Morgunblaðið - 03.01.1979, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
1. tbl. 66. árg.
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Eldsvoði í
Hin nýja DC-10 þota á Le Bourget flugvelli við París í gærmorgun eftir að hún hafði verið máluð í litum félagsins.
Brottför vélarinnar frá París seinkaði um sólarhring vegna veðurhamsins sem gekk yfir Evrópu um áramótin en vélin
flaug seinnihluta dags í gær til Luxemborgar þar sem hún fer inn í áætlun félagsins.
Um 50 manns létust í veðurofsanum um áramót:
Fannfergi og kuldi
sá mesti í áratugi
Ijondun. Moskvu. París. Ósló, 2. janúar. AP. Reuter.
TALIÐ er að a.m.k. 50 mann.s hafi látist í Evrópu og í Bandaríkjunum
vegna hins mikla veðurhams sem gekk yfir um áramótin. Var um að
ræða gífurlegt fannfergi og kaldasta veður í áratugi á mörgum
stöðum eins og í Moskvu þar sem kuldinn komst í *45 gráður Celsíus á
nýársdag en þar hefur ekki verið svo kalt í yfir fimmtíu ár.
Hvað verst úti urðu Bretar sem
eru mjög óvanir svo gífurlegu
fannfergi sem raun bar vitni. Þar
hefur ekki snjóað svo mikið í 50 ár
og hitastig ekki komist svo neðar-
lega í 15 ár. Talið er að a.m.k. 25
hafi látið lífið í ósköpunum. Allar
samgöngur féllu niður á öllum
samgönguleiðum innanlands og
flugvellir landsmanna lokuðust.
Kuldinn var gífurlegur í Moskvu
og nágrenni hennar um áramótin
eins og áður sagði og að sögn
fréttamanns AP-fréttastofunnar
var ekki nóg með það heldur var
ekki um neina húsahitun að ræða
hjá fólki þar sem allt hitaveitu-
kerfi borgarinnar fór úr sambandi
vegna frostanna. Mjög algengt var
að fjölskyldur í fjölbýlishúsum
hópuðust saman, kæmu sér fyrir í
einni íbúð til að nýta líkamshita
fólksins sjálfs sem bezt, þar sem
allir sátu þétt saman undir
ábreiðum.
Segja má að allt samgöngukerfi
Evrópu og hluta Bandaríkjanna
hafi lokast meðan mestu veðrin
gengu yfir, allir flugvellir og
akvegir tepptust og járnbrautir
komust ekki leiðar sinnar.
Ekki linnir látum í íran:
Uflendingar streyma úr
landi vegna astandsms
Teheran, 2. janúar — AP — Reuter
MIKILL FJÖLDI útlendinga flaug frá íran í dag
áleiðis heim eftir að flugvöllurinn í Teheran var
opnaður á nýjan leik eftir verkföll flugumsjónar-
manna. Ekki linnti verkföllum heldur tóku
hermenn að sér störf flugumferðarstjóranna að
því er fréttir frá Teheran hermdu í dag.
Málum er nú svo komið í íran að
stór hluti útlendinga, sem hafa
verið við störf í landinu, er farinn
eða er að fara þaðan vegna hins
ótrygga ástands. Haft var eftir
Dunner Chryharrov, bandarískum
verkfræðingi sem unnið hefur við
olíuvinnsluna og hélt heim á leið í
dag, að ástandið væri orðið
algerlega óþolandi. Aldrei væri
friður, stöðug skothríð og í þokka-
bót væri engin húsahitun, vatn af
skornum skammti og svo framveg-
is.
Haft var eftir Shapur Baktiar
settum forsætisráðherra írans í
franska sjónvarpinu í dag að
keisarinn hefði samþykkt að fara
úr landi um stundarsakir til að
hvíla sig. — Þessi ummæli forsæt-
isráðherrans voru þegar borin til
baka í höll keisarans í Teheran í
dag og sagt að keisarinn hefði ekki
uppi nein áform um að yfirgefa
land, sízt af öllu meðan ástandið
væri svo ótryggt sem raun bæri
vitni.
I fréttum frá írönsku borginni
Cazvin í gærkvöldi segir að miklir
bardagar hafi brotist út í gærdag
milli hermanna og andstæðinga
keisarans og segir í óstaðfestum
fréttum að milli 50 og 60 manns
hafi látist í þessum átökum.
Evensen verð-
ur sendiherra
Óslú, 2. jan. frá fréttaritara
Mbl. Jan Erik Lauri
JENS Evensen hafréttarmála-
ráðherra Norcgs hefur frá ára-
mótum hætt störfum í ríkis-
stjórn landsins þar sem haf-
réttarmálaráðuneytið hcfur
verið lagt niður frá áramótum
að telja.
Evensen mun á næstu dögum
taka við embætti sendiherra við
norska utanríkisráðuneytið og
sinna þar sérstökum verkefnum.
