Alþýðublaðið - 20.11.1958, Page 9
C feróffjp
yyrnaii hefur sinn sérstaka hlaupastíl.
í köríuknaftleik
Framkvænmd mótsins m]ög ábótavant.
2. KÖRFUKNATTLEIKS-
meistaramót Reykjavíkur hófst
í íþróttahúsinu að Uálogalandi
s. 1. mánudagskvöld. Alls taka
fimm félög þátt í mótinu, þ. e.
Ármann, ÍR, KR, ÍS og KFR,"
er keppt í þrem flokkum karla
og meistaraflokki kvenna. —
Þetta körfuknattleiksmót virð-
ist. ekki æt!a að verða nein und
antekning frá þeirri reglu
(eða óreglu), sem virðist gilda
um mót í þessari íþrótt, er
haldin hafa verið hér í bæn-
um. Þ. e. a. s. óstundvísi, slæm-
ur undirbúningur, slæm fram-
kvæmd og algjört tillitsleysi
við þær fáu hi'æður, sem leggja
það á sig að horfa á leikina í
hvert sinn. Körfuknattleiks-
menn kvarta stundum yfir því,
að almenningur veiti þessari
skemmtilegu íþrótt litla at-
hygli, mótin séu illa sótt o. s.
írv. En þeir geta ekki búizt
við betri aðsókn, meðan ekki
er betur vandað til undirbún-
ings og allrar framkvæmdar
mótanna. En nóg um það. Eng-
inn sérstök setning fór fram,
en tveir leikir fóru frarn, Ár-
mann (a) og ÍR (a) í 2. flokki og
ÍS og ÍR (b) í meistaraflokki
karla.
^ LEIKIRNIR
ALLGÓÐIR. .
Fyrri leikurinn var mjög ó-
jafn og sýndu Ármenningarn-
ir ágætan leik, voru fljótir og
réðu yfir töluverðri tækni.
Bezti maðurinn í liði þeirra var
fyrirliðinn, Davíð. Leiknum
lauk með sigri Ármanns 50:15
st.
B-lið ÍR sýndi góðan leik
gegn ÍS og það var ekki fyrr en
á síðustu mínútunum, sem
Reykjavíkurmeistararnir náðu
þessu 9 st. forskoti. Lið stú-
denta virðist lakara en í fyrra,
en þá vantar einn bezta mann-
inn frá í fyrravetur, Þóri Ól-
afsson. Beztir í liði ÍS voru
Kristinn Jóhannsson og Jón
Eysteinsson, báðir mjög
skemmtilegir leikmenn. Mót-
ið heldur áfram á morgun, en
þá leika KFR og ÍR (a) í meist-
araflokki karla og Ármann og
ÍR í meistaraflokki kvenna.
Keppnin hefst kl. 20,30.
ENSKA KNATTSPYRNAN
Arsenal 18 10 3 5 47-27 23
Wolves 17 10 2 5 36-21 22
Preston 18 9 4 5 33-25 22
Bolton 17 8 5 4 34-24 21
W. Bromw. 17 7 6 4 41-27 20
Blackburn 17 7 5 5 41-31 19
Luton 17 6 7 4 29-22 19
Newcastle 17 9 17 34-31 19
West Ham 17 8 3 6 34-31 19
Notth. For. 17 8 2 7 33-25 18
Blackpool 17 5 8 4 20-19 18
Chelsea 17 8 18 39-43 17
Burnley 17 6 4 7 26-26 16
Tottenh. 17 6 4 7 37-40 16
Portsmoth 17 5 5 7 31-37 15
Everton 17 6 3 8 33-47 15
Manch. U. 17 5 5 8 36-36 15
Manch. C. 17 5 4*8 31-43 14
Birmingh. 17 5 4 8 23-34 14
Leeds 17 3 7 7 17-28 13
Leicester 17 4 4 9 31-47 12
Aston V. 18 4 3 11 28-50 11
II. DEILD:
Fulham 17 12 4 1 46-23 28
Sheff. W. 17 12 2 3 53-21 26
Bristol C. 17 10 2 5 40-27 22
Stoke 17 10 2 6 33-29 22
Liverpool 17 9 2 6 35-27 20
Bristol R. 17 8 4 5 37-29 20
Charlton 17 7 5 5 39-37 19
'Sheff. U. 17 7 4 6 26-18 18
'Cardiff 16 8 17 29-26 17
Huddersf. 17 6 5 6 30-20 17
Barnsley 17 7 3 7 29-32 17
Leyton O. 17 5 5 7 27-31 15
Ipswich 17 6 3 8 26-30 15
Grimsby 17 5 5 7 31-41 15
Derby C. 18 5 5 8 24-35 15
Swansea 16 5 4 7 32-32 14
Middlesb. 17 5 4 8 35-29 14
Brighton 17 3 7 7 25-45 13
Scunth. 17 3 6 8 24-40 12
Sunderl. 17 4 4 9 21-41 12
Rotherh. 17 4 4 9 22-43 12
Lincoln 17 4 3 10 31-39 11
A llt á sama stað
590x13 700x15
640x13 760x15
560x14 600x 16
500x15 650x16
550x15 750x16
560x15 165-400
590x15 750x20
600x15 825x20
650x15 670x15 900x20
Egíli Vilhjálmsson h.f.
