Morgunblaðið - 03.01.1979, Síða 32

Morgunblaðið - 03.01.1979, Síða 32
 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1979 Verzlið í sérverzlun meö litasjónvörp og hljómtæki. Skipholti 19 BUÐIN sími y 29800 Búast má við hreyfingu í samningsréttar- máli BSRB á næstunni VIÐRÆÐUR hafa farið fram milli Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og ríkisvaldsins um samningaréttarmálið svokallaða. en ríkisstjórnin hefur boðið opinberum starfsmönnum aukinn samnings- rétt gegn því að þeir falli frá 3% áfangahækkun hinn 1. apríl næstkomandi. Jafnframt fór ríkisstjórnin fram á að samningar yrðu framiengdir út árið, en þeir ganga úr gildi 1. júlí. Fiskverð hækkar um 11% Klofningur meðal kaupenda og seljenda í yfirnefnd Fyrirheit um félagslegar umbætur, segir fulltrúi sjómanna Afkoma flotans verri en um árabil — segir formaður LÍÚ YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávarútvegsins ákvað í gærkveldi nýtt fiskverð frá 1. janúar, sem gildi til maíloka. Ákvörðunin felur í sér 11% hækkun á verði allra tegunda, nema steinbíts, sem hækkar um 13% og grálúðu og keilu, sem hækka um 9%. Verðið var samþykkt með atkvæðum fulltrúa sjómanna, Ingólfs Ingólfssonar, og annars fulltrúa fiskkaupenda, Árna Benediktssonar og oddamanns, Jóns Sigurðssonar, gegn atkvæðum annars fulltrúa kaupenda, Eyjólfs ísfelds Eyjólfssonar, og fulltrúa útgerðarmanna, Kristjáns Ragnarssonar. Verði kaupgjaldshækkun 1. marz meiri en 5% er verðið uppsegjanlegt. í dag er ráðgerður fundur með fulltrúum bæjarstarfsmanna- félaga og samninganefndar- fundur BSRB er ráðgerður á fimmtudag, Haraldur Stein- þórssson, varaformaður BSRB og framkvæmdastjóri þess, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að vonir stæðu til að hugmyndir um samkomulag bærust frá ríkis- stjórn fyrir fund samninga- nefndarinnar, svo að unnt yrði að fjalla um þær á fimmtudag. Annars verða þessi mál reifuð og kynnt á fundunum, en sérstök nefnd hefur fjallað um þessi mál, auk þess sem ríkisvaldið og BSRB hafa skipzt á skoðunum um þetta á samráðsfundum. Hinn síðasti var haldinn milli jóla og nýárs. BSRB hefur sérstaklega tekið fram á þessum fundum, að þar sem ekkert stéttarfélag í landinu hefði fallizt á tilmælin um fram- lengingu samninga út árið 1979, væri óeðlilegt, að fram á það yrði farið við BSRB að það gerði það. Haraldur Steinþórsson sagði að ef af samkomulagi við ríkið yrði, þá væri það hugmynd stjórnar BSRB, að það yrði borið undir atkvæði félagsmanna innan BSRB. Ef slík atkvæðagreiðsla á hins vegar að eiga sér stað, verður að taka ákvörðun um þessi mál nú fyrri- hluta janúarmánuðar. Því kvað hann hreyfingu verða á þessum málum nú. Á almenna vinnumarkaðinum er staðan sú, að ekkert aðildarfélag ASÍ hefur ljáð máls á því að framlengja kjarasamninga út árið 1979. Nokkur félög afturkölluðu uppsögn kjaraliðar samninga sinna, en vinnuveitendur höfnuðu því og eru nú yfirleitt allir samningar lausir sé þeim sagt upp með mánaðarfyrirvara. Það gerðu sárafá félög og framlengjast því kjarasamningar uin þrjá mánuði í senn, og geta fyrst orðið lausir nú 1. marz, sé þeim sagt upp. Hins vegar sögðu verzlunarmanna- félögin öll upp samningum og hafa staðið í samningaviðræðum við viðsemjendur sína. Var deilu þeirra nýlega vísað til sátta- semjara ríkisins. Þá má á það benda að sjó- mannasamtökin hafa farið þess á leit við sjómenn að þeir láti ekki skrá sig á skip nú eftir áramótin, nema tryggt sé að viðunandi fiskverð sé ákveðið. Fiskverð var í gærkveldi, ákveðið eins og lesa má hér annars staðar á síðunni. Yfirnefnd hefur ekki áður klofn- að með þessum hætti, þ.e. að meirihluti sé myndaður með full- trúa kaupenda og seljenda og oddamanni. Ingólfur Ingólfsson var í gær spurður, hvers vegna sjómenn gætu sætt sig við 11%, þegar því hefði verið lýst, að 14% væru algjört lágmark. Ingólfur sagði: „Þó að þessi ákvörðum sé tekin, þá er hún gerð í trausti þess, að staðið verði við þau fyrirheit, sem ráðherrar hafa gefið um félagslegar umbætur og að við megum vænta einhvers í skattfríð- indum." Ingólfur kvaðst hafa átt tvisvar sinnum fund með forsæt- isráðherra, þar sem hann lagði fram kröfur sjómanna og eftir ríkisstjórnarfund í gær kvað hann hafa verið lýst yfir að staðið yrði við þær í