Morgunblaðið - 23.10.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1977
37
Aðallega abstrakt en gætir
oft áhrif a frá náttúrunni
Rætt við Guðmund Benediktsson myndhöggvara
Sem kunnugt er stendur nú
yfir haustsýning Félags ís-
ienzkra myndlistarmanna að
Kjarvalsstöðum og lýkur henni
að kvöldi sunnudags 23.
október. Eru verk eftir 41 lista-
mann á sýningunni og meðal
þeirra er Guðmundur Bene-
diktsson myndhöggvari. Blm.
Mbl. leit við á vinnustofu Guð-
mundar og tók hann tali, en þar
var hann að vinna að verki úr
eir, sem er eitt þeirra efna er
hann notar einna mest.
Guðmundur Benediktsson er
lærður trésmiður, þúsgagna-
smiður, og lauk hann prófi frá
Iðnskólanum 1940 og starfaði
eftir það í nokkur ár við hús-
gagnasmiði, rak verkstæði með
bróður sínum. Auk þess sem
hann smíðaði, teiknaði hann
húsgögn. Um þrítugt, eða árið
1950 hóf hann nám í Myndlist-
arskólanum hjá Asmundi
Sveinssyni.
— Ég var þar við nám í ein 5
til 6 ár, sagði Guðmundur og
gekk ég svo í Félag íslenzkra
myndlistarmanna árið 1957 og
hef því veriö þar félagsmaður í
rétt 20 ár. Á þessum árum lagði
ég húsgagnasmíðina alveg á
hílluna og hóf smám saman að
vinna eingöngu að höggmynda-
gerðinni og hefur það verið
mitt :ðalstarf undanfarin ár.
Auk þess að vinna að list
sinni hefur Guðmundur starfað
mikið í F.Í.M. og m.a. sett upp
sýningar:
— Það er gaman á fást við að
setja upp sýningar, en ég hef
gert nokkuð af því að undan-
förnu og hef ég gaman af að
Á myndunum tveim eru eirmyndir, sem Guðmundur hefur gert á
þessu ári en allar þessar myndir eru á sýningunni á Kjarvalsstöð-
um.
Guðmundur Benediktsson myndhöggvari er hér við störf á vinnu-
stofu sinni við Laufásveg 1 Reykjavík. Ljósm. Rax.
starfa þannig með myndlistar-
mönnum, bæði málurum og
myndhöggvurum. Við vorum til
skamms tíma fáir, en það er
alltaf að fjölga í félaginu, það
eru orðnir nokkuð margir, sem
leggja leið sína í myndlistar-
skóla og það er nauðsynlegt og
gott að halda sambandi við fé-
lagana.
Guðmundur hefur tekið þátt i
fjölda sýninga, bæði samsýn-
ingum F.Í.M. hér á landi, svo og
samsýningum erlendis, norræn-
um sýningum, sýningum i
Bandaríkjunum, Hannover i
Þýzkalandi og Rostoek í Þýzka
alþýðulýðveldinu. Um verk sín
og efnivið sagði Guðmundur:
— Þetta er aðallega skúlp-
túr, ég var áður með mynd-
rænni verkefni, en hef síðan
farið meira út í skúlptúrinn.
Hef ég aðallega unnið i tré og
M.vndin, sem Guðmundur
stendur við, nefnist Skúlptúr
og er úr eir.
siðar í járn og eir, sem er aðal-
efniviðurinn hjá mér núna og
hefur verið tvö síðustu ár, eins
og verkin á sýningunni bera
með sér, þaú eru öll úr eir og
unnin á þessum tveim siðustu
árum. Abstrakt á aðallega upp
á pallborðið núna hjá mér, en
ég hef gaman af að rölta um i
náttúrunni og sæki verkefni
stundum þangað, eða áhrifa
gætir stundum frá því getum
við sagt.
— Vinnudagurinn er nokkuð
reglulegur hjá mér, það gengur
bezt þannig, en það ruglast
kannski eitthvað þegar ntaður
er að fást við önnur verkefni
um leið.
Listasafn íslands á tvær
myndir eftir Guðmund Bene-
diktsson og hefur mátt sjá þar
m.a. á göngum Þjóðleikhússins,
skólar hafa keypt verk hjá hpn-
um og hann hefureinnig selt til
Danmerkur. Að lokum er Guð-
mundur Benediktsson spurður
I ramhald á hls. t>3
1. des. nefnd
stúdenta:
„Menntun og
mannr éttindi ’ ’
eða „Kvenfrels-
isbarátta”
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
fréttatilkynning frá kjörstjórn 1.
des. nefndar í Háskóla Íslands:
Kosning til 1. des. nefndar 1977
fer fram í Sigtúni við Suðurlands-
braut laugardaginn 22. október
nk.
I framboði eru tveir listar, A-
listi VÖKU og B-listi VERÐANDI.
VAKA býður fram efnið
MENNTUN OG MANNRÉTT-
INDI og nefndarmenn: 1. Anna
Sverrisdóttir, 2. Auðunn Svavar
Sigurðsson 3. Einar Örn Thor-
laeius, 4. Kristinn Árnason, 5.
Otto Guðjónsson, 6. Stefán Jóns-
son, 7. Sveinn Geir Einarsson.
VERÐANDI býður fram efnið
KVENFRELSISBARATTAN og
nefndarmenn: 1. Aðalheiður
Steingrímsdóttir, 2. Guðrún
Pálina Héðinsdóttir, 3. Jón Ingi
Sigurbjörnsson, 4. Mörður Árna-
son, 5. Svava Guðmundsdóttir, 6.
Þórunn Reykdal, 7. 'Örn Daniel
Jónsson.
Fundurinn hefst kl. 14 með
framsöguræðum beggja lista. Síð-
an hefjast almennar umræður.
Kosning hefst kl. 15 og stendur
þar til mælendaskrá er tæmd, en
húsinu verður lokað kl. 17.
Stúdentum er bent á að hafa
með sér stúdentaskírteini.
Kjörstjórn 1. des. nefndar 1977.
RENAULT
KRISTINN GUDNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
STOR - STÆRRI - STÆRSTUR
REIMULT SEnDIBÍIHR
Hvort sem flutningsþörfin er lítil eða mikil þá er hægt að fá Renault
sendiferðabíl sem hæfir þörfinni. Við getum útvegað sendiferðabíla með
burðarþoli frá 420 kg til 1000 kg. Renault sendiferðabílar eru
á mjög hagstæðu verði og rekstrarkostnaður er í lágmarki.