Morgunblaðið - 15.03.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.03.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979 23 CARTER Á RÁÐHERRAFUNDI. Jimmy Carter á fundi með ísraelsku ríkisstjórninni á sunnudag í skrifstofu Menachem Begins forsætisráðherra. Fundurinn var haldinn áður en viðræður þeirra um friðarsamning ísraelsmanna og Egypta hófust. Við hlið Begins lengst til vinstri sitja Moshe Dayan utanríkisráðherra og Josef Burg innanríkisráðherra. Carter situr á milli Cyrus Vance utanríkisráðherra og Zbigniew Brzeszinski, ráðgjafa í þjóðaröryggismálum. Kínverjar gera árásir á svæði sem þeir yfirgefa Bankok, 14. marz. AP. KÍNVERJAR héldu áfram brott- flutningi sínum frá Víetnam í dag, gerðu árásir á svæði sem þeir hörfuðu frá og urðu fyrir áreitni Víetnama að sögn sérfræð- inga í Bangkok. En í Hanoi er sagt að Kínverjar muni halda kyrru fyrir í sex landamærahéruðum. Víetnamar segja að þeir hafi fellt eða sært 1.100 Kínverja og eyðilagt 104 herbíla í hörðum bardögum á mánudag og þriðjudag á Lao Cai-svæði, 150 km norðvestur af Hanoi, nálægt landamærunum. Fréttaritari víetnamska út- varpsins kveðst hafa séð kínverska hermenn reisa varnarvígi undan- 45týndulífií brotlendingu Doha, Qatar, 14. marz. AP. FARÞEGAÞOTA jórdanska flugfélagsins brotlendi þegar hún reyndi að lenda í Doha í furstaríkinu Qatar við Persaflóa í dag og 45 af 64 sem voru í þotunni biðu bana. Sjónarvottar á flugvellinum segir að flugvélin hefði verið að gera þriðju tilraun sína til að lenda þegar hún virtist hrapa skyndilega er hún var í um 30 metra hæð yfir flugbrautinni. Eldur kom upp í þotunni, sem Flugmaðurinn hafði tilkynnt var af gerðinni Boeing 727, en flugturninum að hann ætlaði að björgunarliði tókst að bjarga 19 manns. Þeir voru allar Arabar að tveimur undanskildum sem voru Bretar, önnur þeirra kona sem er hætt komin. Með þotunni voru 49 farþegar, þar á meðal nokkrir Evrópumenn og Bandaríkjamenn auk Araba, og 15 manna áhöfn. Mörg líkin eru óþekkjanleg. fljúga til næsta áfangastaðar síns, Muscat í Oman, ef þriðja lending- artilraunin tækist ekki. Flugvélin var á leið frá Amman til soldán- ríkisins Oman á suðausturhorni Arabíuskaga með viðkomu í Doha. Þrumuveður er algengt i Qatar á þessum árstíma og er það talið líklegasta skýringin á slysinu. farna daga og segir það benda til þess að þeir ætli að hreiðra um sig á landamærasvæðunum. Utvarpið sakar Kínverja um að hafa enn mörg víetnömsk svæði á valdi sínu, halda uppi skotárásum á heimili, eyðileggja samgönguleið- ir, koma fyrir jarðsprengjum með- fram þjóðvegum og sprengja upp brýr á aðalvegum. Sérfræðingarnir í Bangkok segja að kínverskar flugvélar séu á sveimi meðfram landamærunum, en mæt.i ekki mótspyrnu víet- namskra flugvéla. Ekki er vitað hvort þetta eru árásar- eða könn- unarferðir, en samkvæmt sumum heimildum hafa Kínverjar varpað niður vistum til hermanna sinna á undanhaldinu. Kínverjar virðast reyna að tryggja sem best öryggi hermanna sinna á undanhaldinu og mest virðist fara fyrir minni háttar átökum fótgönguliðs og stórskota- einvgjum. Víetnamar veita kín- verska herliðinu eftirför og átökin færast nær landamærunum. Um leið og Kínverjar hörfa frá ein- hverju svæði halda þeir uppi stór- skotaárásum á svæðið til að koma í veg fyrir að Víetnamar leggi það strax undir