Morgunblaðið - 05.11.1977, Blaðsíða 7
MORGL'NBLAÐIÐ. LAUGARDAGLR 5. XÖVEMBER 1977
Ríkisútvarp:
sjónvarp —
hljóðvarp
Það hefur vakið
verðuga athygli, að yfir-
lýsing forystumanna
starfsmannafélaga 9
sveitarfélaga. þess efnis.
að gagnrýni BSRB-
forystunnar á samninga
félaganna hafi verið órétt-
mæt og óskynsamleg,
hefur ekki verið getið í
fréttum rikisútvarpsins.
Hins vegar var yfir-
lýsingarinnar getið í
fréttum sjónvarps og jafn-
framt rætt við Þórhall
Halldórsson, formann
stærsta starfsmanna-
félagsins, sem hér átti
hlut að máli.
Afsökun frétta-
stofu hljóðvarps
Er Mbl. spurði frétta-
stjóra útvarps, hvers
vegna þessi yfirlýsing, í
máli sem svo mjög hefði
verið til umræðu hjá
almenningi, hefði ekki
verið lesin, var svarið
efnislega þetta: Þar sem
yfirlýsingin var svar við
annarri áður kominni yfir-
lýsingu, sem aðeins hafði
birzt í blöðum. enda
útvarp lokað í verkfalli
BSRB, hefði útvarpinu
ekki þótt rétt að birta
hana „Útvarpið hefði nóg
með sitt, þó að það reyndi
ekki að leiðrétta aðra fjöl-
miðla"(!)
Umsögn frétta-
stjóra sjónvarps
Fréttastjóri sjónvarps
sagði um þeta efni:
„Þessarar yfirlýsingar var
getið í fréttum sjónvarps
og i kjölfar þeirra kom
viðtal við Þórhall
Halldórsson, formann
stærsta starfsmanna-
félagsins sem i hlut átti,
en það var eðlilegt fram-
hald af fréttinni um þessa
s-mpykkt. . ." „Þess má
inig geta, að þessi yfir-
lýsing var svar við um-
mælum. sem m.a. höfðu
komið fram i sjónvarps-
við'ali við formann BSRB.
En hvað sem öllum um-
Gylfi Þ Gislason
mælum líður, þá var það
einfaldlega mitt frétta-
mat, sem þarna var sýnt i
verki."
Nú eru hljópvarp og
sjónvarp tvær hliðar sama
rikisfjölmiðils, ríkisút-
varpsins. Ætla verður að
hliðstæðar reglur eða
hefðir gildi um fréttamat
hjá báðum fréttastofun-
um. Það er þvi eðlilegt að
sú spurning vakni hvort
hér hafi annarleg sjónar-
mið ráðið hjá hljóðvarpi.
Ábendingar
Gylfa Þ.
Gíslasonar
Í útvarpsumræðu for-
sætisráðherra benti Gylfi
Þ. Gislason á 12 leiðir,
sem hann taldi þing og
þjóð þurfa að feta. í á-
föngum en ákveðið, í
næstu framtið, til að
tryggja velferð og réttlæti
i þjóðfélaginu. Hér verður
tveggja getið:
^ „Við íslendingar búum
enn, einir vestrænna
þjóða. við úrelt kerfi verð-
lagsákvarðana, sem beint
og óbeint stuðlar að óhag-
stæðum vörukaupum til
landsins og óþarflega háu
verðlagi i landinu. Hér
skortir samkeppni i
viðskiptum, sem leitt gæti
til lækkaðs verðlags.
Jafnframt þyrfti að hafa
eftirlit með þvi, að ekki sé
efnt til samtaka um óeðli-
lega hátt verð og hafa
heilbrigt verðlagseftir-
lit. . ."
0 „j hartnær fjóra ára-
tugi höfum við ís-
lendingar. i rikara mæli en
nokkur önnur nálæg þjóð,
lengst af búið við sjálf-
krafa breytingar á launum
og verði landbúnaðar-
afurða i kjölfar breyttrar
/isitölu framfærslukostn-
aðar. Þessu kerfi hefur
verið ætlað að vera
nauðvörn launþegans og
bóndans gegn vernsandi
lífskjörum. En það er
órökrétt og getur reynzt
skaðlegt. Það er ekki rök-
rétt. að allt kaupgjald á
íslandi hækki, þótt
verðhækkun verði á oliu
erlendis. . . en ekki þótt
verðlag á freðfiski tvö-
faldist í Bandaríkjunum.
