Morgunblaðið - 22.03.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978
15
„ÞETTA er sú almesta og
merkilcgasta reynsla sem ég
hef lent í um ævina,“ sagði
Heba Jónsdóttir, fararstjóri
hjá Sunnu. sem nýkomin er úr
för með 21 íslenzkum sjúklingi
til Filippseyja þar sem þeir
ieituðu lækninga hjá þarlend-
um trúarlækni Antonío
Agpaoa, sem framkvæmdi allar
sínar aðgerðir með höndunum
einum saman.
í upphafi voru það Ævar
Kvaran og fleiri sem komust í
kynni við þennan merkilega
prest, sem býr í bænum Baguio,
sem er um 250 km frá Maníla,
höfuðborg Filippseyja, en bær-
inn stendur í um 1500 m hæð
yfir sjávarmáli. Síðan voru
haldnir fundir með þessu fólki
Heba Jónsdóttir
eða endar alltaf á bænastund en
sálmur er jafnan sunginn með
bæninni, en þessi sami sálmur
er síðan sunginn stöðugt meðan
á aðgerð stendur. Þess verður
einnig að geta að um 80% allra
íbúa landsins eru rammkaþólsk-
ir og í þessum athöfnum bland-
ast saman hin kaþólska trú og
hin dulræna austurlenzka
lífsspeki, en dulræn trú er mjög
víðtæk þarna um slóðir.
Um þessa merkilegu hæfileika
Apgaoa er það að segja, að þeir
komu fram þegar á unga aldri
þegar hann var í skóla. Þá mátti
hann ekki snerta sjúklinga þá
urðu þeir alheilbrigðir sam-
stundis, en læknirinn er um 40
ára gamall nú. Hann hóf sína
eiginlegu starfsemi í kjallara
„Framkvæmir allar
aðgerðir með hönd-
unum einum saman”
og Sunna fengin til að annast
ferðir og fararstjórn fyrir það.
Þess má geta að Agpaoa er af
mörgum talinn vera víðfrægasti
trúarlæknir í heimi og til hans
streymir árlega geysilegur fjöldi
fólks úr öllum heimsálfum.
Ferðin hófst 16. febrúar s.l.
þegar við flugum frá Keflavík til
London, síðan áfram til
Amsterdam, Rómar, Bangkok
og að lokum til Manila, en þaðan
var ekið með langferðabílum til
Baguio. Ferðin gekk alveg
þokkalega vel, þótt svo nokkrir
sjúklinganna hafi verið nokkuð
lasburða, en í hópnum var fólk
með hina ýmsu kvilla. En það er
rétt að geta þess að ekki skiptir
máli fyrir Agpaoa hvers konar
sjúkdóma menn ganga með.
Meðferðin sem hver sjúkling-
ur fékk á staðnum var þannig,
að á hverjum degi fór
sjúklingurinn í meðferð hjá
lækninum og aðstoðarmönnum
hans, en meðal þeirra var einn
fulllærður kínverskur læknir.
Aðgerðin hjá Apgaoa tók venju-
lega 3—5 mínútur en heildar-
tíminn á dag var í kringum 1V4
klukkustund, en inni í því er
nudd sem hver sjúklingur fær
eftir meðferð.
Það almerkilegasta sem ég
varð vitni að í þessum
aðgerðum, var þegar læknirinn
opnaði brjósthol manns með
hjartasjúkdóm, þannig að
maður horfði á hjartað með
eigin augum slá, síðan sló
læknirinn með snöggu höggi
aftan við eyrað á manninum
þannig að holdið opnaðist og út
dró hann sýkta kirtla, sem hann
sagði að væru þess valdandi að
einhver slæmska væri í hjarta
sjúklingsins. Eftir þessa aðgerð
var alls ekki að merkja að hún
hefði haft nein áhrif á sjúkling-
inn sem fór allra sinna ferða án
þess að kenna sér neins meins.
