Morgunblaðið - 03.01.1979, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979
m
Alþjódaár
barnsins 1979
h.wnoinuðu |>jóAirriui lrvelja yAur
íil að )<•$»£!ja lið v-4ím\»málum barna
urn allan hrim.
Alþjóðaár barnsins
1979erhafið
Á allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna 21.
desember 1976 var samþykkt að árið 1979 skyldi með
aðildarþjóðum helgað málefnum barna. en þá eru
liðin tuttugu ár frá því að Sameinuðu Þjóðirnar
samþykktu yfirlýsingu um réttindi barnsins.
Ríkisstjórn Islands hefur falið
menntamálaráðuneytinu að hafa
umsjón með skuldbindingu þeirri,
sem í þessari samþykkt felst.
Ráðuneytið hefur skipað 7 manna
framkvæmdanefnd til að vinna að
því að sem bestur árangur náist í
starfi á ári barnsins 1979.
Hlutverk framkvæmdanefndar-
innar er að örva sem flesta til
starfs í þágu barnaársins og að
samræma aðgerðir þeirra, en hið
raunverulega starf hvílir á félaga-
samtökum, sveitarfélögum,
stofnunum og einstaklingum.
Til að ná víðtæku og samræmdu
starfi á barnaárinu taldi fram-
kvæmdanefndin nauðsynlegt að ná
saman til fundar sem flestum
þeim aðilum, sem láta málefni
barna sig skipta, til að ræða á
hvern hátt væri álitlegast að vinna
að bættum hag barna á barnaár-
inu. Menntamálaráðuneytið og
framkvæmdanefndin hafa því
haldið tvær ráðstefnur til að
undirbúa starfið á barnaárinu og
sóttu um 100 fulltrúar hvora
ráðstefnu.
Fyrri ráðstefnan var haldin 11.
október s.l. og voru lögð þar
frumdrög að væntanlegu starfi á
barnaárinu. Fjölmargir fulltrúar,
sem sóttu fyrri ráðstefnuna, unnu
síðan frekar að undirbúningi
einstakra málefna, hver í sínu
félagi eða stofnun. Siðari ráðstefn-
an var haldin 25. nóv. s.l. Félög
þau og stofnanir sem sendu
fulltrúa á ráðstefnurnar eru talin
upp í ramma hér á síðunni, en
seinni ráðstefnuna sóttu auk þess
ailmargir einstaklingar.
Á síðari ráðstefnunni beindust
umræður að fjölmörgum af-
mörkuðum verkefnum og hvernig
ná mætti sem bestum árangri í
starfi á ári barnsins 1979.
Unnið verður að verkefnum með
ýmsu móti, haldnar verða ráð-
stefnur, fræðslufundir, skemmtan-
ir, gefin verða út fræðslurit. Gerð
verður athugun og úttekt á
einstökum málefnum sem varða
börn, tillögur til úrbóta samdar og
þær síðan kynntar viðkomandi
aðilum.
Hér er ekki rúm til að lý$a
þessum verkefnum, en stutt upp-
talning látjn níegja:
• Endúrskoðun laga er varða
réttarstöðu barna og foreldra
ungra barna.
'Kynning á stöðu barna í
þróunarlöndum og fjársöfnun til
þeirra.
Skipulag og framkvæmd for-
eldrafræðslu.
Barnið, fjölskyldan og atvinnu-
lífið, hvernig má samræma betur
þarfir fjölskyldna með börn og
kröfur atvinnulífsins.
Skilgreining á markmiði dag-
vistarheimila og könnun á innra 3-
starfi þeirra.
Trúarlegt uppeldi barna.
Fræðsla um hollustu í mataræði
barna.
Börn, fjölmiðlar og listir.
Öryggi barna í umferðinni og á
heimilum.
Heilsugæsla barna og heil-
brigðisþjónusta fyrir börn.
Aðstæður fatlaðra og þroska-
heftra barna.
Samvera foreldra og barna.
