Morgunblaðið - 03.01.1979, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 03.01.1979, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979 Fullt stjórnmálasamband nú milli Kína og Bandaríkjanna Teng biðst undan afskiptum við að sameina Kína og Formósu Pcking, Tapei. Washington 2. jan. Reuter AP | TENG aðstoðarforsætisráðherra Kína fullyrti í samræðum við bandarfska þingmenn í Peking í morgun, að hann vildi „nota friðarhöndina til að vinna að sameiningu Kína og Formósu“. Kvaðst hann vona að handarískir stjórnmálamenn myndu ekki hafa nein afskipti af þvi máli. Teng sagði að það væri alröng hugmynd sem margir Bandaríkja- menn virtust hafa að Kínverjar myndu hneigjast til útþenslu- stefnu þegar þeir hefðu iðnvæðzt. Hann sagði Goldwater öldunga- deildarþingmann mjög velkominn til Kína til hressilegra skoðana- skipta. Goldwater er mikill stuðningsmaður Formósustjórnar- innar og hefur höfðað mál fyrir bandarískum dómstóli til að fá úr því skorið hvort Carter Banda- ríkjaforseti hafi haft lagalega heimild til að rjúfa varnar- samning sinn við Formósu. Um nýjárið fóru síðan fram formlegar athafnir vegna stjórn- málasambandsins og fluttu leið- togar beggja landanna ávörp vegna þess. I Bandaríkjunum kom allvíða til átaka þótt ekki væru þau stórbrotin milli fylgismanna Alþýðulýðveldisins annars vegar og Formósu hins vegar, einkum urðu skærur í Kínahverfum í ýmsum bandarískum stórborgum. I Peking var engin formleg athöfn vegna þess að stjórnmála- samband hafði nú verið tekið upp en veggspjald undirritað af þrem- ur stúdentum var sett upp í miðborginni og þar sagði að Kínverjar vildu hafa meiri sam- skipti við Bandaríkjamenn á öllum sviðum. Margir Kínverjar létu þá skoðun í ljós við bandaríska fréttamenn, að stjórnmálasam- band milli ríkjanna hefði átt að vera komið á fyrir löngu. Árið hófst með morði hjá Böskum San Sebastian, Spáni 2. janúar — AP MENN SEM taldir eru tilheyra aðskilnaðarsamtökum Baska skutu til bana herforingja í San Sebastian og er þetta fyrsta pólitíska morð ársins á Spáni. Jose Haria Herrera sem er aðstoðarmaður yfirmanns herliðs- ins á þessu svæði, var að fara frá heimili sínu og til bækistöðva hersins þegar menn skutu af vélbyssum á hann. Á árinu 1978 létust 98 manns í pólitískum ofbeldisverkum og þar af um sjötíu í Baskahéruðunum í norðurhluta landsins. Kínverjar ákváðu um helgina að hætta að gera atlögur úr lofti að nokkrum eyjum sem heyra undir Formósu og virðist þetta hugsað til þess að draga úr áhyggjum sem hafa gert vart við sig í Banda- ríkjunum varðandi öryggi For- mósu. Var skipun af hálfu Kín- verja þessa efnis gefin út um svipað leyti og tilkynnt var að eðlilegt samband ríkjanna væri nú hafið. Forseti Formósu, Chiang Ching Kuo, sagði í nýársávarpi til Formósubúa, að barátta þeirra gegn kommúnistum myndi aldrei enda fyrr en kommúnismi hefði verið upprættur af kínversku landi og kommúnistastjórnin þar að velli lögð. Hann sagðist vísa hiklaust á bug hverri þeirri hugmynd eða tillögu sem frá Pekingstjórn kæmi og Formósa stæði þó svo að stuðnings Banda- ríkjamanna nyti ekki