Morgunblaðið - 15.03.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979
3
Enn lækkun
á gasolíu í
Rotterdam
VerSð þó enn hærra en meðalverffið í fyrra
AÐ UNDANFÖRNU hefur orðið nokkur lækkun á skráðu gasolíuverði
á olíumarkaðnum í Rotterdam en verðið er enn langt yfir meðalverði
þeirrar gasolíu, sem seld var hér á landi í fyrra, eða 83,5% hærra. Hins
vegar er skráð verð nú rúmlega 36% lægra en þegar það var hæst 16.
febrúar s.l. eða 225 dollarar hvert tonn af gasolíu en var 352,50
dollarar þegar hæst var.
Samkvæmt upplýsingum Arnars
Guðmundssonar skrifstofustjóra
Olíuverzlunar Islands h.f. lestaði
skip gasolíu- og bensínfarm í
Sovétríkjunum dagana 2.—4. marz
Hjörleifur
fundar með
hugarflugssniði
„MÁNUDAG 12. og þriðjudag
13. mars síðast liðinn boðaði
iðnaðarráðherra til funda-
halds með svoneíndu hugar-
flugssniði (brain — storming)
um viðfangsefnið breytt við-
horf í orkumálum vegna vænt-
anlegra verðhækkana á olíu.
Ætlunin var að fá fram við-
horf um þrjátíu sérstaklega
tilkvaddra manna, sérfræðinga
um orkumál og embættis-
manna, til orkusparnaðar og
þróunarstarfsemi er varðar ís-
lenskar orkulindir og hagnýt-
ingu þeirra."
Framangreind frétt barst
Morgunblaðinu í gær frá
iðnaðarráðuneytinu.
s.l. Þá var verðið allnokkru hærra
eða 291,50 dollarar tonnið, en
töluverð verðlækkun varð hins
vegar í síðustu viku, eftir að
afgreiðslan fór fram. Verð þessa
farms verður því allmiklu hærra
en hefði hann verið lestaður
nokkrum dögum seinna.
Þrír farmar af bensíni, gasolíu
og svartolíu hafa verið lestaðir í
Sovétríkjunum á undanförnum
vikum á svipuðu verði, miklu
hærra en verð þeirra farma, sem
núna eru í sölu. Nýju farmarnir
koma í sölu í apríl n.k. og má þá
búast við talsverðri hækkun á olíu
og bensíni.
Ekki hefur orðið jafn mikil
lækkun á bensíni og svartolíu og
orðið hefur á gasolíunni. Sam-
kvæmt nýjustu skráningum er
bensínverðið 295 dollarar hvert
tonn en fór hæst í 340 dollara og er
lækkunin 13,2%. Svartolíuverð er
skráð 108 dollarar en fór hæst í
113 dollara tonnið og er lækkunin
1,6%. Skráð bensínverð núna er
102% hærra en meðalverð á seldu
bensíni í fyrra og skráð svartolíu-
verð er 44% hærra. Miðað er við
fob-verð í öllum tölum.
Ný reglugerð um aukatekjur rikissjóðs:
Nýskráning bíla kost-
ar 11.200 - gjald fyrir
fasteignasölu 17.000
GEFIN hefur verið út ný reglugerð fyrir aukatckjur ríkissjóðs og
öðlast hún gildi í dag 15. marz. Eru í henni tilgreind gjöld fyrir
opinbera þjónustu svo sem ýmis leyfisgjöld, skfrteinagjöld og
skráningargjöld.
Af einstökum gjöldum má nefna
að leyfisbréf til heildsölu er nú kr.
350 þúsund, til umboðssölu 170
þúsund, til smásölu 87 þúsund og
til lausaverzlunar 70 þúsund. Þá er
leyfisgjald til fasteignasölu kr. 17
þúsund. Leyfi fyrir vínveitinga-
stað er kr. 140 þúsund og fyrir
vínveitingastað til skemmri tíma
en tveggja ára 70 þúsund og leyfi
til vínveitinga þ.e. tækifærisveit-
inga er kr. 3.500. Leyfi til mál-
flutnings fyrir héraðsdómi er kr.
10 þúsund og fyrir Hæstarétti kr.
52 þúsund, leyfi til að stunda
almennar lækningar og tannlækn-
ingar er kr. 10 þúsund og fyrir
sérfræðistörf í þessum greinum kr.
52 þúsund.
Skírteinagjöld eru allt frá 1.700
krónum upp í 17 þúsund og kosta
t.d. flugumferðarstjóraskírteini og
skírteini til kvikmyndasýninga kr.
