Morgunblaðið - 03.01.1979, Síða 20

Morgunblaðið - 03.01.1979, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979 20 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Starfskraftur vanur eldhússtörfum óskast, (kvenmaöur). Einnig vantar viö afgreiöslustörf. Upplýsingar í síma 85090. Sendibílstjóri óskast strax á lítinn sendibíl. Umsóknir, meö upplýsingum sendist Mbl. fyrir fimmtu- dagskvöld merktar: „Sendibíll — 236“. Skrifstofustarf Stórt fyrirtæki sem hefur meö höndum innflutning og þjónustu óskar aö ráöa starfsmenn til aö annast tollskýrslur, veröreikninga, vélritun o.fl.Umsókn um starfið ásamt uppl. um aldur, menntun og starfsreynslu sendist augld. Mbl. fyrir 8. jan. merkt: „Framtíðarstarf — 308“. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður Tjaldanesheimilið Starfsmaður óskast í vaktavinnu. Upplýs- ingar gefur forstööumaöur í síma 66266. Landspítalinn Hjúkrunardeildarstjórastööur á eftirtöldum deildum eru lausar til umsóknar nú þegar: Handlækningadeild (4—A) Barnadeild (7—C) Öldrunarlækningadeild, Hátúni 10 B. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra, sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 29000. Reykjavík, 31.12. 1978. Skrifstofa Ríkisspítalanna Eiríksgötu 5, Sími 2900. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, Sími 29000 Skrifstofa Norrænu ráðherra- nefndarinnar óskar eftir aö ráöa bókhaldsritara Á skrifstofu Norrænu Ráðherranefndarinn- ar veröur svo fljótt sem unnt er ráöiö í nýja stööu bókhaldsritara viö Samhæfingar- deildina. Starfiö veröur fjölbreytilegt og er aðallega fólgiö í því aö leggja fram og líta eftir fylgiskjölum reikninga í náinni samvinnu viö bókhaldsráögjafann, eftirliti og umfjöllun samninga, vinnslu á skýrslum um reiknings- yfirlit o.s.frv. Auk þess er nauösynlegt aö hlutaöeigandi geti einnig unniö viö bók- haldsvél. Skrifstofan óskar aö ráöa hæfan starfs- mann meö fjölbreytta reynslu í starfi á bókhaldsskrifstofu. Reynsla af opinberum rekstri er æskileg. Þess er krafist aö hlutaöeigandi geti tjáö sig skýrt í ræöu og riti á einu starfsmáli skrifstofunnar — dönsku, norsku eöa sænsku. Samningstíminn er 4 ár meö möguleikum á framlengingu. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á fríi frá embætti í allt aö 4 ár. Starfiö er vel launaö. Nánari upplýsingar um starfiö má fá hjá Per M. Lien framkvæmdastjóra eöa Aase Kjönstad ritara, sími 111052. Skrifleg umsókn meö fylgiskjölum á nefndum starfsmálum sendist Nordisk Ministerráds sekretariat, Postboks 6753, St. Olavs plass Osló 1. Umsókn veröur aö berast skrifstofunni í hendur ekki seinna en 16. janúar 1979. Norræna ráðherranefndin er samstarfsvett- vangur norrænu ríkisstjórnanna og var sett á stofn áriö 1971. Samstarfiö tekur til flestra sviöa þjóöfélagsins. Skrifstofa Ráö- herranefndarinnar, sem er í Osló, sér um daglega framkvæmdastjórn samstarfs sem fellur undir starfsvettvang Ráöherranefnd- arinnar (nema menningarmáladeild) og annast skýrslugerö, undirbúning og fram- kvæmd ákvaröana Ráöherranefndarinnar og stofnana þeira sem undir hana heyra. Sölumaður óskast aö stóru heildsölufyrirtæki. Unniö er meö tölvuskermum. Umsóknir ásamt upplýsing- um sendist augld. Mbl. merkt: „Söluvinna — 306“ fyrir 6. janúar. Tölvuaðstaða Fyrirtæki meö eigin System 32 leitar eftir kerfisfræöing, sem áhuga heföi á aö starfa sem meöeigandi í tölvuþjónustufyrirtæki. Til greina kæmi einnig aö leigja út tíma á vélina. Nánari upplýsingar í síma 85431 eöa 75570. Háseta og beitingamann vatnar á 100 lesta bát, sem fer til línuveiða frá Hornafiröi. Upplýsingar hjá Sæmundi Gíslasyni í síma 97-8137 Höfn. Óskum eftir aö ráöa bifvélavirkja næg vinna. Gott kaup. Upplýsingar ekki gefnar í síma, aöeins hjá verkstjóra. Davíö Sigurðsson hf. Síöumúla 35. Laus störf hjá ísafjarðar- kaupstað Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar hjá ísafjaröarkaupstaö: 1. Verkfræðingur: starf verkfræöings er veiti tæknideild bæjarins forstöðu. 