Morgunblaðið - 22.03.1978, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978
Sigurjón og Þorvaldur
í Bogasalnum hefur nú
aldeilis dregið til tíðinda.
Sigurjón Ólafsson myndhöggv-
ari hefur sett þar upp hvorki
meira né minna en 17 ný verk,
sem flest eru gerð í tré. brátt
fyrir það, að Sigurjón er
kominn fast að sjötugu, virðist
vinnugleði hans hvergi hafa
dvínað, og ef til vill mætti
frekar segja, að hann hefði
allur færst í aukana að undan-
förnu, svo mögnuð eru þessi
verk hins háþróaða mynd-
höggvara. En það re meira í
fréttum úr Bogasalnum. Þor-
valdur Skúlason, annar snill-
ingur, hefur einnig látið koma
þar fyrir verkum frá 1952 til
1960. Verkum frá átta ára
tímabili, sem var eitt hið
umdeiidasta í löngum starfs-
ferli, sem enn er ekki lokið. Það
var mikið átak hér á árunum
Myndllst
eftir VALTÝ
PÉTURSSON
að breyta um og gerast
geometriskur málari (ég vil
taka það fram hér, að ég hef
ætíð verið óánægður með þetta
hugtak í tungu okkar, en vegna
vankunnáttu minnar í málinu
notað það gegn betri vitund).
Nú er öldin önnur, og þau verk,
er eitt sinn voru þess valdandi,
að taugaóstyrkur átti sér stað
hjá góðborgurum þessa þjóð-
félags, eru nú talin í fremstu
röð þess, sem gert hefur verið
í' listum hér á landi á þessari
öld. Það er því mjög skemmti-
Þorvaldur Skúlason.
legt og ekki síður forvitnilegt
að sjá sum þessara verka
Þorvaldar aftur, í öðru sam-
hengi við stað og stund en hér
á árunum, er þau litu fyrst
dagsins ljós. Og enn eitt er
fréttnæmt úr Bogasalnum, eng-
inn aðgangseyrir og enginn
boðinn hátíðlega. Nýtt form á
sýningum hérlendis, sem ef til
vill ætti að taka upp. í sumum
tilfellum að minnsta kosti.
Þessari sýningu fylgir mjög
vönduð sýningarskrá, mynd-
skreytt og kostar kr. 500.00.
Það er nú orðið æði oft, sem
ég hef ritað um sýningar þeirra
Þorvaldar og Sigurjóns, og ég
held, að þcir, sem með skrifum
mínum hafa fylgst, viti það
mæta vel, að fáa myndlistar-
menn met ég á borð við þá. Þeir
eru að mínu áliti, sitt í hvoru
lagi, máttarstólpar myndlistar-
menningar á íslandi og hafa
verið það um langan aldur. Ég
hef áður haldið því fram á
prenti, að Sigurjón ólafsson sé
einn mesti portrett-snillingur,
sem uppi er, ekki aðeins hér á
landi, heldur þótt víðar væri
leitað. Eitt protrett er á þessari
sýningu af Óskari Þórðarsyni
yfirlækni og er í eigu Borgar
spítalans. Allt annað á þessari
sýningu eru listaverk gerð í tré
af Sigurjóni nú á seinustu
árum, og er það furðulegt f
sjálfu sér, hve vel þessi nýju
verk fara með eldri verkum
Þorvaldar. Aðeins þrjár af
myndum Þorvaldar cru í einka-
eign, og mun mörgum koma
það spánskt fyrir sjónir, en við,
sem betur til þekkjum, skiljum
það mæta vel og þó. Sann-
leikurinn er sá, að íslendingar
Sigurjón Ólafsson
hafa ætíð verið nokkuð seinir
til að silja myndlist og eru það
enn. Hitt er svo annað mál, að
góð myndlist verður jafnan
skilin, þótt það taki stundum
nokkurn tíma. Það er nefnilega
til lögmál þess efnis, að góð list
öðlast ætíð meira og meira
gildi, eftir því sem tfmar líða
fram, en tískudótið fer þá leið,
er allir þekkja. Þetta tímabil
Þorvaldar, sem nú er til sýnis,
var lengi í mótun og hvergi
gripið úr lausu lofti. Þeir er
þekkja þróun Þorvalds, vita.
hver átök áttu sér stað og
hverjar afleiðingar hafa orðið
af þessu tímabili. Enn má finna
ýmislegt, sem runnið er frá
þessum árum í málverki Þor-
valdar, og sýnir það svart á
hvítu. hvers virði þetta merki-
lega lífsskeið hefur verið í
mótun hans sem listamanns.
Annars er það að bæta f
bakkafullan lækinn að vera að
tíunda þessi listaverk Þorvald-
ar hér, svo mikið hef ég skrifað
um einmitt þetta tímabil hans.
Það er því miklu fremur ungu
mannanna að láta til sín heyra
og verður fróðlegt að sjá, hvað
þeir sjá í þessu. En eitt vil ég
leggja áherslu á hér. Þetta er
sígild list. sem er í raun og veru
engum tíma háð. Mikið sagt, en
ég læt það flakka samt. Þessi
málverk eru mjög vel valin, og
á heiðurinn af því Sverrir
Sigurðsson forstjóri, sem allra
manna er kunnugastur fram-
vindu Þorvalds Skúlasonar sem
málara nú seinustu áratugi,
enda hefur hann komið sér upp
ótrúlegu safni af verkum hans
og verið honum betri en eng-
inn. Upphenging þessara lista-
verka hefur aftur á móti verið
í höndum Jóhannesar
Framhald á bls. 20.
Ib.apríl getur hann oröiö þaö-sértu áskrifandi aö Dagblaöinu. Askriftarsíminn er 270 22
MHB
VÖkvastýri. Aflhemlar.
ítýri. Nova Custom 78: Stillanlegir Allir mælar. Klukka. Upphituð
sportspeglar. Utað gler. afturrúða.
WBIAÐIB
frfálst, úháð dagblað
Sjátfskipting. Veltistýri.