Þó svo að ég hafi aðeins farið
sem fararstjóri í ferðina þótti
mér ekki úr vegi að spyrja
lækninn um þreytu sem jafnan
settist í aðra öxlina á mér þegar
ég hef haft mikið að gera í
vinnunni hér heima. Læknirinn
leit lauslega á öxlina og risti
síðan skurð á hana með fingrin-
um. Út þaðan dró hann hverja
fitutrefjuna á fætur annarri og
sýndi mér. Að lokum var gengið
frá sárinu og eru þar alls engin
ummerki í dag eftir slíka aðgerð
og þessi streita sem jafnan gerði
vart við sig hjá mér er gersam-
lega horfin. Að lokum sýndi ég
honum nokkuð stóran æðahnút
sem hefur verið í nokkur ár
framan á öðrum fótlegg mínum.
— A örskammri stundu opnaði
hann æðina og dró þaðan út
storkið blóð og trefjar og sjást
þess nú engin merki að ég hafi
nokkru sinni verið með æðahnút
þar. — Eftir þessa reynslu get
ég með sanni sagt að hér var
ekki um neinar sjónhverfingar
að ræða, heldur hina mestu
alvöru.
Einu vandkvæðin í ferðinni
voru þau, að þegar til læknisins
kom, lenti það hjá mér að fylla
út miklar sjúkdómsskýrslur um
hvern og einn af sjúklingunum,
utan einnar stúlku, sem vildi
gera það sjálf.
Athöfnin hverju sinni byrjar
hússins heima hjá sér. Þar sem
var lítil kapella. Síðar meir
keypti ríkisstjórn Filippseyja
handa honum gamalt klaustur
þar sem hann er með sína
starfsemi í dag og til merkis um
hversu mikils metinn Apgaoa
er í heimalandi sínu má nefna
það, að hann fer aldrei frá
eyjunni að beiðni forsetahjón-
anna sem bæði eru haldin
alvarlegum sjúkdómi, en eins og
áður sagði þá streymir til hans
fólk úr öllum heimsálfum og það
tekur óhemjulangan tíma að
komast að hjá honum. Meðan
við dvöldum þarna hitti ég
meðal annars svissneska konu
sem var þarna einungis í heim-
sókn nú, en hafði verið í meðferð
hjá lækninum fyrir 4 árum.
Þegar hún kom fyrst til
meðferðar rétt staulaðist hún
áfram á tveimur hækjum mjög
þjökuð af liðagigt og gat varla
hreyft neina liði. — Þarna gekk
hún létt i spori og allir útlimir
voru mjög eðlilegir, reyndar
sveiflaði hún staf í kringum sig,
en húp sagði mér að það veitti
henni aðeins nokkra öryggis-
kennd, alls ekki að hún þyrfti
hans með.
Að lokum sagði Heba í viðtali
við Morgunblaðið að öll læknis-
þjónustan væri ókeypis, hún
byggðist aðeins á frjálsum
framlögum og gjafafé, en
uppbygging á staðnum hefur
verið gífurleg á undanförnum
árum. Þó svo að meðferðin
kostar ekkert, þá finna þó flestir
sjúklinganna. sig knúða til að
láta eitthvað af hendi rakna til
að styrkja þetta mjög svo
merkilega fyrirbrigði.
— HÍP sektar
Framhald af bls. 32.
„fyrst á félagsfundi en síðan í
fulltrúaráði og það verða allir
félagsmenn að hlýða lögum og
löglega gerðum samþykktum inn-
an félagsins hverju sinni.
Ólafur tók fram að sektarað-
gerðirnar væru í samræmi við
heimild í félagslögum.
Vegna rúmleysis í Mbl. verða
önnur ummæli Einars og Ólafs
birt siðar.
Framhald af bls. 2
tanga. Samkvæmt samningnum
tilnefnir Járnblendifélagið
Elkem-Spigerverket einkaum-
boðsaðila utan íslands til að
selja kísiljárn frá félaginu.
Mikilvægust atriði söluskilmál-
anna eru, að járnblendifélagið
er gert jafnsett verksmiðjum
Elkem-spigerverket að því er
tekur til sölumagns og söluverðs
og raunar nokkru betur, því að
fyrstu árin eða fram til miðs árs
1982, ábyrgist Elkem-Spiger-
verket sölu á tilteknu lágmarks-
magni frá 70—80% af fram-
leiðslugetu verksmiðjunnar, án
tillits til markaðsástands á
þessum tíma.
