Morgunblaðið - 03.12.1977, Síða 14

Morgunblaðið - 03.12.1977, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1977 Útgafandi Framkvœmdastjóri Ritstjórar Ritstjómarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóm og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur. Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthlas Johannessen. Styrmir Gunnarsson. Þorbjöm Guðmundsson. Bjöm Jóhannsson. Ami GarBar Kristinsson. Aðalstrœti 6. slmi 10100. ABalstrati 6. slmi 22480. Sakharovrétt- arhöldin í Róm Sakharovréttarhöldin í Róm, sem fram fóru í liðn- um mánuSi, hafa vakiS athygli um heimsbyggS alla. Victor Sparre, sein sæti á f Sakharov-nefndinni og var meSal spyrjenda viS vitnaleiðslur í réttarhöldunum, sagði m.a. við fréttamann IklGrg-jr.blaðsins, sem viSstaddur var réttarhöldin: „Fyrri Sakharov-vitnaleiðslurnar, sem haldnar voru i Kaup- mannahöfn fyrir tveimur árum, voru bæSi mikilvægar og merkilegar, en ég tel að árangurinn hafi orSið miklu meiri hér en þar." Þessi norski listamaður bætti við: „Það leikur enginn vafi á því að aldrei fyrr hefur verið hægt að ná saman jafn miklum og jafn áreiðanlegum upplýsingum um kúgun og mannréttindaskerðingu í Sovétrikjunum en gert hefur verið þessa dagana hér í Róm." Victor Sparre leggur sérstaka áherzlu á það, hverja þýðingu það hafi að draga saman einmitt nú marktækan vitnisburð fólks, ekki einungis úr Sovétríkjunum. heldur og öðrum rikjum Austur-Evrópu. sem þekkir af eigin raun meðferð pólitiskra andófsmanna, bæði í fangelsum og á geðveikrahæl- um, svokölluðum. Nú, þegar Belgradráðstefnan stendur yfir, um efndir Helsinkisáttmálans. er mjög mikilvægt að þetta komi fram, sagði Sparre. Sparre vakti sérstaka athygli á vitnisburðum Ljudmilu Alekseevu, frá Moskvu, og Edmund Hulsz, flóttamanns frá Póllandi. Ljudmila Alekseeva sagði sovézk yfirvöld hafa hert undan- farið ofsóknir á hendur þeim, sem dirfast að gagnrýna stjórnvöld heimafyrir. Starfsemi andófsmanna hafi engu að síður fengið ýmsu áorkað. Starfsemi andófshópa nær einkum til menntamanna, verkamanna og bænda. Hún segir upplýs- ingar um ofsóknir gegn trúfélögum í Sovétríkjunum einkum komnar frá verkamönnum og bændum en ( þeim þjóðfélags- stéttum sé trúað fólk fjölmennt, þrátt fyrir ofsóknir stjórn- valda. Ljudmila Alekseeva bindur vonir við árangur af Bel- gradráðstefnunni. „í þessu sambandi," segir hún, „er ekki hægt að leggja nógu mikla áherziu á, hvað almenningsálitið á Vesturlöndum er mikilvægt og sem betur fer hefur áhugi og skilningur á þessum málum aukizt mjög að undanförnu . . . Tilgangur yfirvalda er að kæfa frjálsa hugsun, þannig að hægt sé að halda þessu þjóðfélagi í skefjum, en þessi afstaða sprettur af ótta og tortryggni, sem nauðsynlegt er að reyna að eyða." Edmund Hulszfrá Póllandi sagði m.a.: „Mynduð hafði verið sérstök verkalýðsnefnd, þar sem ég var kjörinn til forystu og átti ég ásamt Maranski borgarstjóra að ræða, hvernig ætti að skipuleggja verkfallsaðgerðir. þannig að þærfæru friðsamlega fram, en slíkt varð vitanlega að gera I samvinnu við yfirvöld. En á sama tima og