Morgunblaðið - 22.03.1978, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
.Þorbjöm Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, sími 10100.
Aðalstræti 6, simi 22480.
Áskriftargjald 1 700.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 90 kr. eintakið.
Gamla fólkið og
fasteignagjöldin
Enginn vafi er á því, að síhækkandi fasteignagjöld eru
orðin verulegt áhyggjuefni því aldraða fólki, sem vill eyða
ellinni í sínum gömlu húsum, þar til yfir lýkur. Þetta fólk hefur
miklar áhyggjur af því, hve mjög fasteignaskattarnir hafa
hækkað og enn hækka þeir verulega á þessu ári. í grein, sem
Leifur Sveinsson, lögfræðingur, skrifaði í Morgunblaðið 5.
marz sl., segir hann af eigin reynslu frá viðbrögðum aldraðs
fólks, sem brá svo mjög í brún, þegar það fékk fasteignagjalds-
seðla sína í hendur, að því varð eigi svefnsamt næstu nætur,
að því er hann segir, svo miklar sem hækkanirnar höfðu orðið.
Hann bendir á, að það eigi ekki að refsa því fólki, með þessum
hætti sem fer ekki á elliheimili og vill búa í eigin húsnæði.
Hann bendir á, að Borgarsjóður Reykjavíkur hafi gefið öldnu
fólki afslátt af fasteignaskatti árið 1977, sem hér segir:
Einstaklingur með kr. 460 þús. árstekjur eða lægra 75%
afsláttur, hjón með 830 þús. — sami afsláttur, einstaklingur
með kr. 575 þús. 40% afsláttur, en hjón mega hafa 1.040 þús.
kr. í árstekjur til að fá 40% afslátt. Hann bendir á, að þessi
tekjumörk séu í raun og veru út í bláinn, því að ósennilegt
sé, að fólk með fyrrnefndar tekjur eigi þess kost að halda húsi
sínu eins og dýrtíðin er orðin, og allir vita, að það kostar enga
smápeninga að halda við gömlum húsum og greiða af þeim
það, sem þarf. Leifur Sveinsson segir því, að það sé „ótvíræð
skylda borgarstjórnar að tvöfalda tekjuhámark það, sem að
ofan getur og allir innan þess ramma fái 75% afsláttinn, en
þeir sem svo lágar tekjur hafa, að þeir njóti tekjutrygginga
hjá almannatryggingunum, sleppi alveg við fasteignaskatt".
Auk þess eigi að veita afslættina án umsókna, því að það eigi
ekki við íslendinga að knékrjúpa fyrir einum eða neinum „svo
sem tíðkazt hefur undanfarin ár í þessum málum“.
Rétt er að benda á þetta brýna hagsmunamál aldraðs fólks,
sem hefur lagt grundvöllinn undir velferðarþjóðfélag okkar og
á því að búa við frið og öryggi í ellinni. „Launum þeim nú
löng og farsæl störf, eins og þeir hafa svo dyggilega til unnið",
segir greinarhöfundur um þessa öldruðu húseigendur.
Rétt er að benda á þessa athugasemd, sem varðar hagsmuni
fjölda manna, sem hafa leyst af hendi langt og mikilvægt
hlutverk, einatt við erfiðar aðstæður.
Hví svipti Sovétstjómin
Rostropovich og Grigor-
enko rikisborgararétti?
SÚ ákvörðun Sovét-
stjórnarinnar fyrir
skömmu að svipta ríkis-
borgararétti heimsfræg-
an sellóleikara og fyrr-
um hershöfðingja í
Rauða hernum kom ekki
á óvart. Um langt skeið
hefur sömu aðferð verið
beitt til að losna í eitt
skipti fyrir öll við and-
ófsmenn, sem hafa yfir-
gefið „óskalandið“
Sovét. Mál þeirra
Rostropovich og Grigor-
enkos hefur vakið sér-
staka athygli, vegna
frægðar þeirra, en það
er ekki síður athyglis-
vert fyrir þá sök, að þeir
eru sviptir réttindum
sínum í sömu mund og
Belgrad-ráðstefnunni er
að ljúka.
