Morgunblaðið - 22.03.1978, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978
17
ITa Krökkt
^ átu inni
um í N-Noregi
af ljós-
á f jörð-
NORSKIR fiskifræðingar telja að
ógrynni ljósátu séu í fjiirðum í
Norður-Noregi. Á næstunni verð-
ur birt skýrsla þar sem meðal
annars kemur fram, að í Öks-
fjorden sé slíkur mokafli af
ljósátu. að þar sé hægt að fá um
tvö og hálft tonn á klukkustund.
Helztu ljósátumiðin eru út af
ströndum Troms og Finnmerkur,
en við leitina þarf að nota sérstök
hátíðnitaeki því að ljósátan finnst
ekki með venjulegum bergmáls-
fiskileitartækjum.
Ljósáta er skelfiskur, náskyldur
rauðátunni, 2—3 sentimetra lang-
ur. Fyrir utan það að vera
mikilvægur þáttur í fæðu fiska og
hvala, er hún notúð til manneldis.
Ljósátukæfa, eða -mauk, hefur
mikið næringargildi, og nýta
Rússar hana þannig, en þeir veiða
hana aðallega í Barentshafi.
Líbönsk móðir og dóttir hennar reyna að leita skjóls er ísraelskar orrustuvélar nálgast
þorpið Nabatiyah nú um helgina. Þorpið var áður hernaðarlega mikilvægur staður fyrir
Palestínumenn.
Franskir vinstrimenn
þjarka um ósigurinn
Teng hvetur til
tækniframfara
Tokyo
21. marz — AP.
París, 21. marz. Reuter.
FRAKKAR velta 0ví fyrir sér hver
veröur forsætisráöherra ríkisstjórn-
arinnar sem veröur mynduð eftir
kosningasigur stjórnarflokkanna, en
Valery Giscard d Estaing forseti
lætur ekkert uppi.
Jafnframt eru miklar deilur milli
vinstriflokkanna um paö hver beri
ábyrgðina á ósigri peirra í kosning-
unum. Sósíalistaflokkurinn hefur í
yfirlýsingu sakað George Marchais,
leiötoga kommúnista, um að hafa
efnt til sundrungar sem flokkurinn
segir aö hafi valdið ósigrinum.
Kommúnistamálgagniö L‘humanité
svaraði pví til í dag, að sósíalistar
reyndu að beina athyglinni frá
ábyrgöinni sem peir bæru á Sundr-
ungu vinstrimanna.
Samkvæmt pólitískum heimildum er
enn taliö líklegast, að Giscard forseti
ákveði að Barre verði áfram forsætis-
ráðherra, að minnsta kosti í hálft ár,
og gera honum kleift að fylgja eftir
þeim ráðstöfunum sem hann hefur
gripið til, til þess að hefta verðbólguna
og leggja grundvöll að viðreisn
efnahagslífsins. Á það er bent að
kosningasigur stjórnarflokkanna hefur
Geller vann
Gutierrez
Bogota, Kolumbíu.
20. marz AP.
SOVÉZKI stórmeistarinn
Geller vann Kólumbíu-
manninn Jose Antonio Gut-
ierrez í 42 leikjum í dag, og
tók Geller þar með foryst-
una á alþjóðaskákmótinu í
Bogota. Annar er Carlos
Cuartas frá Kólumbíu. Ar-
gentínumaðurinn Oscar
Panno vann Norberto Ve-
landia í 57 leikjum og er
Panno nú í fimmta sæti
ásamt Gildardo frá Kólum-
bíu með einn og hálfan
vinning. Panno vann mótið
í fyrra.
__ /
Fyrrv. Irlands-
forseti látinn
Sneem, írlandi, 21. marz.
CEARBHALL 0‘Dalaigh, fyrrver-
andi forseti írlands og mikilsvirt-
ur menntamaður og lagasérfræð-
ingur, lézt í dag á heimili sínu í
Suðvestur-írlandi. Hann var 67
ára gamall. Talsmaður írsku
stjórnarinnar sagði, að O.Dalaigh
hefði látizt úr hjartaáfalli.
treyst stöðu Barre og að hann sýni að
þótt ráðstafanir hans séu óvinsælar
hafi kjósendur ekki viljað hætta á þá
tilraunamennsku sem óttazt var að
vinstrimenn mundu stunda í efnahags-
málum ef þeir kæmust til valda.