Sími 22240
Fi'á úrslitaleik HM í knattspyrnu millj Svía og Brazilíu: Axbom til hægri eltir hinn kattlið-
uga Garrincka, sem hleypur með stuttum skrefum og í öruggu jafnvægi. Takið eftir hægri
fæti Garrincha: Axbom svifur í lausu lofti — jafnvægislaus — með hárri hnélyftu. Talið er
að Gari'incha myndi sigra alla frægustu spretthlaupara heimsins í 20 m. hlaupi frá vinstri
til hægri.
Erlendar frétfir í sfuffu máli
Glæsileg þýzk sundmeí.
FJÖGUR þýzk sundmet
voru sett í 25 m. laug í
Bremen nýlega, en laugin þar
er sérstaklega góð. í 4x100 m.
skriðsundi fékk Bremen SC
tímann 3:51,8 mín., sem er
met, en tími fyrsta manns,
Baumanns, 55,5 sek. er einhig
metjöfnun á 100 m. skriðsundi.
Aðrir í sveitinni voru Sándar
59,0, Bleeker 58,0 og Hirsch
59,3 sek. Sveitin setti einnig
met í 4x200 m. skriðsundi 8:
44,9 mín., í 4x100 m. flugsundi
4:27,1 mín. og í 4x100 m. fjór-
sundi 4:22,3 mín.
Toni Sailer alvinnumaður!
^ AUSTURRÍSKI Olympíu-
meistarinn margfaldi, Toni
Sailer, mun sennilega tapa á-
hugamannaréttindum sínum
fyrir næstu áramót, sagði for-
maður austurríska skíðasam-
bandsins nýlega.
Sailer skýrði frá því nýlega,
að hann ætli að taka þátt í
nokkrum stórmótum í vetur,
en skíðasambandið hefur ekki
nokkra trú á því, að hann fái
að keppa sem áhugamaður
meir.
Austurríkismenn hafa gert
allt sem hægt er til að bjarga
áhugamannaréttindum skíða-
hetju sinnar, en telja það samt
algjörlega vonlaust.
BILLIMN
Sími 18-8-33
Til sölu !
Chevrolet 1958, alveg nýr,
ókeyrður.
Mercedez-Benz 220 1955,
alveg sérstaMega vel með
farinn, hefur alltaf staðiö'
inn; á vetuma. —
Ford-Prefect 1957, lítið
keyrður og vel með farimn,
BfLLINN
VARÐARHÚSINU
við Kalkofnsveg
Sími 18-8-33
Olympíunefnd Ífaiíu er ekki blönk
ÞAÐ kostar mikið fé að
halda olympíuleiki, en
sennilega verða hinir XVII.
leikir í Róm 1960 þeir dýrustu,
sém haldnir hafa verið til þess
tíma. Reiknað er með að bygg-
ing hinna ýmsu mannvirkja í
sambandi við leikina kosti 18
milljarða lírur. En ítalska
olympíunéfndin er engin venju
leg olympíunefnd, trúlega sú
ríkasta í heimi. Það geta ítalir
þakkað getraununum, sem gefa
mjög mikið fé af sér. Reiknað
er með miklum fjölda erlendi-a
áhorfenda til Rómar og þó leik
vangarnir tveir og svo sund-
höllin og aðrir staðir, sem
keppt verður í taki hátt á ann-
að hundrað þúsund manns, er
búizt við að uppselt verði
flesta dagana.
Nýr 60 m. maður í kringlukasfi
ENN hefur komið fram ó-
venju efnilegur kringlu-
kastari í Bandaríkjunum og'
heitir sá Karl Johnstone og er
19 ára. Hann hefur á æfingum
kastað yfir 60 m.! og reiknar
þjálfari hans, Vern Wolfe, með
því, að hann kasti mjög fljót-
lega yfir 60 m. í keppni.
Á s. 1. sumri voru sett alls
160 landsmet í Evrópu í hinum
olympíusku greinum. Flest
settu Pólverjar og Grikkir eða
13 hvor þjóð.
Holmenkollenmófið 5.-8. marz n.k.
NOKKURS konar „reynslu
olympíuleikar“ fara fram
í Squaw Valley dagana 28.
febrúar til 1. marz n. k. Svíar
reikna með því að senda þang-
að 3—4 keppendur, þ. e. göngu
mennina Sixten Jernberg, Per-
Erik Larsson og Rolf Ramgárd.
Holmenkollenmótið, sem
fram fer á hverjum vetri, verð-
ur að þessu sinni dagana 5.—8.
marz.
McCallV
4526
Nýkomið
Nylonehiffon,
12 fallegir fttir.
Taftefní, 15 litlr.
McCalI.snið.
Tízkuhnapþar
Skólavörðustíg 12.
Aiþýðnblaðið — 20. nóv. l95S. 9