Morgunblaðið - 17.05.1977, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 17.05.1977, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAl 1977 f------------------------ Dansktmótá sænskri grund FYRSTA opinbera heimsmeistaramótið í badminton var haldið í Málmhaugum f Sviþjóð fyrir nokkru. Það kann e.t.v. að þykja furðulegt, að ekki skuli fyrr hafa verið haldið heims- meistaramót i iþróttagrein, sem stunduð hefur verið í 250 ár. Ástæðan erfyrst og fremst sú, að til þessa hefur verið litið á „All England" mótið sem óopinbera heimsmeistarakeppni og hafa sigurvegarar í því móti jafnan verið nefndir heimsmeistarar, en „All England" hefur verið haldið árlega siðan 1899. Á mótinu i Málmhaugum voru saman komnir 135 beztu badmintonleikmenn 26 þjóða, þar af 2 frá íslandi Mótið fór fram í „Isstadion" sem er iþróttahöll, sem tekur 6800 manns f sæti. Alls voru leiknir 179 leikir á þeim 5 dögum sem mótið stóð yfir. Þáttur íslands. Ekki verður annað sagt en að fslensku þátttakendumir hafi staðið sig með sóma á þessu fyrsta HM, en þeir Sigurður Haraldsson og Jóhann Kjartansson sigruðu báðir and- stæðinga sína í fyrstu umferð í einliða- leik eins og kunnugt er af fréttum en töpuðu hins vegar i tvíliðaleik í þokka legum leik í annarri umferð mættu þeir ofjörlum sinum, en sýndu ágæt tilþrif. sérstaklega Sigurður i leik sínum við Conzales Vonbrigði Svía Það urðu Svium mikil vonbrigði að þeir, sem mestar vonir voru bundnar við, þeir Kihlström og Fröman, voru slegnir út í undanúrslitum tviliðaleiks- ins, en þeir urðu m a All England- meistarar i fyrra og sigruðu á NM i Reykjavík i nóv s I Þó bætti Kihlström nokkuð fyrir með því að vinna annan af efstu mönnum mótsins, Lien Swie King frá Indónesiu, og komast þannig i undanúrslit i einliðaleik Helsta von Svía i einliðaleik var þó Sture Johns- son, en hann tapaði fyrir Flemming Delfs í fjórðungsúrslitum Danir sigursælir Danir unnu þrjár greinar af fimm á þessu fyrsta HM og skipuðu sér þar með á bekk sem fremsta badminton- þjóð í heimi i dag Þau flemming Delfs og Lene Köppen, sem sigruðu i einliða- leik, og Steen Skovgaard. sem sigraði f tvenndarleik ásamt Lenu, urðu þjóðar- hetjur i heimalandi sinu og voru sér- staklega hyllt f K B -hallen í Kaup- mannahöfn við heimkomuna ásamt þeim Svend Pri. sem fékk silfur i einliðaleik og þeim Inge Borgström og Piu Nielsen sem fengu brons i tvíliða leik. Hvar er Lena? Áður en úrslijaleikirnir hófust á sunnudaginn gengu keppendur fylktu liði inn í salinn þar sem þeir voru kynntist fyrir Karli Gústafi XVI, Svikon- ungi Hinir fjölmörgu dönsku áhorf- endur tóku fljótt eftir því, að þar vatn- aði Lene Köppen í hópinn — en hvar var hún spurðu þeir sjálfa sig Er hún slösuð? o.s.frv — Nei, hún var á hlaupum eftir hinum löngu göngum hallarinnar til að hita upp. það var henni mikilvægara en að heilsa kóngi. enda ætlaði hún sér að heilsa honum með gull um hálsinn þegar hún tæki við verðlaunum sínum eftir leikmn Flemming næstum dæmdur úr leik. Flemming Delfs lenti strax í sinum fyrsta leik i hinum mestu erfiðleikum með Ray Stefens frá Englandi sem vann fyrstu lotuna 15—7 en Delfs marði aðra lotuna 17—15 og þurfti því oddalotu Samkvæmt lögum fengu kapparnir 5 min hvild en þegar Delfs var ekki kominn eftir 8 mín vildi dómarinn dæma Stevens sigurinn Yf- irdómari mótsins, Ole Mertz (Dan ), var tilbúinn til að staðfesta úrskurðinn en þá birtist Delfs og bar því við að búningsherbergin væru svo langt i burtu Fyrir