Morgunblaðið - 03.12.1977, Síða 30

Morgunblaðið - 03.12.1977, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1977 — Minning Helgi Framhald af bls. 23' störfum meö hestum, áður en dráttarvélar komu til sögunnar. Vann hann þannig bæði að bui föður síns í Hruna og einnig utan þess. í Hruna var mikill gesta- gangur, einkum á sumrum, m.a. mikið um útlenda ferðamenn, sem húsbóndinn varð að sinna og greiða fyrir. Kom því bústjórnin mest á Helga, elsta soninn, þar sem hinir yngri voru við lang- skólanám. En alla tíð var mikið ástriki milli foreldra og systkina í Hruna og ágætur heimilisbragur. Geta verður og þess að í Hruna var bæði samkomustaður, póstaf- greiðsla og símstöð. Og á vetrum voru þar oft börn og unglingar við nám. Sra Kjartan var frömuður sinnar sveitar í öllum fræðslu- og skólamálum. Það hvíldu því mikil störf á elsta syninum, enda honum vel til þess trúandi. En á þessu varð breyting þegar Sra Kjartan lét af prestskap 1930 vegna vanheilsu. Helgi kvæntist 1926 Elínu dótt- ur Guðjóns Helgasonar, bónda í Gröf, og konu hans Guðrúnar Er- lendsdóttur. Jafnframt fékk hann hluta Grafarlands og stofnaði þar nýbýli, er hann nefndi Hvamm. Reisti hann þar myndarlegt íbúð- arhús ásamt peningshúsum og ræktaði tún og garða. Þangað fluttu svo ungu hjónin 1930 ásamt prófasthjónunum. Sra Kjartan dó vorið 1931, en frú Sigríður 1947 í hárri elli. Dvaldi hún jafnan í Hvammi hjá þeim Helga og Elínu. Þar var líka gestkvæmt á sumrum og mörg börn oft og einatt. Heim- ilisbragur allur hinn skemmtileg- asti, svo sem verið hafði í Hruna. Systkin Helga komu þar og oft á sumrum og dvöldu um tíma, eink- um Unnur. — Ég kom oft að Hvammi á Flúðsárum mínum. Og ekki komu börn mín í annan stað, er þeim þótti skemmtilegri. Helga tókst fljótt að koma sér upp góðu búi og stundaði mikið garðrækt. Ekki leið á löngu uns hann fór að planta barrtrjám í brekkuna fyrir ofan bæinn sinn. Nú er þar kominn hinn fegursti skógarteigur, sem líta má á einum bæ. Við þá sjón kemur mér oft í hug hin fleyga setning úr alda- mótaljóðum Hannesar Hafstein: ,,Menningin vex i lundi nýrra skóga". Fáir ungmennafélagar hafa komist nær þeirri hugsjón en Helgi í Hvammi. Þau hjón eignuðust fjögur börn, þar af komust þrjú upp: Jóhannes, garðyrkjumaður, kvæntur Kristinu Karlsdóttur, Kjartan, hreppstjóri, kvæntur Björgu, kennara, Björnsdóttur og Guðrúnu, iþróttakennara, sem starfar í Reykjavík, en á sumar- bústað í landi föður síns. Jóhann- es reisti einnig myndarlegt nýbýli í landi föður síns, en Kjartan tók við búi foreldra sinna, þegar þau hættu búskap fyrir nokkrum ár- um vegna elli og varnheilsu. Þau feta öll ótrauð á slóð feðra sinna ásamt niu ágætum bó'rnum. Ekki má láta þess ógetið, að Helgi varð að taka að sér mörg störf fyrir sveitarfélag sitt og sat í ótal nefndum t.d. skattnéfnd, hreppsnefnd, sóknarnefnd og sýslunefnd árum saman. Ungur lærði hann að leika á orgel og var því organisti og söng- stjöri í Hrunakirkju fram á átt- ræðisaldur, minnir mig. Hann starfaði og árum sainan i Hreppa- kórnum, sem Sigurður Ágústsson