Morgunblaðið - 15.03.1979, Qupperneq 1
48 SÍÐUR
62. tbl. 66. árg.
FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Idi Amin
Mikið mannfall
FRIÐUR — Jimmy Carter Bandaríkjaforseti baðar út höndunum við
heimkomuna frá Egyptalandi og ísrael f gærmorgun. Þegar forsetinn
kom til St. Andrews flugstöðvar bandaríska flughersins fyrir utan
Washington voru þúsundir manna þar, einkum stjórnmálamenn og
opinberir starfsmenn, til að taka' móti forsetanum. Sím»mynd-AP
Ágreiningur ísraela
og Egypta úr sögunni
Washington, 14. mars. AP. Reuter.
JIMMY Carter Bandaríkjaforseti
sagði f kvöld að þar sem stjórn
ísraels hefði nú samþykkt mála-
miðlunartillögur hans varðandi
frið f Miðausturiöndum væri allu.*
ágreiningur fsraelsmanna og
Egypta úr sögunni.
Stjórn ísraels samþykkti með
atkvæðum allra viðstaddra ráð-
herra málamiðlunartillögur Cart-
ers um þau tvö atriði er óútkljáð
voru þegar Carter hélt frá Kaíró á
þriðjudagskvöld. Einn ráðherra
var fjarstaddur. Atriðin tvö kváðu
á um olfuviðskipti ísraelsmanna
og Egypta svo og um staðsetningu
egypskra eftirlitsmanna á
Gaza-svæðinu og skipti á sendi-
herrum.
Enn hefur ekkert verið látið uppi
um efnisatriði málamiðlunartil-
lagna Carters forseta. Þingið í
ísrael greiðir atkvæði .um friðartil-
lögurnar í næstu viku og er þegar
talið öruggt að þær verði samþykkt-
ar með þorra atkvæða.
Mustafa Khalil forsætisráðherra
Egyptalands fagnaði mjög ákvörð-
un ísraelsku stjórnarinnar. Hann
bjóst jafnvel við að hægt yrði að
undirrita enska texta friðarsam-
komulagsins í Washington í næstu
viku, og arabíska og hebreska text-
ann í Kairó og Jerúsalem skömmu
síðar. Enski textinn verður hinn
opinberi texti sáttmálans.
Khalil varaði þó við að ef snurða
hlypi á þráðinn varðandi málefni
Palestínumanna þá næðist seint eða
aldrei jafnvægi í Miðausturlöndum,
þrátt fyrir að friðarsáttmáli verði
undirritaður.
Jimmy Carter var fagnað vel
þegar hann kom til Washington frá
Kairó. Þusundir manna voru á
flugvellinum þegar þota hans lenti.
Fjölmiðlar gerðu mikið úr ferð hans
og þeim árangri sem náðist. Talið er
að árangur Carters í friðarferð
hans til Kairó og Jerúsalem eigi
eftir að verða honum gífurleg lyfti-
stöng og jafnvel bjarga pólitískum
frama hans, en Carter hefur komið
illa út úr skoðanakönnunum vestra
upp á síðkastið.
í herjum Amins
Nairohí, 14. marz, Reuter.
ÁREIÐANLEGAR hcimildir
skýrðu frá því í kvöld að í meiri
háttar brýnu hefði slegið f dag
milli hersveita sem hliðhollar
eru Idi Amin Ugandaforseta og
uppreisnarmanna sem
Tanzaníumenn veita liðsinni.
Orrustan varð við þorp um
miðja vegu milli höfuðborgar-
innar Kampala og Masaka sem
uppreisnarmenn hafa enn á
valdi sínu.
Hermt var að yfir 100 Líbýu-
menn sem berjast með hermönn-
um Amins hafi særst í átökunum
og að einn af helztu hers-
höfðingjum Amins hefði fallið.
Auk þess hefðu 600 hermenn verið
felldir hjá Amin og 300 særst.
Engar fréttir fóru af mannfalli í
röðum uppreisnarherjanna og ekki
minntist útvarpið í Uganda heldur
einu orði á atburðina í dag.
Sadat gagnrýndur af
meiri hörku en áður
Beirút, Bashdad, Kuwait, Vinarborg, Tel Aviv, Kairó, 14. marz AP — Reuter
HARÐLÍNURÍKI Araba veittust að Anwar Sadat forseta Egyptalands
með meiri hörku en fyrr þegar fregnir bárust af samþykki stjórnar
ísraels á síðustu málamiðlunartillögum Carters Bandaríkjaforseta og
ljóst varð að undirritun friðarsáttmála ísraelsmanna og Egypta var
aðeins formsatriði.
Hvöttu leiðtogar blöð og stjórn-
málamenn í ríkjunum til þess að
Egyptar yrðu beittir ýmiss konar
þvingunum. Einkum skyldu þeir
beittir efnahagslegum þvingunum
og hvatt var til þess að
höfuðstöðvar Arababandalagsins
yrðu fluttar frá Kaíró.
Lýstu stjórnvöld í írak því yfir
að þau krefðust fundar utanríkis-
ráðherra og ráðherra sem færu
með efnahagsmál í Arabaríkjum
strax og Egyptar undirrituðu
friðarsamkomulag við ísraels-
menn. I tilkynningu til Arabaríkja
óskuðu stjórnvöld í írak að lagðar
Fórust 200 manns
í flugslysi í Kína?
Tókýó, 14. marz. AP.
