Morgunblaðið - 22.03.1978, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.03.1978, Qupperneq 1
32 SÍÐUR OG 16 SÍÐNA ÚTSÝNARBLAÐ 60. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Salisbury, 21. marz. Reuter. Bráöabirgðastjórn hvítra manna og svartra sem á að undirbúa valdatöku blökkumanna í Rhódesíu í árslok tók við völdum í dag og par með er lokið tæplega aldargömlum yfirráðum hvítra manna í Rhódesíu. lan Smith, forsætisráöherra fráfar- andi stjórnar hvíta minnihlutans og prír leiðtoga blökkumanna munu Ekkert spyrzt til Moros Rómaborg 21. marz. AP. ÍTALSKA ríkisstjórnin greindi frá pví í kvöld að breytt hefði verið refsiákvæðum vegna mannrána: sé gísl líflátinn skuli ræningjar dæmdir til lífláts, en fangelsis- dómur fyrir mannrán jafnvel pótt ekki sé skert hár á höfði fórnar- lambsins skal vera 30 ár. Seint í kvöld hafði enn ekkert spurzt til Aldo Moros, fyrrv. forsætisráðherra ítalíu, en stór- kostlegri leit að honum var enn haldið áfram. Stjórnendur leitarinn- ar sögðu í viðtali við blöð að þeir væru „nokkuð bjartsýnir". Ónafn- greindur sérfræðingur, sem tekur þátt í leitinni, sagði í viðtali við blaðið II Tempo í kvöld, að verið væri á núllpunkti ( rannsókn málsins nákvæmlega eins og við upphaf þess. Bna manninum, sem hafði verið fangelsaður, grunaður um aðild, hefur verið sleppt úr haldi og verið beðinn afsökunar. All- magnaðar gagnrýnisraddir hafa heyrzt á stjórnendur leitarinnar að Moro og telja ýmsir hana einkenn- ast af fumi og káki og muni mannræningjunum sjálfum skemmt að fylgjast með hinum vandræðalegu tilburðum við leit- ina. Þó bundu menn nokkrar vonir við þá aðstoð sem komin er frá Framhald á bls. 18 Aldo Moro skiptast á um að gegna starfi forsætisráðherra og gegnir hver peirra um sig starfinu einn mánuð í senn. lan Smith verður fyrsti leiðtogi stjórnarinnar og var pað ákveðið að loknu hlutkesti. Síðan taka við í pessari röð: Jeramiah Chirau ættar- höfðingi, séra Ndabaningi Sithole og Abel Muzorewa biskup. Bráðabirgðastjórnin hefur þaö hlut- verk að undirbúa kosningar með almennum -kosningarétti og myndun meirihlutastjórnar blökkumanna í Zimbabwe sem Rhódesía kallast á máli blökkumanna fyrir 31. desember. Stjórn hvíta minnihlutans kom saman til síðasta fundar síns snemma í dag áður en hún afhenti völdin bráöa- birgðastjórninni þar sem blökkumenn veröa í meirihluta. Smith sagði aö í dag hefðu orðiö þáttaskil í sögu Rhódesíu. í fyrsta skipti síöan brezkir landnemar stofn- uðu Rhódesíu 1889 verður landinu ekki eingöngu stjórnað af hvítum mönnum. Með völdin fara annars vegar framkvæmdaráð skipað Smith, Sithole Muzorewa biskupi og Chirau ættar- höföingja og hins vegar ráðherranefnd sem verður skipuð jafnmörgum hvítum og svörtum mönnum og hverri stjórn- ardeild stjórnar einn hvítur maöur og annar svartur. Ef ekkert óvænt kemur fyrir verður Smith áttundi og síöasti forsætisráð- herra ríkisstjórnar hvítra manna í Rhódesíu. Aðalvandi bráðabirgðastjórnarinnar verður sá að Fööurlandsfylkingin, sem skæruliöar aöhyllast, neitaði aö gerast aðili að samningnum sem var gerður um myndun nýju stjórnarinnar 3. marz. Smith sagði blaðamönnum að