Morgunblaðið - 22.03.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978
19
Jón Hallur Karls-
son — Minning
Þann 26. marz 1978 hefði Jón
Hallur Karlsson orðið 18 ára, en
hann lézt í vinnuslysi 4. janúar sl.
Én kynntist Jóni Halli Karlssyni i
byggingarvinnu við hitaveitufram-
kvæmdir sumarið 1976. Eru þau
kynni mér ógleymanleg. Eftir að
hafa unnið með honum nokkra
daga spurði hann, hvort ég hefði
þekkt afa hans og nafna, sem ég
svaraði játandi. Með því hófst
vinátta okkar. Ræddum við síðan
margt og mikið saman daglega og
reyndum jafnan að fá að vera í
sama vinnuflokki. Við ólíkustu og
erfiðustu aðstæður hefir það verið
eitt af mínum fáu gæfueinkennum,
að mér hefir ávallt samið vel við
unglinga og unga menn, getað
unnið traust þeirra, skilið þá og
mætt skilningi þeirra. Notið sam-
vista við þá og tekið þátt í
hugðarefnum þeirra og áhugamál-
um. Aðeins hefir þar verið hjá mér
ein undantekning, en þar átti í
hlut algjör andstæða við Jón Hall
Karlsson. Af stórum skara ung-
menna, sem ég hefi þannig kynnst,
er Jón Hallur Karlsson mér
minnisstæðastur fyrir margra
hluta sakir og verða nokkrir þeirra
tíundaðir hér. Jón var 16 ára við
fyrstu kynni okkar og hefi ég engu
ungmenni kynnst með jafnmikla
lífsbreidd, eða jafn lausan við hið
svokallaða kynslóðabil. I honum
sameinaðist aldamótamaðurinn,
miðaldra maðurinn og nútíma
glaðvær unglingur. Þótt hann væri
fyrst og fremst sjálfstæð og
sérstæð manngerð, þá gætti jafn-
framt hjá honum óvenjumikilla
áhrifa frá hugsunarhætti foreldra
og föðurforeldra. Voru honum
mjög töm ýmis sérstök orðtök afa
síns og nafna. Vissulega má segja,
að langur aðdragandi hafi verið að
kynnum okkar. Afa hans og nafna,
Jóni Halli Sigurbjörnssyni, kynnt-
ist ég 1944, þegar ég kom í
Húsgagnavinnustofu hans á Akur-
eyri og spurðist f.vrir um gæði
stóls, og fékk það kjarngóða svar:
„Hér er ekkert fúsk,“ sem hann
var svo sannarlega laus við. Þessi
kynni af Jóni Halli eldra urðu að
vináttu við hann og hans ágætu
konu, Kristínu M. Karlsdóttur frá
Draflastöðum.
Eftir að þau hjón fluttust til
Reykjavíkur 1958 urðum við Jón
Hallur eldri nánir samstarfsmenn
og var hann velgjörðamaður mi-nn
til dánardægurs 1973, 76 áræ að
aldri. Ekki hefi ég kynnst ábyrg-
ari, áreiðanlegri né duglegri
manni en Jóni Halli eldra. Tvö af
sérstökum orðtökum hans voru, að
menn yrði að vera harðir í
skallann og að menn yrðu að hafa
kvarnir. Hann kvað Jón Hall
nafna sinn og sonarson hafa báða
þessa eiginleika, enda voru dáleik-
ar hans miklir á nafna sínum.
Foreldrar Jóns Halls yngra voru
bæði skólasystkini mín. Ég tel
móðurina, Olöfu Stefánsdóttur,
hafa verið fjölskörpustu náms-
konu, sem með mér var samtíma
í skóla. Faðirinn, Karl Ómar
verkfræðingur, var ágætur náms-
maður, jafnan rólegur og: gætinn
og hefir í öllu verið einstaklega
farsæll maður.
Jón Hallur yngri átti því ekki
langt að sækja góða mannkosti.
Eldri mannvænleg systkini sín 3
dáði hann mjög og með þeim
samheldni mikil, enda góður félagi
allra, sem hann batt trúss sitt við.
Foreldrum sínum var hann jafnan
til ánægju og var ólatur að gera
þeim allt það, Sem hann gat, til
þæginda og léttis. Hann var
flugskarpur og afburða náms-
maður. Hann hafði svo sannanlega
kvarnir. Hann var einstaklega
ábyrgur, áreiðanlegur og duglegur,
með fádæma verklagni og verksvit
af svo ungum manni. Hann stóð
fast á sínu, hver sem í hlut átti.