Einnig veitir sölusamningur-
inn Járnblendifélaginu aðgang
að mikilvægum upplýsingum frá
Elkem-Spigerverket um sölu- og
markaðsmál fyrirtækisins og að
úttektum þess á þróun þessa
markaðar til lengri og skemmri
tíma.
Með þessum markaðssamn-
ingi tengist verksmiðjan sölu-
kerfi þeirrar samsteypu allra
helztu kísiljárnframleiðenda í
Noregi, sem sett hefur verið á
laggirnar til að annast útflutn-
ing þessa efnis. Þetta fyrirtæki,
sem nefnist Fesil a/s, er stærsti
einstaki aðilinn í milliríkja-
verzlun með kísiljárn í heimin-
um, selur um 10% af allri
framleiðslunni. Má því fullyrða,
að með þessum hætti sé mark-
aðshagsmunum verksmiðjunnar
tryggilegar fyrir komið en verða
mætti með öðrum hætti.
Þá kom fram á fundinum, eins
og fyrr hefur verið sagt að
helztu hráefni til framleiðslu á
kísiljárni eru; kvarts, koks, kol
og járnmálmur, auk rafskauta.
„Sá misskilningur hefur komist
á kreik meðal fólks, að hráefni
þessi sé járnblendifélagið skuld-
bundið til að kaupa af
Elkem-Spigerverket, svo er alls
ekki,“ sagði Jón Sigurðsson.
Söluhlið fyrirtækisins verður í
höndum Elkem-Spigerverket
eða öllu heldur í höndum
sölusamlags norsku kísiljárn-
framleiðendanna eins og fyrr
var frá greint, en hráefnakaupin
annast járnblendifélagið sjálft
og hefur frjálsar hendur um
hvaðan er keypt. „Undirbúning-
ur að þessum samningum stend-
ur yfir en engir samningar hafa
verið gerðir," sagði Jón Sigurðs-
son að lokum.
AlKiLVSINÖASÍMINN KH:
22480 JW»rctmblBt>ib
— Járnblendi-
verksmiðfan...
Hafnarfjörður:
Árni Gunnlaugsson
og Andrea Þórðar-
dóttir í efstu sætum
Félags óháðra borgara
ÁRNI Gunnlaugsson og Andrea
Þórðardóttir urðu eíst í skoðana-
könnun Félags óháðra borgara í
Hafnarfirði um val í 5 efstu sætin
á lista félagsins við næstu bæjar-
stjórnarkosningar. Félag óháðra
borgara á nú tvo fulltrúa í
bæjarstjórn; Árna Gunnlaugsson
og Vilhjálm G. Skúlason, en
Vilhjálmur gaf ekki kost á sér til
endurkjörs.
302 af 330 félagsmönnum, sem
rétt höfðu til þátttöku, greiddu
atkvæði eða 92%. Auðir seðlar
voru þrír og einn ógildur. Fram-
bjóðendur voru átta og urðu úrslit
þessi í fimm efstu sætin:
Fyrsta sæti hlaut Árni Gunn-
laugsson, hæstaréttarlögmaður
með 216 atkv. í það sæti, en alls
289,atkv. eða 96% greiddra at-
kvæða.
Annað sæti hlaut Andrea
Þórðardóttir, húsmóðir, með 97
atkv. í 1. og 2. sætí, en alls 248
atkv. eða 82%.
Þriðja sæti hlaut Hallgrímur
Pétursson, form. Verkam. fél.
Hlífar, með 98 atkv. í 1.—3. sæti,
en alls 203 atkv. eða 67%.
Fjórða sæti hlaut Brynjólfur
Þorbjarnarson, vélsmiður með 138
atkv. í 1.—4. sæti, en alls 189 atkv.
eða 63%.
Fimmta sæti hlaut Snorri
Jónsson, yfirkennari, með 186
atkv. í 1,—5. sæti eða 62P.
