Tíminn - 15.06.1965, Qupperneq 16
Mikil eftirspum
eftir skamanum
EJ-Reykjavík, mánudag.
Mikil eftirspurn hefur verið eft-
ir skarna að undanfömu og selst
hann upp jafnóðum. Mun líklega
þurfa að stöðva sölu skarnans um
tíma til þess að hafa nóg fyrir
garðyrkjuna, að því er Guðjón
Þorsteinsson, deildarstjóri í hreins
unardeild borgarinnar tjáði blað-
inu í dag.
Guðjón sagði, að meðalfram-
leiðslan á ári væri um 5—6 þús.
teningsmetrar, en hægt væri að
selja mun meira, því að þeir, sem
á annað borð hefðu reynt skarn-
ann, tækju hann fram yfir hús-
dýraáburðinn. Er skarninn venju
lega seldur eftir um 10 mánaða
geymslu, og er hann þá fullgerjað-
ur.
Guðjón sagði, að skarninn væri
Hlaut doktors-
gráðu frá
Yale háskóla
IGÞ-Reykjavík, mánudag.
í dag hlaut Guðmundur Egg-
ertsson doktorsgráðu við Yale-
háskólann í Bandaríkjunum. Dokt-
orsritgerð hans var um rannsókn-
ir á svokölluðum „suppressor"
stökkbreytingum í gerlinum
Escherichiacoli. Nefnist ritgerðin
„Suppressor mutations in Escher-
ichiacoli: A genetic analysis“.
Guðmundur er frá Bjargi í Borg
arnesi, sonur hjónanna Aðalheið-
ar Jónsdóttur og Eggerts Guð-
mundssonar. Hann tók stúdents
próf frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1951. Hann varð magist-
er í erfðafræðum frá Kaupmanna-
hafnarháskóla 1958. Stundaði síð-
an rannsóknir ásamt framhalds-
námi við háskólann í Lundúnum
og síðar við Yale. Hann hefur nú
hlotið bandarískan vísindastyrk til
rannsóknarstarfa í Napolí á Ítalíu.
Guðmundur er kvæntur Berg-
þóru Zebitz og dvelur hún hjá
manni sínum ytra.
Guðmundur Eggertsson
mikið notaður á lóðum, t. d. undir
þökur, og við trjágróður. Og þótt
flutningurinn sé dýr, þar sem mik
ið fer fyrir skarnanum, þá hefði
töluvert magn verið selt aðilum
austur undir Eyjafjöllum.
— Hvernig er með lyktina af
skarnanum, Guðjón, er ekki hægt
að eyða henni alveg?
— Nei, hann verður líklega
aldrei alveg lyktarlaus. Ég hef
kynnt mér skarnaframleiðslu ann-
ars staðar, og þar er alltaf einhver
lykt af honum. Og hún er nokkur
meiri hér vegna þess hversu mik-
ill fiskur er í sorpinu.
HÆSTARÉTTAR-
DÓMUR VÆNTAN-
LEGUR í HNÍFS-
STUNGUMÁLINU
BÞG-Reykjavík, mánudag.
Málflutningi fyrir hæstarétti í
svoncfndu hnífstungumáli lauk í
morgun og málið tekið til dóms.
Er dóms að vænta nú í vikunni,
á miðvikudag eða föstudag.
Mál þetta var höfðað af ákæru-
valdsins hálfu gegn Lárusi Stefáns
syni fyrir atlögu að ungri stúlku,
Guðríði Erlu Kjartansdóttur, en
hann veitti henni mörg hnífstungu
sár á heimili hennar hinn 12. maí
1 fyrra. Einnig var Lárus ákærður
fyrir líkamsárás gegn Þóreyju
Guðmundsdóttur. Dómur í Saka-
dómi var kveðinn upp þann 9.
desember.og ákærði dæmdur í 12
ára fangelsi.
Eins og áður segir flutti sak-
sóknari ríkisins ákæruræðu sína í
Hæstarétti í morgun, en verjandi
ákærða er Örn Clausen hæstarétt-
arlögmaður.
4 SÆTILAUS
í KAUPMANNA-
HAFN ARFERÐl N A
Af sérstökum ástæðum er laus
fjögur sæt'i í Kaupmannahafnar
ferð FUF á föstudaginn kemur.
Fargjald er afar lágt. Upplýsingar
veittar i síma 1-60-66.
f FYRSTA SINN f 10 ÁR
SAMAN TIL RVÍKUR
FB—Reykjavík, mánudag
Fyrstu vikuna í maí var hald
ið Vélanámskeið á vegum
Æskulýðsnefndar Mýrar- og
Borgarfjarðarsýslu í Reykholti.
f sambandi við námskeið þetta
var efnt til ritgerðarsam-
keppni, sem öllum, er vinna við
landbúnað í sýslunni, var heim-
iluð þátttaka í. Ritgerðún átti
að fjalla um efnið „Öryggi og
hætta Við Iandbúnaðarstö<rf“
og vera 1500 til 2000 orð. Sam
vinnutryggingar hétu verðlaun
um fyrir beztu ritgerðina, og
voru þau ákveðin í samráði við
Vilhjálm Einarsson kennara,
sem er starfsmaður Æskulýðs
nefndar Mýra- og Borgarfjarð
arsýslu.
Verðlaunin voru ferð til
Reykjavíkur, kynnisferð um
borgina, 1000 krónur í pening
um, og að lokum kvöldverður
og gisting að Hótel Sögu. í dag
kom svo verðlaunahafinn til
Reykjavíkur, og reyndist hann
vera Sumarliði Vilhjálmsson
bóndi að Ferjubakka í Borgar
hreppi. í fylgd með honum var
eiginkona hans frú Lára
Jóhannesdóttir, en frúnni var
einnig boðið til Reykjavíkur.