Framhald á bls. 22
GUÐSPJALL DAGSINS:
ú t jWtóður Matt 5: Jesús prédikar um sælu
1.2 i jFá morgun LITUR DAGSINS: Grænn. Táknar vöxt. Eink- um vöxt hins andlega lifs.
Allra heilagra messa
— Allra sálna messa
460 ára afmæli siðbótar Luthers
Dómkirkjan Prestsvigsla kl 1 1 árd
Biskup íslands herra Sigurbjörn Ein-
arsson vigir cand theol Hjalta
Hugason til Reykholts prestakalls í
Borogarfjarðarprófastsdæmi. Séra
Magnús Guðjónsson lýsir vigslu
Vigsluvottar auk hans: Séra Gísli
Jónasson. séra Sigurjón Guðjóns-
son og séra Jón Dalbú Hróbjartsson
sem þjónar fyrir altari Hinn nývigði
prestur prédikar Dómkórinn syngur
undir stjórn Ragnars Björnssonar
Klukkan 2 siðd guðsþjónusta Séra
Jón Auðuns fyrrverandi dómprófast-
ur prédikar Séra Bjarni Sigurðsson
lektor frá Mosfelli þjónar ásamt hon-
um fyrir altari
Neskirkja. Barnasamkoma kl.
10.30 árd Guðsþjónusta kl 2 siðd
Séra Guðmundur Óskar Ólafsson.
Bænamessa kl 5 siðd Séra Frank
M Halldórsson
Árbæjarprestakall. Barnasamkoma
í Árbæjarskóla kl 1 0 30 árd Guðs-
þjónusta í skólanum kl. 2 síðd. Aðal-
fundur Árbæjarsafnaðar eftir messu
Séra Guðmundur Þorsteinsson.
Hallgrimskirkja. Messa kl. 1 1 árd
Altarisganga Séra Ragnar Fjalar
Lárusson Fjölskyldumessa kl. 2
siðd Lesmessa n.k. þriðjudag kl.
10.30 árd Beðið fyrir sjúkum Séra
Ragnar Fjalar Lárusson.
Landspitalinn. Messa kl 10 árd.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson.
Grensáskirkja. Barnasamkoma kl
1 1 árd Guðsþjónusta kl. 2 siðd
Organisti Jón G. Þórarinsson Séra
Halldór S Gröndal.
Laugarneskirkja. Barnaguðsþjón-
usta kl. 1 1 árd. Messa kl. 2 siðd
Altarisganga Sóknarprestur
Sunnudagaskóli KFUM, Amt-
mannsstig 2b fyrir öll börn kl.
10.30 árd
Ásprestakall Messa kl 2 siðd . að
Norðurbrún 1 Fundur i Safnaðarfé-
lagi Ásprestakalls eftir messu Gest-
ur fundarins Guðrún Erlendsdóttir
hrl Séra Grimur Grimsson
Filadelf iukirkjan Almenn sam-
koma kl 8 siðd Guðmundur
Markússon
Bústaðakirkja. Barnasamkoma kl
1 1 árd Guðsþjónusta kl 2 siðd
Organisti Guðni Þ Guðmundsson
Séra Ólafur Skúlason.
Breiðholtsprestakall. Sunnudaga-
skóli kl 1 1 árd i Breiðholtsskóla
Messa i Breiðholtsskóla kl 2 siðd
Séra Lárus Halldórsson.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Guðsþjónusta kl 10 árd Séra
Ingólfur Guðmundsson
Seltjarnarnes. Guðsþjónusta kl. 11
árd i félagsheimilinu Séra Frank
M Halldórsson.
Háteigskirkja Barnaguðsþjónusta
kl 1 1 árd Séra Arngrimur Jónsson
Guðsþjónusta kl 2 siðd. Séra Tóm-
as Sveinsson. Siðdegisguðsþjón-
usta kl 5 Séra Arngrimur Jónsson
Dómkirkja Krists Konungs Landa-
koti. Lágmessa kl 8 30 árd Há-
messa kl 10.30 árd. Lagmessa kl.
2 siðd Alla virka daga er lágmessa
kl. 6 siðd . nema á laugardögum. þá
kl. 2 siðd.
Langholtsprestakall. Barnasam-
koma kl 10.30 árd. Guðsþjónusta
kl. 2 siðd Séra Stefán Snævarr
messar. Klukkan 8.30 siðd kristni-
boðskvöld: Jón Þór sagnfræðingur
talar um David Livingstone. Bene-
dikt Arnkelsson talar um Ólaf
Ólafsson kristniboða. myndasýning,
einsöngur Már Magnússon syngur
Séra Árelius Nielsson
Frikirkjan Reykjavik Barnasam-
koma kl 10 30 árd Guðni Gunn-
arsson Messa kl 2 siðd Séra Þor-
steinn Björnsson.
