Morgunblaðið - 05.11.1977, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.11.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÖVEMBER 1977 Jóhann B. Háeyri — Það er að kvöldi dags í miðri vikunni sem leið. Veðurkortið er búið að vera á skjánum. Það hefur verið þokkalegt haustveður hér á Reykjanesvita. Það er ekki gert ráð fyrir meiriháttar veðra- brigðum, og maður býst við öllu góðu þegar veðrið er gott. Við hjónin höfum ekki horft lengi á sjónvarpið þetta kvöld þegar síminn hringir. Þetta er örstutt samtal þar sem ein af systrum konunnar minnar til- kynnir henni lát föður þeirra. Jóhann Bjarni Loftsson, Há- eyri, Eyrarbakka, er látinn. í alkunnum sálmi eftir Valdi- mar Briem segir svo: Ég horfi yfir hafið um haust af auðri strönd. Jóhann var á bestu árum ævi sinnar mikill sjósóknari. Hann sigldi margan krappan sjóinn, svo honum ætti hvergi að hafa brugó- ið, þegar hann lagði upp í þessa síðustu ferð, þótt leiðin liggi, eins og segir í sálminum, um „dauðans haf“. Þessi aldna kempa er búin að lifa langa ævi og fjölbreytilega. Þegar hann nú kveður okkur, nánustu skyldmenni sin og vini, þá er hann orðinn hálfniræður. Daginn áður en til þessara tíðinda dró, voru yngstu dætur hans tvær, Halldóra og Árný, í heimsókn hjá honum. Þeim þótti hann venju fremur slappur, og tók Arný hann því með sér heim til sín. Lá hann þar rúmfastur þetta kvöld og næsta dag. Þegar þar var komið varð honum að orði, að ekki þýddi að dægra svona, hann yrði að koma sér á fætur, ef hann ætti að ná úr sér sleninu. Um kvöldið ætlaði hann að horfa á sjónvarpsfrettirnar, eins og venjulega. En þá urðu umskiptin, því stuttu síðar var hann látinn. Lifshlaup Jóhanns Bjarna Loftssonar er það margþætt að í stuttu máli minningargreinar- innar koma persónueigindin einna best til skila í snöggum myndbirtingum. Og hvað segjum við um góðan mann, daginn sem hann er borinn til grafar? Um þrjátíu ára bil hef ég þekkt tengdaföður minn, Jóhann B. Loftsson, og átt þvf láni að fagna, að geta umgengist hann talsvert mikið þó við byggjum lengst af hvor á sínu landshorninu. Það hefur orðið svo með árunum, að mér hefur fátt verið meiri ánægja en að heimsækja hann, þar sem hann býr einn í húsi sínu Háeyri. Einn, segi ég. Enginn maður ir að Vilmundur andaðist langt um aldur fram frá stórum barna- hópi, þá var Gisli með gamla Vík- ing i 5 vertíðir. Eftir það með Gideon. 1925 kaupir hann með öðrum og Iætur smiða nýjan Vik- ing, mikið happaskip og er með hann um árabil. Inn á milli var hann mað Ara, Skúla fógeta og Freyju RE. £ftir 29 ára skipstjórn og meira en 40 ára sjómennsku fór Gísli i land eftir farsælan fer- il, þar sem hann alltaf stýrði skipi sinu heilu og höldnu i höfn. Saga Gisla og saga Eyjanna er samtvinnuð um mikinn uppgang í meira en 70 ár. Hann var ötull stuðningsmaður Bátaábyrgðarfé- lagsins, i stjórn ísfélagsins og stjórn kaupfélagsins Fram. Gísli fór vel með allt. Mikill barnavin- ur og skepnuvinur. Las lestra Jóns meistara Vidalíns og dáði sálma Hallgrims Péturssonar. Trúfastur kirkjugestur í Landa- kirkju og bætti svo á að fara i Betel, til andlegrar hressingar og uppbyggingar. Gísli var lánsmaður í einkalífi sinu. Eiginkona hans var Guðný Einarsdóttir frá