Alþýðublaðið - 20.11.1958, Blaðsíða 4
Nina&Frederik
Day-O.
Come Back, L’iza.
Man Smart, Woman
Smarter.
Jamaican Farewell.
Lisíen To The Occan.
Tritse Vida.
Me pet Parakeet.
Bury Me Where She
Passes By.
Eden Was Just Like This.
When Woman Say No
Slie Means Yes.
Happi Days.
Maladie d’Amour.
Mango Vendor.
Choucounne.
Hold ’im Joe.
L'in'bo.
Oh, Sinner Man!
Mary’s Boy Child,
Min kompliment, Chérie
Lad os flyve til en stjerne.
- Póstsendum ■
Hljóðfæraverzíun
SI6RÍÐAR
HELGADÓTTUR
Súni 11315 — Vesturveri.
Skoda varahlutir
nýkomnir
Ventilgormar,
Ventilhettur,
Handbremsuyírar,
Hjöruliðir,
Stýrisendar,
Stýrissnekkjur,
Spindilspyxnur,
Fóðringar og slitboltar í
fjaðrir.
Skiptiteinar í gírskipt-
ingu.
Púströrsfestingar,
Bremsugúmmí,
Bremsuborðar
(boraðir).
Bremsudælur,
Háspennukefli,
Ljósaskiptax’,
Bremsuröfai’,
Aðalsvissar,
Felgur, ‘
Kerti,
Ventlar, * IfF
Headpakkningar,
Straumlokur,
Dynantóar
'f o. m. fl.
Skoda verkslæðlð
i við Kringlumýrarveg.
1 ~ Sími 32881.
4
i.
HÓTEL Adlerhof er grátt,
drungalegt fimm hæða stein-
hús, skorðað á miili annarra
jafn hárra steinhúsa.
Ástæðan til þess 1 að þetta
hótel er gert hér að umtals-
efni er ekki sú ,að það sé neitt
merkilegra en einhver önnur
hótel hér í Vínarborg — nema
þá síður sé, því hér er fjöldi
glæsilegra, nafnfrægra hótela.
Til dæmis hótel Imperial við
Ringstrasse, sem "er nú upp-
hyggt og eitt nýtízkulegasta
hótel á meginlandi Evrópu.
En rússneska setuliðið hafði
þar aðalbækistöðvar sínar á
sínum tíma. Skildi Rússinn
við það í megnustu óreiðu.
Tók hátt á þriðja ár að koma
öllu í samt horf aftur. Þá má
nefna hótel Ambassador við
Kártnerstrasse. Þár búa kon-
ungar og annað stórmenni,
sem sækja Vín heim. Má allt-
af sjá, ef eitthvað stórmenni
hvílir þar sín lúnu bein, því
þá standa venjuléga stramm-
ir herverðir beggja megin við
aðaldyr hóteisins — eins og
þegar Mikojan dvaldi þar eða .
Páll Grikkjakonungur. Hótel
Sascha er einnig við Kártner-
strasse, á móti óperunni. Fræg
ir leikarar búa þar gjarnan.
Ef hópur unglinga hefur safn
ast við aðaldyrnar er öruggt,
að einhver stjarnan hefur fall
ið þar niður. Þessir ungling-
ar eru rithandasafnarar. Eru
unglingarnir gráðugir í skrift
ir frægra leikara eins og' belja
í salt. Einnig eru þeir þefvís-
ir á komu leikaranna, sem
bændur nasa regn á þurrviðr-
isdegi, því ekkert hefur verið
birt um komu stjörnunnar, er
unglingarnir hafa myndað
um'ferðaröngþveiti framan
við hótelið. Er þetta eldri
mönnum hvimleið sjón. Þann
ig mætti lengi halda áfrarn að
telja upp hótel, sem bæði eru
glæsilegri og frægari en hó-
tel Adlerhof —- eða Arnar-
garður, eins og það héti á ís-
lenzku. En hótel Arnargarð-
ur hefur það fram yfir öll hin
hótelin, þrátt fyrir drunga-
legt ytra útlit, að .það er stað-
sett í miðju hverfinu, sem ís-
lenzkir námsmenn hér í Vín,
hafa gert að aðalbækistöðv-
um sínum: þar sem þeir flest-
ir hverjir borða og drekka
saman kaffibolla að kvöld-
lagi. Engan skyldi því undra
að íslending reki á f.jörur hó-
tels Arnargarðs. Þar hafa
flestir íslenzkir námsmenn,
sem hingað koma bylt sér á
hvítum, slitnum lökunum,
sína fyrstu nó'tt í Vín.
Hótel Arnargarður er því
að einhverju leyti íslenzkt hó-
tel. íslendingar eru boðnir
þar velkomnir eins og förtx-
manni úr næstu sveit er tek-
ið opnum örmum á bæ heima,
og hann spurðúr tíðinda úr
sinni sveit.
n.
'Strætið fyrir ofan Doran-
kanal heitir kai-kæi á ís-
lenzku. Það er fjölfarin um-
ferðaæð. Þaðan er hægt að
fara með sporvögnum um alla
borgina þvera og endilanga.
