Morgunblaðið - 03.01.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.01.1979, Blaðsíða 23
1 MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979 Minning: Sigríður Guðjóns- dóttir Árnason Fædd 11. júlí 1888. Dáin 21. október 1978. _Man éí? æskuárin. yndisbros og tárin. gleði og sviða sárin. sól og daga langa. Vinarhiind á vanga. (Stefán frá Hvítadal). Bernsku- og æskuminningar, blíðar og stríðar, búa trúlega lengst og traustast í brjóstum flestra manna og eiga dýpstar rætur í þeim jarðvegi. Ljúfar hugrenningar leiða hugann ósjálf- rátt til liðinna daga, þegar minnzt er nýlátinnar níræðrar frændkonu og tryggðavinar ættmenna minna. Ljósbrot minninganna eru svo ótalmörg, að vart er mannlegum huga unnt að bregða birtu á þau öll í örfáum kveðjuorðum. Verður því aðeins stiklað á einu minnis- verðasta atvikinu úr lífi bernsku minnar, en önnur látin ósögð, sem engu síður ættu heima hér við þetta tækifæri. Eitt af mörgum dæmum um hjartahlýju og vináttu Sigríðar heitinnar er mér einna hugstæðast frá barnsaldri. Það gerðist fyrir rúmum 60 árum, frostaveturinn mikla, 1918. Móðir mín bjó þá með okkur tveim börnum sínum í köldum og fremur óvistlegum húsakynnum við engar allsnægtir. Ekki er ólíklegt, að ég hygg, að í öllu kuldakastinu, sem þá geisaði um loft, láð og lög, að eitthvað yfirskilvitlegt hafi yljað Sigríði, vinkonu móður minnar, svo um hjartarætur, að hún bauð móður minni að fylgja sér með okkur börnin til sinna heimkynna, sem voru hlýrri og notalegri. Það góða boð var með þökkum þegið, og nutum við þar ógleymanlegra daga um langa hríð. Móðir mín og Sigríður bundust órjúfandi tryggðaböndum í blóma aldurs síns, báðar glæsilegar myndarkonur, er áttu margt sam- eiginlegt í lyndiseinkunn og mynd- arbrag. Áttu þær síðan ótaldar samveru- og ánægjustundir um dagana; fyrst í Vestmannaeyjum og síðan í Reykjavík í rúman áratug á hvorum stað. Sá þráður slitnaði aldrei meðan báðar lifðu, þótt í nær aldarfjórðung væri langur og djúpur áll milli þeirra vinkvennanna, — eða þar til móðir mín andaðist árið 1960. Sigríður fluttist vestur um haf frá Vestmannaeyjum ásamt eigin- manni sínum, Helga Árnasyni múrara og dætrum þeirra árið 1925. Settust þau að í Winnipeg í Kanada. — Ættjörðina heimsótti Sigríður ekki aftur fyrr en árið 1948, ekki sízt til að kynna sér heilsufar systur sinnar, Guðnýjar, en heilsu hennar fór þá mjög hrakandi. Hún hélt vestur aftur eftir nokkurra mánaða dvöl hér heima. Ári síðar (1949) heldur hún enn á ný heim til íslands, ákveðin í að verða stoð og stytta systur sinnar, en þá hafði sjúkleiki hennar, sjóndepra og kölkun í mjaðmarliðum elnað svo mjög að hún þurfi nauðsynlega á hjálp að halda. (Guðný rak þá Hannyrða- verzlun Þuríðar Sigurjónsdóttur og hafði gert það um margra ára skeið með miklum myndarbrag og listfengi). Bjuggu þær systur síðan saman í einlægni og kærleika í tæp 24 ár, lengst af í Ingólfsstræti og Ljósheimum 20 hér í borg, að undanskildum tveimur síðustu árunum, sem Guðný þurfti að dveljast á sjúkrahúsi. Skildu þær systur ekki fyrr en yfir lauk, og Guðný andaðist árið 1973. — Fór Sigríður þá aftur til barna sinna í Vesturheimi og bjó í návist þeirra, unz hún kvaddi þennan heim, 21. okt. síðastl., eins og fyrr segir. Foreldrar Sigríðar voru þau hjónin Guðjón Jónsson frá Fögru- hlíð í Landbroti, síðar bóndi að Fæddur 19. ágúst 1912. Dáinn 21. desember 1978. Við trúðum því báðir, við Sigurður Þórðarson, að