frændi hans stjórnaði. Hann vann við Sparisjóðinn Gullfoss, meðan hann starfaði. — Þá brá hann sér og á leiksviðið fyrir Umf. Hruna- manna. Aldrei vildi hann gera mikið úr hæfileikum sínum á því sviði, en ekki fannst mér neitt skorta á reisn og skörungsskap hans, sem Torfa í Klofa, þegar við lékum Lénharð fógeta 1934 og 1936. — En hér læt ég staðar numiö. — Segja má að Helgi hafi verið gæfumaður — en andstreymi lífs- ins varð hann líka að reyna. Hann sá á bak öllum systkinum sinum og fóstursystur. Bær hans stór- skemmdist eitt sinn í eldi og varð hann þá fyrir miklu tjöni. Fyrir nokkrum árum veiktist hann af brjóstveiki og varð að vera í sjúkrahúsi um tíma, en náði sér furðu fljótt. — Allt þetta bar hann með dæmafáu þreki og hug- arró kristins manns. Prúð- mennskan brást honum aldrei. Eg var þeim hjónum samtima á Heiísuhælinu í Hveragerði nokkr- ar vikur sl. vor. Ég dáðist að sam- komulagi þeirra, hvað þau unnu hvort öðru og hjálpuðust að — eins og þau höfðu gert í hálfa öld. Slíks er gott að minnast. — En nú er sköpum skipt. Að- fararnótt 20. þ.m. veiktist Helgi snögglega og var látinn innan fárra klukkutíma. Hjartað hafði bilað. Þegar gamall maður deyr (þar á ég líka við konur, sbr. að konur eru lika menn, þótt það gleymist stundum) er í raun og veru ekki harmur kveðinn að neinum nema eftirlifandi maka. Þar verður opið skarð og ófyllt. Þá hlýtur að byrja „annað lif í þessu lífi“. Því fyrr, sem ntenn gera sér það Ijóst þvi betra. Þar geta góð börn og tengdabörn, vinir og frændur komið til hjálpar. Og svo mun hér verða. Ég trúi þvi að vinkona mín, Elín, geri sér þetta ljóst, því að margar hendur og hugir verða henni til hjálpar. Greind hennar, glaðlyndi og sterk trú, mun og hjálpa þar, ásamt ógleymanlegum minningum um ágætan lífsföru- naut. Sjálfur vil ég kveðja minn horfna vin þannig: Veri hann blessaður og sæll. Ástarþakkir fyrir ævilanga vináttu og tryggð. Hittumst heilir bráðum á strönd hins ókunna. 29/11 1977 Ingimar H. Jóhannesson. Þeim fækkar óðum bjartsýnis- mönnunum, sem gerðust braut- ryðjendur íslenzkrar atvinnu- garðyrkju. Einn þeirra, Helgi í Hvammi, er kvaddur í dag. Félag- ar hans í Sölufélagi garðyrkju- manna þakka Ianga og ánægju- lega samfylgd og á ýmsum tímum ágæt störf í þeirra þágu. Þeim sem þetta ritar er Helgi fyrir margar sakir minnisstæður. Hann var einn þeirra fáu, sem með sanni má segja að hafi auðg- að og fegrað umhverfi sitt, í þess- ara orða víðustu merkingu. Heima og heiman færði hann með sér andblæ þess hreina, fág- aða og trausta; aðalsmerki fagur- kerans og drengskaparmannsins. Hin hógværa glaðværð, létta og lifandi frásögn, afburða minni á skemmtileg atvik, að ógleymdum þeim aragrúa græskulausra vísna og sagna, sem Helgi kunni, skíp- aði honum á bekk með þeim fáu, sem að allri gerð og í eðli sínu eru skemmtilegir. Þótt Helgi væri í raun mjög hlédrægur og flíkaði lítt þessum kostum sínum, þurfti sjaldan mik- ið til á fleygri stund, að hver snjalla vísan fylgdi annarri með viðeigandi atburðalýsingu, sem oftast var svo ljóslifandi að mönn- um