En örskammt fyrir ofan kæj-
ann er e.lz.ti- hluti Vínarborg-
ar — aldagamlar kirkjur og
hús. Hús, sem .halla hvert að
öðru, eins og kærustupör með
smáar, örmjóar, steintraðir eða
tröppur á milli eins og í borg-
um á Spáni. En þannig voru
ak- og gangvegir í þá tíð:
þráðmjó sund milli lágreistra
steinhúsa með tréhlerum fyr-
ir litlum gluggum.
Þarna í þessum elzta hluta
borgarinnar, hluta fyrsta
hverfis, var Arnargarður
hlaðinn úr rauðum múrsteini _
húðuðum með grárri' stein-
steypu, fyrir um það bil 40
árum. Arnargarður var hlað-
inn á grunni postulanna
fimm. Húsið, sem stóð hér áð-
ur, var með upphleyptar
myndir af postulunum fimm
á einni hliðinni, og naut mik-
illar virðingar Vínarbúa 'fyr-
ir þær sakir. Sumir signdu
sig jafnvel, er þeir áttu leið
framhjá eða tóku ofan. En eng
inn signir sig lengur, ef hann
á leið fram hjá Arnargarði —
því bæði er búið að byggja
svo í kringum það, að veg-
farandinn kemur alls ekki
auga á það, og svo eru post-
ularnir fimm líka horfnir.
Hótel Arnargarður er bara
eitt af mörgum gráum stein-
húsum, eins og hver regn-
dropi er öðrum líkur.
Hótel Arnarhof hefur ekk-
ert skilti. Það er óþarfi, þvi
það hefur sína „stamm“-gesti.
Gestir, sem einu sinni hafa
búið þar, koma aftur. Smá
ljósapera með rauða rönd,
eins og Ijósakúlurnar fyrir
utan lögregluvarðstofurnar
hérna, er eina auglýsingin
fyrir hótel Arnarhof.
III.
Gatan rétt ofan við hótel
Arnarhof nefnist Fleisch-
markt á máli innfæddra. Á
íslenzku væri það kjötmark-
aður. Núna eru þar aðeins
tvær smá kjötverzlanir. Önn-
ur lætur svo lítið yfir sér, að
maður tæki alls ekki eftir
henni sem kjötbúð, ef ekki
héngi reykt svinslæri innaná
í stórum hvítum glugganum.
Hérna í Kjötmarkaðinum
voru áður kjötvinnslu- og
slátrunarstöðvar. Öll verzlun
fór þá fram undir beru lofti
og þrefuðu húsmæðurnar um
kjötverðið við undirleik líru-
kassaspilara, hestvagna-
skrölts og baul í nautgripum.
Langt er síðan þessi markað-
ur lagðist aiður. Nú eru mark
aðirnir í stórum birgða-
skemmum víðs vegar um
borgina, og úir þar sarnan öll-
um mögulegum landbúnaðar-
afurðum, sem bændur flytja
sjálfir til borgarinnar og selja
milliliðalaust. Er hægt að
gera þar mjög hagkvæm inn-
kaup. En sá Ijár er á lóði, að
kjötið og grænmetið er alls
óflokkað, og ræður tilviljun
ein hvort menn fá fyrsta eða
þriðja flokks vöru.
En þetta var nú nafnið á
götunni, sem er litlu ofar en
hótel Arnarhof.
Kjötmai'kaðurinn er álíka
löng' gata og Austurstræti.
Hérna er Fleetstreet þeirra
Framhald á 10. síSxx.
100% ull
Fjöibreytí úrval
MARKAÐU
Hafnarstræti 11
Ný bók:
Viðfangsefni þeirra og hagnýting.
;,En hvað er bað þá, sem einkxun verður eftirsótt í fram-
tíðinni? Það er þekkingin. Visindaleg og tæ-knileg þekkjng
og menn sem kunna að beita henni. Auðug verður talin sxi
þjóð, sein á mörgum vel menntuðum vísindamönnum á að
skipa en ekki liin þar sem gull og gimsteinar liggja í jörðu”.
Próf. Þorbjörn Sigurgeirssön.
Efni:
Tækni
Eðlisfræði
Læknisfræði
Stjörnufræði
Veðurfræði
Byggingar
Lögfræði
Hagfræði
Sálarfræði
Guðfræði
Fornleifafræði
Sagnfræði
Höfundar:
Davíð Davíðsson
Ernes Hovmöller
Hörður Bjarliason
Jón E. Vestdal
Ólafur Bjöfnsson
Sigurbjörn Einarsson
Sfmcm Jóh. Ágústsson
Trausti Einarsson
Vilhjálmur Þ. Gíslason
Þorbjörn Sigurgeirsson
Þórður Eyjólfsson
Þorkell Grímsson
Á öld vísinda og tækni eru engar bækur þarfari, en ai.
þýðlegar greinargerðir um lifandi og hagnýtar fræðigreinar
nútímans,
Þetta er yfirgripsmesta yfirlitsritið um almenna þekkingu
sem til er á íslenzku.
Þetta verður m.a. kjörbók fslenzkrar skólaæsku, sem er
þann vegn að velja sér lífsstarf.
HLAÐBUÐ
Ný sending
MARKAÐURIN JV
Hafnarstræti 5
MARKAÐURINN
Laugavegi 89
20. nóv. 1958 — Alþýðiiblaðið