Arnarhóli Þor- steinssonar. Langafi hans var Ey- vindur Jónsson, Fjalla-Eyvindur. Þeim hjónum varð 6 barna auðið og komust fimm þeirra til manns. Svava, Salóme og Þyri og bræð- urnir Óskar Magnús og Einar Jóhannes. Gísli var tæplega meðalmaður á Loftsson Minning getur verið einn. Jóhann Loftsson er umkringdur stórri fjölskyldu. Hann kvæntist ungur góðri og fórnfúsri konu, Jónínu Hannes- dóttur frá Stóru-Sandvík. Þau voru samhent um það bæði tvö, að koma til manns stórum barnahóp. Systkinin voru ellefu. Fyrsta barn þeirra dó í frumbernsku en hin komust öll til fullorðinsára. Þegar ég kom inn í fjölskylduna er Jónína horfin af sjónarsviðinu fyrir nokkrum árum. Hún hverf- ur frá barnahópnum, og maður hennar, þróttmikill og starfsam- ur, stóð þarna í þeim sporum, sem hlýtur að vera hverjum manni hin mesta reynsia. Fyrstu árin eftir fráfall móður- innar hjálpuðust elstu börnin að um það að halda uppi heimilinu með föður sínum. Siðan kom til Jóhanns ágæt kona, Anna Sveins- dóttir frá Sunnuhvoli á Eyrar- bakka. Hún tók að sér heimilið og stóð fyrir því með mestu prýði, þar til hún lést fyrir áratug. Síðan býr Jóhann einn í húsi sínu á Eyrarbakka. Honum er það hjartans mál að halda heimili þar sem börn hans og fjölskyldur þeirra geta komið saman hjá honum þegar tækifæri bjóðast. Lífinu er oft líkt við ferðalag úr einum stað til annars, og má það til sanns vegar færa. Mér er margt minnisstætt af því sem Jóhann hefur við mig sagt, en ég held að þessi orð séu mér einna minnisstæðust: — Ég byrjaði snemma að ferðast, og hef verið mikiðJ ferða- lögum. Við munum komast að raun um það að þessi orð eru eins og rammi um lífsferil hans... Jóhann Bjarni Loftsson er fæddur 24. janúar árið 1892, að Sandprýði á Eyrarbakka. Foreldr- ar hans eru Mýrdælingar að ætt og uppruna. Þarna eru strax byrjuð ferðalög, þvi aftur leita foreldrar hans, Jórunn Markús- dóttir og Loftur Jónsson til heimaslóða í Mýrdalinn. Já, það eru ferðalög. Hér er freistandi að segja langa ferðasögu af Jóhanni. Þegar hann er aðeins hálfs árs gamall, lendir hann i sinu fyrsta stóra ferðalagi. Foreldrarnir leggja af stað með börn sín tvö, og ferðast er á hestum. Farið er um eyðisanda og óbrúuð fljót. Við sjá- um þessa fjölskyldu, manninri, konuna og börnin tvö, halda sem leið liggur austur sanda og yfir beljandi árnar. Já hann byrjaði snemma að ferðast. Það er margt sem knýr manninn til að vera um kyrrt í hæð, en léttur og snar. Hann hlífði sér aldrei. Handtök hans traust og örugg. Lund hans gat verið hrjúf og köld, en innra sló hlýtt hjarta og gott. Viðbrugðið var hvernig unglingar réðust í skipsrúm til hans, hvernig hann með hlýleika og festu lagði ung- um mönnum veganesti. Hjá Gisla fengu þeir vegahesti sem dugði vel. Kunnir sjómenn og aflamenn byrjuðu með Gísla, má þar nefna að öðrum dgleymdum Ármann Friðriksson frá Látrum, lands- þekktan aflamann á sinni tið. Það er heiðríkja og birta yfir brottför Gisla af þessum heimi. heimabyggð sinni. Ég þekki engan mann, sem hefur verið sinni heimabyggð trúrri en Jóhann Loftsson. Og ég er þeirrar skoðunar, að þar sem maðurinn og landið eru í sátt, þar sé lifað eins ríku lífi og völ er á. Og ég er þeirrar trúar, að sá einn geti staðið í