Morgunblaðið - 22.03.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978
25
fclk í <3i
fréttum ^
Bobby
Fischer
gefur
stórfé
+ Bobby Fischer hefur haft hljótt
um sig síðari árin, og varla hefur
heyrst nokkuð frá honum síðan
hann vann heimsmeistaratitilinn í
skák af Boris Spassky hér á landi
árið 1972. Síðan hefur hann ekki
teflt opinberiega og hann missti
titilinn til Anatoly Karpovs án þess
að þeir tefldu nokkurn timann
saman. Fischer hefur löngum verið
sérvitur og virðist ekki lagast með
aldrinum. Hann er nú 34 ára
gamail og lifir fábreyttu lífi, hann
fer svo að segja aldrei út úr íbúð
sinni og ef það kemur fyrir notar
hann hárkollu og dökk gleraugu til
að þekkjast ekki. Hann segist
engan áhuga hafa á því að endur
heimta heimsmeistaratitilinn í
skák. í seinni tíð hefur hann helgað
sig trúmálum og tilheyrir söfnuði
sem nefnist „Alheimskirkja Guðs“.
Hann hefur lagt söfnuðinum til
mikið fé og segja sumir að það nemi
allt að 40 þús. pundum. Ekki virðist
allt vera slétt og fellt hjá þeim
guðsmönnunum, því fyrir tveimur
árum sögðu 3 starfsmenn safnaðar-
ins upp störfum vegna þess að þeir
sögðu að mikið fé hefði verið svikið
út úr áhangendum og stuðnings-
mönnum safnaðarins. En hvað um
það, Fischer sést sennilega ekki við
taflborðið f bráð eftir öllum sólar-
merkjum að dæma. Þó er aldrei að
vita, Fischer hefur alla tíð verið
óútreiknanlegur og verður það
sennilega áfram.
+ Jackie Unassis hefur frá því hún gifti sig í annað sinn
verið álitinn svarti sauðurinn í Kennedyfjölskyldunni og
meðlimir hennar hafa heldur lítið samband viljað hafa
við hana. Þó er hér ein undantekning á og er það Rose
Kennedy, höfuð ættarinnar, hún hefur alla tíð umgengist
hana eins og ekkert sé. Og hér sjást þær, fyrrverandi
tengdamóðir og tengdadóttir á leið til kirkju saman.
+ Elísabet Taylor, sem nýlega fékk aftur bandarískan
ríkisborgararétt, sést hér syngja bandaríska þjóðsönginn og eins
og sönnum Bandaríkjamanni sæmi leggur hún hægri hönd á
hjartastað. Maðurinn sem stendur fyrir aftan hana er núverandi
eiginmaður hennar, John Warner.
+ Eins og flestir muna var
J. Paul Getty III eitt af
mörgum fórnarlömbum
mannræningja á Ítalíu
fyrir nokkrum árum. Til að
leggja áherslu á kröfu sína
um lausnargjald sendu þeir
afa drengsins annað eyra
hans í pósti. Nú hefur
Getty III fengið nýtt eyra,
að vísu úr plasti, en það er
betra en ekkert. Getty III
býr nú í Þýzkalandi og á
þar konu og barn. Konan á
myndinni með honum er
móðir hans, Gail Harris.
Kökubazar og
flóamarkaður
verður haldinn aö Skólavörðustíg 21, 2. hæð
á skírdag kl. 2 e.h.
Félag heyrnarlausra.
4ra manna gúmmíbjörgunarbátar
fyrirliggjandi.
Athugiö verö og greiöslukjör.
ÖlÁfmi GKSb\50M & CO. HF.
SUNDABORG 22 - SÍMI 84800 - 104 REYKIAVIKmh-i
NýjaT-bleian
heitir Kvik
Með Kvik bleiunni eru bleiubuxur eða bleiu-
plast óþarft. Hún situr rétt á barninu og er
þykkust, þar sem þörfin er mest.
v^GS^0 pa$Ka-
INNKAUP
leyft okkar
verd verð
ódýr tómatsósa 187- 169-
hangilæri 1.517- 1.395-
suöusúkkulaði stór pk 592- 569-
ferskjur 1/1 ds 410,- 369-
PASKAEGG
OnO/ ÁLAGNINGAR
/0 AFSLÁTTUR
Opió
miövikudag til kl. 8 e.h.
laugardag til hádegis.
MATVORUMARKAÐURINN
8
LAUGARAS
NORÐURBRUN 2