lengur við. í ávörpum þjóðarleiðtoga beggja landanna, Hua formanns í Kína og Carters forseta Bandaríkjanna, kom fram ánægja með að skref þetta hefði verið stigið og að vænta mætti þess að það styrkti frið í heiminum og efldi vináttu og kynni milli þjóðanna. Veður víða um heim Akureyri -7 snjókoma Amsterdam -5 snjókoma Apena 15 heiðríkt Barcelona Berlín -6 skýjað Brussel -6 snjókoma Chicago -7 skýjað Frankfurt -10 snjókoma Genf -8 heiðskírt Helsinki -15 heiöskírt Jerúsalem 13 léttskýjað Jóhannesarb. 26 léttskýjað Kaupmannah. -7 skýjað Lissabon 16 rigning London -1 skýjað Los Angeles 16 heiðskírt Mardrid 12 heiöskírt Malaga Mallorca Miami 26 skýjað Moskva -23 skýjað New York 13 rigning Ósló -15 heiöskírt París 0 snjókoma Rio De Janeiro 38 skýjað # Rómaborg 4 léttskýjað Stokkhólmur -15 skýjaö Tel Aviv 18 léttskýjaö Tókýó 12 heiðríkt Vancouver Vínarborg -8 skýjað Myndin var tekin yfir flóttamannaskipinu Tung An sem er á ytri höfninni í Manilla á Filippseyjum. Aðbúnaður fólksins er hinn ömurlegasti og það eykur enn á mæðuna að því er hvarvetna meinað að stiga á land. Hörmungar aukast í flóttamannaskipunum Hong Kong. 2. jan. AP. MIÐALDRA Víetnami lézt í dag um borð í flóttamannaskipinu Huey Fong sem liggur á ytri höfninni í Ilong Kong og flóttamönnunum hefur sem kunnugt er verið neitað um leyfi til að fara þar í land. Talsmaður stjórnarinnar í Hong Kong sagði að maðurinn hefði látizt vegna innvortis blæðinga. Þetta er fyrsta dauðsfallið sem um er vitað um borð í skipinu sem hlaðið er nánast stafna á milli um 2700 víetnömskum flóttamönnum og siglir á milli hafna í Asíulöndum og fær hvergi að hleypa fólkinu í land. Þá er vitað að ung stúlka og karlmaður voru flutt í sjúkrahús í Hong Kong í dag, og gerðist það eftir að fyrsti maðurinn hafði látizt um borð, en honum synjuðu stjórnvöld í Hong Kong um læknishjálp. Úti fyrir höfninni í Manilla á Filippseyjum liggur annað skip með 2300 flóttamenn frá Víetnam og fá þeir heldur ekki að koma þar á land. Skipstjórinn neitar að fara aftur út á sjó og segir skip sitt mjög svo vanbúið til þess. Líðan fólksins um borð í Manillaskipinu mun vera hin hörmulegasta og aðbúnaður allur hinn ömurlegasti. Páfi flutti friðarbæn um áramót Páfagarði 1. jan. AP. JÓHANNES PÁLL II páfi fagnaði 1 boðskap sfnum árinu 1979 með því að fara með sérstaka „friðarbæn" sem hann hafði sett saman þar sem beðið cr að menn bindi enda á stríð, hatur og eyðileggingartæki. Ilann bað cinnig sérstaklega fyrir hinum sjúku og sorgmæddu, þeim sem sætu í fangelsum eða væru í haldi hjá mannræningjum, en nokkrir tugir á Ítalíu og víðar um heim eru á valdi slíkra glæpamanna. í páfabæninni um frið segir svo: „Forða oss frá stríði, hatri og tortímingu mannlegs lífs — lát oss ekki drepa, lát oss ekki nota meðul sem þjóna dauða og tortímingu... forða oss frá illu ..., vernda oss frá öllum styrjöldum ..." Þá bað páfi sérstaklega fyrir löndum sínum í Póllandi og ítrekaði óskir sínar um frið og mannsæmandi líf öllum mönnum til handa. Gierek, leiðtogi pólskra kommúnista, sagði í ávarpi á nýarsdag að hann vonaði að páfi