Morgunblaðið - 05.11.1977, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.11.1977, Blaðsíða 11
MORGL'NBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1977 11 áhætta í sambandi vió allar fyrir- ætlanir um fjárfestingu, og um- fram allt þær, sem ekki skila full- um árangri nema á mjög löngum tfma. í þessu efni hefur orðið gerbreyting undanfarinn áratug. Sú breyting stafar af tvennu. í fyrsta lagi af mikilli verðbólgu og þeim breytta hugsunarhætti, sem hún skilur eftir, einnig eftir að farið er að draga úr henni. Í öðru lagi af ört vaxandi kröfum til fyrirtækja varðandi umhverfi, ör- yggi, vöruvöndun, aðbúnað, áhrifavald starfsmanna og verka- lýðsfélaga og sívaxandi afskipti ríkisvaldsins af rekstri fyrir- tækja, sem þessu hefur fylgt. Enn meira vandamál en kröfurnar sjálfar er þó sú óvissa, sem þær valda, þar sem fyrirtækin geta enga grein gert sér fyrir því, hvaða reglur verði í gildi i þessum efnum á þeim langa tima, sem fjárféstingin þarf að standa. Niðurlag Hvaða horfur eru þá á því, að unnt reynist að ráða við þau vandamál hagvaxtar, sparnaðar og fjárfestingar, sem að framan hefur verið lýst? Ég tel, að þær horfur byggist fyrst og fremst á því, hvort unnt sé að öðlast réttan skilning á hlutverki rikisins ann- ars vegar og atvinnufyrirtækja hins vegar. Erfiðleikar undanfar- andi ára og sá vandi, sem nú blas- ir við, á annars vegar rót sína að rekja til þeirra margvislegu og óhóflegu krafna, sem gerðar hafa verið um betri lifskjör, aukin þægindi, meira öryggi, bætt um- hverfi, aðild að stjórn atvinnu- rekstrar og meiri lífsfyllingu. Hins vegar sprettur vandinn af því, að rikisvaldinu hefur I sívax- andi mæli verið beitt til þess að hrinda þessum kröfum fram. Þótt óskirnar séu hvér um sig og að hóflegu marki eðlilegar, geta þær með engu móti orðið allar að veruleika i einu og kapp án forsjár og aga leiðir ekki að settu marki heldur til glundroða og upplausnar. Rikisvaldið er heldur ekki neinn galdrastafur. Það er þvert á móti framu- rskarandi klunnalegt og ófull- komið tæki. Sagt hefur verið „að ríkið geri alla hluti illa“, og má það til sanns vegar færa eins langt og það nær. Það hefur enn einu sinni sýnt sig á undanförn- um árum, að beiting ríkisvaldsins til þess að uppfylla hvers konar óskir og kröfur einstaklinga, stétta, hagsmunasamtaka og byggðarlaga leiðir ekki að settu marki. Leiðin liggur í stað þess til stjórnleysis, verðbólgu og kreppu, ekki sízt vegna þess að um leið vanrækir ríkiö það eina hlutverk, sem þvi ber að rækja auk öryggis- mála og það getur rækt vel, al- menna stjórn efnahagsmála. Skilningur í þessum efnum fer nú bersýnilega vaxandi. Annars vegar gera stjórnmálamenn, for- ustumenn hagsmunasamtaka og allur almenningur sér þess ljósari grein en áður, hvert hlutvefk ríkisins þarf að vera og af hvaða málefnum ríkið ætti ekki að skipta sér. Bætt stjórn efnahags- mála allra síðustu árin og alvarleg viðleitni til að takmarka umsvif rikisins, bera þessum aukna skiln- ingi vott. Hins vegar viðurkenna stjórnendur atvinnufyrirtækja í vaxandi mæli nauðsyn þéss að sinna margs konar verkefnum, sem áður var lítt sinnt, og gera sér þess g.rein, að fyrirtækin sjálf eru þess miklu betur umkomin aö glima við þessi verkefni en ríkis- valdið sjálft. Jafnframt eru stjórnunarhættir innan fyrir- tækja að breytast í átt til dreifing- ar ábyrgðar og virkari og almenn- ari þátttöku starfsmanna en áður var. Margt bendir til þess, að það séu einmitt þau fyrirtæki, sem mestum árangri ná í þessari við- leitni, sem einnig takizt bezt að tryggja hefðbundin og nauðsyn- leg markmið góðrar afkomu og trausts efnahags. Það eru vis- bendingar af þessu tagi um breytta og jskilningsríkari afstöðu stjórnmálamanna, forustumanna hagsmunasamtaka, stjórnenda fyrirtækja og alls almennings, sem vekja nokkrar vonir í brjósti um farsæla lausn þeirra miklu vandamála, sem við blasa. Keramik verkstœðiö Hulduhólum Mosfellssveit, er opið laugardaga, sunnudaga, mánudaga og miðvikudaga, frákl. 