öllum sé okkur afmarkað æfiskeið og að þegar stundin er komin biði fákurinn söðlaður og gott sé (|þðum farkosti að stýra til flugs. En þetta ber að með ýmsu móti. Sigurður gekk út af heimili sínu að morgni með vinnustaðinn í huga, settist undir stýri eigin bíls, en þá bar fyrir. sjónir annað umhverfi, varðaður vegur, sem sjálfgefið var að fara, dagsverkinu hér var lokið — áreiðanlega í anda og að lífsskoðun Sigurðar. Fæddur var Sigurður að Brá- völlum á Stokkseyri, sonur hjón- anna Málfríðar Halldórsdóttur og Þórðar Jónssonar bókhaldara Þor- steinssonar járnsmiðs frá Kols- holtshelli í Flóa, fluttist til Reykjavíkur með foreldrum sínum 12 ára gamall. Tók burtfarapróf frá Gagnfræðaskóla Ág. H. Giljum í Hvolhreppi og síðan að Sölvholti í Hraungerðishreppi í Flóa og Þórunn Jónsdóttir frá Árgilsstöðum í Hvolhreppi. — Þórunn var komin af hinum kunnu ættum, er kenndar eru við Eydali og Víkingslæk. Ogleymanlegar verða mér stundirnar, sem við systkinin áttum hjá Þórunni í Dal í Vestmannaeyjum (hún lézt 1933) og Guðnýju dóttur hennar. Þær mæðgur bjuggu saman við mikið ástríki hvor annarrar í tvo ára- tugi. Eftir að eiginmaður Þórunn- ar andaðist í Reykjavík árið 1914, en þar höfðu þau hjónin búið síðustu árin, fluttust þær mæðgur til Eyja, og gerðist Guðný þá verzlunarstýra í vefnaðarvöru- deild verzlunar Gísla J. Johnsen. Djúp lágu rætur í tilfinningalífi Sigríðar heitinnar og nánustu ættingja hennar og hafa af- komendur hennar hlotið þann dýrmæta arf. Það sannar bezt hin einlæga tryggð og ástríki er hún ætíð auðsýndi Guðnýju systur sinni og sýnir auðsæilega, hve hjartfólgin vinátta ríkti meðal þeirra systra langa ævi. Sigríður hlaut þau sigurlaun sem bezt og eftirsóknarverðust mega teljast, að koma mannvæn- legum börnum sínum til þroska og manndóms, enda lánaðist henni að fá að lifa í nálægð þeirra megin- hluta langra lífdaga. Hún naut umhyggjusamrar ástúðar barna sinna allt til hinztu stundar, eða þar til augu hennar luktust í dauðanum. Bjarnasonar, verslunarnám í Eng- landi 1934—1935. Starfaði síðan við Heildverslun Skúla Jóhanns- sonar og co., stofnaði síðar, og rak um nokkur ár, ásamt þeim Oddi Helgasyni og Gunnari heitnum Guðmundssyni fyrirtækið O.H. Helgason og co., en lengst eða yfir 20 ár, vann Sigurður við endur- skoðun hjá Birni E. Árnasyni löggiltum endurskoðanda, og sótti þá námskeið í endurskoðun í Háskóla íslands. Síðustu 5 árin vann Sigurður í endurskoðunar- deild Reykjavíkurborgar. Hinn 15. maí 1937 gegndi Sigurður kalli lífsins og giftist glæsilegri konu, og ágætri, Guð- nýju Runólfsdóttur, bókbindara við Landsbókasafnið, ættuðum frá Hjörsey á Mýrum. Settu þau ungu hjónin saman bú að Bergstaðastræti 60 í Reykjavík og hinn 16. ágúst 1941 fæddist þejm dóttir, sem í skírninni hlaut móðurnafn Sigurðar, Málfríður, er Börn Sigríðar bera öll nafn Guðnýjar, en þau eru: Guðný Rebekka Van Vogt, gift og búsett í Winnipeg. (Er við hjónin dvöldum þar vestra ásamt syni okkar á árunum 1966—67 urðum við djúpt snortin af viðkynningunni við hana og lifum oft upp í huganum ljúfar endurminningar frá þeim tíma); Guðný Freyja Woodland, ekkja, búsett í Sicamors, B.C., Þórhildur Guðný Dech, búsett í St Paul, Minnesota. (Hjá þessari dóttur sinni, sem var yngst systranna, átti Sigríður síðustu ævistundirnar); Olgeir Guðni, blaðamaður í Vancouver, kvæntur kanadískri konu. Öll börnin hafa í ríkum mæli erft beztu eigindir ættar sinnar, tryggð og einstaka