Morgunblaðið - 17.05.1977, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAl 1977
35
Steve Heighway, rafmagnstæknifræðingurinn f Liverpoolliðinu, hefur átt sinn þátt f velgengni liðsins á
þessu keppnistfmabili og undanfarin ár.
Tfundi meistaratrtill
Liverpool er f höf n
ÞÁ eru úrslit ráðin í ensku deildarkeppninni, þeirri erfiðustu í heiminum. Hið geysiöfluga félag
Liverpool bar enn einu sinni sigur úr býtum og er þetta 10. meistaratitill félagsins og hefur ekkert annað
félag I Englandi unnið 1. deild svo oft. Liverpool er fyrsta félagið f 18 ár sem vinnur deildina tvö ár f röð.
Félagið tryggði sér bikarinn endanlega á laugardaginn með markalausu jafntefli gegn West Ham á
heimavelli. Þetta eina stig nægði fullkomlega og gffurleg fagnaðarlæti brutust út meðal leikmanna og
hinna 56.088 áhorfenda á Anfield í Liverpool, þegar dómarinn flautaði til leiksloka. t hópi leikmannanna
voru tveir menn, sem nú unnu Englandsmeistaratitilinn I fimmta skipti, Ian Callaghan og Tommy Smith.
En það er ekki mikill tfmi til hátíðarhalda hjá leikmönnum Liverpool, á laugardaginn kemur mæta þeir
Manchester United í úrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley og miðvikudaginn þar á eftir verða
þeir komnir til Rómar og mæta vestur-þýzku meisturunum Borussia Mönchengladbach f úrslitum
Evrópukeppni meistaraliða. Liverpool stefnir því að marki, sem ekkert lið hefur nokkru sinni náð,
þremur eftirsóttustu titlunum, sem brezkt félag getur unnið. Ef það tekst er Liverpool óumdeilanlega lið
allra tlma.
Línurnar hafa nú skýrst mjög í
einstökum deildum ensku knatt-
spyrnunnar enda var síðasta
reglulega umferð keppninnar
leikin á laugardaginn. En margir
leikir sem frestað hefur verið eru
eftir og úrslit þeirra munu endan-
lega skera úr um röð liða. Á botni
1. deildar er gífurlega hörð bar-
átta. Hið gamalfræga félag
Tottenham Hotspur er þegar fall-
ið í 2. deild og tvö af eftirfarandi
sex liðum falla með, Bristol City,
Stoke, West Ham, Coventry, QPR
og Sunderland. Staða QPR og
Sunderland er reyndar heldur
betri en hinna liðanna en að, öðru
leyti vísast til meðfylgjandi töflu
um stöðu liðanna i 1. deild. 1 2.
deild tapaði Bolton og þar með
var ljóst að Nottingham Forest
flyzt upp í 2. deild ásamt Wolver-
hamton og Chelsea. Allt eru þetta
félög, sem léku í 1. deild fyrir
nokkrum árum. Chelsea er i
Lundúnum, og tekur sæti
Lundúnaliðsins Tottenham en
Wolverhamton og Nottingham
eru bæði Miðlandalið, þaðan sem
sjónvarpsleikir ensku knatt-
spyrnunnar koma. Hereford og
Plymouth eru fallin í 3. deild og
annað hvort Orient eða Carlisle
fylgja þeim niður. í 3. deild
þróuðust málin nokkuð óvænt síð-
ustu dagana. Wrexham, sem hafði
svo gott sem tryggt sér sæti í 2.
deild tapaði herfilega í siðustu
leikjum sínum. svo að það verður
Lundúnaliðið Crystal Palace, sem
fylgir Brighton og Mansfield upp
í 2. deild. Cambridge, Exeter,
Colchester og Bradford flytjast
upp úr 4. deild í 3. deild. Það bar
til tíðinda á laugardaginn, að
Bobby Moore lék sinn 1000. kapp-
leik og kveðjuleik þegar Fulham
tapaði 0:1 i Blackburn. En litum
nánar á leiki 1. deildar:
Liverpool — Westham 0:0.