I Helsinki-sáttmálanum, sem
var til umfjöllunar í Belgrad, er
eins og í mannréttindayfirlýs-
ingu Sameinuðu þjóðanna og
öðrum samþykktum um mann-
réttindi, kveðið svo á um að
sérhver einstaklingur hafi rétt
til að ferðast til og frá hvaða
landi sem er, og er föðurlandið
þar að sjálfsögðu ekki undan-
skilið. Akvörðun Sovétstjórnar-
innar og útlegðardómar hennar
yfirleitt eru því ekki aðeins
lúaleg framkoma gegn einstakl-
ingum, heldur ótvíræð brot á
alþjóðasamningum.
Með því að svipta Pjotr
Grigorenko og Mstislav Rostr-
povich ríkisfangi virðist Kreml-
stjórninni fyrst og fremst ganga
það til að undirstrika þá afstöðu
sína, að sovézkum ríkisborgara-
rétti fylgi sú kvöð að gagnrýna
Sovétríkin ekki á opinberum
vettvangi. Ljóst er að með
slíkum ráðstöfunum hyggst
Sovétstjórnin jafnframt múl-
binda sovézka borgara, sem eru
búsettir erlendis en hafa þó enn
sovézkt vegabréf, eins og t.d.
Boris Spassky, fyrrverandi
heimsmeistara í skák, en hann
er einn þeirra mörgu sem hafa
tamið sér að fara varlega og
forðast að styggja yfirvöld með
gagnrýni á Sovét.
Sovétborgarar, sem ferðast til
útlanda og taka þar ákvörðun
um að snúa ekki heim aftur,
missa ríkisborgararétt sinn
sjálfkrafa, og nægir þar að
nefna dæmi eins og áskorand-
ann í í næsta heimsmeistaraein-
vígi í skák, Viktor Korchnoi, og
dansarana Rudolf Nureyev og
Mikhail Baryshnikov.
Grigorenko, sem stóð sig með
mikilli prýði í stríðinu og komst
síðan til mestu mannvirðinga
innan Rauða hersins, var rekinn
úr hernum snemma á sjöunda
áratugnum og látinn dúsa í
fimm ár á geðveikrahæli fyrir
að halda uppi andófi og gagn-
rýni á stjórnvöld í Sovétríkjun-
um. Hann fékk í nóvember leyfi
til að fara til Bandaríkjanna til
að leita sér lækninga, og hugðist
fara heim aftur í maí n.k.
Rostropovich og Galina eigin-
kona hans, sem er söngkona,
fóru frá Sovétríkjunum árið
1974. Rostropovich hefur síðan
verið á hljómleikaferðum lengst
af en um þessar mundir er hann
aðalstjórnandi National
Symphony Orchestra í
Washington. Rostropovich er
náinn vinur Solzhenitsyns og
hefur stutt hann dyggilega í
baráttu hans fyrir auknum
mannréttindum í Sovétríkjun-
um. Rostropovich lét fyrir
skömmu þau orð falla opinber-
lega, að hann færi þá fyrst aftur
til Sovétríkjanna þegar hann
fengi óskert frelsi til að iðka iist
sína þar. (Fréttaskýring frá
AP).
Pjotr Grigorenko fyrrum hershöfðingi og sellósnillingurinn
Mstislav Rostropovich er þeir hittust í New York nýlcga.
Upplag dagblaða
IVísi var því haldið fram fyrir skemmstu, að upplagskönnun
dagblaðanna strandaði á því, að blöðin hefðu ekki sjálf haft
forgöngu um upplagskönnun og Vísir gæti því aðeins tekið þátt
í að veita upplýsingar um upplag sitt að byggt væri á
samræmingu í bókhaldi blaðanna.
Hér skýtur nokkuð skökku við. Hvað voru fulltrúar Vísis að
gera á fundum sem haldnir voru til undirbúnings upplags-
könnunar og hvað um samkomulag það sem Verzlunarráð
Islands bauð blöðunum að undirrita og eftirfarandi grein er í:
„Samningsaðilar skuldbinda sig til að vejta trúnaðarmanni
Verzlunarráðsins aðgang að bókhaldi sínu, prentvélum og
öðrum gögnum, eftir því sem nauðsynlegt er, til þess að hann
geti staðreynt réttmæti framkominna upplýsinga."