hlýju. I þessum örfáu kveðjuorðum leyfi ég mér þann útúrdúr, að geta hún nú gift 4 barna móðir í Keflavík, Maris Gíslasyni, slökkvi- liðsmanni á Keflavíkurflugvelli, Lyngholti 14. En leiðir þeirra hjóna, Sigurðar og Guðnýjar (Lóu) skildu. Þau slitu samvistum 1950. Gerðist Sigurður uppúr því húsmaður Hermanns Jónassonar að Tjarnargötu 42 og reyndist báðum haldgott, þó ekki væru þeir samherjar, sem kallað er. Þarna, að Tjarnargötu 42, flytur inn til Sigurðar önnur kona ágæt, Sigrún Pétursdóttir, Sigurðssonar vega- verkstjóra á Hjartarstöðum í Eiðaþinghá og Guðlaugar Sig- mundsdóttur frá Gunnhildargerði. Þau bjuggu síðar á Vattarnesi við Fáskrúðsfjörð. Giftust þau Sigrún og Sigurður 1. janúar 1954. Sigrún Pétursdóttir andaðist snemma árs 1971, og var hjóna- bandið barnlaust; en Sigrún átti áður dóttur, sem Þorey heitir og varö hún stjúpdóttir Sigurðar. Sú stúlka færði stjúpa sínum og móður son, er Sigurður Rúnar heitir og tóku þau hjón hann í fóstur. Varð sá ástsæll á því heimili, og því tvöfalt áfall Sigurði er konan féll frá, að stjúpdóttirin, sem nú var gift vestur á Firði tók til sín soninn, en heimili hans forsjárlaust innanhúss. Minning: Sigurður Þórðar- son endurskoðandi Minning: Jónína Guðrún Halldórsdó ttir Fædd 3. október 1900. Dáin 19. desember 1978. Mágkona okkar, Guðrún Halldórs, eða Gunna eins og við vinir og vandamenn kölluðum hana ávallt, lést í Borgarspítalan- um 19. desember. Guðrún var búin að stríða við mikla vanheilsu síðast liðin ár, sem hún bar með sinni alkunnu sálarró og.æðruleysi þar til yfir lauk. Guðrún Halldórs. var fædd 3. okt. árið 1900 á Stálpastöðum í Skorradal. Foreldrar hennvar voru Þrúður Gísladóttir, Gísla Ög- mundssonar bónda á Stálpastöð- um í Skorradal, sem bjó þar 1866—1902 og konu hans Guðrún- ar Sveinsdóttur bónda í Síðumúla. Faðir Guðrúnar Halldórs. var Halldór Halldórsson. Hann var sonur Halldórs Ólafssonar bónda á Reini. Þau Þrúður og Halldór fluttu til Reykjavíkur 1904 og bjuggu þar allan sinn búskap. Halldór gerðist sjómaður á skút- um, sem þá voru sem óðast að koma til landsins. Guðrún var elst af fimm börnum þeirra hjóna. Ung var hún tekin í fóstur af móður- systur sinni, Guðlaugu Gísladóttur frá Stálpastöðum í Skorradal, og manni hennar, Jóni Bjarnasyni bónda. Þau Guðlaug og Jón bjuggu fyrst á Árnabrekku 1902—1909 og síðan á Þrándarstöðum í Brynju- dal í Kjós. Brynjudalurinn varð því æskustöðvar Guðrúnar. Hon- um unni hún alla sína ævi. Það var eins og sál hennar fengi hleðslu af ólýsanlegri orku við að koma í dalinn sinn og dvelja þar eina dagstund fram á nótt, þegar sólin var hæst á lofti. Áriö 1927 gekk Guðrún að eiga eftirlifandi mann sinn, Guðmund Ásbjörnsson. Þá var hún útivinn- andi stúlka í Reykjavík, en hann sjómaður á togara. Togaramaður eins og þeir voru kallaðir. Það þótti góð atvinna í þá daga. Foreldrar Guðmundar voru Ingi- björg Pétursdóttir frá Bala á Kjalarnesi. Hún var af Fremra-Hálsættinni. Og faðir hans, Ásbjörn Guðmundsson, ætt- aður frá Arnarholti í Flóa. Þau Guðrún og Guðmundur voru fljót að koma undir sig fótunum og eignast sitt eigið húsnæði. Mág- kona okkar var mikil hannyrða- kona og saumaði mörg listaverk, sem prýða heimili þeirra hjóna að Bergstaðastræti 11 í Reykjavík. Hún var glaðvær í viðmóti og elskuleg kona í alla staði. Á þeirra heimili ríkti kærleikur og trúnaðartraust og þar var ekki að finna neinar nútíma geðflækj- ur. Svo einn dag kom maðurinn