Ljósmyndari Tímans GE
hitti þau hjónin, Sumarliða og
Láru í Ármúla 3 í dag, þar sem
þau ræddu við Björn Vilmund
arson hjá Samvinnutrygging-
um en kynnisferð hjónanna um
Reykjavík hófst einmitt á
skrifstofu Samvinnutrygginga í
Ármúla. Lára og Sumarliði
sögðust hafa byrjað búskap
fyrir tíu árum, og ættu þau
nú átta börn, það elzta 10 ára.
— Og síðustu tíu árin höfum
við ekki haft tíma til þess að
fara bæði saman til borgarinn
ar í einu, sagði frúin, enda er
nóg að gera í sveitinni. -
HATIUAHOtDIN 17. JUNI
VEROA FRA Tlll Tll EITT
FB—Reykjavík, mánudag
Þjóðhátíðarnefnd hefur nú
skýrt frá dagskrá þjóðhátíðardags
ins, 17. júmí eins og henni er
ætlað að vera að þessu sinni.
Dagskráin er með nokkuð einfald
ari hætti nú en oft endranær, með
al annars verður hátíðahöldunum
slitið klukkan ejtt eftir miðnætti
í staðinn fyrir klukkan tvö. Þá
munu skemmtiatriði barnatímans
og kvöldvökumar fara fram efst
já Amarhóli, en ekki á palli niður
við Hreyfil, og er þetta gert til
þess að hægt verði að draga að
nokkru leyti úr kostnaði, sem ver
ið hefur geysimikill undanfarin
ár.
Hátíðahöldin hefjast kL 10 að
morgni hér í Reykjavík með sam-
hljómi kirkjuklukkna, en síðan
verður lagður blómsveigur á leiði
Jóns Sigurðssonar. — Lúðrasveit
barna og unglinga munu leika
Við Elliheimilið Grund og Dvalar
heimili aldraðra sjómanna. Stjóra
endur eru Karl O. Runólfsson og
Páll Pampichler Pálsson.
Skrúðgöngur verða frá Mela-
skóla, Skólavörðutorgi og Hlemm,
og leggja þær af stað kl. 13.15.
Hátíðahöldin á Austurvelli hefj
ast kl. 13.40 og verður guðsþjón
usta í Dómkirkjunni að venju,
séra Emil Björnsson predikar. Þá
leggur Forseti íslands blómsveig
STÓRSPJOLL UNNIN A
SÆLUHÚSI I HÚSADAL
HE-Rauðalæk, mánudag.
Um hvítasunnuna voru stórspjöll
unnin á sæluhúsi Austurleiða í
Þórsmörk, og stendur nú yfir
rannsókn í málinu, en grunur leik
ur á að hópur manna úr Reykja-
vík sé sekur um þessi spellvirki.
Á laugardaginn fór Austurleiða-
bíll inn í Þórsmörk og að sælu-
liúsinu, sem er í Húsadal, og var
aðkoma voðaleg. Brotið hafði ver-
ið mikið af rúðum, veggfóður rif-
ið innan úr húsinu, húsbúnaður og
borðbúnaður brotinn og hurðir
eyðilagðar. Þar að auki hafði
greinilega verið gerð tilraun til
þess að kveikja i húsinu, því að
sót sást í loftinu í kringum ljósa-
stæðið.
Rannsókn er hafin í málinu, og
hefur frétzt af fólki, sem var
þarna um hvítasunnuna. Ekki
hafði fólkinu þótt nóg að skemma
allt, sem skemma mátti, heldur
hafði það einnig tekið kaffi og
Iþvottaduft, sem var í húsinu og
stráð því yfir allt. Húsið var að
| sjálfsögðu opið eins og önnur
1 sæluhús, og því auðveld inn-
; ganga, enda varla haft mikið að
j segja, þótt dyr hefðu verið læst-
' ar, þegar svona fólk er annnars
vegar.
Þetta sæluhús Austurleiða var
áður íbúðarhús á Hvolsvelli og
var það flutt inn í Þórsmörk
i snemma í vor.
að minisvarða Jóns Sigurðs90nar,
forsætisráðherra dr. Bjami Bene
diktsson flytur ræðu og Guðrún
Ásmundsdóttir leikkona flytur
ávarp fjallkonunnar eftir Þorstein
Valdimarsson. Fjölbreytt bama-
skemmtun hefst kl. 15 á Arnar
hóli og verður Klemenz Jónsson
kynnlr. Verða m.a. flutt atriði
úr Almansor konungssyni eftir
Ólöfu Árnadóttur, Orion—kvart
ettinn leikur, fluttar verða ís-
lenzkar þjóðlífsmyndir og leikar
ar flytja leikþátt. Þá syagur tvö
faldur kvartett Söng trúðanna og
Framhald á 15. síðu.
ÚTFÖR PRÖF.
ALEXANDERS
JÓHANNESSONAR
GERÐ í DAG
Útför dr. Alexanders Jóhannes-
sonar prófessors og fyrrverandi
háskólarektors verður gerð frá
Neskirkju í dag og hefst athöfnin
í kirkjunni kl. 2 síðdegis, en Há-
skóli íslands heiðrar minningu
prófessorsins með því að sjá um
útförina. Lúðrasveit Reykjavíkur
hefur og óskað að mega heiðra
minningu hans með því að leika
sorgarlög fyrir utan kirkjuna áður
en kirkjuathöfnin hefst. Útfarar-
ræðu flytur séra Jón Thorarensen.