Morgunblaðið - 15.03.1979, Page 26

Morgunblaðið - 15.03.1979, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979 Flotvarpa og botnvarpa: Vannýtt skar- kolamið fyrir Vestfjörðum FJÓRIR Vestfjarðaþingmenn, Matthías Bjarnason, Sighvatur Björgvinsson, Gunnlaugur Finnsson og Kjartan Ólafsson, flytja frumvarp til laga þess efnis, að skip, sem eru 20 metrar á lengd eða minni. megi veiða með botnvörpu og flotvörpu á tveimur svæðum úti af Vestfjörð- um á tímabilinu 1. september til 30. nóvember. I greinargerð segir m.a.: „Almennt er talið að skarkola- stofninn sé vannýttur og því eðli- legt að auka með þessum haetti veiðar _ á þekktum skarkola- syæðum. Þegar jafnframt er á það litið, að skip af þeirri stærð, sem hér er lagt til að fari að stunda veiðar á þessum svæðum, hafa takmarkaða möguleika til að stunda aðrar veiðar á þessum árstíma, þegar rækjuveiðar eru bannaðar vegna mikillar seiða- gengdar á hefðbundnum rækju- veiðisvæðum, eins og oft hefur átt sér stað, en þó alveg sérstaklega á þessum vetri hvað snertir báta sem þessar veiðar hafa stundað frá Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi. Á sameiginlegum fundi smábátaeigenda við Isafjarðar- djúp fyrri hluta þessa vetrar var samþykkt að fara þess á leit, að umrædd svæði verði opnuð fyrir botnvörpu og flotvörpu þann árs- tíma, sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir. Nú liggur vel á mér... Seinkun lánsQáráætlunar veld- ur truflunum hjá atvinnuvegum Fj árfestingartakmörk ríkisstj órnar Frumvarp til laga um ráðstaf- anir vegna lánsfjáráætlunar var enn til framhaldsumræðu í neðri deild Alþingis á dagfundi í gær. Umræðunni lauk ekki og var kvöldfundur ráðgerður, ef koma mætti frumvarpinu til nefndar. Tómas Árnason, fjármálaráð- herra sagUF að þegar væri farið að gæta truflunar, einkum f upp- byggingu atvinnuvega, vegna þess, hve seint gengi að þoka þessu þýðingarmikla máli áfram. Skoraði hann á þingnefnd, er fengi málið til umfjöllunar, að hraða afgreiðslu þess sem verða mætti. Markmið ríkisstjórnar Ráðherra sagði m.a. að ríkis- stjórnin hefði sett sér það mark- mið í fjárfestingu 1979, að hún til 25% af vergri þjóðarfram- leiðslu. Við þetta væri lánsfjár- áætlunin miðuð, sem og skatta- stefna stjórnarinnar. Sérstakur skattur á verzlunar- og skrifstofu- húsnæði væri öðrum þræði til að hægja á byggingarframkvæmdum á þeim vettvangi. Svör við gagnrýni Þá svaraði ráðherra ýmis konar gagnrýni, sem fram hafði komið í umræðunni. Hann sagði m.a. að skattar vegna ákvarðana stjórn- valda í desembermánuði sl. yrðu 3910 milljónum króna hærri 1979 en verið hefði ella, þegar búið væri að draga tollalækkanir skv. EFTA-samningi frá tekjuauka ríkissjóðs vegna skatthækkunar. Hann sagði útgjaldahækkun, í tengslum við l.-marz-hækkun launa, vera um 900 m. kr. og gerði greiðslustöðu ríkissjóðs erfiðari í bili. Ráðherra sagði heildarskuldir ríkissjóðs um sl. áramót hafa verið 26 milljarða króna, sem væri 11 milljarða hækkun frá áramótum 1977/78, en í þeirri hækkun væru áhrif gengisbreytinga á erlendar skuldir. Hann sagði núverandi ríkisstjórn hafa átt við ærinn vanda að glíma. Verðbólga hefði verið um 50%. Ástand fiskstofna væri mjög alvarlegt sem og um- framframleiðsla í landbúnaði, olíuverðþróun o.fl. Það væri því erfitt verk að fást við ríkisfjármál og efnahagsmál í heildina tekið við ríkjandi aðstæður. Ráðherra vék að ýmsum atrið- um, s.s. kaupum á flugvél flug- málastjórnar, lánum til þjóðar- bókhlöðu, lánasjóði námsmanna, ferðamálaráði, fjárskorts vegna hitaveituframkvæmda, fiskveiða- sjóði (en fjárþörf hans þyrfti að athuga betur), byggðasjóði, sem nú hefði nærri 4 milljarða til ráðstöfunar, framkvæmdasjóði o.fl. Hann viðurkenndi að nú skorti verulegt fjármagn til að halda sama niðurgreiðslustigi á vöruverði út árið, en það mál væri nú til umfjöllunar í ríkisstjórn. Hann sagði heildarlaunakostnað ríkisins vera áætlaðan 58 millj- arða króna 1979, sem væri um 14 útgjalda. í því efni skorti 1,3 milljarða króna á fjárlagafjárveit- ingu, ef ekki tækist að semja við BSRB um niðurfellingu 3% hækk- unar 1. apríl nk. Hann lagði og áherzlu á, að ekki væri hægt að hverfa að hærra framkvæmdastigi í þjóðarbúinu 1979, nema með samsvarandi hækkun erlendra lána, því innlent fjármagn til þeirrar viðbótar væri ekki til. færi í það heila tekið ekki yfir 24 Veiðiheimildir