1-6. Leirmunirtil sýnis og sölu. „Fröken Margrét” frumsýnd á Litla sviði Þjóðleikhússins Steinunn Marteinsdóttir SÆMILEG síldveiði var hjá rek- netabátum um 20 mílur vestur af Ingólfshöfða í fyrrinótt og þar fengu Hornafjarðarbátarnir 2000 tunnur, og bátar frá öðrum ver- stöðvum annað eins. Það líður því senn að því að vertíð reknetabáta ljúki að þessu sinni, þar sem þeir eiga aðeins eftir að fá nokkur hundruð tonn til að fylla 10 þús- und tonna kvötann. Sildveiði hjá hringnótabátum hefur verið mjög misjöfn að und- anförnu, en þó hefur einn og einn fengið sæmilegan afla. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU Góð síldveiði reknetabáta Herdís Þorvaldsdóttir leikur fröken Margréti, kennslukonuna, og er hún að ræða við „nemendur", en myndin er tekin á æfingu. (LJésm. ra\) NÆSTKOMANDI fimmtudagskvöld verður frumsýnt á Litla sviði Þjóðleikhússins leikritið Fröken Margrét, en það er eftir höfund frá Brasilíu, Roberto Athavde. A fundi með fréttamönnum í gær var leikrit þetta k.vnnt og lék Herdís Þorvaldsdóttir kafla úr því, en hún fer með eina hlutverk Ieikritsins. Stefán Halldórsson sagði aö leikritið hefði á síðustu 3—4 ár- um farið sigurför um heiminn og verið sýnt i nær 60 leikhúsum, en það var fyrst sýnt í Argentínu árið 1972 og var höfundurinn 21 árs- er, hann-samdi-k'ikinn. Í -Bra- silíu var það fyrst sýnt árið 1973 eftir að það hafði verið bannað þar af ritskoðendum, sagði Stefán, en banninu síðan aflétt. Hefur leikritið vakið athygli þar sem það hefur verið sviðsett og ýmsar frægar leikkonur farið á kostum i hlutverki fröken Mar- grétar. Þá sagði Stefán að Robert Athayde hefði fengið svonefnd Moliére-verðlaun, sem væru eftir- sóttustu Ieiklistarverðlaun i Bra- siliu. Hann hefur nýlega sviðsett leikritið á Broadway með leikkon- unni Estelle Parson í hlutverki kennslukonunnar og er það 56. sviðsetningin. Um efni leiksins er það að segja að kennslukonan, fröken Mar- grét, eys úr brunni vizku sinnar og tilfinninga í tvær kennslu- stundir yfir nemendum í lands- prófsbekk, en nemendur eru áhorfendur og fá þeir í verkinu „skringilega og óvænta fræðslu í ótrúlegustu hlutum. Höfundur er með ýmsar vangaveltur og í þeirri skvettu, sem áhorfendur fá yfir sig, þegar stungið er á hinum ýmsu kýlum þjóðfélagsins, situr höfundur ekki á kímnigáfu sinni heldur fer þar viða á kostum sem og fröken Margrét í öllurri sínum fjölbreytileika,“ eins og kernur fram i frétt um leikinn. Benedikt Árnason er leikstjóri og sagði hann að verkið krefðist mjög mikils af leikandanum. Her- dis Þorvaldsdóttir þyrfti að sýna af sér margvislega hæfileika og sagði hann að hún hefði eiginlega lyft Grettistaki með þessu verki, með því að æfa verkið á aðeins 7 vikum. en það er yfirleitt sá tími, sem það tekur að æfa verk með mörgum leikurum. Sagði Bene- dikt það ekki vera árennilegt að þurfa að læra utanað nærri 50 blaðsíður, sem siðan þyrfti að fara meö einn á s.vi()inu.. Herdís Þorvaldsdóttir sagði að sér fyndist það bæði spennandi og skelfilegt í senn að ráðast i þetta, en þó væri ekki enn komin nein reynsla á það. Leikmynd gerði Birgir Engil- berts og sitja áhorfendur fyrir framan sviðið á eins konar skóla- bekkjum, en sviðið er kennslu- stofan. Þýðandi leiksins er Ulfar Hjörvar. Þetta er fyrsta frumsýning vetr- arins á Litla sviðinu, sem hefur nú sitl 5. starfsár og hafa verið sýnd alls 15 leikrit.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.