Morgunblaðið - 03.01.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979
15
Símamynd AP
„Skíðavertíðin" byrjuð í London. Þessa fáséðu sjón gat að líta í útjaðri í London í gær eftir að þar
hafði kyngt niður gífurlegum snjó um áramótin.
Veðurhamurinn í Evrópu og Bandaríkjunum um áramót:
Mannlífað fœrastí
eðlilegt horfaftur
London, París, Ósló,
2. janúar — AP — Reuter
ÍBÚAR í norðanverðri
Evrópu og í Bandaríkjunum
eru sem óðast að ná sér og
atvinnulíf að komast í eðli-
legt horf eftir hinn mikla
veðurham sem geisaði um
áramótin, gífurlegt fann-
fergi var og kuldar þeir
mestu í áratugi.
Verst úti urðu Bretland,
Vestur-Þýzkaland, Frakkland
og Rússland í Evrópu en í
Bandaríkjunum varð Texas-ríki
hvað verst úti auk þess sem
Chicagóflugvöllur lokaðist í nær
sólarhring.
Akstur einkabíla var leyfður í
Vestur-Þýzkalandi og Bretlandi
í dag eftir að hann hafði verið
bannaður frá því á gamlaársdag
og flug um helztu flugvelli var
komið í eðlilegt horf.
Ekki voru þó allir óánægðir
með hið mikla fannfergi, Sviss-
lqpdingar fögnuðu því mjög að
loksins fór að snjóa. Mjög horfði
til vandræða á helztu skíða-
svagðum landsins framan af
vetri vegna snjóleysis.
Mjög annasamt var hjá björg-
unarsveitum víða, sérstaklega
þurftu sjóbjörgunarsveitir í
Bretlandi og í Noregi að láta til
sín taka vegna skipa í nauðum á
Norðursjó.
Á „hraðbrautinni" norðan við vestur-þýzku borgina Kiel á mánudag. Símamynd AP
Egyptar fagna
afstöðu ísraela
Kairó, 2. jan. AP.
EGYPTAR eru reiðubúnir að taka upp friðarviðræður við ísraela og í
Kairó eru aðilar að búa sig undir að senda skýrslu til bandaríska
utanríkisráðuneytisins um málið. að því er talsmaður egvpska
utanrfkisráðuneytisins sagði á þriðjudag.
Hann sagði að ákvörðun ríkis-
stjórnar Israels á sunnudag hefði
yerið uppörvandi og jákvæð, en
ísraelar hafa lýst yfir því að þeir
séu fúsir að taka upp viðræðurnar
aftur um að minnsta kosti tvö af
þremur aðalmáluhum sem standa í
vegi fyrir að samkomulag náist. A1
Ahram-blaðið í Kairó sagði að það
væri athyglisvert að ísraelar vildu
nú fallast á að skiptast á bréfum
að minnsta kosti um sjálfsstjórn-
armál Palestínumanna og þeir
vildu endurskoða öryggisráðstaf-
anir á Sinai. Teldu Egyptar að
þetta kynni að boða þáttaskil í
málinu öllu. Aftur á móti benda
fréttamenn á að ísraelar hafi
algerlega vísað á bug tíma-
ákvörðun fyrir kosningar
Palestínumanna og þeir hafi líka
vísað á bug hugmyndum um
ákveðna dagsetningu er Eygptar
byggju um sig á Sinai aftur.
Eins og margsinnis hefur komið
fram slitnaði upp úr viðræðum
þessum fyrir röskum hálfum
mánuði og hafa ýmsir hnútar
gengið milli aðila síðan og ekki
allar sérlega jákvæðar.
Hressileg byrjun á harnaárii Það bættist í búin hjá Keith og Lindu
Walski í Chicago nú á dögunum, en þá fæddust þeim hjónum fjórburar
sem allir eru sprækir og hressir. Fyrir áttu þau fjögur börn á aldrinum
2ja til sjö ára og eru þrjú til hægri á myndinni en eitt við hlið móður
sinnar.
Fertugar fgsilegastar
London 2. jan. AP.
KARLMENN hneigjast til þess
að fella hug til kvenna eldri en
áður, og að konur. sem komnar
eru um og þó helzt yfir fertugt.
séu einna undursamlegastar.
Kemur þetta fram í niðurstöðum
skoðanakönnunar sem brezkt
prjónafatafyrirtæki lét gera með-
al 1200 karla á aldrinum 25 — 45
ára.
Hæst á kvennalistanum var
brezka leikkonan Joan Collins,
sem er 42 ára, og síðan kemur
Brigitte Bardot, 44 ára, Jane
Fonda, 40 ára, Diana Dors, 47 ára,
Diana Cilento, 44 og lestina rak sú
yngsta í hópnum, sem einhver
atkvæði fékk að gagni, Raquel
Welch, enda ekki nema 38 ára.
Einnig fengu atkvæði Barbra
Streisand, sem er 36 ára, Jacque-
line Kennedy, 49 ára, og Grace
Monakóprinsessa, 48 ára.
Talsmaður prjónafyrirtækisins
sagði í viðtali við fréttastofu AP
að svo virtist sem þær konur sem
hefðu verið kyntákn á árunum
1950 til 1960 og upp úr því væru
það einnig nú vegna þess að þeim
yngri konur hefðu engri viðlíkri
hylli náð og þær. Joan Collins
sagði að stúlkur sem hefðu verið á
unglingsaldri um og upp úr 1950
hefðu þurft að leggja meira að sér
en konur fyrr og síðar, þar hefði
verið á ferð tímamótakynslóð
kvenna.
Slys í Colombiu
Bogota, Colombíu, 2. jan. AP
TUTTUGU manns biðu bana í bifreiðarslysi við Girardot,
skammt frá Bogota á sunnudag þegar farþegabíll fór út af
veginum og hrapaði 100 metra og skall síðan í
Magdalenafljótið. Tuttugu til viðbótar slösuðust. Talið er
að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis.