Morgunblaðið - 05.11.1977, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1977
21
Rækjuveiðar leyfð-
ar á Húnaflóa
RÆKJUVEIÐI hófst í Húnaflóa í
gær. en ekki var leyft að hefja
veiði fvrr sökum niikils seiða-
magns í flóanum í haust. Að sögn
Jóns B. Jónassonar, deildarstjóra
í sjávarútvegsráðuneytinu, þá er
leyft að veiða 2000 lestir í Húna-
flóa í vetur og hefja 24 bátar
veiðarnar.
Jóre sagði, að enn hefði rækju-
veiði ekki verið leyfð á ölluni
veiðisvæðum i flóanum, t.d. væri
Öfeigsfjarðarflói og Reykjafjörð-
ur enn lokaðir.
Rannsóknabáturinn Dröfn hef-
ur verið við rækjurannsóknir á
Húnaflóa að undanförnu undir
stjórn Ingvars Hallgrímssonar
fiskifræðings. Við rannsóknir
kom í ljós, að seiðamagn í flóan-
um var nú orðið lítið, en aftur á
móti virtist vera mikið af rækju á
ferðinni. Dröfn er nú farin úr
Húnaflóa og verðúr við rannsókn-
ir í Öxarfirði næstu daga.
I gærmorgun hættist nýtt skip í flota Grindvíkinga, Þórshamar
GK 75, sem kevptur er frá Færeyjum og hét áður Götunes.
Þórshamar er sérstaklega búinn til nótaveiða og ber u.þ.b. 550
lestir. Skipið fer tii loðnuveiða næstu daga.
Myndin er af Þórshamri f Grindavíkurhöfn. Ljósm.: Guðfinnur
Greinargerð frá kjör-
nefnd Sjálfstæðisflokks
I TILEFNI fréttar í Morgunblað-
inu í dag, 4. nóvember 1977, þess
efnis, að Albert Guðmundsson al-
þingismaður muni verða í fram-
boði í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins, sem fram fer 19.—21. þ.m., og
el'nt er til vegna alþingiskosning-
anna að vori vill kjörnefnd Sjálf-
stæðisflokksins greina frá el'tir-
farandi:
Þegai' kjörnefnd hóf störf
höfðu vfifkjörstjórn flokksins
hroizt framboð 12 einstaklinga til
prófkjörsins.
Jafnframt hafði henni borizt
bréf frá Jöhanni Hafstein alþm.
og fyrrum formanni Sjálfstæðis-
flokksins og forsætisráðherra
þess efnis, aö hann mundi ekki
taka þátt í prófkjörinu.
Kjörnefndin varð sammála um
að óska eftir því við alþingis-
mennina,
Geir Hallgrímsson forsætisráð-
herra
og form. Sjálfst.fl.
Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráð-
herra
og varaform. Sjálfstæðisfl.
Ragnhildi Helgadöltur
Pétur Sigurðsson
Ellert B. Schram
Albert Guðmundsson
Guðmund H. Garðarsson
að þeir gæfu allir kost á sér í
væntanlegu prófkjöri. Þessir sjö
þingmenn, að Albert Guðmunds-
syni undanskildum, kváðust
mundu taka þátt í pröfkjörinu.
Eins og fram liefur komið í dag-
blöðum m.a. í viðtölum við Albert
Guðmundsson kvaðst hann ekki
gefa kost á sér í alþingisprófkjör-
inu. Þetta tjáði hann formanni
kjörnefndar.
Kjörnefndin var þó sammála
um að óska eindregið eftir því við
Albert Guðmundsson, að hann
endurskoðaði ákvörðun sína og
beindi þeim tilmælum til hans, að
hann gæf'i kost á sér í alþingis-
prófkjörinu sem fraro fer 19.—21.
þ.m.
í gær 3. nóvember tjáði Albert
Guðmundsson síðan kjörnefnd-
inni að hann gæfi kost á sér í
prófkjörið.
Kjörnefnd lýkur væntanlega
frágangi prófkjörslistans vegna
alþingiskosninganna i Re.vkjavik
1978, um þessa helgi og verður
hann þá birtur í heild.
Reykjavík 4. nóvember 1977
f.h. kjörnefndar Sjálfstæðis-
flokksins
i Reykjavik v/alþingis-
kosninganna 1978
Björgólfur Guðmundsson.
Basar lamaðra
og fatlaðra
KVENNADEILI) lamaðra og fatlaðra heldur basar 1 Lindarbæ á
morgun, sunnudag, til ágóða fyrir æfingastöðina við Háaleitis-
hraut. Hefst hann kl. 2. Er þar mikið af alls kyns handavinnu.
rúmfatnaði. kökiim o.fl.. sem félagskonur og fleiri hafa lagt til.
Einnig eru að venju um 600 lukkupakkar. sem ávallt hafa vakið
mikla hrifningu.
Allt snýst um síld
í Þorlákshöfn
Þorlákshöfn 4. nóvember
HÉR HEFUR verið landað 1550
tonnum af síld eða alls 15500
tunnum það sem af er. Síldinni
hefur verið ekið til Reykjavikur,
Hafnarfjarðar og Suðurnesja, en
hér er einnig saltað á tveimur
stöðum. Annars vegar hjá Meitl-
inum hf„ þar sem saltaðar hafa
verið um 4000 tunnur og er Búr-
fellið væntanlegt í kvöld með
700—800 tunnur. Hins vegar er
söltunarstöðin Glettingur, þar
sem saltað hefur verið í 1900
tunnur og er von á 2700 tunnuni
af síld þangað í kvöld. Síld hefur
einnig verid fryst hjá Meitlinum
eða samtals um 270 tonn.