Maranski var á fundi með okkur var haldinn annar fundur, þar sem helztu kommúnistaleiðtogarnir lögðu á ráðin og skipuðu sérstaka nefnd sem átti að sjá um, að verkfallsaðgerðir og önnur umsvif af hálfu verkafólks yrðu umsvifalaust bæld niður. Það var svo á miðnætti þennan sama dag, að 500 vopnaðir lögreglumenn umkringdu húsið, þar sem verkfallsnefndin sat á fundi. Nokkrir ruddust inn og hrópuðu: „Hreyfið ykkur ekki, annars skjótum við." Þeir réðust á okkur með barsmíð og misþyrmingum og handtóku okkur alla sem einn . . ." „Þessum harmleik lauk fimmtudag- inn 17. desember. Snemma dags var járnbrautarstöðin i Gdynia umkringd og lokuð með brynvörðum bílum og skrið- drekum. Engínn komst út af umkringda svæðinu. Skyndilega hófst vélbyssuskothrið á hóp varnarlauss fólks, sem var að koma út úr einni lestinni . . . Á strætum borgarinnar gekk herlögreglan berserksgang. . . Það kom siðar i Ijós að i fjöldamorðum þennan dag höfðu fórnarlömbin orðið 3000 manns." Siðan lýsir Hulsz réttarhöldum yfir sér, barsmíðum og misþyrmingum, sem óþarfi er að rekja frekar, en koma heim og saman við annan vitnisburð, sem vitnar um þá mannréttindaskerðingu sem þjóðir A-Evrópu þurfa við að búa undir kommúnisku þjóðfélagskerfi. Vitnisburður fjölmargra þegna A-Evrópurikja við Sakharvo- réttarhöldin i Róm, sem með engu móti er hægt að vefengja, á erindi til sérhvers frjálsborins manns. í því sambandi er rétt að minna á orð Ljudmilu Alekseevu um þýðingu almenningsálits á Vesturlöndum, til stuðnings mannréttindabaráttu i rikjum kommúnismans. En þessi vitnisburður á ekki síður erindi til okkar varðandi okkar eigin mál. Borgarlegt þjóðfélag þingræðis og lýðræðis, eins og við þekkjum það i framkvæmd á Norðurlöndum, hefur vissulega sina annmarka, sem eru gagnrýni verðir. En við þekkjum ekkert þjóðfélagsform i viðri veröld sem tryggir þegnum sinum meiri mannréttindi né traustara afkomuöryggi. Þetta þjóðskipulag felur og i sér möguleikann til að þróast frá annmörkum sinum og til meiri fullkomnunar, án byltingar og ofbeldis, en fyrir tilstilli frjálsra skoðanaskipta og meirihluta- áhrifa almennings í frjálsum og leynilegum kosningum. Þessi réttindi kunnum við betur að meta, þegar horft er til mann- réttindaskerðingar hins kommúniska þjóðskipulags, sem pólitískir blindingjar meðal okkar stefna engu að síður að, hafandi ekkert lært af 60 ára reynslu þess í Sovétríkjunum. MORGUNBLAÐIÐ hefur snúið sér til Davíðs Schev- ing Thorsteinssonar, formanns Félags íslenzkra iðn- rekendá, og Kristjáns Ragnarssonar, formanns Landssambands íslenzkra útvegsmanna, og spurt um álit þeirra á ummælum, sem nýlega voru höfð eftir formanni ráðs Efta, Fríverzlunarbandalags Evrópu. Formaðurinn, Brugger frá Sviss, lýsti því yfir á fundi ráðgjafanefndar Efta nýlega að tillögur Félags íslenzkra iðnrekenda um frestun tollalækkana í eitt ár kæmu ekki til greina, þar sem þær brytu í bága við stofnskrá Efta. Tolla- lækkanir og EFTA Davíð Scheving Thorsteinsson: Eigum að fresta gildistöku tolla- lækkana einhliða DAVÍÐ Scheving Thorsteinsson, formaður Félags íslenzkra