Morgunblaðið - 15.03.1979, Side 5

Morgunblaðið - 15.03.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979 5 Blöðum Vöku stolið? TALSVERÐ brögð virðast haía orðið að því að blað Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta við Háskóla íslands hafi ekki komist til viðtakenda. í gær fannst til dæmis bunki af blöðum í Tóna- bíói, en þau höfðu verið póstlögð og send á nafn til viðtakenda er búa á Nýja-Garði. Vökustúdentar hafa kært málið til póstmeistarans í Reykjavík, en skrifstofustjóri póstmeistara sagði í gær, að líklegast væri að hér væri um skemmdarverk að ræða, það er að einhverjir hafi tekið blöðin áður en þau komust í hendur viðtakenda. Ekki er vitað hvort frekari brögð hafa verið að því að blöðin hafi verið tekin, en nokkrir tugir blaða fundust sem fyrr segir í Tónabíói í gærdag. Kosningar fara fram í Háskól- anum í dag, og hafa menn leitt að því getum, að ef til vill séu andstæðingar Vöku nú orðnir ugg- andi um sinn hag, að þeir vilji koma í veg fyrir að skoðanir þeirra komist til stúdenta. Þeir stúdentar sem ekki hafa fengið Vökublaðið heimsent eru vinsamlega beðnir að hafa sam- band við skrifstofu Vöku, og verð- ur þeim þá sent blaðið að nýju. Ritstjóri Tímans dæmdur fyrir meiðyrði NÝLEGA haía verið kveðnir upp dómar í tveimur meiðyrðamálum, Sönnunarbyrði í þessu máli er sem höfðuð voru á hendur ÞÓRARNI Gunnleifi Jóhanni háttað verður að telja ósannað, að ÞÓRARINSSYNl, Hofsvallagötu 57, Reykjavík, ritstjóra og ábyrgðar- hin umstefndu ummæli hafi sann- Vökublöðin sem send voru í pósti tii nemenda í Háskólanum en manni dagblaðsins Tímans í Reykjavík. Voru málin höfðuð fyrir leiksgildi." fundust í Tónabfói. sakadómi Reykjavíkur og bæjarþingi Reykjavíkur vegna meintra ærumeiðandi ummæla um tvo opinbera starfsmenn f Timanum 14. aprfl 1976, þá KRISTJÁN PÉTURSSON deildarstjóra í toilgæzlunni á Keflavíkurflugvelli og Matthías HAUK GUÐMUNDSSON þáverandi rannsóknarlögreglumann f Keflavík. MARQIR HALDA AÐ Bros hf. gefur út nýja Siggu Viggu „FJÖRUTÍU og sjö snúð- ar“ nefnist ný bók um Siggu Viggu og tilveruna eftir Gísla J. Astþórsson. Útgefandi er Bros h.f. í frétt frá útgáfunni seg- ir m.a.: „Þetta er önnur bókin í myndaflokknum „Sigga Vigga og tilveran" en sú fyrri kom út fyrir ári síðan. GJÁ er velþekktur fyrir ritstörf sín og teikningar, sem hann vinnur jöfnum höndum með blaðamennsk- unni. Af teiknisyrpum hans er Sigga Vigga eflaust kunnust og svo hið vikulega „Þankastrik", en hvort tveggja birtist í Morgun- blaðinu, einnig má nefna „Plokkfiskinn" sem birtist í Sjávarfréttum. Auk þeirra upplýsinga um Siggu Viggu og félaga hennar sem má finna á baki bókarinnar, má benda á að baksvið myndasögunnar er sótt í höfuðatvinnuveg okkar ís- lendinga og er raunar aug- ljóst að höfundur er ekki með öllu ókunnur hnútun- um þar, þó að sviðið sé að sjálfsögðu allnokkuð ýkt eins og vera ber. Þá fer hitt heldur ekki á milli mála að þótt skopið sé efst á baugi í þessari myndasögu, þá þarf ekki að kafa djúpt á stundum til þess að finna þar lúmskan „brodd" eða jafnvel ádeilu. Af vinnu- brögðum má sjá að GJÁ leggur mikla vinnu í teikn- ingarnar, þó að þetta hafi í upphafi einungis verið hugsað sem tónistunda- gaman. En þetta er nú orðin ein elsta og lífseig- asta myndasagan sem hér hefur birst eftir íslending." Ummæli þau sem hér um ræðir birtust í nafnlausu lesendabréfi umræddan dag undir fyrirsögn- inni: „Dýrlingur og James Bond íslands". í greininni var fjallað um þá Kristján og Matthías Hauk og starfsaðferðir þeirra. Þar sem hér áttu hlut að máli tveir opinberir starfsmenn höfðaði ríkissaksókn- ari