Samfelld vinna hefur verið hér
Kvikmyndir
fyrir börn
KVIKMYNDASÝNINGAR verða
fyrir börn í Tjarnarbíó um þessa
helgi og eru það Bókavafðafélag
tslands, Félag bókasafnsfræðinga
og Félag skólasafnvarða sem f.vrir
þessum sýningum gangast, en
þessi félög stóðu fyrir ráðstefnu
uni hörn og kvikmvndir uin
síðustu helgi.
Aðgangur aó þessum sýningum
er ökeypis en sýningar verða sem
hér segir: Laugardaginn kl. 13.30
— Lisa i Undralandi og Atla á
eyðiey og kl. 15.30 — Uppreisnin
en á sunnudag kl. 15 verður sýnd
myndin — Vertu hl'ess.
í frystihúsinu frá þv að það var
opnað eftir lagfæringar i haust.
Þar hefur verið unninn afli úr
tveimur togururo, Jóni Vídalín og
Brynjólfi. Afli Jóns Vídalíns hef-
ur verið fremur slakur undanfar-
ið en aftur á móti góður hjá
Brynjölfi. Hann landaði þrisvar i
LEIKFÉLAG Hornafjarðar frum-
sýnir ieikritið „Kertalog" eftir
október, samtals 230 tonnum, en
þetta er lítill togari, um 250
brútlólestir.
Nú snýst allt um síldina hér í
þorpinu og verður svo þar lil leyfi
til veiða renna út hinn 20. nóvem-
ber nk„ ef vel gengur og gefur.
— Ragnheiður
Jökul Jakobsson undir leikstjórn
Ingunnar Jensdóttur á morgun.
laugardag, kl. 20.
Myndin er af Eiríki Guðmundssyni og Margréti Guttormsdóttur i
hlutverkum sfnuni i Kertalogi.
Leikfélag Homafjarð-
ar sýnir Kertalog
llötn í llornat iiöi. 4. nóvcmhor.
Virðisaukaskatturinn leggst í raun
aðeins einu sinni á sama verðmæti
Með aðalhlutverk fara Margrét
Guttormsdóttir og Eiríkur Guð-
mundsson. en alls taka 19 manns
þátt í sýningunni.
„Mismunurinn á virðisauka-
skatti og núverandi söluskatti
liggur fyrst og fremst í mis-
munandi aðferðum við inn-
heimtu þeirra og skil í ríkis-
sjóð,“ sagði Ólafur Nilsson, lög-
giltur endurskoðandi, er Mbl.
bað hann í gær að segja les-
endum, hvað fælisl í hugtakinu
virðisaukaskattur.
„Söluskattur er í aðalatriðum
einungis innheimtur á einu við-
skiptastigi; við sölu til neyt-
enda, en virðisaukaskattur er
hins.vegar innheimtur á öllum
viðskiptastigum; viö innflutn-
ing, framleiðslu. heildsölu og
smásölu. Innheimtan dreifist
þvi á fleiri aðila og lægri fjár-
hæð er skilað í ríkissjóð af
hverju einstöku fyrirtæki.
Söluskattur er einnig inn-
heimtur af ýmsum mikilvægum
aðföngum fyrirtækjum svo sent
orku, viðhaldsþjónustu og fjár-
festingarvörum. Skatturinn
hefur því áhrif á framleiðslu-
kostnaðinn og veröur að reikna
með honum við ákvörðun á
söluverði vara og þjónustu frá
einu viðskiptastigi til annars.
Þannig getur oft orðið um tví-
sköttun aó ræða eða jfnvel
margsköttun á sama verð-
mætið. Þetta getur einnig vald-
ið mismun milli atvinnugreina
eða framleiðsluaðferða.
Aðaleinkenni ’ virðisauka-
skatls er að hann leggst í raun
aðeins einu sinni á sama verð-
mætið hversu oft sem varan eða
þjónustan gengur millivið-
skiptastiga og hefur hann því
ekki áhrif á framleiðslukostn-
aðinn, Þessu marki er náð með
svokallaðri, frádráttarheimild.
Aðalreglan er sú að öll f.vrir-
tæki á öllum viðskiptastigum
innheimta skatt af heildarsölu
sinni. Þau greiða einnig skatt
af öllum aðföngum, svo sem
keyptum vörum, rekstrarkostn-
aði, fjárfestingu og fleiru. Við
skil á skatti i ríkissjóð gera
fyrirtækin grein fyrir inn-
heimtum skatti af heildarsölu.
en niega draga frá allan skatt
sein þau greiða af innkaupum.
Mismuninum skila þau í ríkis-
sjóð.
Það er einkum þessi inn-
heiintuaöferö sem skilur viröis-
aukaskatt frá öðrum söluskalts-
kerfum.'
Onnur syning verður á þriöju-
dag 8. nóvember. Aformað er að
fara í leikferðir með verkiö um
Austur- og Suðurland síðar í mán-
uðinum. Starf leikfélagsins er í
miklum blóma og eru jafnan sett
upp a.m.k. tvö leikverk á ári.
Leikfélag Hornafjarðar verður
15 ára á-þessu ári og stjórn þess
skipa nú; Erla Asgeirsdóttir. for-
maöur. Krislbjörg Guðmundsdótt-
ir. Sigríður Guðmundsdóttir.
Hrolláugur Marteinsson og Mar-
grét Jóhannesdóttir.
Jens.