iðnrek- enda, svaraði efnislega á þessa leið: — Það sem gerðist á umrædd- um Efta-fundi var að fulltrúar ís- lands skýrðu frá nauðsyn þess að fresta umsömdum tollalækkunum um eitt ár. Færð voru fram mörg rök og veigamestu rökin voru þau, að athuganir hefðu sýnt að önnur riki innan Efta hefðu farið út á þá braut að styðja sinn iðnað til þess að gera hann samkeppnisfærari m.a. á þann hátt að greiða niður hverja unna vinnustund. Það sem gerðist næst var að fulltrúar frá Sviss, Svíþjóð og Noregi komu i pontu og játuðu að þetta væri rétt, sögðu hreinlega að þetta ætti sér stað og játuðu i raun brot á fríverzlunarhugsjóninni. Fulltrúi Norðmanna sagði t.d. að ef Norðmenn hefðu ekki gripið til þessara styrktaraðgerða hefðu 100 þúsund manns orðið atvinnu- lausir í Noregi. Einn sænsku full- trúanna spurði mig hreinlega að því hvort ég lifði ekki á 20. öld- inni. Ég væri a8 tala um fríverzlun. sem væri alls ekki til a8 hans mati. Hann sag8i einnig I ræSu a8 þa8 væri frumskylda hverrar rikis- stjórnar a8 hugsa um þegna sína en ekki samninga. sem hún hefSi gert og hann talaSi um a8 segja mætti a8 meS styrktarkerfinu væri veriS a8 flytja atvinnuleysiS út úr landinu. Og framkvæmdastjóri Efta, C. Muller, sagSi blákalt yfir allan hópinn a8 hinar opinberu stuSn- ingsaSgerSir vi8 iSnaSinn i fyrr- greindum löndum væri verndar- stefna i nýju dulargervi. Skýrar er nú ekki hægt a8 tala a8 mínu mati. Þa8 er því min skoSun, a8 þótt þaS liggi alveg fyrir a8 tillaga um frestun á niSurfellingu tolla um næstu áramót hljóti ekki sam- þykki innan Fríverzlunarbandalags Evrópu eigum viS íslendingar að fresta gildistökunni einhliða. Ég tel að staSa annarra rikja innan bandalagsins sé svo veik. þar sem þau hafa þverbrotið anda fri- verzlunarstefnunnar með styrktar- aSgerðum gagnvart iðnaðinum, að þau muni engum mótmælum Kristján Ragnarsson: Fagna ákvörðunEFTA „ÉG fagna þvi að EFTA skuli ekki hafa samþykkt frekari frestun á tollalækkunum framleiðsluvara EFTA-landa á íslandi. Það ber brýna nauðsyn til í þessu þjóð- félagi að iðnaður verði i sömu aðstöðu og aðrar útflutningsgrein- ar, þ.e. að verndartollar verði afnumdir," sagði Kristján Ragnarsson formaður Landssam- bands isl. útvegsmanna þegar Morgunblaðið ræddi við hann. „Ég hef borið virðingu fyrir iðn- rekendum fyrir að hafa samþykkt inngöngu i EFTA á sinum tima. og harma að þeir skuli þvi draga þá samþykkt til baka. f ræðu þeirri er ég flutti i upphafi aðalfundar L.Í.Ú. á mið- vikudag lét ég i Ijós þá skoðun. að samningi okkar við EBE væri stefnt í voða ef við stæðum ekki við gerða samninga. Það er þvi ekki ástæða til að óttast það leng- ur, að við stöndum ekki við gerða samninga, ef málið nær ekki fram að ganga, auk þess sem það er hagsmunamál allra íslendinga að vöruverð lækki. vegna lækkunar tolla. og fyrirhuguð tollalækkun vegna EFTA-samninga mun nema 800 millj. kr. á ári frá og með næstu áramótum." sagði Kristján. hreyfa. þótt við tökum ákvörðun um það sjálfir að fresta einhliða gildistöku tollalækkana um eitt ár. Ef það verður gert skapast svig- rúm fyrir islenzk stjórnvöld