1.700, og meistarabréf og flug-
stjóraskírteini kosta kr. 17 þús-
und. Þá kostar skráning hlutafé-
laga og samvinnufélaga kr. 35
þúsund, nýskráning og umskrán-
ing bifreiða innan umdæmis kost-
ar kr. 11.200 en skráning milli
umdæma og skráning eigenda-
skipta kosta kr. 5.600 og skráning
atvinnuflugvélar kostar kr. 17
þúsund og einkafíugvélar kr. 7
þúsund.
Fyrir borgaralega hjónavígslu
skal greiða kr. 3.500, fyrir saka-
vottorð kr. 600 og fyrir veðbókar-
vottorð kr. 900.
Reykjavíkurborg:
650 þúsund dollara lán
til kaupa á skuttogara
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að borgarsjóður taki erlent lán
vegna Bæjarútgerðar Reykjavík-
ur til kaupa á skuttogara frá
Portúgal samkvæmt leyfi við-
skiptaráðuneytisins frá því í
febrúar.
Lánið verður að upphæð 650
þúsund bandarískir dollarar, og
skal það að fullu greitt í september
1980. Vextir verða 5—8% umfram
almenna millibankavexti í London
á hverjum tíma.
Borgarráð hefur falið borgar-
stjóra að undirrita lánssamning og
önnur skjöl vegna lántökunnar, en
borgarstjóri getur véitt öðrum
aðila umboð til að undirrita láns-
skjöl.
Þessi samþykkt var gerð á fundi
borgarráðs þann 9. marz, með
þremur samhljóða atkvæðum.
DAGUR
ÍTALÍU
ísamvinnu viö ftölsk feröamálayfirvöld gengst
ÚTSÝN fyrir ítalíukynningu í Súlnasal Hótel
Sögu, sunnudag 18. marz.
FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
Kl. 13.30 Húsiö opnaö. Ókeypis happdrættismiöar afhentir
öllum gestum, vinningar ítölsk leikföng og ítalíu-
ferö.
Kl. 14.00 Síödegisskemmtun fyrir alla fjölskylduna. Léttar
veitingar á boöstólum. Öll börn fá
ÚTSÝNAR-merki.
★ Kvikmyndasýning
★ Danssýning: íslandsmeistarar unglinga í diskó-dansi 1979
sýna nýjustu dansana.
★ Glæsilegt leikfanga- og feröabingó: Vinningur ítölsk
leikföng og ítalíuferö
Ath. — Foröist þrengsli og óþægindi — borðapantanir í síma
25017 kl. 16—18 á föstudag.
KV0LDDAGSKRA:
Kl. 19.00 Húsiö opnað. Hressandi drykkir og
lystaukar.
Kl. 19.30 Veizlan hefst stundvíslega meö ítölskum
kvöldverði: Jambon de parme
ialla Trentina .....
Verð aðeins kr. 3.500.-
• v i
★ Tízkusýning: MODEL 79“
sýna ítalskan tízkufatnaö frá MOONS og herraföt frá „SAUTJÁN"
★ Skemmtíatriöi: Söngvararnir Hjálmtýr Hjálmtýsson og
Soffía Guðmundsdóttir syngja íslenzk og
ítölsk lög.
mw
* Myndasýning og ferðakynning:
Forstjóri Útsýnar sýnir myndir frá ítalíu
og kynnir glæsilega nýútkomna feröaáætlun j
Útsýnar 1979 meö ótrúlegum feröatilboöum
á eftirsóttustu sumarleyfisstaöina.
★ Danssýning: Sigurvegarar í 3ju umferö hóp- og para-danskeppni
Útsýnar og Klúbbsins sýna diskó-dansa.
’ Hinn óviöjafnanlegi bráöfyndni Ómar Ragnarsson með nýja skemmtiskrá.
★ Bingó: Spilaö veröur um 3 glæsilegar Útsýnarferöir.
★ Feguröarsamkeppni: Ljósmyndafyrirsætur Útsýnar. Stúlkur úr hópi gesta. 10 Útsýnarferöir í vinning.
Forkeppnl.
DANS TIL KL. 01.30.
Hin bráðskemmtilega
hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og
Þuríður Sigurðardóttir leika og syngja
fjölbreytta tónlist við allra hæfi.
MISSIÐ EKKI AF STORKOSTLEGRI
SKEMMTUN OG MÖGULEIKUM Á
ÓKEYPIS ÚTSÝNARFERÐ.
Ath. Allir gestir fá ókeypis happdrættismiða. Vinningur dregið kl.
20.00 og 23.00 Útsýnarferð til Italíu.
Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir aðeins rúllu-
gja,d- VÚTSl
Tryggiö ykkur borð tímanlega hjá yfirþjóni í síma
.20221 frá kl. 15.00 í dag.
NrSaikrifitofin