myndi beita sér í embætti til að efla frið, samvinnu og réttlæti milli þjóða. Desai neitar fregnum um ágreining Nýju Delhi 1. jan. Reuter MORAJI Desai, forsætisráðherra Indlands, harðncitaði því f dag.að flokkur hans væri í mikilli kreppu vegna innbyrðis ágreinings. Desai sagði að Janatabandalagið væri sterkt og myndi enn eflast og þó svo að ákveðnir erfiðleikar gerðu jafnan vart við sig væri fásinna að gera úlfalda úr mýflugu. Hann sagði að Janatabandalagið hefði tekið við þeirri ævafornu arfleifð Indverja að geta ekki komið sér saman og það tæki sinn tíma að snúa þessari afstöðu við. Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu Desais ber fréttaskýrendum saman um að mikil átök séu milli forystu- manna bandalagsins og jaðri við að það springi í loft upp. Desai flutti Indverjum þennan boðskap í dag í sjónvarpi og gerði þar meðal annars lítið úr stuðnings- yfirlýsingum sem sýndar hafa verið Charan Singh, fyrrv. innanríkisráð- herra, er fór úr ríkisstjórn Desais eftir hatrammar deilur. Desai vék að kröfum stjórnarandstöðunnar um rannsókn á meintum fjárdrætti og fleiri brotum sem sonur hans er sagður hafa gerzt sekur um. Hann sagði að allur slíkur áburður væri rakalaus áróður og til þess eins uppi hafður af andstæðingum að reyna að gera sig tortryggilegan og myndi hann að engu hafa slíkar aðferðir. Hann sagði að Indira Gandhi hefði rétt til að koma á ný til valda og áhrifa ef hún færi að lögum," en ef hún heldur áfram á þeirri braut sem hún hefur gengið undanfarið ... þá hef ég litlar áhyggjur. Eg mun btegðast við svo sem samvizka mín býður mér.“ ERLENT Fjöldamorðin í Chicago: Leitað að vitorðs- manni John Gacys Chicago 2. jan. Reuter LÖGREGLA hefur nú byrjað víðtæka leit að hugsanlegum vitorðsmanni John Gacy, sem er grunaður um að hafa myrt að minnsta kosti 32 pilta og unga menn á sl. f jórum árum. Eins og fram hefur komið er Gacy kynvilltur og myrti fórnarlömbin eftir að hafa misþyrmt þeim kynferðislega. Nú eru fundin hvorki meira né minna en 27 lík við hús Gacys í Chicago. Lögregla telur nú ólíklegt annað en einhver hafi verið í slagtogi með Gacy og þá væntanlega kynvillingur. Hefur því verið hafin leit meðal kynnvillinga í Chicago í þessu skyni. Þá hefur lögreglan haft uppi á að minnsta kosti einum manni sem lifði af fund með Gacy. Það er 27 ára gamall maður sem kveðst sannfærður um að Gacy hafi haft mann sér til aðstoðar. Hann hefur skýrt lögreglu svo frá, að Gacy hafi ginnt sig upp í bíl sinn til að reykja maríhuana. Síðan hafi hann svæft sig með klóróformi og ekið áleiðis heim aftur. Þegar hann vaknaði hefði Gacy verið berstrípaður og nauðgaði hann unga manninum á hinn viður- styggilegasta hátt. Síðan var hann fluttur á braut og skilinn eftir illa á sig komin í almenningsgarði. Hann kveðst hafa orðið var við mannaferðir í húsinu meðan hon- um var haldið þar föngnum. Þá hefur lögreglan sömuleiðis fært út. kvíarnar og einskorðar leifina ekki við Illinois heldur er spurnum haldið uppi í þremur nágranna- ríkjum, Indiana, Iowa og Wiscon- sin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.