Morgunblaðið - 22.03.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978
Sjálfstæðismenn í Garðabæ:
Sautján í prófkjöri
vegna bæjarstjóm-
arkosninganna í vor
50 þúsund tonn eru
óseld af loðnum jöli
SAUTJÁN bjóða sig fram í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Garðabæ veKna næstu bæjar-
stjórnarkosninKa, en prófkjörið
fer fram 7. og 8. apríl n.k. Við
þessar kosninjfar fjölgar bæjar-
fulltrúum úr 5 í 7 vegna fenginna
kaupstaðarréttinda, en sjálfstæð-
ismenn hafa nú 4 af 5 fulltrúum.
I>rír núverandi bæjarfulltrúa
Kefa ekki kost á sér í prófkjörinu,
Guðmundur Einarsson, Guðrún
Erlendsdóttir og Ólafur G. Ein-
arsson, en fjórði fuiltrúinn cr
Ásúst Þorsteinsson.
Auk Ágústs bjóða sig fram til
prófkjörsins Ársæll Gunnarsson,
Ásbúð 16, Bergþór G. Úlfarsson,
Hörgatúni 15, Bryndís Þórarins-
dóttir, Þórsmörk, Einar Þor-
björnsson, Einilundi 10, Fríða
Proppé, Hlíðarbyggð 18, Garðar
IIAGVANGUR hefur verið að
velta fyrir sér að framkvæma
skoðanakönnun hérlendis og
reyna með því að spá fyrir um
úrslit alþingiskosninganna í vor.
Til þcss að slík könnun yrði
marktæk, yrði að taka úrtak, sem
er að minnsta kosti 1.500 manns
og er þá miðað við 2% óvissu til
eða frá. Ef hins vegar er tekið
úrtak. sem er 2.000 til 2.500
manns minnkar óvissan og nálg-
ast að verða um 1% til eða frá.
Framkva-md þessarar könnunar
er talsvert dýr og sagði Sigurður
Ilelgason. framkvæmdastjóri
Hagvangs, að spurning væri,
hvort menn vildu leggja í slíkan
kostnað eða ekki til þess að ná
tiltölulega öruggum tölum.
Þorsteinn Þorsteinsson, hag-
fræðingur hjá Hagvangi, sem er
sérfræðingur í skoðanakönnunum
kvað menn þurfa við framkvæmd
slíkrar skoðanakönnunar að velja
ákveðna úrtaksstærð eftir því
öryggi, sem óskað væri eftir. í
raun er gert við slíkar kannanir
ráð fyrir því að heildarhópurinn sé
óendanlega stór. Því þarf að taka
mjög svipað úrtak meðal íslend-
inga og gert er meðal annarra
þjóða, svo sem eins og t.d. í
Bandaríkjunum eða Danmörku.
Skiptir ekki máli, hve stór pró-
senta úrtakið er af heildinni.
Úrtakið verður því að'vera af
ákveðinni lágmarksstærð.
Óvissan í sambandi við þessar
skoðanakannanir er tvenns konar.
Annars vegar er óvissuþáttur, sem
fer eftir úrtaksstærðinni. Sé t.d.
tekið úrtak sem er 300 manns og
einn flokkur fær 15% úr því, þá
liggur nákvæmnin með 95% vissu
á milli 10 og 20%. Það þýðir að í
hverjum 95 af 100 skiptum, sem
kannað yrði með þessu úrtaki,
myndi útkoman liggja á milli 10 og
20%, en í þeim 5 skiptum, sem
eftir er yrði útkoman utan þessara
marka. Ef menn fara hins vegar
upp í úrtak, sem er 1.500 manns,
sem ætti að vera algjört lágmark,
Drengur fyrir bíl
NÍU ára gamall drengur varð fyrir
bifreið á Grensásvegi í gærmorg-
un. Hann var fluttur á Borgar-
spítalann til rannsóknar og reynd-
ist vera brotinn í andliti en meiðsli
voru ekki talin mjög alvarleg.
Sigurgeirsspn, Aratúni 26, Guð-
finna Snæbjörnsdóttir, Löngufit
34, Guðmundur Hallgrímsson,
Holtabúð 89, Haraldur Einarsson,
Tjarnarflöt 10, Helgi K. Hjálmars-
son, Smáraflöt 24, Jón Sveinsson,
Smáraflöt 8, Margrét G. Thorla-
cius, Blikanesi 8, Markús Sveins-
son, Sunnuflöt 6, Ragnar G.
Ingimarsson, Mávanesi 22, Sigurð-
ur Sigurjónsson, .Víðilundi 13, og
Stefán Snæbjörnsson, Heiðarlundi
7.
Kjósendur eiga að númera fram-
bjóðendur í þá röð, sem þeir vilja
að þeir skipi á listanum og skal
setja númer við fimm frambjóð-
endur hið fæsta.