Liverpool lagði áherzlu á varnar-
leikinn og West Ham fann aldrei
smugu. Þegar Liverpool sótti voru
sóknarloturnar mjög hættulegar
og Kewin Keegan, sem líklega
hættir hjá Liverpool i vor, komst
næst því að skora á 61. minútu
þegar hann skaut í stöng. Áhorf-
endur 56.088.
Coventry — Manchester City
0:1. Þetta var slakur leikur og
leikmenn beggja liða voru tauga-
óstyrkir. Jimmi Conway skoraði
eina mark leiksins með skalla á
51. minútu og leikmenn Manc-
hester áttu smávon, þar til fréttir-
nar bárust frá Liverpool. Áhorf-
endur 21.429.
Derby — Ipswich 0:0. Ipswich
tryggði sér þar með þriðja sætið í
deildinni. Mátti Ipswich teljast
heppið að krækja í bæði stigin þvi
Derby sótti mun meira. Tíu mín-
útum fyrir leikslok upphófust
blóðug slagsmál milli Derbyleik-
mannsins og Charlie George og
John Wark úr Ipswich og voru
þeir báðir reknir af leik-
velli.Áhrofendur 24.491.
Enska
knatt-
spyrnan
Manchester Unite — Arsenal
3:2. Eftir 25 minútur var staðan
orðin 2:0 fyrir Arsenal og höfðu
þeir Jimmi Greenhoff og Lou
Macari skorað mörkin. Á 50. min-
útu minnkaði Liam Brady mun-
inn en þremur mínútum síðar
skoraði Gordon Hill gott mark og
breytti stöðunni i 3:1. Siðasta
mark leiksins skoraði Frank
Stapleton fyrir Arsenal á 89. min-
útu. Leikurinn hefði getað þróast
öðru vísi ef Malcholm McDonald
hefði ekki misnotað tvö dauða-
færi á fyrstu mínútu leiksins.
Áhorfendur 53.232.
Norwich — Sunderland 2:2.
Það var heldur ljótt útlitið hjá
Sunderland þegar sjö minútur
voru eftir, þvi þá hafði Norwich
yfir 2:0 með mörkum Kevin
Reeves og Viv Busby. En á þess-
um minútum tókst Sunderland að
jafna með mörkum Gary Rowell
og Bobby Kerr. Áhorfendur
27.787.
Birmingham — Everton 1:1.
Howard Kendall skoraði fyrir
Birmingham í fyrri hálfleik en
Bob Latcford jafnaði á 77. mín-
útu. Fimm minútum síðar var
hann rekinn af velli eftir að hafa
lent í handalögmálum við
Malcholm Page. Þess má til
gamans geta, að Everton keypti
Latchford frá Birmingham fyrir 3
árum og var Kendall hluti af
borguninni. Áhorfendur 22.426.
Leeds — QPR 0:1. Skallamark
Peter Eastoe á 22. mínútu tryggöi
QPR tvö mikilvæg stig i botnbar-
áttunni. Dauft lið Leeds náði sér
aldrei á strik. Áhorfendur 22.226.
Middlesbrough—Bristol City
0:0. Vörn Bristol barðist hetju-
lega en Middlesbrough sótti
lengst af i leiknum. David Mills
komst næst því að skora þegar
hann skaut í þverslá. Áhorfendur
15.000.
Newcastle — Aston Villa 3:2.
Það var ekki liðin ein mínúta
þegar Brian Little hafði sent bolt-
ann i mark Newcastle. En mörk
Paul Cannell á 4. og 23. mínútu og
Graham Oates á 17. minútu
tryggðu sigur Newcastle, og
breytti það engu þótt Little
skoraði aftur i seinni hálfleik.
Áhorfendur 29.250.
Tottenham — Leicester 2:0.
Tottenham kvaddi deildina með
ágætum sigri yfir Leicester.
Mörkin skorður Jimmy Holmes og
John Pratt, sitt í hvorum hálf-
leiknum. Áhorfendur 26.094.
West Bronwich — Stoke 3:1.