Leikaðstaða barna.
Skólinn og vinnutími barna.
Samstarf foreldrafélaga við
skóla og dagvistarheimili.
Áhrif skipulags bæja á lífshætti
og leikmöguleika barna.
Ljóst er að fleiri en einn aðili
munu vinna að hinum ýmsu
verkefnum og er því nauðsynlegt
að fylgja eftir því samræmingar-
starfi sem hefur verið unnið á
þeim tveimur undirbúningsráð-
stefnum sem þegar hafa verið
haldnar. Verður þetta skipulags-
starf unnið af sex vinnuhópum,
sem hver um sig sinnir ákveðnum
verkefnum. Fyrir hvern hóp hefur
verið skipaður forsvarsmaður eða
tengill, og mun .hann boða saman
þá fulltrúa og einstaklinga sem
hafa ákveðið að vinna að verkefn-
um viðkomandi starfshóps. Starfs-
hóparnir eru eftirfarandi:
1. Barnið og þjóðfélagið.
Tengill þessa hóps er Sigríður
Ásgeirsdóttir, lögfræðingur,
fulltrúi Félags einstæðra for-
eldra.
2. Börn í þróunarlöndum.
Tengill er Erla Elín Hansdóttir,
fulltrúi fyrir Kvenstúdentafélag
íslands og UNICEF nefndina á
Islandi.
Skólar, dagvistarheimili og
æskulýðsmiðstöðvar.
Tengill er Gestur Ólafsson,
fulltrúi Arkitektafélags íslands.
Félagslíf og börn.
Tengill er Reynir G. Karlsson,
fulltrúi Æskulýðsráðs ríkisins.
Barnið. fjöimiðlar og listir.
Tengill er Bogi Ágústsson,
fulltrúi fyrir Félag Sameinuðu
Þjóðanna á íslandi.
6. Þroskaheft börn.
Tengill er Margrét Sigurðardóttir,
fulltrúi Blindraskólans.
Frekari upplýsingar um starf og
verksvið einstakra hópa má fá hjá
Svandísi Skúladóttur í Mennta-
málaráðuneytinu.
Sýningar, ráðstefnur
og fundir á ári
barnsins 1979,
sem þegar hafa
verið ákveðniri
Bandalag kvenna í Reykjavík
efnir til fræðslufundar 13. janúar
um mataræði barna og heldur
ennfremur barnaviku í Reykjavík í
samráði við skólastjóra og presta
5.—11. mars. Sunnudaginn 11.
mars verða fjölskyldusamkomur í
kirkjum og félagsheimilum.
Samband Alþýðuflokkskvenna
mun halda fræðslufund um
þróunarlöndin seinustu viku
janúar.
Norræna húsið og Fósturskóli
íslands gangast fyrir sýningu á
barnabókum og leikföngum
17'.—24. mars. Á sama tíma verða
haldin í Norræna húsinu fræðslu-
erindi fyrir almenning um barna-
menningu og verða fyrirlesarar
frá Norðurlöndum.
Fræðsluráð Reykjavíkur og
Félag íslenskra myndlistar-
kennara halda „Listahátíð barna“
28. apríl til 7. maí að Kjarvals-
stöðum. Skólar og sérkennarafélög
munu taka þátt í undirbúningi og
starfi hátíðarinnar.
Á hátíðinni verður m.a. sýning á
Erla Elín Ilansdóttir
Bogi Agústsson
barnamyndlist, hannyrðum, smíði
og vefnaði. Börn munu flytja
tónlist og sýna leikrit. Börn lesa
frumsamið efni: Sögur, ljóð og
ritgerðir. Gert er ráð fyrir að starf
brúðuleikhúsa verði kynnt og að
leikflokkar sýni þætti ætlaða
börnum og unglingum. Sýningar
verða á fimleikum glímu og dansi.
Skák verður þreytt og ýmislegt
fleira er í athugun.