fram- kvæmdaráðiö mundi bera ábyrgöina á stríðsrekstrinum gegn skæruliöum. Muzorewa biskup og Sithole hafa sagt, að þegar bráöabirgðastjórn hafi verið mynduö muni þeir skora á skæruliöa að leggja niður vopn. Tveir fulltrúar úr hersveitum Palestínumanna sjást hér hvfla lúin bein í borginni Tyros síðdegis á mánudag. Skömmu síðar gerðu ísraelar síðan harða hri'ð að borginni. Beirut, Tel Aviv, 21. marz AP. Reuter. í KVÖLD virtist útlit fyrir að vopnahlé pað, sem ísraelar hafa fyrirskipað í Suður-Líbanon, yrði virt. Þó höfðu ýmsir hópar Palestinumanna harðlega gagnrýnt pessa einhliða yfirlýsingu ísraela og hótuöu pví að halda bardögum áfram unz ísraelar hefðu haft sig á braut af líbönsku landi. Það var Ezer Weizmann, varnarmálaráðherra ísraels, sem gaf hersveitum skipun um að stöðva bardaga frá og með kl. 16 í dag, priðjudag. Skyldi petta gilda á öllu pví svæði, par sem barizt hefur verið. Fram á síðustu mínútur unz vopnahléið gekk í garð kvað við skothríö, m.a. í líbanska bænum Tyros sem allur er nú í rústum. Enda þótt fréttastofufregnum ben saman um það í kvöld að þessi ákvöröun ísraela hafi verið röggsam- leg og auk þess ákveðin með tilliti til heimsóknar Begins í Bandaríkjunum, búast margir við að vopnahléið veröi Skammvinnt og þar sem mikil reiöi sé meðal Palestínumanna á bardaga- svæöunum sé þess vart aö vænta að friöur haldist. Skömmu áður en vopnahléiö gekk í gildi sprengdu ísraelar einnig eina brú til viðbótar í loft upp yfir Litaninfljót, en sýrlenzkar hersveitir sem voru handan árinnar höföust ekki að. Palestínumenn verjast enn í nokkr- um úthverfum borgarinnar Tyros og er talið að þeir hyggist nota friðinn ef einhver verður til að safna liði og reyna aö gera síðan atlögu aö ísraelum. Weizmann varnarmáiaráðherra var að því spurður í Knesset, er hann kunngerði þá ákvörðun að boða vopnahlé, hvernig væri ætlunin að bregðast við ef Palestínumenn virtu ekki vopnahléiö. Hann sagði það væri undir því komið hversu mikil ákefö yrði í aðgerðum þeirra og sagði, að ísraelar myndu verja hendur sínar ef mjög væri að þeim sótt. Hann sagði að öll óþarfa töf á því að fara með ísraelskar hersveitir frá Líbanon myndi veröa til þess eins að skaða friðarviðræður Egypta og ísraela og það mætti sízt verða. í Damaskus sagði talsmaður utan- ríkisráöuneytisins, aö Hafez Al Assad forseti hefði ákveðið að fresta heim- sókn sem hann hafði ákveðiö að fara til Indlands vegna hins „eldfima ástands í S-L.íbanon" en að öðru leyti höfðu engin viðbrögö verið í Sýrlandi viö vopnahlésyfirlýsingunni. í Reuterfréttum frá Beirut í dag sagði að ólýsanlegar biturðar gætti í þeim leifum hersveita Palestínumanna sem hafa verið í bardögum við ísraela. Þættust Palestínumenn illa sviknir af Aröbum og þætti mönnum sýnt, að orð þeirra um stuðning við málstað Palestínumanna væri innantómt oröa- gjálfur. Enda þótt Palestínumenn væru mjög sundurþykkir innbyrðis jafnvel áður en israelar réðust yfir landamær- in og það væri vitað, aö Arabar hefðu margir horn í síöu þeirra, mun þó Palestínumenn ekki hafa órað fyrir því, að þeir fengju engan stuðning eftir innrásins, nema lítilsháttar aðstoð sem send var þeim