Hann var harður í skallann og
þoldi ekki fúsk, enda það honum
óeiginlegt sem afa hans og nafna.
Hann stefndi markvisst að tækni-
menntun og var fullur tilhlökkun-
ar að geta síðar orðið fullgildur
þátttakandi í vaxandi verkfræði-
fyrirtæki föður síns. Það ein-
kenndi Jón Hall yngra, að hann
gat engum skuldað og vildi vera
veitandi. Af efnuðum foreldrum
sínum vildi hann ekkert þiggja,
nema húsnæði, fæði og lítið af
fötum. Sjálfstæðið var ríkt í
honum og fyrir öllu öðru vann
hann sjálfur og hafði þegar á 17.
ári keypt sér bifreið fyrir eigið
sjálfsaflafé. Jón Hallur yngri var
enginn brjó'stmylkingur. Hann
gerði f.vrst og fremst kröfur til
sjálfs sín. Hins vegar þoldi hann
engan flottræfilshátt og hafði
megnustu skömm á dekurungling-
um, sem sóuðu og slógu um sig
með eyðslufé, sníktu eða gefnu, frá
misvitrum ættingjum, og gera
aðeins það, sem þeim þykir gaman
og gott undir kjörorðinu: Allt í
þessu fína. Enda er það staðreynd,
að slíkt óæskilegt uppeldi leiðir til
almennrar leti og löngunar til að
losna við allar skyldur, fyrirlíta
vinnu, en hvetur til að velja léttu
leiðina að fá ríflegan skammt af
mjólkurpeningum mömmu sinnar.
Algjör andstaða við slík ungmenni
var Jón Hallur. í vinnuflokk okkar
var við og við komið fyrir ung-
mennum, sem hvorki gátu né
nenntu að vinna. Þeir hættu að
mæta nær strax, m.a. vegna
dugnaðar Jóns Halls, því að með
honum urðu þeir að vinna og þoldu
ekki samanburð við hann. Þeir
fengu að heyra það óþvegið frá
honum, að þeim væri ekki launað
fyrir slór og vinnusvik. Atvinnu-
veitendur og verkstjórar dáðu Jón
Hall réttilega sem einstakan
afkasta- og vandvirknismann og
fólu honum verkefni, sem bæði
kröfðust verkkunnáttu og ábyrgð-
ar.
Þessi b.vggingarvinna var mér á
margan hátt erfið og þreytandi, en
það bjarta við hana var, að ég
hlakkaði jafnan til næsta dags, ef
ég yrði í vinnúflokki Jóns Halls,
því að þeir dagar voru jafnan
sólskinsdagar, jafnvel þótt bæði
rigndi og blési. Því er ég Jóni Halli
yngri þakklátur, eins og ég var afa
hans og nafna áður.
Með hinu hörmulega vinnuslysi,
þegar Jón Hallur Karlsson fórst í
Svartsengi við Grindavík, þá
andaðist vammlaus drengur,
afburða náms- og verkmaður,
stórkostlegt efni í framúrstefnu
atorkumann með ábyrgð alda-
mótamannanna og framfarahug
nútímans. Enginn má sköpum
renna. Vegna ágæts námsferils
var Jón Hallur í fríi frá mennta-
skólanámi sínu, þegar hann varð
allur, eftir stefnuskrá sinni, að
afla sjálfur þess fjár, sem hann
þurfti til áhugamála sinna og
sjálfum sér samkvæmur. Þegar ég
frétti hið sorglega andlát hans, gat
ég ekki annað hugsað, en nú hefði
almættið þurft á afburða vit-,
tækni- og verkmanni að halda. Á
sínum tíma lauk ég eftirmælum
um Jón Hall eldra, að hann hefði
ræktað vel garðinn sinn, en
þessum lýk ég með -því, að Jón
Hallur yngri hafi vel plægt
garðinn sinn.
Reykjavík 16. marz 1978.
borv. Ari Arason.
EDEN
Páskarí Eden
Má bjóða þér í bæinn
Eitt fótmál úr vetri i vor.
Stórglæsilegt
úrval af
pottablómum
og þúsundir
af páskaliljum!
w
I
páskavikunni
(Stórsýning
Stemgríms opnuð
miðvikud.kv.)
BILASYNING
Hinn glæsiiegi Lada
Sport, torfærubíllinn,
til sýnis alla daga
vikunnar.
í Eden
liggur leiðin
Opið alla daga
og öll kvöld.