Dagana 7. —11. maí verður
haldið í Reykjavík 12. þing
norrænna sálfræðinga. Þing þetta
er helgað málefnum barna í
tengslum við barnaár S.Þ. og er
gert ráð fyrir að um 300 fulltrúar
sæki þetta þing.
Félag skólastjóra og yfir-
kennara á grunnskólastigi mun
halda ráðstefnu í júní um barnið í
íslenska þjóðfélaginu.
I Árbæjarsafni verður í ágúst
haldin sýning á gömlum leik-
föngum. Safnið beinir þeim til-
mælum til fólks að það láni
safninu gömul leikföng og gamlar
myndir af börnum að leik, sem það
kann að eiga í fórum sínum fyrir
þessa sýningu.
Þeir sem geta lagt safninu lið
við að koma þessari sýningu upp
eru beðnir að hafa samband við
safnið.
Allir þessir atburðir verða
kynntir nánar í auglýsingum og
fréttum síðar.
Sveitarfélög og ár
barnsins 1979
Framkvæmdanefnd barnaársins
hefur skrifað öllum sveitastjórn-
um á landinu og hvatt þær til að
Reynir G. Karlsson
helga einn sveitastjórnarfund á
fyrsta ársfjórðungi 1979 málefn-
um barna í byggðarlaginu ein-
vörðungu. í ýmsum sveitafélögum
hafa verið stofnaðar barnaárs-
nefndir. I Kópavogi hefur t.d.
þegar verið lagður grundvöllur að
allvíðtæku starfi í tilefni barna-
ársins. Innan barnaheimila og
skóla verða m.a sýningar og
fundir. Stefnt er að því að á vegum
bæjaryfirvalda verði málefnum
barna á ýmsan hátt sinnt sérstak-
lega. Þá verða skipulagðar þar
umræður og fræðsla um einstök
málefni sem varða börn og sér-
stakar skemmtanir fyrir börn
haldnar.
Framkvæmdanefndin hvetur öll
sveitarfélög til að vinna skipulega
að málefnum barna á ári barnsins
1979.
Lokaorð
„Það er skoðun okkar, að í tilefni
barnaársins eigi að leggja megin-
áherslu á grundvallaratriði í
uppeldi barna almennt með fram-
tíðarverkefni i huga.
I rauninni eru öll ár ár barnsins.
Hitt er jafnvíst, að í krafti
alþjóðaársins geta komið fram
hugmyndir, sem kunna að valda
straumhvörfum í lífi barna um
víða veröld. Það er því mikilvægt
að nota þetta tækifæri sem best.“
Með skírskotun til framan-
greindrar tilvitnunar, sem tekin er
úr bréfi frá fræðslustjóra Austur-
landsumdæmis, vill framkvæmda-
nefndin ítreka hvatningu Samein-
uðu Þjóðanna um að í öllum
aðildarríkjum þeirra verði á
alþjóðaári barnsins 1979 unnið að
varanlegum umbótum á kjörum
barna um heim allan.
Alþjóðaár barnsins 1979 er
hafið
FÉLÖG sem sent hafa fulltrúa á
ráðstefnur Framkva^mdanefndar
Alþjóðaárs barnsins 11. okt. og
25. nóv. 1978. Auk þess sóttu
margir einstaklingar seinni
ráðstefnuna.
Aðstoð íslands við Þróunarlönd-
in, Alþýðubandalagið, Alþýðublað-
ið, Alþýðúflokkurinn, Alþýðusam-
band íslands, Árbæjarsafn, Arki-
tektafélag Islands, Áfengisvarnar-
ráð, Bandalag íslenzkra skáta,
Bandalag kvenna í Reykjavík,
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja, Barnaspítali Hringsins,
Barnaverndarfélag Reykjavíkur,
Barnaverndarráð Islands, Blindra-
skólinn, Dagheimili Njarðvík og
Keflavík, Dagvistun barna í
Reykjavík, Embætti lögreglustjór-
ans í Reykjavík, Félag bókasafns-
fræðinga, Félag einstæðra for-