virtist atburðurinn vera að gerast fyrir augum sér. Slíkt er aðeins á færi þeirra fáu útvöldu, sem meðvitandi eða óvitandi þroska með sér meðfædda frá- sagnarhæfileika, og ná slíkum tökum á máli og stfl að hrein unun er á að hlýða. Helga var gott að kynnast og ávinningur að vináttu hans og traustu samstarfi um fjölda ára. Eftirlifandi eiginkonu og fjöl- mennu skylduliði votta ég samúð mína. Þorv. Þorsteinsson Þjálfari óskast UMF Víkingur Ólafsvík óskar að ráða knatt- spyrnuþjálfara, n k sumar. Upplýsingar gefur Gylfi Scheving, í síma 6217, Ólafsvík, (á kvöldin). Umsóknarfrestur er til 10. des. Um 250 ungmenni sýna á fimleika- á morgun FJOGURMET HJÁSTEFÁNI HASTÖKKVARINN efnilegi í ÍR, Stefán Þ. Stefánsson, er sann- kallaður metahrellir, því á skömmum tíma setti hann fjögur islandsmet í yngri aldursflokkunum. Á innanfélagsmóti í Baldurshaga fyrir skömmu hljóp hann 50 metra grindahlaup á 7,8 sekúndum, sem er -nýtt piltamet og sveinamet. Var eldra piltametið 8,1 sekúnda og eldra sveinametið 7,9 sek. Á öðru móti ÍR-inga í Baldurshaganum setti Stefán svo innanhússmet í hástökki pilta er hann stökk 1,73 metra. Aðeins tveimur dögum síðar bætti Stefán svo þetta met á móti Leiknis er hann stökk 1,78 metra. Þórdís Gfsladóttir setti liýtt innanhússmet í hástökki í kvenna- flokki á f.vrra hástökksmótinu er hún stökk 1,68 metra. Á því móti felldi Guómundur R. Guðmundsson FH mjög naumlega 2,01 metra. Fór hann himinhátt yfir 1,95 metra. — agas. Landsliöið í blaki mæt- ir pressunni NÚ Á sunnudaginn fer fram pressuleikur í blaki. Landsliðið, sem mæta skal hinu frækna pressuliði, er skipað eftirtöldum mönn- um: Böðvar Helgi Sigurðsson, Guðmundur Pálsson, Gunnar Árna- son, Halldór Jónsson, Indriði Arnórsson, Jason Ívarsson, Páll Olafsson, Sigfús Haraldsson og Valdemar Jónasson. Pressuliðið er afturámóti þá eru menn i pressulióinu sem UM 250 UNGMENNI koma fram á hinni áriegu skóla- íþrótta- og fimleikasýningu, sem verður í Laugardalshöll- inni á morgun og hefst klukkan 14. Ingimar Jónsson setur hátfðina, en skólahljómsveit Kópavogs leikur frá 13.45 til 14. Síðan ganga sýnendur fylktu liði inn í salinn. Fyrsta atriðið er sýning 28 ungra stúlkna úr KR, en síöan rekur hvert atrið- ið annað, ýmist frá skölum eða fþróttafélögum. Síðasta atriðið verður sýning hóps 60 pilta og stúlkna frá Reykjaskóla f Hrútafirði undir stjórn Hösk- uldsGoða Karlssonar. Reykjavíkur- mót í júdó REYKJAVÍKURMÖTIÐ í Júdó fer fram á morgun og hefst klukkan 14 í íþróttahúsi Kenn- araháskólans. Keppt verður í þremur þyngdarflokkum karla og einum kvennaflokki. Allir beztu júdómenn Reykjavíkur taka þátt í mótinu og má búast við jafnri og spennandi keppni. skipað þessum leikmönnum: Benedikt Höskuldsson, Harald- ur G. Hlöðvarsson, Hreinn Þor- kelsson, Jean Pewrre Beaudet, Júlíus B. Kristinsson, Kjartan P. Einarsson, Sveinn Hreins- son, og Torfi R. Kristjánsson. Eins og sjá má af þessari upp- talningu mætist hér blóminn úr íslenskum blakliðum. Erfitt er að segja um hvort liðið er sigur- stranglegra, því þótt landsliðið virðist