miklum ferðalögum, sem á sér sterkar rætur á æskustöðv- um sinum. Jóhann er fæddur í þorrabyrjun. En um sumarið næsta, þá eru hjón á ferð með börn sín tvö, sem hefur verið búið um í koffortum á klyfjahestum. Hvert er ferðinni heitið? Tak- markið er að komast heim. Ég held að ferðalokin séu fyrirfram séð; sá staður, þar sem þau treysta á að líf þeirra festi dýpstar rætur, og þeim verði sem mest úr sinu. Þess vegna er farið yfir svarta sanda og beljandi vötnin. Ferðin gengur eins vel og hægt er að gera sér vonir um. En það urðu engin ferðalok i Mýrdalnum. Aftur taka hjónin sig upp, eftir aðeins tveggja ára búsetu þar. Og aftur hverfa þau á sömu slóðir og fyrr. Það var ekki sest að í þorpinu að þessu sinni, heldur á Hreiðurborg í grennd við þorpið Þau tóku sig ekki aftur upp til að fara í langt ferðalag. Ég gleymi ekki þessum orðum Jóhanns: — Það er stuttur spölurinn frá Hreiðurborg og hingað niður á Bakkann ... og hann bætir við eftir stutta þögn — Foreldrar minir settust um kyrrt i Sölkutóft á Eyrarbakka og bjuggu þar meðan bæði lifðu. Það segir lítið af leikjum Jóhanns í fjörunni á Eyrarbakka, nema hvað gæfa hans var slík að hversdagsönnin verður honum oft sem snarpur leikur. Fór betur að svo var. Lifsönnin kom snemma til hans. Hann byrjaði að beita upp á hálfan hlut níu ára gamall. Þá var beitt í niðurgröfn- um moldarkofum. Þá var risið úr rekkju og gengið til starfa um fimm og sex Ieytið á morgnana. Lifsstarfið var hafið. Hann bar hlunnana upp fyrir bátinn þegar sjósett var og hann bar hlunnana upp fyrir sjávarmál og hafði þá tiltæka þegar skipið var sett upp aftur aó kvöldi. Hér er komið að nýjum áfanga í ævi Jóhanns Loftssonar. Sjómennskuferill hans er hafinn. Hann byrjaði að beita upp á hálfan hlut niu ára að aldri og fimmtán ára rær hann fyrir fullan hlut, bæði frá Eyrarbakka og 'Þorlákshöfn. Þetta er eflaust litrikasti þátturinn i ævi hans. Það er lika skemmst frá þvi að segja að fljótlega kemst Jóhann i fremstu röð sjómanna. Hann gerist formaður árið 1912. Bátinn á hann í félagi með öðrum. Þetta skip, Norrónan var keypt frá Vestmannaeyjum. Þegar hér var komið hafði Jóhann fengið mikla Trú min er að hann lendi með góðan feng og öllu órifuðu, beint i faðm Abrahams, ísaks og Jakobs, með frelsara sínum Jesú Kristi. Slíkra er gott að minnast. E.J.G. Það var heldur ógnvekjandi af- mælisgjöf sem náttúruöflin sendu tengdaföður minum Gísla Jóns- syni frá Arnarhóli í Vestmanna- eyjum hinn 23. janúar 1973, en þann dag var Gísli niræður. Það var hvorki meira né minna en eldgos á Heimaey, eins og öllum er minnistætt. Þá bjó Gísli hjá dóttur sinni Salóme, sem þá fyrir skömmu hafði misst eiginmann sinn, Vigfús Jönsson vélsmið. Lál Vigfúsar var rnikið áfall Gisla, því Vigfús hafði re.vnst honum betur en nokkur sonur, enda var Vigfús heitinn valmenni og virtur af öll- um sem til hans þekktu. Salórne vakti Gísla þá nótt og sagði hon- um tíðindin, og einnig að allir eyjarbúar ættu að .yfirgefa E.vj- una strax. Gísli gekk út á hlað í nærklæðunum einum saman og leit á eldana austur á Eyju, fór I síðan inn og sagði við dóttur sina: „Þetta er ljótt að sjá en ég fer ekki fet.