frá írak. „Það tók utanríkis- og varnarmálaráöherra Arabaþjóðanna hvorki meira né minna en fjóra fundi og 14 klukkustunda umræöur að koma sér saman um yfirlýsingu til að fordæma innrásina og krefjast brottflutnings hers ísraels," sagði einn talsmaöur Palestínumanna í dag. Þingnefnd gegn innflytjendum London, 21. marz. AP. ÁHRIFAMIKIL þingnefnd skoraði á stjórn Verkamannaflokksins að takmarka verulega fólksflutninga til Bretlands og herða eftirlit með innflytjendum eftir komu þeirra til landsins. ísraelar fyrirskipa vopnahlé í Líbanon Óljóst var í gærkvöldi hvort Palestínumenn héldu áfram að berjast Yfirráðum hvítra lokið í Rhódesíu SSf1 Nú skyldu ísrael- ar taka frumkvæðið Washington 21. marz. Reuter. JIMMY Carter Bandaríkjaforseti fagnaði í dag Menachem Begin og kallaöi hann „örlagavald“ og sagói að vonir um frið í Mið-Austurlöndum væru komnar undir forystu hans og hernaðarmætti ísraels. Samtímis lét Carter Þó í Ijós bá skoðun, aö tímabært væri fyrir Israela að taka forystuna í friðarviöræðunum. All- mjög hefði dregið fyrir Þð friðarsól sem hefói verið að brjótast fram undan skýjum en Bandaríkjamenn myndu ekki hvika a( veróinum né láta af viöleitni sinni til aó leysa Þessa prjátíu ára gömlu deilu. Menachem Begin vék í ræðu sinni aö hryðjuverkinu í Tel Aviv fyrir rúmri viku og einnig aö innrás ísraela í Suöur-Líbanon. Begin kvaðst binda vonir við það að sá andi sem ríkt hefði á fyrri fundum með Carter Bandaríkja- forseta og Sadat Egyptalandsforseta yrði endurlífgaöur og hann sagði tvívegis í ávarpi sinu við Bandaríkja- forseta: „Við mundum sigra.“ Begin kom til Hvíta hússins síödegis í dag og hvorugur þeirra Carters vék í ávarpi sínu að þeim djúpstæða ágreiningi sem upp hefur komið milli ísraela og Bandaríkjamanna og Begin lét ekki í Ijós beizkju í garö Bandaríkja- manna í ávarpi sínu. Kom það nokkuð á óvart þar sem búizt hafði verið við að Begin yrði hvassyrtur nokkuö í tali Framhald á bls. 18 Nefndin fjailar um samskipti ólikra kynþátta og fólksfiutninga tii Bretlands. Harðorð skýrsla hennar er talin munu stórauka pólitískar deilur um innflutning þeldökks fólks til Bretlands. Hún hefur þegar haft í för með sér hávær mótmæli frjálslyndra manna og samtaka innflytjenda. Nefndin leggur á það áherzlu að Bretar megi ekki leyfa þeldökku fólki að flytjast til Bretlands í eins miklum mæli og átt hafi sér stað á undanförnum árum með þeim afleiðingum að kynþáttaólga hefur stöðugt farið vaxandi. Hins vegar er á það bent í skýrslu nefndarinnar að skýrslan ætti alls ekki að vekja ugg nokkurra þeirra sem þegar hafi setzt að í Bretlandi. Nefndin kveðst hafa lagt sig fram um að reyna að magna ekki ágreining heldur þvert á móti að brúa ólík sjónarmið. Á það er lögð áherzla að Bretar ættu ekki að svíkja loforð sem þeir hafi þegar gefið borgurum sam- veldislanda um að koma til Bret- lands og setjast þar að, ekki sízt handhöfum brezkra vegabréfa. Í Bretlandi eru búsettir um 1.9 milljónir þeldökkra, þar á meðál um 100.000 sem hafa flutzt ólög- lega til Bretlands. Þeir eru um 3 af hundraði landsmanna sem eru 56 milljónir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.