Við síðustu kosningar hlaut listi
Sjálfstæðisflokksins 989 atkvæði
þá getur óvissan verið á bilinu 2
til 3%.
Þorsteinn sagði að óvissan í 300
manna úrtaki væri svo mikil að
„ÉG GAT pess nú i framsöguræðu
minni fyrir frumvarpinu, að ég væri
hlynntur sameiningu banka. Eg tók
hana hins vegar ekki upp f frum-
varpíð til heildarbankalaga vegna
pess ég vildi aðeins taka Þar með
atriði, sem ég taldí vera fullt
samkomulag um, en sameining
banka er ekkert sérstaklega einfalt
mál, eins og hefur sýnt sig í
sambandi við pær athuganir sem
*
Utsýnarblað
fylgir í dag
Með Morgunblaðinu í dag er
dreift 16 síðna auglýsinga-
blaði frá Ferðaskrifstofunni
Útsýn.
betta er þriðja árið í
röð, sem slíku blaði er dreift
til áskrifenda Morgunblaðs-
ins.
jafnvel þrír flokkar, sem allir
væru mjög misstjórir, gætu allt
eins litið út fyrir að vera jafnstór-
Framhald á bls. 18
gerðar hafa verið á pví aö létta
einhverju af Útvegsbankanum. Það
hefur ekki reynzt svo auðvelt mál,“
sagði Ólafur Jóhannesson, banka-
málaráðherra, í samtali við Mbl. í
gær, en í umsögn um stjórnarfrum-
varp um ríkisbankana leggja
bankastjórar Seðlabankans til að í
stað priggja ríkisbanka verði
byggöir upp tveir ríkisviöskipta-
bankar og benda helzt á pá leiö til
SÖLUTREGÐA er á loðnumjöli
um þessar mundir og er aðeins
lítill hluti mjölframleiðslunnar á
yfirstandandi vertíð seldur.
Samkvæmt upplýsingum Gunn-
ars Petersen hjá Bernharð Peter-
sen hf. er mjög lítil eftirspurn
eftir mjöli um þessar mundir og
sáralítið hægt að selja. Kaupendur
halda að sér höndum væntanlega
vegna mikils framboðs á soja-
baunamjöli en það er um þessar
mundir selt á um 5 dollara
Nefndarvið-
ræður hefj-
ast í dag
Framkvæmdastjórn Vinnuveit-
endasambands íslands tilnefndi í
gær fulltrúa í sameiginlega nefnd
með Alþýðusambandi íslands,
sem fjalla á um möguleika á1
auknum kaupmætti frá því sem
nú er. Fyrsti fundur ncfndarinn-
ar verður í dag klukkan 14.
Fulltrúar vinnuveitenda í nefnd-
inni verða: Jón H. Bergs, formaður
VSI, Davíð Scheving Thorstéins-
son, formaður FII, Kristján
Ragnarsson formaður LÍÚ, Ólafur
Jónsson, forstjóri VSÍ, og Hall-
grímur Sigurðsson, formaður
VMSS.
Svo sem getið var í Morgunblað-
inu í gær verða fulltrúar ASÍ
þessir: Snorri Jónsson, varaforseti
ASÍ, Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður VMSÍ, Karl Steinar
Guðnason, varaformaður VMSÍ,
Óskar Vigfússon, formaður SÍ, og
Ásmundur Stefánsson, hagfræð-
ingur ASÍ.
pess, að Útvegsbankinn og
Búnaðarbankinn verði sameinaöir,
en Landsabankinn yfirtaki viðskipti
Útvegsbankans á Suðurnesjum.
Davíð Ólafsson, Seðlabankastjóri,
sagði í samtali við Mbl., að þessi leið
væri sem næst þeirri leið, er
bankamálanefndin hefði lagt til á
sínum tíma. „Við erum ennþá þeirrar
skoðunar aö sameining sem þessi sé
Framhald á bls. 15 I
próteineiningin en loðnumjölið
hefur verið selt á um 7 dollara
próteineiningin.
Gera má ráð fyrir því að
mjölframleiðslan á yfirstandandi
vertíð sé orðin um 70 þúsund tonn
og af því magni hafa aðeins verið
seld 15—20 þúsund tonn. Mest af
því var selt fyrirfram til Kúbu og
Irans sem eru nýir markaðir fyrir
loðnumjöl en sáralítið hefur verið
selt til hinna hefðbundnu kaup-
enda.
Gunnar Petersen sagði að þetta
væri alls ekki óeðlilegt ástand.
Sölutregða væri af og til á
markaðnum en venjulega rættist
úr og eftirspurn myndaðist eftir
mjöli.
Lýsiframleiðsla yfirstandandi
vertíðar er að mestu leyti seld. Var
hún að stórum hluta seld fyrir-
fram og var verðið lægst 415 pund
fyrir tonnið en síðustu daga hefur
lýsi verið selt fyrir 460—475 pund
tonnið og er það gangverðið um
þessar mundir.