Færeyinga samþykktar: Uppsögn bolfísk- veiðisamninga var felld 42-13 TILLAGA til samþykktar á gagnkvæmum fiskveiði- heimildum Færeyinga og ís- lendinga (loðna og kolmunni), sem verið hefur til umfjöllunar í Sameinuðu þingi nokkurn tíma, var samþykkt í gær með 48 atkvæðum gegn 6. Breytingartil- laga frá Stefáni Jónssyni (Abl) þess efnis, að jafnframt skuli sagt upp völlum bolfiskveiði- samningum við aðrar þjóðir (Belga, Færeyinga og Norð- menn), var felld að viðhöfðu nafnakalli með 42 atkvæðum gegn 13 en 5 þingmenn vóru fjarverandi. Breytingartillaga Stefáns Jónssonar Breytingartillaga Stefáns Jónssonar (Abl) var þess efnis, að samhiiða því að samþykkja gagn- kvæmar veiðiheimildir Færeyinga og Islendinga á loðnu og kolmunna, skyldi sagt upp, með tilskildum fyrirvara, bolfisk- veiðiheimildum Færeyinga, Norðmanna og Belga. Með þessari tillögu greiddu atkvæði 12 þingmenn Alþýðu- bandalags (af 14) og 1 þingmaður Alþýðuflokks, Ágúst Einarsson. Gegn tillögunni greiddu atkvæði allir viðstaddir þingmenn Sjálf- stæðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðuflokks (utan einn) og 2 þingmenn Alþýðubandalags, Gils Guðmundsson og Kjartan Ólafsson. 5 þingmenn vóru fjar- verandi. Greinargerðir með atkvæðum • Matthías Bjarnason, fv. sjávarútvegsráðherra, gerði grein fyrir atkvæði sínu, efnislega á þessa leið: Ég er andvígur uppsögn á veiðiheimildum Færeyinga. Veiðiheimildir Norð- manna skipta litlu máli, bæði fyrir þá og okkur, enda í höndum sjávarútvegsráðuneytis, hve mikil sú veiði er eða verður. Hins vegar tel ég veiðiheimildir Belga of miklar, miðað við að tilgreindum skipum þeirra hefur fækkað, úr 12 í 8, og þeir hafa ekki getað veitt umsamið afla- magn undanfarið (6.500 tonn). Ég tel rétt að utanríkisráðuneytið, í samráði við sjávarútvegsráðu- neytið, taki upp frjálsar viðræður við Belga um að lækka þetta magn í 4.400 tonn, þar af ekki meir en helmingur þorskur. • Einar Ágústsson fv. utanríkis- ráðherra, sagði að þingflokkur Framsóknarfl. teldi ekki rétt að hnýta uppsögn á bolfiskveiði- samningum aftan í óskylt þing- mál, gagnkvæmar veiðiheimildir á loðnu og kolmunna, og myndi þar af leiðandi greiða tillögunni mótatkvæði. • Kjartan ólafsson (Abl) sagðist samþykkur uppsögn samninga við Belga og Norð- menn. Öðru máli gegndi um Færeyinga, sem hefðu sérstöðu. Hann væri ekki tilbúinn til að hengja slíka uppsagnartillögu aftan á þær gagnkvæmu heimildir, sem hér væru til um- ræðu, og greiddi því tillögunni mótatkvæði. Gils Guðmundsson (Abl), forseti Sameinaðs þings, vitnaði og tii þessarar skýringar, er hann greiddi sitt mótatkvæði. Svejk aðeins á Akranesi Skagaleikflokkurinn fer ekki með „Góða dátann Svejk“ til Sauðárkróks um næstu helgi eins og mishermt var í einum fjölmiðli, heldur verða sýningar á leikritinu á Akranesi n.k. laugardag 17. mars ki. 14 og 19 og sunnudag 18. mars kl. 21. Sýningarnar á laugardag miðast við ferðir Akraborgar kl. 10 og 17. Ekki er fyrirhugað að sýna leikritið utan Akra- ness. Góði dátinn Svejk er gaman- leikur í tveimur þáttum byggð- ur á samnefndri skáldsögu eftir Jaroslav Hasek en Karl ísfeld íslenskaði og umsamdi í leikrit með hliðsjón af leikriti eftir Evan MacColl. Leikstjóri er Jón Júlíusson en með helstu hlutverk fara Guðjón Kristjánsson, Þórey Jónsdóttir, Jóhann Thoraren- sen, Halldór Karlsson og Frið- rik Adolfsson. Anna Björns- dóttir er aðstoðarleikstjóri en Hervar Gunnarsson sýningar- stjóri. Forsíða leikskrár sem Skaga- leikflokkurinn gefur út vegna sýningar á „Góða dátanum Svejk.“ Guðný Svava Guðjóns- dóttir hannaði skrána. Keflavík: Bæjarstjórn- in leyfði ekki vínveitingar Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Áfengisvarnaráði: Eins og flestum sem láta sig áfengismál einhverju skipta mun kunnugt hefur Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin (WHO) hvatt aðildarþjóðirnar til að stuðla að auknum hömlum á sölu og dreif-' ingu áfengis. — Of lítið virðist hafa farið fyrir því að yfirvöld hérlendis tækju mið af þessum tilmælum WHO. — Þau tíðindi berast þó frá Keflavík að þar hafi bæjarstjórn fellt með sjö atkvæð- um gegn einu að heimila vínveit- ingar í samkomuhúsi þar í bæ. Gott er til þess að vita að bæjarstjórn Keflavíkur fylgist með nýjustu stefnumiðum í heil- brigðismálum og tekur afstöðu samkvæmt þeim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.