Morgunblaðið - 15.03.1979, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979
35
Námskeið
Stjómunar-
félagsins
Stjórnunarfélag íslands mun
á næstu tveimur mánuðum efna
til eftirtalinna námskeiða:
12—14/3 Stjórnun I.
19—21/3 Framleiðslustýring og
verksmiðjuskipulagn-
ing.
21—23/3 Fjármál einstaklinga.
26/3 Nýja hlutafélagalög-
gjöfin.
29—30/3 Stjórnun II
2—3/4 Vaxtaútreikningur
og verðbréfavið-
skipti.
8—9 og
17-18/5 Stjórnun III
Allar nánari upplýsingar eru
góðfúslega veittar á skrifstofu
Stjórnunarfélagsins, sími 82930.
Björn Másson
Eimskip;
Kostnaðar-
eftirlitið stað-
sett erlendis
Björn Másson er fulltrúi
Eimskips í Kaupmannahöfn
og hefur hann búið þar ytra
í tæp tvö ár. Hann tjáði
Viðskiptasíðunni í viðtali að
sitt megin verkefni í Kaup-
mannahöfn væri að sjá um
alla afgreiðslu skipanna,
þannig að ekki kæmi til tafa
og aukins kostnaðar. Allt er
þetta gert til að tryggja
megi þá tíðni ferða sem
verið hefur héðan og heim á
undanförnum árum. Á
síðastliðnu ári voru viðkom-
ur skipa Eimskipafélagsins
í Kaupmannahöfn v. frakt-
flutninga 60, en alls komu
skip félagsins 113 sinnum
til Danmerkur á s.l. ári.
Starfið beinist því fyrst og
fremst inn á við en einnig
hef ég með höndum upplýs-
ingastarfsemi við þá aðila
hér í Danmörku sem flytja
vörur til íslands. Meðal
helztu vörutegunda sem
héðan eru fluttar má nefna
sykur, ávexti, nýlenduvörur,
efnavöru og töluvert er um
búslóðaflutninga bæði til og
frá Danmörku því hér eru
margir íslendingar búsettir
sagði Björn Másson að lok-
um.
III I * f 1
Halldór Kristjánsson:
Áfengislöggjöfin
Hilmar Helgason formaður
S.Á.Á. hefur að nokkru orðið við
tilmælum mínum þeim sem Vel-
vakandi birti 17. febrúar að ræða
áfengislöggjöfina og viss atriði
sem hann vill breyta.
Að gefnu tilefni tek ég það fram
að mér finnst óþarfi í almennum
rökræðum að tíunda tilfinningar
sínar gagnvart viðmælandanum.
Ég vil ganga út frá því að almennt
unni menn hver öðrum góðs þó að
skoðanir liggi ekki að öllu leyti
saman. Það þarf alls ekki að vera
af neinni andúð á manninum eða
óvild í hans garð að honum er
mótmælt. Það skiptir engu megin-
máli hverjar eru persónulegar
skoðanir okkar Hilmars Helgason-
ar en það er ástæða til að ræða
áfengislöggjöfina og ýmsar skoð-
anir á henni.
Hilmar segir að áfengislögin séu
samin „til að friða mjög fámennan
hóp templara og bindindismanna".
Þó vona ég að hann viti að allar
breytingar á íslenskri áfengislög-
gjöf í 60 ár hafa gengið gegn
óskum templara.
Ekki skil ég hvað það kemur
rökréttu samhengi þessara mála
við að segja: „Næst hlýtur að
liggja fyrir að semja lög um
landbúnaðarframleiðslu sem hent-
ar Náttúrulækningafélagsmönn-
um“.
Ég held að flestir íslendingar
ættu að vita það nú þegar að
nokkur áhætta fylgir því að venja
sig áfengi og menn ættu líka að
vita að það er óþörf áhætta. Síst
mun ég þó amast við að minnt sé á
þau atriði. En ég held að við
verðum eins og engu síður að
muna það sem dr. Matthías Jónas-
son sagði einhversstaðar að hinir
ungu hlusta ekki á siðaboð og
fyrirmæli eldri kynslóðar en þeir
fylgja fordæmi hennar.
Ég lít á það sem fleipur eitt og
gífuryrði að ég sé „sakhæfur af-
brotamaður" vegna áfengislög-
gjafarinnar. Ég kannast ekki við
að hafa brotið hana og kalla enga
hártogun að mótmæla þeim sakar-
giftum.
Það eru falleg orð hjá Hilmari
að fulltrúar löggæslunnar verði að
geta framfylgt löggjöfinni án þess
að fá á sig stimpil ofsókna og
smámunasemi. Falleg orð, en
hvernig eru þau marktæk? Hvern-
ig gengur þetta í sambandi við
skattalög, umferðalög og tollalög?