Sýna í Lindarbæ
Nemendaleikhús fjórða
bekkjar S í Leiklistarskóla
íslands frumsýndi leikritið
„Fansjen“ eða „Umskiptin“
eftir David Hare í Lindarbæ
fyrir rúmri viku. Leikstjóri
er Bríet Héðinsdóttir og
— Utvegsbanki
Framhald af bls. 2
heppilegasta leiðin til að ná sem
beztu jafnvægi í bankakerfinu,“ sagði
Davíö. „Ég legg á það áherzlu, að alls
ekki er um það að ræða að leggja
banka niður, heldur er rætt um
sameiningu banka, eins og svo mjög
hefur tíðkazt í öðrum löndum til að
fá fram sterkari einingar í bankakerf-
ið.“
Jónas Rafnar, bankastjóri Útvegs-
bankans, sagöi, er Mbl. sneri sér til
hans, að hann vildi sem minnzt um
þetta mál segja á þessu stigi. „Við
höfum skilað okkar umsögn til
Alþingis. Hins vegar hefur sameining
banka áður verið til umræðu og ég
er á því að tillögur bankamálanefnd-
arinnar á sínum tíma hafi verið
skynsamlegar. Mitt álit hvað það
snertir hefur ekkert breyzt, enda
höfum við dæmi erlendis frá, þar sem
sparisjóðum hefur á undanförnum
árum fækkað um helming og bankar
sameinazt meira og meira."
„Við höfum gefið okkar umsögn til
fjárhagsnefndar Alþingis og ég vil
ekkert um málið segja á þessu stigi,"
sagði Magnús Jónsson, bankastjóri
Búnaðarbankans.
„Ég get eins búizt við því, að það
bregðist til beggja vona, að þetta
bankalagafrumvarp verði samþykkt á
þessu þingi,“ sagöi Ólafur Jóhannes-
son, ráðherra. „í sjálfu sér kippi ég
mér ekkert upp við það, en þótt
sameining banka sé ekki í frumvarp-
inu eru í því ýmis ákvæði, sem ég tel
til stórra og brýnna bóta.“ Ólafur
sagði ekki von á frumvarpi um
sameiningu banka í kjölfar frum-
varpsins nú. „Það kemur ekki á
þessu þingi," sagði ráðherrann.
leikmynd hefur Guðrún
Svava Svavarsdóttir gert svo
og búninga. Næstu sýningar
á verkinu verða í Lindarbæ
í kvöld, miðvikudagskvöld,
kl. 20:30 og síðan á skírdag
og annan páskadag á sama
tíma.
Doktorsvörn
DOKTORS-vörn fer fram í
Háskóla íslands í dag. Þá ver
Gunnar Karlsson, cand. mag.
ritgerð sína „Frelsisbarátta
Suður-Þingeyinga og Jón á
Gautlöndum", en andmælendur
verða Bergsteinn Jónsson,
lektor, og dr. Björn Sigfússon.
Nöfn tveggja
féllu niður
NÖFN tveggja frambjóðenda í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Vestmannaeyjum. þeirra Magnús-
ar Jónassonar. stöðvarstjóra. og
Gísla Geirs Guðlaugssonar. vék-
virkja, féllu niður í frétt Mbl. sl.
sunnudag þar sem birtur var listi
yfir frambjóðendurna. Er hann
því birtur hér á nýi
Geir Jón Þórisson, lögreglu-
þjónn, Stóragerði 7, Steingrímur
Arnar, verkstjóri, Faxastíg 39,
Ingibjörg Johnsen, frú, Skólavegi
7, Sigurður Jónsson, yfirkennari,
Fjólugötu 8, Magnús Jónasson,
stöðvarstjóri, Höfðavegi 28, Gísli
Geir Guðlaugsson, vélvirki,
Smáragötu 13, Jón í. Sigurðsson,
hafnsögumaður, Vestmannabraut
44, Sigurður Örn Karlsson, renni-
smiður, Skólavegi 26, Bjarni Sig-
hvatsson* kaupmaður, Heimagötu
28, Sigurgeir Ólafsson, skipstjóri,
Bogaslóð 26, Arnar Sigurmunds-
son, framkvæmdastjóri, Bröttu-
götu 30, Georg Þór Kristjánsson,
verkstjóri, Hásteinsvegi 54, Guðni
Grímsson, vélstjóri, Dverghamri
42, Þórður Rafn Sigurðsson, út-
gerðarmaður, Fjólugötu 27, Gunn-
laugur Axelsson, framkvæmda-
stjóri, Kirkjuvegi 67, og Sigur-
björg Axelsdóttir, frú Hátúni 12.