til að framkvæma þær tillögur til iðn- þróunar, sem Félag islenzkra iðn- rekenda hefur lagt fram jafnhliða þvi, sem reynt yrði að fá sam- starfsþjóðirnar innan Efta og EBE til þess að hætta þessum stuðn- ingsaðgerðum við sinn eiginn iðn- að. Ég vil segja það að lokum, að mér finnst það alltof oft gleymast i umfjöllun um þetta mál, að fs- land gekk í Efta á sinum tima til þess að styrkja islenzkan iðnað en ekki erlendan. Launakjör æðstu starfs- manna Reykjavíkurborgar Alfreð Þorsteinsson (F) spurðist fyrir um eftirfarandi á fundi borgarstjórnar fimmtudaginn 1 des 1 Hver eru laun eftirtalinna embættismanna Reykjavik- urborgar, að meðtöldum nefndarstörf- um fyrir borgina: a borgarstjóra. b borgarritara, c. borgarlögmanns, d skrifstofustjóra Reykjavikurborgar, e borgarverkfræðings f hafnarstjóra, g rafmagnsstjóra, h hitaveitustjóra. i vatnsveitustjóra j framkvæmdastjóra BÚR, k forstjóra SVR og I slökkviliðs- stjóra 2 Ef um yfirvinnu er að ræða hjá umræddum aðilum. hvernig er hún greidd og hversu mikil var hún siðast- liðið ár? 3 Hvernig er bifreiðastyrkjum til þessara aðila háttað? 4 Njóta þessir starfsmenn einhverra hlunninda ofan á launagreiðslur? Borgarstjóri Birgir ís- leifur Gunnarsson svaraði og fer svar hans hér á eftir Föst laun 1977: Borgarstjóri 3 858 250 —, borgarritari 3.101.807. — , borgarlögmaður 3 018.771 —, skrifstofustjóri borgar- stjórnar 3.018.771. — . borgarverk- fræðingur 2.973 443 —. hafnarstjóri 2.935.735. — , rafmagnsstjóri 2935735. — , hitaveitustjóri 2935735—, vatnsveitustjóri 2 856.310 —, framkvæmdastjórar BÚR 2 856 310 - og 2.814.206.-, forstjóri SVR 2 856 310 — og slökkviliðsstjóri 2.856.310.— . Nefndarlaun: Borgarstjórn 844 262,— borgarstjóri, borgarráð 1 519.672 —, hafnarstjórn 157 200 — borgarstjóri, hafnarstjóri og borgarverkfræðingur, stjórn Gjald- heimtunnar 92 518 — borgarritari Yfirvinna sl. ár: Borgarritari 1 356 997 —, borgarlögmaður 56.737. — , skrifstofustjóri borgar- stjórnar 1 026.540.-, borgarverk- fræðíngur 1 136 538 —, hafnarstjóri 772 689 —, rafmagnsstjórí 823 542 —, hitaveitustjóri 1.200 000 —, vatnsveitustjóri 610 887 —, framkvæmdastjórar BÚR 1.481 723 — hvor, forstjóri SVR 561.600. — , slökkviliðsstjóri 626 610 -. Akstursgreiðslur: Skrifstofustjóri borgarstjórnar 4500 km, borgarverk- fræðingur 4000 km, hafnarstjóri 4500 km, hitaveitustjóri 7500 km, vatnsveitustjóri 7000 km, forstjóri SVR 9000 km og forstjórar BÚR 334 200 - hvor Hlunnindi: Borgarstjóri R 612, R 3000 Slökkviliðsstjóri Risna: Borgarstjóri 100 000 á ári. hafnarstjóri lOO OOOáári, borgarritari 25.000 á ári, borgarlögmaður 25.000 á ári, hitaveitustjóri 20 000 á ári og forstjóri SVR 20 000 á ári Simi: Framkvæmdastjórar BÚR, for- stjóri SVR, slökkviðliðsstjóri, þessir utan einkaskeyta og einkalanglinusam tala Hafnarstjóri fastagjald Húsnæði: Rafmagnsstjóri greiðir leigu samkvæmt samningi Einkennisföt: Slökkviliðsstjóri eins og aðrir slökkviliðsmenn Framhald ábls. 21. * H1 ýýMft*** * * *fýffýýffH * t m V# * v t 4Vy»t, L 4 *> ■VvA-*.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.