Evensen sem tók fyrst sæti í
stjórn Trygve Brattelis 1973 var
þá að heita mátti óþekktur í
heimi stjórnmálamanna en að
mati flestra hefur nú unnið sér
fastan sess í hópi hæfari stjórn-
málamanna landsins.
I tilkynningu stjórnvalda um
þetta mál segir að þótt ráðuneyt-
ið hafi nú verið lagt niður þýði
það ekki að stjórnin hafi ekki
lengur not fyrir þekkingu Even-
sens, þvert á móti verði hann
nýttur til hins ýtrasta í hinu nýja
starfi í utanríkisráðuneytinu.
Umferðin í Sovétríkjunum:
olíuskipi
La Corna. Spáni. 2. janúar. AP. Reuter.
LÍKUR á því að veruleg olíu-
mengun yrði á allri norð-vestur-
strönd Spánar vegna olíu frá
gríska risaolíuskipinu Andros
Patría sem nú er í togi úti fyrir
strönd landsins vegna elds sem
upp kom á gamlárskvölds minnk-
uðu verulega í dag þegar vindátt
breyttist skyndilega og skipið tók
að mjakast frá landi. að því er
fréttir frá La Corna á Spáni
hermdu í dag.
Risaskipið sem er 218 þúsund tonn
að stærð var á siglingu um 30
sjómílur fyrir utan La Corna á
gamlárskvöld þegar mikill eldur kom
upp í því. Fljótlega var ákveðið að öll
áhöfn skipsins utan þrír menn færu í
bjargbáta skipsins og freistaði þess
að bíða björgunar. Talið er að
bátarnir hafi mjög fljótlega orðið
fyrir verulegum skemmdum er þeir
komu í sjó og er allra sem í þeim
voru saknað. Mönnunum þremur
sem eftir voru var bjargað af þyrlu
lítt slösuðum og eru þeir nú á
sjúkrahúsi í La Corna á batavegi.
Að sögn yfirvalda kom um 20
metra gat á stjórnborðssíðu skipsins
og út láku milli 35 og 40 þúsund tonn
af olíu. Fljótlega tókst spænskum
herdráttarbátum að koma taug í
skipið og halda því á þeim stað sem
eldurinn kom upp í því, en á þeim
tíma var mikil hafátt svo mikil
hætta var á því að skipið ræki á land.
Seinna í dag breytti svo skyndilega
um átt eins og áður sagði og var
skipið þá dregið á haf út, og að sögn
yfirvalda er ekki hætta á því að
skipið sökkvi.
Hugmyndir eru um að senda
önnur olíuskip á vettvang og freista
þess að dæla olíunni á milli, eða
jafnvel draga skipið til Lissabon eða
Ro'terdam.
Barizt um stöðu
Boumediennes
Algeirsborg, 2. janúar AP
FYRSTA skrefið í þá átt að
tilnefna eftirmann Boumedi-
ennes, hins látna þjóðarleiðtoga
Alsírbúa, var tekið í dag þegar
stjórnvöld tilkynntu að ákveðið
hefði verið að boða til ráðstefnu
stjórnarflokks landsins, Alsírsku
þjóðarfylkingarinnar sem kjósa
mun eftirmann Boumediennes að
því er áreiðanlegar heimildir í
Algeirsborg herma.
Samkvæmt þeim heimildum
sem AP-fréttastofan telur
áreiðanlegar er talið að tveir menn
muni fyrst og fremst berjast um
embættið, en það eru þeir
Mohamed Salam Yahiaoui her-
foringi og utanríkisráðherrann
Abdelaziz Bouteflika.
Bakkus valdur af 9000
dauðaslysum á s.l. ári
Moskvu, 2. janúar. AP.
UM NÍU þúsund manns munu hafa látist í umferðarslysum
af völdum drukkinna ökumanna fyrstu ellefu mánuði s.l.
árs í Sovétríkjunum að því er eitt sóvézku blaðanna segir í
dag.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins er um töluverða aukningu að
ræða frá árinu áður en ekki var
getið hversu margir hefðu látist
árið 1977.
Sem dæmi um ölvaða ökumenn
sagði blaðið frá einum sem viður-
kenndi umyrðalaust að hafa ekið
ölvaður til þess að koma á réttum
tíma til vinnu sinnar til að tryggja
sér ákveðna kaupuppbót um ára-
mótin. Þegar lögreglan spurði
viðkomandi hvort hann myndi
hvaða skrásetningarnúmer væri á
bilnum hans, svaraði kappinn
strax:
„Auðvitað veit ég það“,
síðan romsaði hann upp úr sér
fæðingardegi og ári og að lokum
nafnnúmerinu.
Ekki þurfti frekari
vitnanna við og manninum var
komið fyrir í tryggri geymslu
lögreglunnar.