Morgunblaðið - 15.03.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979
13
Ég séþig
á minn hátt
Pelle Petersen:
Ég sé þig ekki
Þýðendur: Andrea Þórðardóttir
og Gísli Helgason
Bjallan Reykjavík 1978
Bók þessi er rituð í frásagnar-
formi. Blind telpa segir frá dag-
legu lífi sínu. — „Ég hef alltaf
verið blind. Ég er óhrædd við það
sem þú kallar myrkur."
í byrjun bókarinnar bregður
höfundur upp mynd af hegðun
þess sjáandi, er hann vaknar í
niðdimmu herbergi — viðbrögðum
hans og athöfnum uns hann finnur
slökkvarann og kveikir ljósið.
Markviss er tilraun höfundarins
að koma hinum sjáandi til að
nema staðar — hugsa og reyna að
skilja meðbræðurna, sem hafa
Bökmenntlr
eftir JENNU
JENSDÓTTUR
orðið fyrir þeirri lífsreynslu að lifa
í myrkri.
Telpan blinda leggur mikla
áherslu á að tilfinningalíf þeirra
blindu sé hið sama og hinna
sjáandi. Þeir skynja umhverfi sitt
á eðlilegan hátt, læra að varast
það sem varast ber, læra að
ferðast um í sinni veröld, sem
oftast er þrengri og takmarkaðri
en þeirra sjáandi.
Með það í huga að bókin byggir
á frásögn þess, sem lifir í myrkri
og á ekki aftur kvæmt þaðan, er
það umhugsunarvert hve þessir
meðbræður okkar eiga sér oft
bjartan heim — innan marka getu
sinnar. Sú geta er oft ótrúleg og
undraverð.
Öll frásögn blindu telpunnar
undirstrikar líka það sem vitað er
í samskiptum við fatlað fólk, hver
sem fötlunin er, að heimur þess og
hamingja mótast af því hver
afstaða hinna heilbrigðu er til
þeirra. Það er minni erfiðleikum
bundið fyrir hinn blinda að koma
eðlilega fram í mörkuðu umhverfi
sínu, en það virðist vera þeim
sjáandi að sýna blindum eðlilega
framkomu og virða getu þeirra og
sjálfbjargarviðleitni: „Það er eins
og menn séu hræddir við blinda og
aðra fatlaða. Þeir vita ekki hvað
þeir eiga að segja. Ég finn hvað
þeir verða oft vandræðalegir. En
það á auðvitað að ungangast
fatlaða eins og annað fólk“.
Það kemur raunar alls staðar
fram í sambandi við hvers kyns
fötlun að mistök þjóðfélagsins
gagnvart þessum meðbræðrum,
eru fyrir getuleysi, skilningsleysi
og oft gjörsamlega ranga fram-
komu þeirra heilbrigðu.
Með útgáfu þessarar bókar hef-
ur Bjallan enn sýnt hve vönd hún
er að virðingu sinni með bókaval
— og skyggn hún er á vanrækta
þætti í samfélagi okkar, sem þörf
er á að taka til gagngerrar athug-
unar. Bók þessi á brýnt erindi við
alla þá sem heilbrigðir eru. Hún er
nauðsynleg uppalendum og leið-
beinendum — foreldrum og
kennurum, til að lesa með börnum
og unglingum — reyna að vekja
hjá þeim eðlilegt viðhorf til þeirra,
sem vegna einhvers konar fötlunar
geta ekki lifað lífinu á sama hátt
og þeir heilbrigðu. — Leiða börn
og unglinga til þess sannleiks, að
það hefur enginn beðið um að hafa
skerta lífskrafta — andlega eða
líkamlega. En þeim sem sæta slíku
er þörf á eðlilegu viðmóti skilningi
og mannlegri virðingu. Þvinguð,
fálmandi framkoma og
meðaumkvun í þeirra garð er það
versta sem hægt er að sýna þeim.
Þýðendur hafa unnið verk sitt
vandlega. Margar ljósmyndir af
blindu telpunni, félögum hennar
og umhverfi veita textanum
greiðari aðgang að hug lesanda,
festa hann betur í minni.
Fræðslukaflinn um augað ásamt
skýringar-teikningu er að mínu
mati mikils virði.
Þessi bók Palle Petersen vakti
mikla athygli í Danmörku og
vonandi á hún einnig eftir að gera
það hér.
A/klæðning er fáanleg í mörgum fallegum litum sem eru inn-
brenndir og þarf aldrei að mála.
A/klaeðning er seltuvarin og hrindir frá sér óhreinindum.
Fáanlegir eru ýmsir fylgihlutir með A klæðningu sem hefur þurft að
sérsmíða fyrir aðrar klæðningar, auk þess er hún þykkari og þolir
því betur hnjask. A/klæðning hefur sannað yfirburði sina,
og reynst vel í íslenskri veðráttu.
Leitið nánari upplýsinga og kynnist möguleikum A/klæðningar.
Sendið teikningar og við munum reikna út efnisþörf og gera verð-
tilboð yður að kostnaðarlausu.
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012.
TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400.
r
v
Þessi nýtízkulega hannaða myndavél
með handfanginu er með innibyggðu
eilífðarflassi, þannig að þú stillir
á flassmerkið og styður svo á takkann
og tekur allar þær myndir sem þig langar til.
Handfangið gerir vélina stöðugri
og hjálpar þér til að taka skarpari myndir.
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆ AUSTURVERI
S: 20313 S: 82590 S: 36161
Umboðsmenn um land allt
_________________________________J
Verð
með 2 rafhlöðum og einni filmu:
Kr. 24.700.00
Kodak
ektra22ef
myndavélin
MEÐ INNIBYGGÐU
EILÍFÐARFLASSI