með ljáinn og snart með sprota sínum til Guðrúnar. Það gaf til kynna að hann myndi koma aftur og full- komna verk sitt. Öll eigum við von á þannig heimsókn. En það er okkur hulið á hvern hátt hún ber að garði. Kemur hún í svefni? T,ess óska flestir, en fáir fá. Eða kemur hún þegar okkar daglegu störf standa sem hæst? Það vitum við ekki. Til mágkonu okkar kom heim- sóknin með óbærilegar þrautir og þjáningar þar til yfir lauk. Við systur færum henni þakkir fyrir áratuga tryggð við okkur og fjölskyldur okkar fyrr og síðar. Manni hennar og syni og öðrum ættingjum vottum við okkar inni- legustu sarnúð. Hvíl þú í friði, friður Guðs þig blcssi Ásbjiirg og Laufey A.shjiirnsdætur. 23 þess, að á árinu 1977 bauð Sigríður og börn hennar systur minni vestur um haf. Naut hún þar alls þess ástríkis, sem öllu þessu fólki er gefið, eins og hún væri eitt systkinanna. Mun henni aldrei úr minni líða vinátta þeirra og umhyggja sem var með ein- dæmum. Það gladdi systur mína innilega að fá enn um stund að njóta ástríkis og yndisstunda í návist Sigríðar, sem ekki er ofmælt að hafi verið henni sem önnur móðir. Sigríður hafði þá enn ekki að fullu tekið þann sjúkdóm, sem að síðustu leiddi hana til dauða. Hún var í allan máta andlega hress og heilbrigð til hinztu stundar. Þær gátu því í einrúmi rifjað upp ljúfar og sárar minningar. Ekki spillti það ánægju ferðar- innar, að njóta allrar þeirrar hlýju og ástúðar, sem hún naut í svo ríkum mæli á hinu glæsilega heimili þeirra hjónanna, Þórhildar og James eiginmanns hennar. Sú » dvöl og kynning við þau frábæru hjón, mun henni aldrei úr minni líða. Bókstaflega mælt var hún borin á höndum allrar fjölskyld- unnar, jafnt heimilisföður, börna og húsmóður. Nú þegar Sigríður er öll, erum við óumræðilega þakklát -fvrir samfylgdina. Drottinn blessi minningu kærr- ar frændkonu, og leiði ávallt börn hennar og afkomendur á vegi blessunar og velgengni um alla framtíð. Agúst Guömundsson. Heilsu Sigurðar hrakaði síðustu 2—3 árin og lengdi hann suniarið með því að eyða sumarleyfinu á Majorka. í för með honum þangað slóst ágæt kona, Vigfúsína Er- lendsdóttir frá Bolungarvík, og giftust þau 17. desember 1977 og flutti hann jafnframt frá Tjarnar- götu 42 að Miðtúni 19, en Vigfús- ína mun eiga þar íbúð. Varð sambúð þeirra stutt, en báðum geðþekk. Þetta er í stórum dráttum æfiferilsskýrsla Sigurðar Þórðar- sonar, þó er þess ógetið að þau voru fimm systkinin frá Brávöll- um. Sigurður réðst sem snúninga- drengur til okkar hjóna strax að giftingu okkar afstaðinni í júní 1921, varð þannig okkar fyrsti „kaupmaður". Alltaf glaður, alltaf reiðubúinn og söngurinn hljómaði svo heyrðist bæja á milli. Ég held að sumurin hafi orðið 4 eða 5 og tryggðin og tengdin færðust yfir á stækkandi fjölskyldu okkar, börn- in og barnabörnin; allt varð það hans fólk og væri hann erlendis, barst áritað póstkort, annars var hann hér flest surnur stund úr degi, 2—3 daga, og sjálfsagður meðal annarra gesta ef eitthvað var um að vera. Kring um hann var alltaf hópur þakklátra hlust- enda, ekki síst hópur barna, en þeirra var Sigurður. Börn áttu hug hans og athygli. Síðastliðið sumar fór Sigurður hvorki til Majorka né austur yfir Fjall. Hafi Sigurður þökk, og vel sé honum. Ég votta einkadótturinni, ekkj- unni, og aðstandendum öllutu hinar dýpstu sanuiðarkveðjur mínar og fjölskyldu minnar. Sigurgrímur Jónsson. Ilolti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.