Stoke lék aðeins með 10 mönnum
mestan hluta seinni hálfleiks því
Brian Bithell var rekinn af velli.
Virðist sem skapsmunir leik-
manna hafi verið erfiðir á laugar-
daginn, fjölmargir brottrekstrar
benda til þess. í fyrri hálfleik
skoruðu Alan Suddick fyrir Stoke
og Mick Martin fyrir WBA en tvö
mörk liðsins á siðustu níu mín-
útum leiksins gerðu út um hann.
Mörkin skoruðu Laurie Gunning-
ham og David Cross. Áhorfendur
22.772. Mark Volverhamton gegn
Bolton skoraði Ken Hibbitt.
1. DEILD
L. HEIMA ÚTI STIG
Liverpool 41 18 3 0 47:11 5 8 7 14:20 57
Manchester City 42 15 5 1 38:13 6 9 6 22:21 56
Ipswich Town 41 15 5 2 41:11 7 4 9 25:27 52
Newcastle Itnited 41 14 6 1 40:15 4 7 9 24:32 49
Manchester United 41 12 6 3 41:22 6 5 9 28:36 46
Aston Villa 39 15 2 1 49:16 5 4 12 21:24 46
West Bromwich Albion 40 10 6 5 38:22 6 6 7 23:29 44
Arsenal 42 11 6 4 31:20 5 5 11 27:39 43
Leicester City 41 8 9 3 30:27 4 9 8 17:32 42
Middlesbrough 42 11 6 4 24:13 3 8 11 16:32 41
Leeds United 41 8 5 5 28:26 6 4 10 19:25 40
Birmingham City 41 10 6 5 38:25 3 5 12 23:34 37
Derby County 42 9 9 3 36:18 0 10 12 14:37 37
Everton 39 7 5 5 30:23 5 7 9 27:40 37
Norwich City 42 12 5 5 30:23 2 5 14 17:41 37
Sunderland 41 9 5 7 29:16 2 7 11 17:36 34
Queens Park Rangers 39 9 6 4 28:19 3 4 13 16:29 34
Coventry City 41 7 8 3 32:24 3 6 12 14:33 34
West Ham únited 41 8 7 6 25:22 2 S 11 17:41 34
Stoke City 41 9 8 4 21:16 1 6 13 7:38 34
Tottenham Hotspur 42 9 7 5 26:20 3 2 16 22:52 33
Bristol City 40 7 7 6 23:18 3 5 12 11:27 32
2. DEILD
L. Heima
Úti
Stig
Wolverhamton Wanderes 42 15 3 3 48:21 7 10 4 36:25 57
Chelsea 42 15 6 0 51:22 6 7 8 22:31 55
Nottingham Forest 42 14 3 4 53:22 7 7 7 24:21 52
Blackpool 42 11 7 3 29:17 6 10 5 29:25 51
Bolton Wanderes 41 15 2 4 46:21 5 8 7 27:31 50
Luton Town 42 13 5 3 39:17 8 1 12 28:31 48
Charlton Athletic 42 14 5 2 52:27 2 11 8 19:31 48
Notts Countv 42 11 5 4 39:20 8 5 8 36:40 48
Southamton 42 12 6 3 40:24 5 3 12 32:43 44
Millwall 42 9 8 6 31:22 6 7 8 26:31 43
Sheffield United 42 9 8 4 32:25 5 4 12 22:38 40
Blackburn Rovers 42 12 5 4 31:18 3 5 13 11:36 39
Oldham Athletic 42 11 6 4 37:23 3 4 14 15:31 38
IIull City 41 9 8 4 31:17 1 8 11 13:35 36
Bristol Rovers 41 8 8 4 30:25 4 4 13 13:21 36
Burnley 42 8 9 4 27:20 2 5 13 19:44 36
Fulham 42 9 7 5 39:25 2 6 13 15:36 35
Cardiff City 42 7 6 8 30:30 5 4 12 26:37 34
Carlisle Untied 42 7 7 7 31:33 4 5 12 18:42 34
Orient 41 4 7 9 17:22 5 8 8 19:32 33
Plymouth Argyle 42 5 9 7 27:25 3 7 11 19:40 32
Ilereford únited 42 6 9 6 28:30 2 7 12 29:48 31
ENGLAND, 1. DEILI):