En Giscard kann að velja nýjan
forsætisráðherra og ef hann gerir það
koma ýmsir til greina, þeirra á meðal
frú Simone Veil heilbrigðisráðherra
sem nýtur mikilla vinsælda, Alain
Peyrefitte dómsmálaráðherra og
Jacques Chaban-Delmas fyrrverandi
forsætisráðherra. Chaban Delmas og
Peyrefitte eru hófsamir gaullistar sem
miðflokkabandalagiö gæti sætt sig við,
en hins vegar gæti gaullistaleiötoginn
Jacques Chirac móðgazt ef Chab-
an-Delmas yrði forsætisráðherra þar
sem þeir eldu grátt silfur saman fyrir
forsetakosningarnar sem komu Gis-
card d'Estaing til valda 1974.
Fyrsti stjórnarfundurinn eftir kosn-
5 f órust í
flugslysi
Caracas, Venezúela, 20. marz.
AP.
LEITARFLOKKUR fann í dag
flak lítillar flugvélar, sem saknað
hefur verið í fimm daga, í
fjöllunum við strönd Venezúela,
19 kílómetra austur af Caracas.
Með flugvélinni voru fimm
manns og fórust þeir allir, þar á
meðal Renny Ottolina, en hann
var frambjóðandi til forsetakosn-
inga sem verða í landinu í
desember.
Ottolina bauð sig fram í nafni
óháðra og var talið frekar ólíklegt,
að hann yrði kjörinn forseti. Hann
var á leið til borgarinnar Marga-
rita, þar sem hann hugðist halda
framboðsfund.
ingarnar verður á morgun og Giscard
d'Estaing forseti ávarpar þjóðina í
sjónvarpi um kvöldið. Vera má að
forsetinn skýri frá ákvörðun sinni um
forsætisráðherrann á morgun, en
sumir telja aö hann kunni að fresta
ákvöröuninni þangað tii nýkjörið þing
kemur saman 3. apríl.
Jafnframt tilkynnti Robert Fabre,
leiðtogi vinstri radikala, í dag að hann
hefði ákveðið að láta af forystu
flokksins. Flokkurinn var í bandalagi
með sósíalistum og kommúnistum í
kosningunum og tapaði fylgi.
TENG Hsiao-Ping, varaformaður
kínverska kommúnistaflokksins,
staðhæfði á fundi með fulltrúum
á mikilli vísindaráðstefnu sem er
um það bil að hef jast í Peking, að
„gjá sé á milli tækni og vísinda
í Kína og í hinum þróaða heimi“,
um leið og hann lýsti því yfir að
kínverski kommúnistaflokkurinn
væri fullfær um að hafa forgöngu
um að „útrýma kerfisbundinni
misnotkun og að breyta þjóð-
félaginu og flokkurinn verður án
nokkurs vafa fær um að hefja
þjóðina til hæða í vísindalegri
þekkingu“.
Teng sagði þetta á sex þúsund
manna fundi. Hann brýndi fyrir
vísindamönnunum að raunsæi
væri nauðsynlegt, og að menn yrðu
að gera sér grein fyrir því að enn
væri mjög mikill munur á tækni
Heimsmeistaraeinvíg-
ið hefst um miðjan júlí
ALÞJÓÐA skáksambandið hef-
ur tilkynnt að heimsmeistara-
einvígið í skák milli þeirra
Karpovs heimsmeistara og
áskorandans Kortsnojs hefjist
væntanlega í borginni Baguio á
Filipseyjum 16. júlí n.k.
Báðir skákmennirnir undir-
búa sig nú af kappi fyrir
einvigið. Það hefur hins vegar
sett strik í reikninginn hjá
Karpov, að aðalþjálfari hans
undanfarin ár, sovézki skák-
meistarinn Samjon Furman,
lézt um s.l. helgi úr krabba-
meini, 57 ára að aldri. Furman
var aðallega þekktur fyrir þann
þátt, sem hann hefur átt í
velgengni Karpovs en hann var
einnig mjög sterkur skákmaður.