sig og ógni kínversku hermönnunum. Kínverjar virðast ætla að halda nokkrum landamærastöðvum sem þeir segja að Víetnamar hafi notað til árása inn í Kína. Getum er að því lei'tt að Víetnamar muni reyna að hrekja Kínverja frá þessum stöðvum. Dollar styrkist stöðugt í Tokyo Tokyo, 14. marz. AP. STAÐA Bandaríkjadollars hefur styrkst ótrúlega á gjaldeyrismarkaðinum i Tokyo á s.l. vikum. Við lokun markaða í dag hafði hann hækkað um 3,15 jen á einum sólarhring og var þá seldur á 209,125 jen í stað 205,975 á þriðjudag. Döllar hefur því hækkað um 20% í verði frá því hann komst í lágmark s.l. haust og var seldur á rúmlega 170 jen. Að sögn talsmanns gjaldeyris- svo og vegna hækkunar á olíu. markaða í Tokyo eru helztu ástæðurnar fyrir þessari stöðugu styrkingu dollarans þær fyrst og fremst að skortur er á dollurum vegna gífurlegra kaupa bandaríska seðlabankans á honum fyrr í vetur Þessi bætta staða dollars hefur þó ekki orðið ferðamönnum nein bót því að gífurlegar hækkanir hafa orðið á öllum kostnaði fyrir ferðamenn að undanförnu, t.d. hefur hótelgisting hækkað um 25% frá s.l. sumri. Vinur Jim Jones skaut sig til bana Modesto, Kaliíorníu, 14. marz. AP. MIKE Prokes, fyrrverandi aðstoðarmaður Jim Jones, leiðtoga sértrúar- safnaðarins Musteri alþýðunnar, og einn 80 Bandaríkjamanna sem lifðu af fjöldamorðin í Jonestown í Guyana, skaut sig í höfuðið í gærkvöldi. Hann lézt í sjúkrahúsi þremur tímum síðar. Rétt áður en Prokes skaut sig hafði hann kvartað yfir áreitni FBI og CIA á blaðamannafundi. Á miða sem Prokes skildi eftir kvaðst hann ekki miður sín vegna dauða rúmlega 900 félaga trúarsafnaðarins í nóvember og sagði að hann hefði ákveðið að svipta sig lífi af sömu ástæðum og þeir sem tóku inn eitur í Jonestown. „Ef lát mitt verður ekki til þess að ný bók verði skrifuð um endalokin í Jonestown var líf mitt einskis virði," sagði hann. Prokes hafði nýlokið við að lesa fimm blaðsíðna yfirlýsingu um fjöldamorðin þegar hann skaut sig. Þar sagði, að hljóðritanir frá síðustu klukkustundunum í Jonestown, sem hefðu ekki verið birtar, mundu leiða í ljós að félagarnir í sértrúarstöfnuð- inum hefðu ekki verið neyddir til að svipta sig lífi. Þar sagði einnig, að bandarísk stjórnvöld sætu á hljóðrit- unum þar sem þær gætu komið henni í vanda. „Þau ákváðu að deyja því að það sýndi hugrekki og trú á málstað þeirra," sagði Prokes fréttamönnum. „Þetta fólk dó ekki til einskis," bætti hann við. Hann fór síðan inn í baðherbergi og þaðan heyrðist eitt skot ríða af. Kaldhæðnislegt er að ein af segul- bandsspólunum sem Prokes sagði að setið væri á var birt í sjónvarpsfrétt- um í gær. Þar játaði Jones að hafa skipað að bandaríski þingmaðurinn Leo Ryan skyldi myrtur á Port Kaituma flugvelli. Fyrning morða nazlsta afnumin Bonn, 14. marz. AP. FRUMVARP um að afnumin verði fyrning morða í Vestur-Þýzkalandi og áfram haldið að leita að morðingjum nazista í óákveðinn tíma var lagt fram á þingi í dag og stuðningsmenn þess segja að það njóti stuðnings meirihluta þingsins. Morð fyrnast á 30 árum samkvæmt gildandi lögum sem stríðsglæpamenn nazista eru lögsóttir eftir og þau falla úr gildi f lok ársins. Morðingja, sem ekki tekst að hafa uppi á fyrir 31. desember, verður ekki hægt að leiða fyrir rétt. Andstæðingar laganna segja, að þúsundir morðingja nazista sem hafi tekizt