Hjálpræðisherinn. Helgunarsam-
koma kl 1 1 árd Sunnudagaskóli kl
2 siðd Hjálpræðissamkoma kl
8.30 síðd. Lautinant Evju.
Fella- og Hólasókn. Barnasamkoma
í Fellaskóla kl 1 1 árd Guðsþjón-
usta i skólanum kl. 2 siðd Séra
Hreinn Hjartarson
Kársnesprestakall Barnasamkoma
i Kársnesskóla kl. 1 1 árd Messa i
Kópavogskirkju kl. 2 siðd Séra Arni
Pá.. on.
Dign resprestakall Barnasam-
koma i safnaðar 'eimilinu við Bjarn-
hólastíg kl 1 1 . i Guðsþjónusta i
Kópavogskirkju ki 1 1 árd Séra Þor-
bergur Kristjánssoi
Kapella St. Jósefssystra i Garðabæ
Hámessa kl 2 siðd
Viðistaðaprestakall. Barnaguðs-
þjónusta i Viðistaðaskóla kl 1 1 ártí
Guðsþjónusta i Halnarfjarðarkirkju
kl. 2 siðd Séra Sigurður H Guð-
mundsson
Frikirkjan i Hafnarfirði Barnaguðs-
þjónusta i kl. 10.30 árd. Safnaðar-
prestur
Mosfellsprestakall. Lágafellskirkja
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta kl 2 siðd Séra Birgir
Ásgeirsson
Kálfatjarnarkirkja. Guðsþjónusta i
Glaðheimum Vogum kl. 5 siðd
Séra Páll Þórðarson
N jarðvikurprestakall. Guðsþjón-
usta i Stapa kl 2 siðd Séra Þorvald-
ur Karl Helgason æskulýðsfulltrúi
prédikar Séra Páll Þórðarson
Keflavikurkirkja. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl 1 1 árd Sunnudaga-
skólabörn og fermingarbörn eru
hvött til að mæta ásamt foreldrum
Sóknarprestur
Grindavikurkirkja. Barnasamkoma
kl. 1 1 árd. Sóknarprestur
Útskálakirkja. Messa kl 2 siðd
Sóknarprestur
Eyrarbakkakirkja Barnaguðsþjón-
ustakl. 10 30 árd Sóknarprestur
Stokkseyrarkirkja. Messa kl 2
síðd. Sóknarprestur.
Hveragerðiskirkja. Messa kl 2
siðd Safnaðarfundur eftir messu.
Sóknarnefndin
Akraneskirkja. Barnasamkoma kl
10 30 árd Messa kl 5 síðd Kirkju-
dagurinn Athugið breyttan messu-
tima. Séra Björn Jónsson.
Námsflokkar Hafnarfjarðar
Nýtt byrjendanámskeið í ensku hefst mánudag-
inn 7. nóvember kl. 9. Innritun á námskeið í
stærðfræði fyrir 9. bekk grunnskóla sama kvöld
i húsi Dvergs, Brekkugötu 2. Upplýsingar i
Síma 53292 Forstöðumaður.
Basar og kökusala á
Hallveigarstöðum í dag
5. nóvember kl. 2.
Kvenfélagið Heimaey
Bifreidaeigendur
athugið
í vetur höfum við
opið alla daga
Virka daga frá kl. 8—18.40.
Sunnudaga frá kl. 9—16.40.
Bón- og þvottastöðin h.f.,
Sigtúni 3.
F j ölsky lduskemm tun
Flugbjörgunarsveitarinnar
í Háskólabíói 5. nóv. kl. 14.00.
Björk Guðmundsd. Ásamt félögum úr Póker Karlakór Reykjavíkur, eldri félagar
Rokkparið Guðrún og Alli Hlj. Póker Skagfirska söngsveitin
Hlj. Stefáns P. ásamt Guðmundi Ingólfssyni Fimleikaflokkar K.R. og Gerplu
Spurningakeppni barna Stjórnandi: Ragnar Bjarnason Skólahljómsveit Kópavogs leikur undir stjórn Björns Guðjónssonar
Guðm. Guðmundsson búktalari og eftirherma Kynnir: Ragnar Bjarnason
Forsala aðgöngumiða í Háskólabíói 4. nóv. kl. 16.00
Agóði skemmtuninnar rennur til kaupa á
tækjabúnaði fyrir Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík.
Njótið góðrar skemmtunar og styrkjum gott málefni.
FBS