Morgunblaðið - 22.03.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978
13
Linda Schápper
á Kjarvalsstöðum
Ung listakona frá Ameríku
heldur sýningu á teppagerð
sinni á göngum Kjarvalsstaða
þessa dagana. Hún hefur komið
verkum sínum fyrir á hinum
lítt uppörvandi göngum Kjar-
valsstaða og gætt þá lífi, og trúi
nú hver sem vill, að það sé
mögulegt. En listaverk Lindu
Scháppers eru þannig í eðli
sínu, að þau geisla frá sér
litagleði, sem tamin er á vissan
hátt innan takmarka formsins.
Myndllst
eftir VALTY
PÉTURSSON
Það munu vera um 45 teppi á
þessari sýningu, og að mínum
dómi eru þau ef til vill nokkuð
mörg; sannleikurinn er sá, að
mér virðist eins og sum þessara
teppa njóti sín ekki sem æski-
legast væri vegna þrengsla og
að nokkuð sé um það, að sum
teppin allt að því éti hvert
annað upp. Þetta hefði mátt
fyrirbyggja á einfaldan hátt,
grisja ofurlítið sýninguna og
þannig koma enn betur til skila
því, sem nú prýðir ganga
Kjarvalsstaða.
73eretungin teppi (Patchwork
Quilts) og munu hugsuð sem
rúmteppi i upphafi, en það fer
ekki milli mála, að úr þeim
hafa engu að síður orðið
myndverk, sem gætu prýtt
veggi. Enda held ég, að þau séu
þannig byggð í formi og lit, að
ekki sé langt frá sjálfu mál-
verkinu, það er að segja frá
hinu óhlutkennda málverki eða
geometríska. Það eru mikil
áhrif frá Aröbum í þessum
verkum, enda hefur skapari
þeirra dvalið meðal Araba og
unnið með þeim, og þá er ekki
að því að spyrja, að hið
abstrakta myndefni blasir alls
staðar við. Kóraninn forbýður
að apa eftir mannsmyndinni,
stæla almættið, og útkoman
verður hið fullkomna arabíska
mynstur, sem grípur alla þá, er
komast í kynni við list þeirra
fyrir botni Miðjarðarhafs,
hvort heldur um húsagerð eða
vefnað er að ræða, svo að ég
nefni aðeins tvennt.
Þessi sýning Lindu Schápper
er mjög falleg, og gefur til
kynna ýmsa möguleika á því
sviði, er hún hefur sérhæft sig
á. Hún mun hafa byrjað listfer-
il sinn sem málari, en fundið
sjálfa sig í þessari tækni við
teppagerð, sem hún hefur nú
fært okkur heim. Verk hennar
eru mjög breytileg bæði í efni,
lit og formi. í fáum orðum sagt,
er þessi sýning ein af fáum
merkilegum, sem við höfum
fengið til landsins að undan-
förnu. Það er bókstaflega
magnað, hvað listakonunni
tekst að notfæra sér efni og
hugmyndir í þessari teppagerð.
Hún hefur vakið áhuga á
verkum sínum víða um heim, og
er það engin furða, þar sem um
jafn merkilega vinnu er að
ræða. Ég verð að játa, að ég veit
sáralítið um þá tækni, sem hér
er á ferð, gat ekki verið við, er
listakonan útskýrði tækni sína
fyrir nokkrum dögum. En ég fæ
ekki betur séð en hér sé allt
eins og best verður á kosið. Ef
ég hef rangt fyrir mér, hvað
þetta snertir, bið ég forláts, en
ánægja mín af þessum teppum
var óskert, og það er það, sem
máli skiptir. Til sönnunar
hrifningu minni á þessum
verkum, bendi ég á eftirtalin
teppi, sem sérlega standa undir
þeim orðum, er ég hef látið hér
falla: New England Rainbow,
Ilomagc To Joseph Albers,
Purity, Arabia, Sailboats, Day
And Night, Blue Motion,
Reílection. Þeir, sem skoða
þessi verk af alúð, verða ríkari
í andanum, eins og Þórbergur
sagði. En ég vil taka það fram,
að ég nefni aðeins nokkur verk
hér af öllum þeim aragrúa, sem
er þess verður að skoðast.
