Morgunblaðið - 22.03.1978, Page 5

Morgunblaðið - 22.03.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978 5 Skortur á hússtjóm- arkeimurum á fram- haldsskólastiginu Fyrirsjáanlegur er skortur á 1 hússtjórnarkennurum við grunn- skóla og framhaldsskóla. segir í frétt frá Kennarafélaginu Ifús- stjórn. en nýlega var haldinn stjórnarfundur félagsins til að raeða hússtjórnarfræðslu á fram- haldsskólastigi. Fundinn sátu einnig fulltrúar hússtjórnar- kennara á framhaldsskólastiginu og skólastjórar hússtjórnarskóla. Steinunn Ingimundardóttir skólastjóri hússtjómarskólans ad Varmalandi, Margrét Kristins- dóttir skólastj. hússtjórnarskólans á Akureyri og Bryndís Steinþórs- dóttir deildarstjóri Fjölbrauta- skólans í Breiöholti höföu fram- sögu um hússtjórnarnám í þesum skólum, námskeiö og nýjungar. í umrœöum kom fram, aö aösókn aö starfandi hússtjómarskólum er rneiri víöast en þeir geta annaö síöan þeir breyttu um starfshætti og löguöu sig aö aöstæöum á hverjum staö. Er höfuövandamál i fjölbrautaskóla aö finna vinnu- staöi fyrir verkþjálfun nemenda viö tækninám í meöferö matvœla, ræstingu og hússtjóm. Er taliö aö ná megi samkomulagi viö stjóm- endur mötuneyta í höfuöborginni um verkþjálfun nemenda á hús- stjómarbraut Fjölbrautaskólans. Sinfóníuhlj ómsveitin á Borgfirðingavöku Borgfirðingavaka verður haldin í fimmta sinn dagana 19.—23. apríl n.k. og verður efni vökunn- ar fjölbreytt að vanda, þannig að flestir finni þar eitthvað við sitt hæfi, segir í írétt frá aðstandend- um hennar. Vakan hefst með tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Logalandi seinasta vetrardag og verður hljómsveitin undir stjórn Páls P. Pálssonar. Kvöldvökur verða haldnar á þremur stöðum, Lyngbrekku, Heiðarborg og í Logalandi. Tvær sýningar verða á vökunni en það er sýning á grafík og teikningum í eigu Listasafnsins í Borgarnesi og bilasýning á vegum hins nýstofnaða Bifreiða- íþróttaklúbbs Borgarfjarðar og verða þar sýndir gamlir og nýir bílar af ýmsum gerðum. Að lokum segir í fréttinni, að Borgfirðingavaka sé sameiginlegt verkefni Ungmennasambands Borgarfjarðar, Búnaðarsambands Borgarfjarðar, Kvenfélagasam- bands Borgarfjarðar og Tónlistar- félagsins, en formaður undirbún- ingsnefndar er Haukur Ingibergs- son, Bifröst. Kennaraskipti milli Mands og Danmerkur í SUMAR koma hingað 20 dansk- ir kennarar í boði Norræna félagsins og kennarasamtaka og dveljast þeir hér dagana 25. júní til 9. júlí. Verða þeir gestir á heimilum íslenzkra starfsbræðra sinna og verður farið í ferðir út á land og reynt að koma því þannig fyrir að þeir gisti ávallt á heimilum kennara. Á sama hátt hefur danska Norræna félagið og dönsk kennarasamtök boðið 18 íslenzkum kennurum til Danmerkur í sumar og dveljast þeir ytra dagana 13.—31. ágúst. Verður fyrst dvalið i Kaupmannahöfn og skoðaðar stofnanir tengdar skólum, söfn og ferðast um Sjáland, síðan dvalið 6 daga á lýðháskóla á Jótlandi, þá tveggja daga ferð um Jótland. I frétt frá Norræna félaginu segir, að þessi gagnkvæmu heim- boð norrænu félaganna og kennarasamtaka hafi tíðkazt í nokkra áratugi og á þann hátt hafi ísland eignazt stóran hóp aðdáenda erlendis og íslenzku kennararnir hafi kynnzt vel dönsku þjóðlífi. „Foreldrar og þroskaheft börn” FORELDRAR og þroskaheft börn nefnist ný bók, sem Iðunn hefur sent frá sér, að því er segir f fréttatilkynningu frá bókaút- gáfunni. Höfundur bókarinnar er Charles Hannah, en Margrét Margeirsdóttir annaðist þýðingu. Charles Hannan Foreldrarog Jjroskahgft bönj Samtðl vlð foreldra þroskaheftra barna Myndirnar í bókinni tók Hafliði Hjartarson. Á bakhlið kápu bókarinnar segir, að bókin fjalli um vandamál foreldra sem eiga þroskaheft börn. „Efnið er sett fram á einkar raunsæjan hátt, en jafnframt fjallað um það af miklu sálfræði- legu innsæi og þekkingu. Bókin gefur mjög lifandi mynd af þeim margþættu erfiðleikum, sem for- eldrar þroskaheftra barna glíma við í uppeldi þeirra. Höfundur er sjálfur í hópi þessara foreldra og hefur því mörgu að miðla af eigin reynslu." Bókin er að meginhluta byggð á samtölum við sjö fjölskyldur og skiptist í níu kafla, þar sem tekin eru til ipeðferðar mismunandi viðfangsefni. Ólafur Ólafsson landlæknir ritar formála fyrir íslenzku út- gáfunni og segir í lok formálans: „Ég álít þessa bók gagnlega og fræðandi fyrir flesta og ekki sizt heilbirgðisfólk og kennara, sem ber að sinna þessu vandamáli." Bókin „Foreldrar og þroskaheft börn“ er 125 blaðsíður að stærð. ■ií^. ■ ' :w. Þessa vetrarmynd af Vífilsfelli tók Ólafur Magnússon. / Ferðafélag Islands 5 gönguferða á Ferðafélag íslands hefur nú ákveðið að efna til gönguferða á Vífilsfell og er það gert með hliðsjón af þeirri reynslu er fékkst af Ésjugöngum sem félagið stóð fyrir á s.l. sumri. Með þessu hyggst félagið kynna fjallið á sama hátt og Esjan var kynnt 1 fyrrasumar og gera þar með Vífilsfellið að „fjalli ársins 1978“. Feröaáætlun F.í. gerir ráð fyrir 5 ferðum á Vífilsfell og er hin fyrsta á dagskrá laugardag- inn 25. marz. Lagt verður af stað kl. 13. Til minningar um göng- una á „fjall ársins" hefur félagið látið prenta skjal, sem verður afhent þátttakendum að göngu lokinni. Á sama hátt og í fyrra geta menn valið um hvort þeir fá ferð með hópferðabíl frá Umferðarmiðstöðinni eða á eig- in bílum að þeim stað, sem gangan hefst, en það er í skarðinu við mynni Jósefsdals. Allir sem taka þátt í göngunni eru skráðir niður og verður efnir til Vífilsfell dregið um bókaver.ðtaun að gönguferðunum loknum. Gönguferðum á Esju verður haldið áfram í sumar eftir aðstæðum, þótt þær séu ekki allar nefndar í Ferðaáætlun 1978. Verða þær auglýstar í fjölmiðlum jafnóðum. Næsta Esjuferð verður á sumardaginn fyrsta, en ganga á Esju þann dag er orðin fastur liður í starfsemi félagsins og hefur verið svo í langan tíma. Msröot gúmmístígvél Stæröir nr. 27-35 og nr. 36-41. Austurstræti 10 sími: 27211

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.