sterkara á pappírnum, ekki gefast upp fyrr en í fulla hnpfana. Það eitt má segja að þetta verður örugglega spenn- andi Ieikur og vonandi enginn svikinn sem leggur leið sína i Hagaskólahúsið á sunnudaginn kl. 16. Ennfremur er fólki bent á að forleikur verður leikur Vikings og Þróttar í 1. deild kvenna, og verður þar án efa hajt barist og hvergi gefið eftir. Hefst hann kl. 14. ÞS/KPE Þrótturleikjjr afturgegn IS Blakleikir um helgina verða sem hér segir: 1. deild karla: Þróttur — fS laugardag kl. 16.30 I Hagaskólanum. Um síðustu helgi vann Þróttur I viðureign þessara sömu liða og hafa stúdentar örugglega í hyggju að hefna þess. Verður hér þvf um spennandi viðureign að ræða sem enginn skyldi láta fram hjá sér fara. 1. deild kvenna. Þar fara fram þrir leikir: Laugardag kl. 13.30 UBK — ÍS I Hagaskóla. Á Akureyri leika ÍMA og Völsungur kl. 13. Á sunnudag leika svo Þróttur og Víkingur kl. 14 í Hagaskóla. í 2. deild karla verða þrir leikir og allir á laugardag. Þá leika í Hagaskóla Þróttur b og ÍS b kl. 1 5, i Varmárskóla leika Afturelding og Vikingur kl. 16. og á Akureyri ÍMA og Völsungur. kl. 14.30. h_ Pb/KrC Tveirúrslita- Ieikirí2. * deild á morgun í 2. DEILDINNI í handknattleik eru allir leikir i rauninni úrslitaleikir, þvi keppnin þar er óvanalega hörð. Á morgun verða tveir leikir i deildinni og örugglega hörkuleikir, eins og aðrir leikir þar. Grótta leikur gegn Fylki klukkan 15.30 á Seltjarnarnesi og klukkan 18.25 leika i Garðabæ lið HK og Leiknis. Auk þessara leikja verða fjölmargir leikir i öðrum deildum og flokkum íslandsmótsins i handknattleik. KR-ingar noröur UM HELGINA fara fram 3 leik- ir í 1. deild karla og einn leikur í mfl. kvenna í Íslandsmótinu í körfuknattleik. I dag, laugardag, halda KR- ingar til Akureyrar og leika við Þór bæði í mfl. karla og kvenna. Kl. 15.30 leika karlarn- Dýrkeyptur sigur KR-inga SIGUR KR-inga yfir Val f Íslandsmótinu í körfuknattleik á fimmtudagskvöldið var dýru verði keyptur, því að tveir af leikmönnum liðsins slösuðust alvarlega, þó sérstaklega annar þeirra, Kolbeinn Pálsson, en hásin slitnaði í fæti hans, og leikur hann ekki meira á þessu keppnistfmabili. Þá fór Birgir Guðbjörnsson úr axlariiði og einnig mun hafa flísast úr beini í öxlinni. Verður hann frá keppni í nokkrar vikur a.m.k. Er þetta að sjálfsögðu mjög bagalegt fyrir KR-inga, þvf að þessir leik- menn hafa verið tveir af máttarstólpum liðsins undanfarin ár. ir, en konurnar áð þeim leik loknum eða kl. 17.00. KR-ingar, sem unnu Val mjög sannfær- andi í fyrrakvöld, eru sigur- stranglegri, en Þórsarar, sem hlutu sín fyrstu stig um síðustu helgi. gefa sjálfsagt ekkert eftir. Þá ætti að geta orðið um hörkukeppni að ræða hjá kven- fólkinu. A morgun, sunnudag, verða síðan tveir leikir i 1. deild karla í iþróttahúsi Hagaskólans. Kl. 20.00 leika ÍR og ÍS og kl. 21.30 hefst leikur Fram og Vals. Báðir þessir leikir ættu að geta orðið jafnir og skemmtilegir, en við fyrstu sýn virðast sigurlikur stúdenta og Valsmanna vera heldur meiri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.