Af þessu sést, að frá upphafi var gert ráð fyrir, að
upplýsingar um eintakafjölda kæmu úr bókhaldi dagblaðanna
og því ástæðulaust að reyna að koma því inn hjá fólki, að um
annað hafi verið að ræða. Morgunblaðið hefur um árabil verið
einn þeirra aðila sem frumkvæði hafa haft í þessu máli og
undirritaði fyrrnefnt samkomulag og er reiðubúið, nú sem fyrr,
að láta í té allar nauðsynlegar upplýsingar um seld eintök í
sambandi við slíka könnun. En aðalatriðið er, að hún byggist
á réttum tölum um sölu blaðanna en ekki falstölum um
prentuð eintök, sem engir kaupendur eru að né lesendur og
liggja eins og hráviði á sölustöðum hingað og þangað um allt
land.
Svo virðist, sem Vísir vilji taka þátt í því að veita
upplýsingar um greidd eintök dagblaðanna, þar sem hann
nefnir bókhaldsupplýsingar í því sambandi, og mætti því
spyrja, hvers vegna hann hefur ekki undirritað samninginn frá
því á sl. vori um upplagskönnun á vegum Verzlunarráðs
Islands. Slíkar upplýsingar eru gagnlegar á margan hátt, ekki
sízt fyrir auglýsendur.
Veður
víða um heim
Amsterdam 6 rigning
Aþena 18 skýjað
Berlín 6 skýjað
Bríissel 8 rigning
Chicago 11 bjart
Kaupm.höfn -1 skýjað
Frankfurt 9 úrkomul.
Genf 10 rigning
Helsinki -6 bjart
Jóh.horg 22 sól
Lissabon 16 sól
London 9 sól
Los Angeles 20 skýjað
Madrid 18 sól
Miami 24 skýjað
Moskva 0 snjókoma
New York 9 rigning
Ósló -4 sól
París 12 skýjað
Rómahorg 13 bjart
S. Fracisco 19 skýjað
Stokkh. -5 skýjað
Tel Aviv 21 skýjað
Tókíó 9 rigning
Vancouver 13 skýjað
Vínarborg 9 skýjað
Stríðsglæpamað-
ur leiddur fyrir rétt
('hicajío 21. marz. AP. Reutcr.
ÞÝZKUR stríðsglæpamaður var
í dag leiddur fyrir rétt í
Chicago, sakaður um að hafa
dulið fortíð sína til að fá
bandarískan ríkisborgararétt.
Stríðsglæpamaðurinn, Frank
Walrus, er sakaður um að hafa
logið til nafns og þjóðernis árið
1970, er hann sótti um bandarísk-
an ríkisborgararétt. Saksóknari
ríkisins hefur sagt, að hann
hyggist kalla 11 vitni fyrir
réttarhöldin sem geta borið um
að Walrus hafi verið félagi í
Gestapo og að hann hafi myrt
fjölda Gyðinga í Póllandi í síðari
heimsstyrjöldinni. Verði Walrus
sekur fundinn missir hann ríkis-
borgararétt sinn og verður fram-
seldur til Vestur-Þýzkalands.
6,1% atvinnuleysi
er nú í Bretlandi
London 21. marz AP
ATVINNULAUSIR í marzmán-
uði í Bretlandi eru sjötíu og
fimm þúsund manns fleiri en á
sama tíma í fyrra og alls eru
1.460.972 atvinnufærra manna í
Bretlandi atvinnulausir. Er
þetta um 6.1% vinnufærra.
Heldur hefur dregið úr atvinnu-
leysi siðan í ágústmánuði nema
í janúar og tölurnar nú í
marzmánuði eru þær hæstu
síðan í heimsstyrjöldinni síðari.
Opinberar tölur segja, að af 663
þús. ungum Bretum sem luku
háskólanámi á sl. ári hafi um 94%
fengið vinnu, komizt í starfsþjálf-
un eða leitað sér frekari menntun-
ar. Þrátt 'fyrir uggvænlegar tölur
um atvinnuleysi í Bretlandi nú
þessar vikurnar telur ríkisstjórnin
að henni hafi tekizt að ná valdi á
málinu og muni ástandið nú smátt
og smátt færast til betri vegar.