eindregin tilmæli Stevens var leiknum haldið áfram og sigraði þá Delfs 15—6 Eftir leikinn sagði Stevens, að það væri ekki rétta leiðin til að verða heimsmeistari að vinna á þann hátt sem honum var innan hand- ar — sannur iþróttaandi það Lene Köppen stjarna mótsins. Fyrir útslitaleikinn sagði Lene að hún væri hvergi hrædd við Gilks. „Ég hef mætt henni tvisvar i ár og unnið hana í bæði skiptin og ætla mér það aftur nú. þó svo að hún hafi átt mjög góðan leik á móti Yuki (Japan) i undanúrslitunum Ég er í toppformi," sagði þessi gleð- lega stúlka sem við sáum vinna þrefalt hér NM i Reykjavík í haust Auk þess sem hún stóð við þessi orð sin var hún ..fyrirliðinn" í úrslitaleiknum í tvenndar leik þar sem hún hvatti og stappaði stálinu í hinn unga meðspilara sinn, Steen Skovgaard. og á lokamínuðtum leiksins gerði hún hreinlega út um hann upp á eigin spýtur — stórkost- legt Pri hættir í einliðaleik Eftir úrslit einliðaleiksins sagði Svend Pri, að hann hefði spilað sinn sfðasta einliðaleik Næsta ár ætla ég að einbeita mér að tvíliðaleik og spila með hinum unga og stórefnilega Morten Frost," sagði þessi 31 árs gamli badmintonspilari, sem undanfarin 10 ár hefur haldið nafni Danmerkur á toppnum í badminton í heiminum frek- ar en nokkur annar Það var mál manna, að hann hefði spilað þetta mót mjög vel þó svo að hann réði ekki við Delfs í úrslitunum Úrslitaleikirnir Úrslitaleikirnir fóru fram á sunnudag eins og áður sagði fyrir hinu geysistóra húsi þéttsetnu og voru Danir þar mjög áberandi sem von var Fyrsti heimsmeistari í badminton varð hinn 24 ára gamla tannlækna- stúdína Lene Köppen, en hún sigraði Gillian Gílks (Engl ) í hörkuspennandi úrslitaleik 12—9. 12—11 þar sem meira bar á taugaspennu en góðum leik Þessar tvær stúlkur höfðu þó sýnt frábæra leiki í mótinu, en Gilks sigraði ma japönsku stúlkuna Hiro Yuki 11—4 og 11 — 7, en þessar þrjár stúlkur voru fyrirfram taldar sigur- stranglegastar í mótinu Eftir leikinn fékk gleðin lausan tauminn hjá heims- meistaranum og á meðan gleðitárin streymdu niður kinnarnar hljóp hún um allan salinn með her Ijósmyndara á eftir sér og kom við á áhorfendapall- inum þar sem unnusti hennar. Hans Röpke (þekktur badmintonspilari), varð fyrstur til að óska henni til hamingju með þennan stóra sigur Þegar fyrir úrslitaleikinn f einliðaleik karla var það Ijóst, að fyrsti heims- meistarinn í þessari grein yrði danskur þar sem þeir áttust við þeir Flemming Delfs og Svend Pri Hafði Pri á orði. að sér fyndist hálf einkennilegt að vera að fara að spila til úrslita f heimsmeistara- mótinu gegn manni sem hann hefði spilað við daglega síðasta mánuðinn fyrir mótið Hann sagði að úrslitin réðust af því hvor væri betur fyrir kallaður Delfs sagði að leikar stæðu 5—3 sér í hag eftir mót vetrarins, en var þó ekkert alltof sigurviss, en hvergi hræddur Það kom síðan í Ijós, að það var Delfs sem var í stuði, hann bókstaf- lega lék sér að Pri og sigraði 15—5, 15—6 Þrátt fyrir að Pri fengi þó nokkur tækifæri á að beita sínum frægu smössum dugði það skammt því Delfs hreinlega „hirti" þau flest. Effir leikinn sagði Pri, að hann hefði fundið það strax eftir 3—4 bolta að hann hefði enga möguleika svo sterkur var Delfs Flemming Delfs, sem er 25 ára, kórónaði með sigri sínum einstaklega glæsilegt keppnistímabil en áður hafði hann sigrað á DM, NM. EM, All Eng- land auk þess á nokkrum alþjóðlegum stórmótum. í einstaklega skemmtilegum úrslita- leik f tvfliðaleik kvenna sigruðu