Góð sala
hjá RÁN
TOGARINN Rán frá Hafnarfirði
seldi 82 tonn af fiski í Cuxhaven
í gærmorgun fyrir 202 þúsund
mörk eða 25,2 milljónir króna.
Meðalverðið er 307,30 krónur hvert
kíló, sem er mjög gott verð.
Tvennt hand-
tekið vegna
hasssmygls
KARL og kóna voru handtekin'í
gær vegna rannsóknar á umfangs-
miklu hassmáli, en tveir menn
sitja nú í gæzluvarðhaldi þess
vegna og hefur annar setið í gæzlu
síðan 5. janúar. Maðurinn og
konan vorij yfirheyrð í gær og
þegar Mbl. hafði síðast spurnir af
málinu var ekki ljóst, hvort fleiri
yrðu úrskurðaðir í gæzluvarðhald
eða ekki.
Smyglmál þetta er talið allvíð-
tækt og mun ná til smygls á hassi
í kílóavís til landsins.
Jón Sigurðsson forstjóri:
„Óttast ekki um framtíð
J ámblendiverksmið junnar’ ’
„ÞRATT fyrir mjög óeðlilega
lágt verð á kísiljárni á heims-
markaði í dag óttast ég ekki
um starfsemi járnblendiverk-
smiðjunnar þegar hún hefst,“
sagði Jón Sigurðsson forstjóri
íslenzka járnblendifélagsins á
blaðamannafundi í gær. —
„Þetta óeðlilega lága verð
hefur skapazt aðallega vegna
skorts á stáli á markaðnum, en
ýmis teikn eru nú á lofti þes*g
eínis, að úr sé að rætast, m.a.
hefur orðið nokkur fram-
lciðsluaukning hjá nokkrum
stærstu stálframlciðendunum í
byrjun þessa árs.“
En væri hins vegar gerð .
áætlun um starfsemi verksmiðj-
unnar á sama grundvelli og sú
áætlun sem Þjóðhagsstofnun
gerði á s.l. ári og miðaði þá við
verðlag á kísiljárni eins og það
var á árinu 1976, mundi tap
verksmiðjunnar verða um 22
milljónir norskra króna eða um
1 milljarður íslenzkra króna,
eða sem nemur því sem næst
öllum reiknuðum afskriftum'
verksmiðjunnar.
Slík áætlun hefði þó ekki gildi
til annars en að sýna fram á
hversu mikið lán það var, að
bygging verksmiðjunnar sam-
kvæmt áætlunum með Union
Carbide skyldi frestað. Hefði
verksmiðjan verið byggð eins og
upphaflega var ráðgert væri
hún nú í fullum rekstri og fullri
stærð með miklu rekstrartapi og
stórfelldum markaðserfiðleik-
um, því að þeir markaðir sem
þeirri verksmiðju var ætlað að
framleiða fyrir hafa dregizt
mest saman.
Þá kom fram á blaðamanna-
fundinum í gær að mjög strangt
kostnaðareftirlit er haft með
byggingu verksmiðjunnar og
sagði Jón Sigurðsson í því
sambandi, að gát á byggingar-
kostnaði verksmiðjunnar væri
sennilega brotameiri og nánari
en tíðkazt hefur hérlendis áður.
Allnákvæm áætlun um kostnað
við hvern þátt verksmiðjunnar
var gerð á sínum tíma, brotin
niður í byggingar, rafbúnað og
vélbúnað, og hver liður færður
undir ábyrgð tiltekins verkfræð-
ings hjá byggingarstjórninni,
sem stjórn Járnblendifélagsins
hefur falið að hafa yfirumsjón
með byggingarframkvæmdum,
en í þessari byggingarstjórn
eiga sæti þrír Islendingar, Jón
Sigurðsson, John Fenger og Jón
Steingrímsson og að auki tveir
Norðmenn. í áætluninni var
áætlað fyrir verðbreytingum á
byggingartímanum, ófyrirséð-
um kostnaði svo og vöxtum á
byggingartíma og var með þeim
hætti áætlað, að fyrri áfangi
verksmiðjunnar mundi kosta
320 milljónir norskra króna. Er
þessi áætlun var yfirfarin nú
fyrir skömmu kom í ljós aö hún
mundi að öllum líkindum stand-
ast að mestu.
Þá sagði Jón Sigurðsson, að
Járnblqndifélagið hefði gert
samning við Elkem-Spiger-
verket á s.l. ári um hvernig haga
skyldi sölu á því kísiljárni, sem
framleitt verður á Grundar-
Framhald á bls. 15
Gerir Hagvangur könnun um kosningaúrslit?
Lágmarksúrtak 1.500 — óvissa
í 300 manna úrtaki getur gert
mismunandi flokka iafnstóra
M'
Athugun vegna Utvegsbanka
sýnir að sameining er erfið
— segir Ólafur Jóhannesson, bankamálaráðherra