Birmingham—Evorton 1:1
Coventry —Manchester City 0:1
Derby—Ipswich 0:0
Leeds — QPH 0:1
Liverpool — WestHam 0:0
Manchester l’td.—Arsenal 3:2
Middleshrough — Bristol City 0:0
Newcastle — AstonVilla 3:2
Norwich — vSunderland 2:2
Tottenham—Leicester 2:0
West Bromwich — Stoke 3:1
ENGLAND. 2. DEILD:
Blackhurn — Fulham 1:0
Blackpool — Southamton 1:0
Bolton — Wolverhamton 0:1
Bristol Rovers — Sheffield L’td 3:1
Cardiff—Carlisle 1:1
Chelsea — llull 4:0
Millwall—Burnley 2:0
NottsCounty—Charlton 0:1
Oldham—Luton 1:2
Orient — Hereford 1:1
ENGLAND 3. DEILD:
Chesterfield — Brighton 1:1
Gillingham—Tranmere 3:0
Portsmouth — York 3:1
Port Vale — Rotherham 1:4
Reading — Grimsb> 2:0
Sheffield Wed — Oxford 2:0
Shrewsbury —Preston 1:2
Swindon — Ghester 2:1
Wallsall — Bury 3:3
Wrexham — Mansfield 0:1
ENGLAND. 4. DEILD:
Cambridge — Swansea 2:3
Colchester — Bradford 2:1
Crewe — lluddersfield 0:0
Exeter — Aldershot 3:0
Halifax — Southport 1:1
Ilartlepool —Barnslev 0:2
Rochdale — Brentford 2:3
Scunthorpe — Stockport 2:2
Watford — Darlington 1:1
Workington — Newport 0:1
BELÍiíA:
Waregem — Standard Liege 0:1
Beerschot — FC Brugge 1:1
AS Ostenda — Anderlecht 1:6
RWD Molenbeck —Charleroi 5:0
FC Liegeois — Courtrai 3:1
Lierse — Lokeren 2:2
Beveren — FC Malinois 3:0
CS Brugge — Antwerpen 3:1
Winterslag — Beringen 3:1
Stoke fallið í 2. deild
STOKE tapaði fyrir Aston Villa i
1. deildinni ensku i gærkvöldi og
fellur i 2. deild ásamt Tottenham
og einhverju einu þriggja eftir-
talinna liða, Coventrv, Sunder-
land eða Bristol Citv. West Ham
sigraði Manchester United í gær-
kvöldi og er úr fallhættu, og
sömuleiðis er QPR úr fallhættu.
Úrslit 1. deildar í gærkvöldi
urðu þessi:
Aston Villa — Stoke 1:0
Bristol City — Liverpool 2:1
Everton — West Bromwich 1:1
Leicester — Leeds 0:1
QPR—Ipswich 1:0
West Ham —
Manchester United 4:2
Andy Gray skoraði markið, sem
sendi Stoke niður i 2. deild. Chris
Garland skoraði bæöi mörk
Bristol en David Johnson skoraði
fyrir Liverpool. Bryan Robson
(2), Geoff Pike og Frank
Lampard skoruðu mörk West
Ham en Gordon Hill og Stuart
Pearson fyrir Manchester United.
Don Givens skoraði sigurmark
QPR gegn Ipswich.
Sfðustu leikir deildarinna fara
fram i kvöld. Þá leika saman
Coventry og Bristol, Everton og
Sunderland.
JAFNTEFLI A MELAVELLI
KR og Vikingur gerðu jafntefli
I 1. deild á Melavellinum i gær-
kvöldi. Ekkert mark var skorað.
1 Keflavik léku Reynir Sand-
gerði og Selfoss í 2. deild og sigr-
aði Reynir 2:1. Mörk liðsins skor-1
uðu Ari Arason og Jón Guðmann
en Óskar Marelsson skoraði mark
Selfoss.