“ Ég ætla ekki að lýsa, hverslags erfiðleikum Salónie stóð i við að koma Gisla frá Eyjum þesSa nótt. Þá bjó hjá Salóme sonur okkar hjóna, Steingrímur, en hann gal ekki veitl Salóme niikla hjálp, þvi hann varö að fara reynslu af sjómannsstarfinu. Hann reri fyrst á opnum bátum — og barði sjóinn árum. í mikilli fiskgengd voru þeir oft tregir til að taka upp færin og halda til lands, þó loft sortnaði og sjór tæki sig upp. Það var verið að þar til ekki var lengur stætt á öðru en að draga færin upp og halda til hafnar. Og hver var svo höfnin? Þá var suðurströndin ein hafn- leysa, Og mikill vandi var for- mönnum á herðar lagður með því að gæta þess vel að leita lands áður en brimskaflarnir lokuðu þeim leiðum, sem færar voru til landtöku. Þetta mikla vandamál var enn fyrir hendi þegar Jóhann eignast vélbát og fær valinn mann í hvert skiprúm. Þar ber ekki skugga yfir. Jóhann verður einn aflasælasti formaðurinn. Það fer af honum mikið orð og gott. Dugnaðarmönnum sem þá voru að vaxa upp, þótti ekki annað betra en að gerast skipverjar hjá Jóhanni Loftssyni. Ég hef ekki séð Jóhann glaðbjartari yfirlitum en þegar hann hefur minnst þessa timabils í ævi sinni. Honum er það kært að tala um gæfu sina og gengi á formannsárunum. Gamla Norróna dugði honum vel og lengi. Jóhann tók sér ekki nýjan farkost fyrr en fjórtán árum síðar Þá verður fyrir valinu Trausti frá Akranesi — gott sjóskip og traust, og reyndist Jóhanni mikil happa- fleyta. Ég kann langa sögu af sjómannsferli Jóhanns. Það væri freistandi að segja hana hér, en til þess eru engin tök. Ég vona að þessi fáu orð gefi i skyn eitthvaó af þvi þreki og karlmannslund, sem Jóhann átti til að bera og beitti óspart i sjósókn sinni, sjálf- um sér og öðrum til lifsbjargar. Hann var eldfljótur að gera það upp við sig hvort hann reri eða ekki. Hann lét engan mann hafa áhrif á sig, þegar hann hafði tekið ákvörðun. Það stóð sem hann sagði. Það eru sannmæli, að lánið strax til sins skips og sinna björg- unarstörfum eins og aðrir sjó- menn i Eyjum. En eftir miklar fortölur fór Gísli frá Eyjum undir morgun. Þetta voru þung spor fyrir Gisla eins og aðra eyjabúa. Gísli unni Eyjunum mikið. Hann fluttist þangað rúmlega tvi- tugur og var sjómaður og útvegs- bóndi upp frá þvi. Kona Gisla var Guðný Einarsdóttir frá Arnarhóli í Landeyjum, rnjög guðrækin og greind kona. Þau eignuðust sex börn og eru fimm þeirra á lifi: Svava, Salóme, Öskar. Einar og kona min Þyri. Guðný lést áriö 1956. Gfsli var haröur og mildur í senn. Hann elskaði allt ungviði og þau hjónin studdu margar fátæk- ar ekkjur i Eyjum með gjöfuin, en aldrei höfðu þau hátt um það. Gisli dvaldist á heimili okkar hjóna i þrjú og hálft ár eftir gos, en vegna sjúkleika konu minnar fluttist hann aftur til Eyja á dval- arheimili aidraðra. Þann tima sem Gisli bjó hjá okkur veitli hann okkur margar ánægjustund- ir. Gisli var sérlega ræðinn og léttur í lund. Þrek þessa öldungs var slíkt að undrun sætti. Daglega fór Gisli i gönguferðir i Hvassa- leitinu og ræddi við nágranna okkar. Glaðværð hans var slík að allir höfðu mikla ánægju af að hitta hann. nágrannar okkar komu oft úl úr húsi eða görðum til að ræða við hann, þvi að Gisli var glettinn við þá og hlátur lians var stöðugt með honum á sjónum. Honum hlekktist aldrei á, þótt