Morgunblaðið - 15.03.1979, Page 18

Morgunblaðið - 15.03.1979, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979 Bessí Jóhannsdóttir: Óstarfhæfur meirí- hluti í Æskulýðs- ráði Reykjavíkur Ástandið í Æskulýðsráði er orðið slíkt hjá nýja meirihlutanum að ekki er hægt að una við það. Fundartími íer í innbyrðis deilur formanns og fulltrúa Alþýðu- bandalags. Virðist vera svo komið að þessir aðilar geti ekki rætt lengur saman. Formaður ráðsins, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, meinaði á síðasta fundi Kristjáni Valdimars- syni að gera bókun í máli sem upp kom á fundinum. Afgreiða átti á þessum sama fundi mánudaginn 11. mars sumardagskrá ráðsins. Virtist þar ríkja algjört stefnu- leysi og fór svo að málinu varð að fresta í heild til næsta fundar. Verður að ætlast til þess að ekki verði á ný haldinn fundur fyrr en starfhæfur meirihluti er í ráðinu. Það er öllum ljóst sem vilja líta raunsætt á málið að sundurlyndi er síst til þess fallið að efla æskulýðsstarf í Reykjavíkurborg. Tónabæjarmálið Sífellt var klifað á því fyrir kosningar síðastliðið vor af fram- bjóðendum vinstri flokkanna að gera þyrfti stórátak í málefnum unglinga í borginni. Þetta virðist hafa gleymst eftir kosningar eins og svo margt annað. Málefni Tóna- bæjar voru mjög á dagskrá hjá Æskulýðsráði á síðasta kjörtíma- bili. Formaður ráðsins, Davíð Oddsson, beitti sér fyrir því að varanleg lausn fyndist á því máli. Á fundi Æskulýðsráðs þ. 6. september 1976 var kjörin nefnd til að gera tillögur varðandi fram- tíðarhlutverk staðarins. Nefndin skilaði ítarlegri greinargerð til ráðsins og mælti með því að tilraun yrði gerð með áframhald- andi rekstur staðarins. Skipuð yrði Tónabæjarnefnd sem yrði ráðgef- andi um starfið. Leitast yrði við að auka fjölbreytni í rekstri staðarins og laða til hans unglinga 15—19 ára. Nefndin mælti alfarið á móti því að staðurinn yrði seldur. Æskulýðsráð og borgarráð féll- ust á tillögur nefndarinnar. Rekstur Tónabæjar Eftir að Tónabæjarnefnd tók til starfa var reynt að brydda upp á ýmiss konar nýmælum í starfi hússins. Þetta mistókst af ýmsum orsökum. Má þar nefna að húsið í núverandi ástandi er mjög illa fallið til hvers konar starfs annars en dansleikjahalds. Á meðan húsið er rekið sem danshús er ímynd þess slík í augum unglinganna. Bessí Jóhannsdóttir. Það virðist svo vera að ungmenni eldri en 17 ára hafi í önnur hús að venda til skemmtanahalds eða að þau séu orðin leið á Tónabæ. Aðsóknartölur sýndu stöðugt minnkandi nýtingu staðarins. Könnun sem gerð var á árinu 1976 um aldur og lögheimili gestanna leiddu í ljós að 20—30% þeirra komu frá öðrum sveitarfélögum en Reykjavík. Verður að líta svo á að það sé ekki hægt að una við það að nágrannasveitarfélögin sendi ung- menni sín til Reykjavíkur til skemmtanahalds. Mikið ónæði og talsverð áfengisnotkun fylgdu jafnan dansleikjahaldi á staðnum. Hefði verið lærdómsríkt fyrir foreldra að koma á staðinn og kynnast ástandinu, einkum utan dyra. Þar safnaðist að jafnaði fyrir sá hópur sem ekki fékk inngöngu einkum vegna aldurs og lét þá gjarnan illum látum. Grundvöllur brostinn Þegar leið á árið 1977 var ljóst að nýting af Tónabæ gat ekki réttlætt áframhaldandi starfsemi á staðnum. Hugmyndir voru uppi um að kaupa minni stað, sem nýta mætti betur. Allir voru á einu máli um að vegna ónæðis er af slíkri starfsemi stafar ætti hann ekki að vera í miðju íbúðarhverfi. Miklar umræður fóru fram um þetta mál í Tónabæjarnefnd og Æskulýðsráði. Var að lokum samþykkt á fundi í ráðinu þ. 20. des. 1977 tillaga formanns, Davíðs Oddssonar, um sölu á eignarhluta borgarinnar í Skaftahlíð 24, „fáist viðunandi verð fyrir og andvirðinu verði varið til uppbyggingar æskulýðs- starfs í borginni skv. nánari tillögum Æskulýðsráðs til borgar- ráðs.“ Borgarráð féllst á þessa máls- meðferð og var staðurinn auglýst- ur. Ekkert tilboð barst og stóðu mál þannig er gengið var til kosninga síðastliðið vor. Vinstri meirihluti Nýr meirihluti í Æskulýðsráði undir forustu Sjafnar Sigur- björnsdóttur tók sér rúman tíma til að kynna sér vandamál Tóna- bæjar eins og vænta mátti. 