öllum meginatriðum — að undanteknu því er varðar skattfríðindi til sjómanna, Þó sagði Ingólfur að komið hefði fram i viðræðum við ráðherra, fleiri en einn, að skilningur væri á skatt- fríðindahugmyndum sjómanna. Þessar hugmyndir voru um 20% skattfrjálsar tekjur af brúttótekj- um eftir 8 mánaða skráningar- tíma, 15% eftir 6 mánuði og 10% eftir 4 mánuði. Samkvæmt heim- ildum, sem Morgunblaðið fékk seint í gærkveldi, mun ríkisstjórn- in hafa ákveðið að hafna þessum kröfum um skattfríðindi. Kristján Ragnarsson og Eyjólf- ur Isfeld Eyjólfsson bókuðu grein- argerðir við fiskverðsákvörðun. Kristján segir að að ákvörðuninni hafi verið staðið með einstæðum hætti. Formaður nefndarinnar hafi lofað að lögð yrðu fram sem venja er til gögn frá Þjóðhags- stofnun um afkomu fiskveiðanna ásamt áætlun um afla og verð- breytingar. Þessi gögn komu fram, segir Kristján, eftir að raunveru- leg ákvörðun hafði verið tekin. Á gamlársdag hafi hins vegar verið lagðir fram reikningar um afkomu fiskiskipaflotans á árinu 1976. Vitað sé að afkoman sé verri nú en þá — auk þess sem vitað sé að yfirvofandi sé stórfelld olíu- hækkun , sem valdi útgerðinni 1.400 milljón króna útgjaldaauka, verði hún látin koma fram. Eftir þessa fiskverðsákvörðun sé afkoma fiskiskipanna verri en hún hefur verið um lángt árabil, sérstaklega bátaflotans, og Kristján segir, að hann sjái ekki að hann verði gerður út við óbreyttar aðstæður. Síðan segir Kristján: „Það var sameiginleg krafa fulltrúa útgerðarmanna og sjómanna, að fiskverð hækkaði um 14% og fiskverð yrði ekki ákveðið til lengri tíma en 1. marz vegna óvissu um framvindu efnahags- mála. Ef ákveða ætti fiskverð til lengri tíma yrði að taka tillit til áætlaðra kaupbreytinga 1. marz. Sú afstaða fulltrúa sjómanna að samþykkja 11% hækkun fiskverðs til 1. júní kom mér því algerlega á óvart." Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson lét bóka eftirfarandi, er hann greiddi atkvæði: „Þessi fiskverðshækkun er sízt meiri en þróun launamála og þó sérstaklega afkoma útgerðar gefur tilefni til. Hækkunin er þó verulega umfram greiðslugetu fiskvinnslunnar miðað við núver- andi markaðsverð og gengi. Hækkun markaðsverða á frystum fiskflökum í desember breytti afkomu frystihúsanna úr tap- rekstri í þann lágmarkshagnað, sem þau geta búið við. Fiskverðs- hækkunin ásamt fyrirsjáanlegri launahækkun 1. marz þýðir 5.500 milljóna króna aukin útgjöld fyrir frystihúsin. Þar sem ekkert liggur fyrir um ráðstafanir, sem geri fiskvinnslunni kleyft að standa undir þessum greiðslum, greiði ég atkvæði gegn þessari fiskverðs- ákvörðun." Dómsmálaráðherra: Ætlar að láta endur- skoða refsi- löggjöfina „ÉG HEF hugsað mér að láta endurskoða hegningarlögin al- mennt og þá sérstaklega með tilliti til refsihliðarinnar, en persónulega hef ég aldrei verið hrifinn af fangelsisrefsingum og tel æskilegt að kannað verði hvort aðrar refsingar geti leyst þær af hólmi að einhverju leyti," sagði Steingrímur Her- mannsson dómsmálaráðherra í samtali við Mbl. í gær. Dómsmálaráðherra kvaðst ekki vilja segja neitt frekar um þetta mál, en gat þess að hér á landi hefði ef til vill verið haldið stífar í fangelsisrefsing- ar þar sem sektargreiðslur hefðu þótt koma fyrir lítið vegna verðbólguþróunar. 191 skráður atvinnulaus í Reykjavík um áramótin: Atvinnuleysi ekki iafh mikið um árabil UM ÁRAMÓTIN var 191 skráður atvinnulaus í Reykjavík og hefur tala atvinnulausra um áramót ekki verið jafnhá um áraraðir, að sögn Gunnars Helgasonar forstöðumanns ráðningaskrifstou Reykjavíkur borgar. „Undanfarin ár hefur atvinnu- leysi jafnan verið mest mánuðina janúar til maí og er útlitið allt annað en bjart," sagði Gunnar Helgason í samtali við Mbl. í g er. Af þeim 191, sem skráðv er atvinnulaus, eru 154 karlar og 37 konur. Til samanburðar má nefna að um áramótin 1977—’78 voru 69 skráðir atvinnulausir í Reykjavík þar af 48 karlar og 21 kona. Má af þessu sjá að aukningin nú er vmtalsverð. Að sögn Gunnars er atvinnu- leysi mest meðal verkamanna í Reykjavík, einnig er nokkuð áber- andi atvinnuleysi meðal vörubif- reiðastjóra og byggingamanna, s.s. múrara og trésmiða. Hjá konum er atvinnuleysi mest meðal iðnverka- kvenna og verkakvenna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.