2. Aðalbókari: starf aöalbókara bæjarsjóös ísafjarðar og stofnana hans. Umsóknarfrestur er til 15. janúar. Nánari uppl. veitir undirritaöur svo og Þráinn S. Sigurjónsson lögg. endurskoö- andi Reykjavík varöandi starf aöalbókara (sími 38175). ísafiröi 28. des. 1978, bæjarstjórinn á ísafiröi. Stórbrotin viður- kenning um aulaskap En sem við vendum nú okkar kvæði í kross, verður það að segjast umbúðalaust, þótt hart sé, að líklega hafa aldrei jafn hrika- legar og bjálfalegar athafnir verið á landi hér gerðar til að ráða niðurlögum verðbólgu en þær sem hin nýskipaða stjórnarforusta hafði forgöngu um. Grundvallarundirstaða allrar gerðar í því efni er að þekkja það iögmál, sem er orsakavaldurinn og þora að horfa staðföstum huga til þeirrar raunhyggju, sem ein og berskjölduð stendur augliti til auglitis frammi fyrir hverjum þeim, sem ekki kappkostar þann gráa leik að fleyta sér til forræða á lyginni einni saman, falsi og fláræði. Allar slíkar aðgerðir sem nú var gripið til eru fals og svik við sjálfa sig og aðra. Nákvæmlega sama hvaða pólitískur flokkur hefði að því staðið. Að segjast ekki hafa gert sér grein fyrir því, sem liggur þó við hvers manns fætur, eins og Arni Gunnarsson viður- kenndi fyrir alþjóð í sjónvarpinu: ástandi efnahagsmála þjóðarinn- ar, er stórbrotin viðurkenning um aulaskap sinn, og virkar í mínum huga sem hetjudáð samanborið við þann einstaka aulabárðarhátt að tala um að lækka verðbólguna með því að taka peninga af Pétri til að láta í vasa Páls. Það er skrípaleik- ur einn, sem margfaldlega hefnir sín og stenst ekki við neina raunhæfa staðreynd. Að lækka stöðugt gengi krónunnar er í annan máta sama eðlis, það eru sömu svikin við sjálfa sig og þjóð sína, og ætla að réttlæta þá gerð með þeirri sígildu hljómkviðu að krónan hafi verið fallin hvort sem var er í gildi sínu það aumasta hálmstrá sem nokkur maður getur sínum minnsta fingri við stutt sér til bjargar. Að segja sannleikann umbúðalaust Ef þessi nýja stjórn hefði komið fram fyrir þjóð sína og sagt umbúðalaust allan sannleikann og kannast við yfirsjónir sínar, beðið fyrirgefningar á allri lyginni, sem búið væri að margbera á borð fyrir alla menn, og segja hreint út það sanna og rétta sem gildi hefði nú og síðar samkvæmt því lífsins lögmáli, sem skaparinn hefur boðið okkur eftir að lifa, þ.e. að vinna fyrir sínu daglega brauði sjálfur, m.a., en að hlaða ekki hverri ómagasúpunni upp á aðra til að láta hina hafa fyrir, þá hefði hún unnið sér til heilla og trausts. Það átti að forðast að lækka gengi krónunnar, jafnvel hækka það, það er n.l. enginn verri hlutur til en gengisfelling til að auka verðbólguna. Hún er smánarleg og aumkunarverð vangeta og ráðleysi við þeim vanda, sem hver og einn lofar að leysa með slagorðum og fagurgala. Þeir sem gala um samningana í gildi og kaupmátt launa, en leyfa sér svo að svíkjast aftan að því sama fólki sem þetta á að hafa eitthvert gildi fyrir og ræna þessum sömu samningum með gengisfellingu og sköttum, sem orsakar svo stórhækkun verðlags á öllum sviðum, kaupæði og annað brask. Þetta eru virki- lega sjónhverfingamenn, sem svíf- ast einskis í prettum sínum og fölskum staðhæfingum. Það er stórmannlegt að falla með sann- leikann á vörunum, en að komast til valda með falsi og fláræði er sú mesta smán sem nokkur getur á herðum sér borið. Hinn grjót- harði vísi- töluveggur Nú standa þessir spekingar frammi fyrir þeim grjótharða vísitöluvegg, sem þeir svo sjálfir hafa verið að byggja upp undan- farandi tugi ára, og komast hvergi í gegn. Þann sama vegg sem ekki hefur mátt hvika frá að þeirra mati um einn einasta millimetra, svo einhver einingategund sé nefnd, þessi heilaga kýr, sem ekki hefur mátt strjúka af eitt einasta hár, ásamt svo þeim helgasta rétti, sem guð hefur gefið okkur synd- ugri mannskepnunni, að mega velja og áforma, sem stundum hefur svo verið notuð til þess t.d.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.