5. september 1978 var kosin nefnd til að gera tillögur um framtíðar- rekstur staðarins. Þessi nefnd skilaði tillögum sínum til Æsku- lýðsráðs þ. 24. okt. 1978 og voru þær mjög ítarlegar. Var þar mjög stuðst við tillögur og gögn frá fyrri Tónabæjarnefnd. Arkitekt og verkfræðingar gerðu athugun á staðnum. Fengnar voru upplýsing- ar frá Þróunarstofnun um aldurs- skiptingu í nærliggjandi skóla- hverfum. Nefndin mælti með því sem valkosti númer eitt að staðn- um yrði breytt í félagsmiðstöð á árinu 1979. Kostnaður vegna breytinganna var áætlaður 34 milljónir króna. Ef aðeins yrði um áframhaldandi diskóteksrekstur í húsinu auk almennrar félagsstarf- semi var kostnaður áætlaður vegna breytinga og rekstrar tæpar 45 milljónir króna. Hlaut því að vera rökrétt að velja félags- miðstöðvarleiðina, enda er ekki líklegt, að ef Tónabær væri ekki fyrir hendi, að menn samþykktu að reka slíkt hús til dansleikja- halds eingöngu fyrir fé skattborg- aranna. Æskulýðsráð samþykkti þessa tillögu og var henni vísað til borgarráðs. Málið var lagt fyrir í borgarráði þ. 31. okt. 1978. Sfðan hefur ekkert gerst. Meirihlutanum til skammar Það virtist sem allt gengi á afturfótunum hjá nýja borgar- stjórnarmeirihlutanum við af- greiðslu fjárhagsáætlunar fyrir 1979. Þetta sýndi sig einnig í raun, Tónabær gleymdist algjörlega, ekki var króna sett til að reka hann áfram. Ekki virðist einu sinni eiga að sinna lágmarkskostn- aði við rekstur fasteignarinnar. Heyrst hefur á skotspónum að selja eigi staðinn og munu ein- hverjir aðilar hafa sýnt áhuga sinn á staðnum. Margir aðilar hafa viljað halda dansleiki í húsinu, og var unnt að verða við nokkrum slíkum beiðnum. Á fyrr- nefndum fundi ráðsins þ. 11. mars 1979 voru lagðar fram beiðnir frá tveimur aðilum þessa sama efnis. Ekki var unnt að afgreiða þær vegna aðgerðarleysis borgarráðs og er það mjög miður. I umræðum um þetta mál í ráðinu á sama fundi ásakaði formaður ráðsins, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Alþýðu- bandalagið fyrir að eiga sök á því hvernig komið er í þessu máli. Fulltrúar Alþýðubandalags í ráð- inu brugðust mjög illa við þeim ásökunum og töldu að mestu ylli slæleg framganga formanns sjálfs. Þannig er nú staðan í dag en hver veit nema við lesum um niður- stöður málsins í einhverju dag- blaðanna innan skamms. Lýðræði hinna nýju stjórnenda Reykja- víkurborgar er slíkt að engan skyldi undra næsta leik. Hér dunar dansinn í Stapa, er þroskaheftir voru þar á skemmtun í boði félagsheimilisins. Þroskaheftir á balli í Stapa ÞROSKAHEFTUM var nýlega boðið til Suðurnesja í skemmti- ferð í boði Guðjóns Vaidimars- sonar, forstjóra félagsheimilis- ins Stapa og konu hans, Ásdís- ar Þorgilsdóttur. Er þetta annað árið í röð sem þau bjóða þroskaheftum í slíka ferð. Þau hjónin fengu í lið með sér starfsfólkið í Stapa og Kvenfél- agið í Njarðvík til að undirbúa skemmtunina, en einnig hlupu húsmæður af Suðurnesjum undir bagga við ýmsan undir- búning, svo sem kökubakstur. Skemmtunin hófst með því að_ hljómsveitin Astral lék fyrir samkomugesti, sem voru um fjögur hundruð. Eftir að dans- inn hafði dunað um stund var fólkinu síðan boðið upp á ýmsar kræsingar, kaffi, tertur og fleira. Salirnir í Stapa voru fallega skreyttir í tilefni heimsóknar- innar, og virtust gestirnir skemmta sér hið bezta, og hefur þegar verið ákvaðið að endur- taka skemmtunina að ári. Fréttabréf frá Djúpi: Fagranesið í sinni fyrstu ferð eftir að hafa legið í slipp Bæjum, 10. marz 1979 DJÚPVERJAR fögnuðu hér gömlum og góðum vini sl. þriðjudag, en þá kom farkostur þeirra, Fagranesið, í sína fyrstu ferð hér í Djúpið eftir að hafa legið í slipp í Reykjavík síðan í desember sl. en þá átti að athuga vélaröxul skipsins, sem reyndist þá það mikið boginn að smíða varð nýjan öxul úti í Noregi. Eftir ferð hér í Djúpið sl. föstu- dag fóru skipstjóri, stýrimaður og annar vélstjóri _sama daginn með flugvél Arna á Isafirði og lestuðu þar skipið í snarheitum á laugar- dag og voru komnir til ísafjarðar um hádegi á sunnudegi. Stóðst það á endum, að byl gerði svo vestur- leiðin eftir mjólk lokaðist, svo að áfram var haldið í áætlunarferð á mánudag vestur — og Djúpið á þriðjudag. Mjóifjörður er lokaður ferðum bátsins fyrir ís, sem legið hefir þar í mestallan vetur, algerlega ísi- lagður út undir eyjar. Verða Mjó- firðingar að fara út í Ögur að bátnum. Góð tíð hefur verið hér í vetur, en frosthart með köflum. Vegir oftast færir um Djúpið. Jens í Kaldalóni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.