Teng Hsiao Ping
og vísindum í Kína og því sem bezt
gerðist í heiminum. Þar við
bættist að Kínverjar hefðu glatað
dýrmætum tíma, einkum og sér í
lagi vegna niðurrifsstarfsemi Lin
Piaos og fjögurra manna klíkunn-
ar. Lin Piao, sem lengi var talinn
líklegasti arftaki Maós, fórst í
flugslysi 1974 er hann hugðist
flýja land eftir misheppnaða
tilraun til stjórnarbyltingar, og
telja margir að honum hafi verið
komið fyrir kattarnef.
Ennfremur er haft eftir Teng að
samvinna við erlend ríki á sviði
tækni og vísinda sé nauðsynleg til
að skjótar framfarir verði, um leið
og hann hvatti til þess að þjálfun
og nauðsynlegri menntún yrði
flýtt svo sem verða mætti.
Segja Kambódíuher
hafa beðið afhroð
Itannkok. Thailandi 21. marz. AP.
TILKYNNT var í Víetnam í dag,
að Kambódíumenn hefðu ráðizt
inn í Víetnam, og að kambódíski
sjóherinn hefði stutt innrásar
mennina. í tilkynningunni sagði,
að Kambódíumennirnir hefðu
verið hraktir til baka, og að þeir
hefðu beðið mikið afhroð.
Samkvæmt heimildum frá Víet-
nam réðust tvær herdeildir frá
Kambódíu á víetnamska hafnar-
bæinn Ha Tien dagana 13.—15.
marz, en Ha Tien er í suðvestur-
horni Víetnams. Var innrásarher-
inn studdur fallbyssuskothríð frá
já herskipum og stórskotaliði.
Segjast Víetnamar hafa f.»llt
Þetta gerðist
1977 — Að minnsta kosti 60
manns farast í jarðskjálfta í
Suður-íran.
1075 — Henry Kissinger hætt-
ir við að reyna að sætta
ísraelsmenn og Egypta þar sem
ágreiningur þeirra reynist of
mikill.
1962 — Franskir hryðjuverka-
menn ráðast á stjórnarhersveit-
ir í Algeirsborg.
1916 — Bretar viðurkenna
sjálfstæði Transjórdaníu.
1945 — Arababandalagið
stofnað.
fjölda Kambódíumanna, þar af 70
í einum bardaga rétt við bæinn
hinn 14. marz. Þá segir, að
Kambódíumenn hafi drepið meira
en 100 óbreytta borgara í Víetnam
og brennt 120 hús til grunna. „í
gagnárásinni sýndu hermenn Víet-
nams mikinn baráttuvilja og
felldu og særðu nokkur hundruð
innrásarmannanna," segir í frétt
víetnamska útvarpsins.
1917 — Bandaríkjamenn við-
urkenna fyrstir allra þjóða nýju
bráðabirgðastjórnina I Rúss-
landi.
1765 — Finska þingið sam-
þykkir stimpillögin sem auka
skattaálögur á íbúana í nýlend-
unum í Norður-Ameríku.
1622 — Fyrstu fjöldamorð
Indíána í Norður-Ameríku: um
350 Virginíubúar myrtir.
Afmæli í dag. Anton van Dyck,
hollenzkur listmálari (1599 —
1641) — Edward Moore, enskt
leikritaskáld <1712 - 1775) —
Maximillian, I keisari Hins
heilaga rómverska ríkis, (1459
— 15Í9) — Vilhjálmur 1 Þýzka-
landskeisari (1797 — 1888) —
Robert Andrews Millikan,
bandarískur vísindamaður (1868
- 1953).
Ilugleiðing dagsins, Mesta auð-
iegð mannsins er fólgin í hinu
góða sem hann lætur af sér leiða
í lífinu. — Spámaðurinn
Múhameð (570 — 632).
Kólera brýzt
út í Tanzaníu
Dar es Salaam. 21. marz Reuter.
ÞRJÚ hundruð manns hafa látizt
úr kóleru í Tanzaníu síðan síðasti
faraldur gaus þar upp í landi fyrir
fimm mánuðum. Heilbrigðismála-
ráðherra landsins sagði í dag, að
svo virtist sem veikin væri í
rénum. Algerlega óstaðfestar en
nokkuð áreiðanlegar heimildir
telja þó, að þessar opinberu tölur
um dauðsföll séu fjarri öllu lagi og
hafi á annað þúsund manns látizt
úr veikinni.