Það má lesa úr þessum línum
mínum, að ég álít það gleðiefni,
að slík sýning skuli vera hér um
páskana. Við, sem heima sitjum
og látum suðræna sól eiga sig
í þetta sinn, eigum okkur einnig
ánægju, ef við aðeins viljum
leita hennar á réttum stöðum
Þetta er sýning, sem ég þakka
fyrir, að kom til okkar á einni
af stórhátíðum ársins.
Valtýr Pétursson.
Æskulýdsrád ríkisins
heimsækir Akureyri
/ESKULÝÐSRÁÐ rikisins heim-
sótti þá aðila á Akureyri, sem
halda uppi félags-og íþróttastarf-
semi með ungu fólki í bænum.
helgina 10. —12. marz s.l. Æsku-
lýðs- og íþróttafulltrúi Akureyr-
ar. Hermann Sigtryggsson. og
Æskulýðsráð Akureyrar skípr
lögðu heimsókn þessa.
Heimsóknin var fyrst og fremst
fólgin í því að ræða við félags-
forystumenn og skólamenn og lauk
síðan á sunnudeginum með fundi
í bæjarstjórnarsalnum þar sem
mættir voru auk fulltrúa æsku-
lýðsráðanna sveitarstjórnarmenn
og fulltrúar æskulýðsstarfs
stærstu sveitarfélaganna á Norð-
urlandi frá Húsavík og Sauðár-
króki.
Meðal þeirra sem Æskulýðsráð
ríkisins fékk tækifæri til að ræða
við voru forystumenn Iþrótta-
bandalags Akureyrar, skáta,
templara og æskulýðsstarfs kirkj-
unnar. Þá voru skoðaðir staðir
eins og Dynheimar, skíðaaðstaðan
í Hlíðarfjalli og skólastjóri Odd-
eyrarskólans, Indriði Úlfsson,
gerði grein fyrir félagsstarfi í
skóla sínum.
Þá fékk Æskulýðsráð ríkisins
einnig tækifæri til þess að ræða
við yfirmenn löggæslunnar og
félagsmálafulltrúa bæjarins um
málefni ungs fólks, og urðu þær
umræður að dómi ráðsins mjög
gagnlegar og fróðlegar.
Æskulýðsráð ríkisins telur
heimsóknir sem þessar mjög
mikilvægar með tilliti til sam-
starfs ráðsins við hina einstöku
landshluta, og jafnframt getur
ráðið á þennan hátt stuðlað að
nánara samstarfi heima í héraði,
með því t.d. að boða þá saman til
fundar eins og greint var frá hér
að framan, segir að lokum í frétt
frá Æskulýðsráði ríkisins.
andunnið sett
frá
GLIT
GLÆSILEG
GJÖF
Greiðslukjör. Sendum myndalista
Ákvörðunarstaður starfshópa
og félagasamtaka
Mikill fjöldi íslendinga heimsækir
Færeyjar á ári hverju. Margireiga þar
skyldmenni og vini, og þeim fjölgar
stöðugt sem þangað fara til þess
að skoða stórbrotna náttúrufegurð
eyjanna.
Margskonar skemmti- og skoðunar-
ferðir eru í boði, og hvar sem komið
er finnur ferðamaðurinn hið
vingjarnlega viðmót sem einkennir
Færeyinga.
Færeyjaferð er eitthvert hið
skemmtilegasta ferðaiag sem starfs
hópar og félagasamtök eiga völ á.
Hafið samband við
söluskrifstofur okkar
og umboðsmenn
flucfélac LOFTLBIBIR
ÍSLANDS