opinbert mál fyrir sakadómi Reykjavíkur á hendur Þórarni Gunnleifi Jóhanni Þórarinssyni, þar eð hann taldi greinina í heild bæði móðgandi og ærumeiðandi gagnvart þessum tveimur opin- beru starfsmönnum og þó einkum 9 þættir í greininni. Var krafizt að ákærði yrði dæmdur til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar. Voru dæmdar miskabætur Ennfremur höfðuðu Kristján og Matthías Haukur einkamál fyrir bæjarþingi Reykjavíkur þar sem þeir kröfðust þess að ummælin yrðu dæmd ómerk og þeim yrðu dæmdar samtals 2,8 milljónir í skaða- og miskabætur svo og málskostnaður. Halldór Þorbjörnsson yfirsaka- dómari kvað upp dóm í málinu í sakadómi Reykjavíkur og var Þór- arinn Gunnleifur þar dæmdur í 25 þúsund króna sekt, sem greiðast skyldi í ríkissjóð og dæmdur til Listdansar- ar fá inn- göngu í FÍL Aðalfundur félags íslenskra leikara var haldinn 19. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var m.a. ákveðið að listdansarar Þjóðleik- hússins fengju inngöngu í félagið, en auk leikara eru fyrir í félaginu óperusöngvarar og leikmynda- teiknarar. Stjórn félagsins skipa nú: Gísli Alfreðsson, formaður, Guðmundur Pálsson varaformaður, Sigurður Karlsson ritari, Bessi Bjarnason gjaldkeri og Þóra Friðriksdóttir meðstjórnandi. greiðslu sakarkostnaðar. Friðgeir Björnsson borgardómari kvað upp dóm í málinu í bæjarþingi Reykja- víkur og var fyrrnefndur Þórarinn þar dæmdur til þess að greiða Kristjáni Péturssyni 190 þúsund krónur í miskabætur og Matthíasi Hauki Guðmundssyni 90 þúsund krónur í miskabætur. Ennfremur var hann dæmdur til þess að greiða 90 þúsund krónur í máls kostnað. Þá voru ummæli þau, sem fram komu í umræddu lesenda- bréfi Tímans dæmd ómerk. Rannsókn í sakadómi Þess skal að lokum getið að fram fór í sakadómi Reykjavíkur að kröfu ríkissaksóknara rannsókn á því hvað hæft væri í þeim ummæl- um, sem fram komu í margnefndri blaðagrein og var ákæra saksókn- ara byggð á niðurstöðum þeirrar rannsóknar. Um þetta atriði segir svo í dómi bæjarþings: „Eins og að framan er rakið fór fram í Sakadómi Reykjavíkur rannsókn, sem stefnendur lögðu fram í þessu máli, á „sannindum eða ósannindum" þeirra ummæla sem krafist er að ómerk verði. I þeirri rannsókn kom fram, að höfundar umræddrar blaðagreinar voru tveir, þeir Árni Yngvason, verslunarmaður og Oddur Ólafs- son, blaðamaður á Tímanum. í því skyni að staðreyna „sannindi eða ósannindi" blaðagreinarinnar og önnur atriði er rannsóknin beind- ist að voru yfirheyrðir bæði sak- borningar og vitni, sem stefnendur höfðu yfirheyrt og/eða gert húsleit hjá við rannsókn svokallaðra spíramála. í framburði nokkurra þeirra sem yfirheyrðir voru komu fram fullyrðingar um rannsóknar- aðferðir stefnenda, svipaðs eðlis og einstök hinna umstefndu ummæla. Stefnendur voru og yfirheyrðir fyrir Sakadómi Reykjavíkur. Þeir neituðu með öllu að hafa beitt ólögmætum rannsóknaraðferðum. Af hálfu stefnda sjálfs hafa ekki verið færð fram nein sönnunar- gögn um sannleiksgildi ummæl- anna. Eins og sönnunarfærslu og MATALARAR SC(J AÐEINS FYRIR ATVINNLJMCNN ■ • •• FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 en auðvitað geta allir þeir sem vilja vandaða og nákvæma hátalara, notið þess að hlusta á AR hátalara í stofunni heima hjá sér. Það eru góð meðmæli að atvinnumenn eins og Judi Collins, Miles Davis og Herbert von Karajan skuli velja sér AR til einkanota, því þeir vilja aðeins það besta, hin þjálfaða heyrn þeirra krefst þess. AR hátalarar eru á góðu verði - gæðin getur þú verið viss um - VELJIÐ AR HÁTALARA. 1 SENDUM BÆKLINGA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.