sókndjarfur væri. Eitt sinn þegar vió Jóhann áttum tal saman um sjómanns- feril hans, þá varð honum þetta að orði: — Ég þakka ekki sjálfum mér lán mitt á sjónum nema að litlu leyti. Þar á ég guði mest að þakka og þar næst skipsfélögum mfnum. Búskap stundaði Jóhann alltaf jafnframt sjósókninni. Hann vann nokkuð að jarðarbótum og plægði kálgarða á vorin. Hann var einn af þeim fyrstu sem lærði að fara með plóg í sínu heimahéraði. Einnig var Jóhann einn af þeim- fyrstu, sem eignaðist bifreið, ætlaða til vöruflutninga, og ók henni milli Eyrarbakka og Reykjavíkur. Þetta var framhald þeirrar atvinnu, sem hann stund- aði á ungdómsárum sínum, en það var að flytja varning á hestvögn- um þessa sömu leið. Hann átti þá mörg sporin um Svinahraun Hellisheiði — Kambana — Flóann og allt niður að strönd- inni, þar sem sjórinn mókti stundum svo kyrr, að maður grunar hann ekki. um græsku . .. Þessar flutningaleiðir með kerru- hestana gátu áreiðanlega oft verið erfiðar og vandasamar — og ekki ósjaldan beinlínis karlmennsku- verk. Það eitt er víst, að Jóhann hefur ekki gefist upp á miðri leið á milli byggða, frekar en að það hafi nokkurntimá hvarflað að honum að gefast upp fyrir öldunni á hafinu. Hann hefur oft brotist áfram með farangurslest sína í illfæru og hörðum veðrum þessa leið, sem nú er dásömuð af skemmtiferðafólki, er ekur hana eftir steyptum rennisléttum vegi, i dýrindis farartækjum eins og bíllinn er í dag. Ég vil endurtaka þaó, hversu mér var ávallt ljúft að koma að Háeyri og eiga tal við Jóhann. Þær heimsóknir urðu mér giftu- drjúgar. Þar þykist ég hafa fengið ráðningu á sumum gátum lífsins, sem ég hef hvergi fengið fullnaðar svör við annarsstaðar. I þvi andrúmslofti, sem skapast hefur i kringum Jóhann nú siðustu árin, hef ég stundum fundið opnast leiðir, þar sem áður sýndist ófæra. Það skulu vera lokaorð þessa minningamáls um Jóhann B. Loftsson, að sú sé sannfæring min, að á ævikvöldinu hafi færst yfir hann fullkomin ró og kyrrð. Ekki sú ró og kyrrð, sem kallar á dofa og sinnuieysi, heldur sú ró og kyrrð, sem er hverjum manni dýrmætust; það er að geta lifað lífinu i sátt við allt og alla, en samt sem áður gert sér grein fyrir þvi, hvað eru lifsverðmæti og hvað eru lífsskemmdir; að sætt hans við lífið hafi verið fullkom- in. Öskar Aðalsteinn. smitandi og eignaðist hann marga vini meðal þeirra. Eins höfðu vin- ir okkar hjóna sem komu á okkar heimili meðan Gisli dvaldist hjá okkur mikla ánægju að ræða við hann og veit ég að margir þeirra mun minnast hans með söknuði. Gisli hafði ekki haft tök á því að ferðast mikið um landið. Við hjónin fórum ofl með hann um sveitir landsins, þær ferðir falla mér aldrei úr huga, þetta voru þær allra skemmtilegustu ferðir sem ég hef farið og mun ég ávallt rnjög þakklátur Gisla fyrir að hafa fengið að njóta hans sam- fylgdar i þessum ferðum. Gísli heitinn verður jarösettur frá Landakirkju i Vestmannaeyj- um i dag. laugardag 5. nóvember. Haraldiir Steingrínissoii. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu nieð góðuni fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast i síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubíli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.