ÓTTAST er að um 200 manns
hafi farist þegar þota af Trident
gerð fórst með áhöfn og farþeg-
um skömmu eftir flugtak af
flugvelli í Vesturútjaðri Peking
í morgun. Þotan kom niður á
verksmiðju skammt frá flug-
vellinum og fórust nokkrir
starfsmenn verksmiðjunnar
einnig.
Ekkert var skýrt frá slysinu í
fjölmiðlum í Peking í dag og
ekkert var tilkynnt um það af
opinberri hálfu. Vestrænn
fréttamaður var meðal sjónar-
votta og lýsti hann aðstæðum á
slysstað. Hann sagði að þotan
hefði brotnað og brak úr henni
dreifzt um stórt svæði. Hermenn
unnu að umfangsmiklum
björgunaraðgerðum í margar
klukkustundir á verksmiðju-
svæðinu.
Flugvélar af Trident-gerð eru
mikið notaðar í Kína til að ferja
stjórnarleiðtoga og háttsetta em-
bættismenn vítt og breitt um
landið. Þoturnar geta flutt frá
115—180 farþega, en í áhöfn eru
12 manns.
yrðu fyrir þann fund hugmyndir
ríkjanna um hvernig bezt mætti
hrinda í framkvæmd samþykktum
leiðtogafundarins í Baghdad í
nóvember síðastliðnum.
Viðbrögð talsmanna frelsissam-
taka Palestínumanna og Yassers
Arafats leiðtoga Palestínu skæru-
liða voru á sama veg og viðbrögð
annarra Arabaleiðtoga. Lýst var
yfir að samtökin og skæruliðar
þeirra hygðust berjast hatrammri
baráttu gegn „Camp David
samsærinu". Arafat krafðist þess
m.a. í dag að olíuframleiðsluríki
Araba tækju fyrir alla olíusölu til
Egypta ef þeir undirrituðu friðar-
samkomulag viðjsraelsmenn.
Hvarvetna í ísrael og Egypta-
landi var árangrinum af för
Carters til landanna vel tekið
Langflestir íbúa landanna tveggja
voru í sjöunda himni og fjölmiðlar
og stjórnmálamenn voru í sigur-
vímu, enda sást nú loks ljós á
veginum eftir sextán mánaða
samningaþóf.
Ýmsir smáhópar voru þó ekki á
sama máli og yfirgnæfandi meiri-
hluti landsmanna. Arabískir
námsmenn í Jerúsalem og
nokkrum öðrum borgum á vestur-
bakka árinnar Jórdan mættu ekki
til kennslu fimmta daginn í röð.
Efndu þeir í þess stað til mót-
mælaaðgerða og kom til átaka
þeirra og lögreglu er enduðu með
handtökum.
Fjölmiðlar í Sovétríkjunum
virtust í dag ganga út frá því sem
gefnu að friðarsamkomulag
Egypta og ísraelsmanna yrði
undirritað. Sögðu fjölmiðlar að nú
væri í uppsiglingu kapphlaup milli
Israelsmanna og Egypta um áhrif
í hernaðarbandalagi ríkjanna við
Bandaríkin.
Tvær flugvélar fóru frá Entebbe
í dág til Libýu með Líbýumenn
sem særst hafa í átökunum í
Uganda að undanförnu. Tvö
sjúkrahús eru í Entebbe og hefur
þeim verið lokað fyrir almenningi í
landinu þar sem þau eru yfirfull af
særðum hermönnum frá Líbýu.
Til átakanna í dag kom eftir að
sveitir uppreisnarmanna höfðu
beinlínis slegið hring um tæplega
þúsund manna deild úr herjum
Amins. Eftir að hafa umkringt
deildina, en í henni var fjöldi
líbanskra hermanna og ráðgjafa,
var eftirleikurinn auðveldur fyrir
uppreisnarsveitirnar.
62 hafa vprið
líflátnir í íran
Teheran, Briisael, 14. marz. AP. Reuter.
IIERMENN og byltingarsveitir hrundu í dag árás óþekkts hóps 500
vopnaðra manna á herstöð á landssvæði sem Kúrdar byggja í íran.
skammt frá landamærum íraks. Talið var að hópurinn hafi verið að
sælast eftir vopnum og að hér hafi verið að verki samtök sem ætla að
koma af stað óeirðum í héruðum Kúrda.
Átök stóðu í um sjö klukkustundir. en engar fregnir fóru af
mannfalli.
Yfir 1.000 námsmenn á táninga-
aldri efndu til aðgerða fyrir utan
sendiráð Bretlands í Teheran í dag
til að mótmæla illri meðferð sem
íranir eru sagðir fá þegar þeir
koma til Lundúna. Sex byltingar-
hermenn héldu mótmælendunum í
skefjum og komu í veg fyrir að
þeir kæmust inn á sendiráðslóð-
ina.
íslamskar aftökusveitir töku
fimm embættismenn stjórnar
keisarans af lífi í bítið í morgun.
Þá hafa 62 verið teknir af lífi í
íran frá því að byltingaröflin tóku
völdin í sínar hendur og talið er að
um 200 manns bíði aftöku.
Bazargan forsætisráðherra for-
dæmdi aftökurnar harkalega seint
í kvöld.
Tilkynnt var í Brússel í dag að
jafnaðarkonur í öllum löndum
Efnahagsbandalagsins hygðust
efna til samræmdra aðgerða á
föstudag til að mótmæla misrétti
sem kvenfólk í íran er beitt.