að leyna ódæðum sínum í stríðinu muni geta sloppið við refs- ingu ef lögin verði áfram í gildi. Tillagan um niðurfellingu laganna var undirrituð af 215 þingmönnum Sósíaldemókrataflokksins og Frjálsa demókrataflokksins í neðri deild þingsins. Um 30 þingmenn kristi- legra demókrata hafa lýst yfir stuðningi við frumvarpið og fleiri íhaldsmenn hafa lýst yfir áhuga á að styðja það. Til þess að frumvarpið verði að lögum þarf það stuðning meirihluta þingsins eða 259 þingmanna ef allir þingmenn verða viðstaddir þegar atkvæðagreiðsla fer fram um það síðar á árinu. FRETTASKYRING Eftir Risto Maenpaa, Helsinki, 14. marz. FINNAR ganga til þingkosninga næstkomandi sunnudag og mánudag. Er það mál manna að íhaldsflokkurinn í stjórnarand- stöðu kunni að vinna stórsigur. Skoðanakannanir að undan- förnu sýna að íhaldsmenn kynnu að bæta við sig allt að tíu þingsætum en þeir hafa nú þrjátíu og fimm sæti. Yrði sú raunin yrði íhaldsflokkurinn annar stærsti þingflokkurinn í Finnlandi á eftir sósíaldemó- krötum en á finnska þinginu; „eduskunta" eru tvöhundruð þingsæti. Pólitískir fréttaskýrendur telja hins vegar ólíklegt að íhaldsflokkurinn taki beinan þátt í stjórn landsins eftir kosn- ingarnar, þrátt fyrir sigur- spárnar. í fyrsta lagi hafa sam- steypuflokkarnir tveir á vinstri vængnum, sósíaldemókratar og kommúnistar, útilokað stjórnar- samstarf með íhaldsmönnum. í öðru lagi má geta þess að mál- gagn sovéska kommúnista- flokksins; Pravda, lét svo um mælt aðeins viku fyrir kosning- arnar að íhaldsflokkurinn gæti aldrei átt aðild að ríkisstjórn „vinsamlegri Sovétríkjunum." I forsetakosningunum á síð- asta ári töpuðu íhaldsmenn fyr- ir Urho Kekkonen forseta og hlutu aðeins 14,7 hundraðshluta atkvæða. Athugasemd Pravda um síðustu helgi sýnir að þeir hafa ekki áunnið sér hylli Moskvuyfirvalda. Þessi sömu ummæli eru á hinn bóginn mjög til þess fallin að veita þeim sóknina léttari á í væntanlegum þingkosningum að því er frétta- skýrendur telja. Síðasta skoðanakönnunin leiddi í ljós að íhaldsmenn fengju 22,7 hundraðshluta at- kvæðanna samanborið við 18,4 hundraðshluta, sem flokkurinn vann í síðustu kosningum fyrir fjórum árum. Ekki er þó talið að sigur íhaldsmanna komi til með að raska valdahlutföllum veru- lega, þar sem búist er við að þeir muni aðallega laða að sér fylgi smærri flokkanna. Er því spáð að stjórnarflokkarnir þrír; sósíaldemókratar, kommúnistar og miðjumenn standi nokkurn veginn í stað. Kosningabaráttan fram að þessu hefur einkum einkennst af ládeyðu og tilbrigðaleysi. Hundrað tuttugu og fimm þús- und Finnar, sem vinna í Svíþjóð, gáfu til kynna almennt áhuga- leysi með því að segjast flestir ætla að sitja heima á kosninga- dag. Hyggja aðeins fimmtán af hundraði þeirra neyta kosninga- réttar síns í samanburði við tuttugu og fimm af hundraði árið 1975. Síðasta skoðanakönnun Gallups spáir eftirfarandi at- kvæðahlutföllum: Sósíaldemó- kratar 24,4, íhaldsflokkurinn 22.7, Kommúnistaflokkurinn 18.8, Miðflokkurinn 18,0, Sænski þjóðarflokkurinn 4,4, Frjáls- lyndi flokkurinn 4,0, Kristilega bandalagið 3,8, Landsbyggða- flokkurinn 1,9, Stjórnarskrár- flokkurinn 1,6, Framtaksflokk- urinn 0,2, Sósíalíski verka- mannaflokkurinn og Einingar- flokkurinn 0,1. Ihaldsflokki spáð sigri í Finnlandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.