ILiJián G. GiJaAnnF J Hverfisgötu 6, sími 20000. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐI MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.