jöpönsku stúlkurnar Etsuko Tognoo og Emiko Ueno hollensku stúlkurnar Joke van Bausekom Bausekom (býr í Dan- mörku) og Marjan Ridder-Luesken 15—10, 15—11 í þessum leik sýndu japönsku stúlkurnar frábæra tækni og snerpu, var t d með eindæm- um hvernig þær náðu boltanum sem manni sýndist vera f gólfinu eftir hin föstu smöss þeirra hollensku Eftir leikinn sögðu þær Tognoo og Ueno að þær hefðu unnið þennan leik með hraðanum fyrst og fremst og hefði það hjálpað þeim einnig að þær voru hvergi hræddar þar sem þeim hefði tvisvar í vetur tekist að vinna þessar reyndu og frábæru badmintonkonur. í al-indónesískum útslitaleik í tvfliða- Að loknum úrslitaleiknum í einliðaleik létu þeir eins og beztu vinir Flemming Delfs, sem sigraði, og Svend Pri, en þessir tveir Danir hafa háð marga heiftúðuga orustuna á badmintonvellinum. ÉG ER HEIMSMEISTARI — Lena Köppen og Sten Skovgard fagna innilega sigrinum f tvenndarkeppni og Skovgard hefur fleygt spaða sfnum upp f rjáfur fþróttahallarinnar. (Ljósm. Si. Agúst). leik karla sigruðu þeir Tjun Tjin og Johan Wahydi þá Christian og Ade Chandra f ójöfnum leik og lítið spenn- andi 15—6, 15—4 Eins og áður sagði þótti Svíum súrt í brotið að þeim Kihlström og Fröman tókst ekki að komast í úrslit en einnig var búist við miklu af þeim Delfs og Skovgaard sem léku nú saman f sínu fyrsta móti. Síðasti og jafnframt skemmtilegasti úrslitaleikur þessa fyrsta HM í badmin- ton var tvenndarleikur. Þar áttust við þau Steen Skovgaard og Lene Köppen frá Danmörku og hins vegar Derek Talbot og Gillian Gilks frá Englandi Þegar staðan var 14—12 í fyrri lot- unni fyrir Danina sem þá höfðu boltann í seinni sendingu náði Talbot góðu smassi sem öllum sýndist „vera inni" Þá brá hins vegar svo við, að Ifnu- vörðurinn dæmdi boltann úti Talbot brást þá hinn versti við og gerðist allhvassyrtur við dómarann og línu- vörðinn og endaði þessi rimma þann- ig, að yfirdómari mótsins „sagði línu- erðinum upp" á staðnum, en dómurinn var látinn standa í seinni lotunni höfðu Danirnir töglin og hagldirnar f leiknum þar til staðan var 10—3 en þá fóru þau ensku að sækja á og voru taugarnar þá alvarlega farnar að bila hjá Skovgaard og kom upp staðan 1 3— 1 0 og 1 3— 1 3 og var þá hækk- að um 5 punkta en aftur kemur upp jöfn staða þegar aðeins einn punktur var eftir, 17—17. Þá gekk boltinn þrisvar á milli andstæðinga án þess að öðru liðinu tækist að gera út um leik- inn. í „rafmögnuðu andrúmslofti" tókst loks þeim dönsku að sigra við mikinn fögnuð áhorfenda Það kom vel f Ijós hversu taugar Steen Skovgaards voru farnar að bila þegar hann lagðist hágrátandi í gólfið og ætlaði aldrei að verða tilbúinn til að taka við heims- meistaragullinu úr hendi Karls Gústafs Svíakonungs. Danskir áhorfendur höfðu á orði að það væri furðulegt hvernig önnur eins taugahrúga gæti orðið heimsmeistari. Framkvæmdin Svfum til sóma. Ekki verður annað sagt en að Svfar hafi gert myndarlega úr hugmynd sinni um að halda opinbera heimsmeistara- keppni í badminton og greinilegt að mikið og vandað starf liggur að bakin þessu móti. Vonandi er að þar með hafi verið lagður grunnur að reglulegu HM um ókomna framtíð, en ákveðið er að halda næsta HM í Indónesfu 1 980 Islendingarnir tveir stóðu sig betur en búist hafði verið við á heims- meistaramótinu og sést Jóhann Kjartansson á fullri ferð á þessari mynd. Siguröur Agúst Jensson skrifar um fyrsta heims- meistaramótiö í badminton

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.