Ég minni líka á landhelgislög og
fiskveiðisamþykktir. Það eitt að
minna á þessa lagabálka ætti að
vera nóg til að glöggva okkur á því
að Islendingar hafa alltaf brotið
lög eftir því sem þeir þorðu og
Halldór Kristjánsson.
töldu sér hagnað eða þægindi að.
Áfengislöggjöfina met ég eftir því
hvort hún minnki eða auki
drykkjuskapinn. Það skiptir mestu
hve mikil áfengisneyslan er því að
það er hún og afleiðingar hennar
sem er öll bölvunin. Eins og
Hilmar segir eiga lög að vera
„fyrirbyggjandi afl“.
Hilmar vill beina áfengisneyslu
unglinga og raunar allra frá
brenndum drykkjum og að léttari
vínum. Það segir hann að sé mjög
auðvelt með verðstýringu. Að
þessu hefur verið stefnt síðari ár
með þeim árangri að neysla léttra
vína hefur aukist verulega en
sterkra ekki minnkað. En þetta er
framkvæmdaratriði sem ekki
snertir löggjöfina beinlínis.
Hilmar vill lækka áfengiskaupa-
aldur og mér skilst að hann kalli
það „sjálfsögð mannréttindi" að
mega kaupa áfengi. Hins getur
hann ekki hvenær hann vill að
unglingar fari að njóta þeirra
mannréttinda. Ég held að okkur sé
óhætt að hafa hliðsjón af því að 18
ára mörkin hafa ekki þótt gefast
vel vestan hafs. En ef það éru
sjálfsögð mannréttindi að mega
kaupa áfengi, gildir þá ekki sama
um hass og heróín? Sé ekki svo
langar mig að vita í hverju munur-
inn liggur.
Ég sé ekki að drykkja á heimil-
um og því síður heimilisböl vegna
áfengisnautnar hverfi þó að vín-
veitingahús standi opin allar næt-
ur. Einhverntíma neyðast menn til
að vitja heimila sinna, eða er það
ekki? Hverjar líkur eru til að það
verði því betra sem lengur hefur
verið setið við sumblið?
Meðan löggæslu er þörf hlýtur
það að verða hlutverk hennar að
vaka yfir reglum sem einhvern
langar til að brjóta. Fram hjá því
sé ég ekki að verði komist með
nokkru móti.
Að þessu sinni sé ég ekki ástæðu
til að hafa fleiri orð en þakka
Hilmari það sem hann lét uppi því
að þessi mál á að ræða rækilega.
Halldór Kristjánsson.
Skólamót í skák um helgina
Áfengi er ekki neitt sem varðar
manneldi. Það er nautnameðal
sem ýmsir vilja hafa til ágætis.
Neysla þess er vanabindandi. Það
er því alls ekki sambærilegt við
neina venjulega landbúnaðarfram-
leiðslu.
Það eru ógætileg orð að bruggað
verði „í hverjum koppi og kirnu
þrátt fyrir bann“ „meðan leyft er
að rækta kartöflur og flytja inn
sykur". Það er margt sem hefur
áhrif á vilja fólks til þess að
brugga. Mestu ræður drykkjufýsn-
in en líka hagsmunavon og viðhorf
nágranna.
ÚRSLIT í skólamótinu í
skák, Reykjavíkurriðli,
fara fram í félagsheimili
TR um helgina og hefst
keppnin klukkan 14 báða
dagana. Þetta er ein-
staklingskeppni og hafa
allir skólaskákmeistarar í
grunnskólum Reykjavíkur
þátttökurétt.
Á sama tíma fer fram á
sama stað landsmót fram-
haldsskóla í skák og teflir
hver skóli fram 4 manna
sveitum.
Sigursveitin öðlast
rétt til þátttöku í Norður-
landameistaramóti fram-
haldsskóla.
Loks er þess að geta, að
sunnudaginn 25. marz fer
fram sveitakeppni grunn-
skóla í Reykjavík í skák og
standa Æskulýðsráð og
Taflfélag Reykjavíkur að
keppninni.
Teflt verður í
félagsheimili TR við Grens-
ásveg og hefst keppnin
klukkan 13.30.
OMIC reiknivélin kom á markaðinn fyrir
einu ári, ný vél sérhönnuð samkvæmt
óskum viðskiptavina Skrifstofuvéla h/f.
Móttökurnar voru frábærar. Á örfáum
vikum varð OMIC metsöluvél.
I framhaldi af þessum afburða góða
árangri bjóða Skrifstofuvélar h/f tvær
nýjar gerðir af OMIC reiknivélum: OMIC
210 PD OMIC 210 P
argus
312PD 210PD 210P
OMIC vélar i einfaldari útfærslu en
OMIC 312 PD.
Komið og kynnist kostum OMIC:
33
Við byggjum upp framtíð fyrirtækis þíns.
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
+ —x _ Hverfisgötu 33
s“20560
HVERFISGATA
I « i» t • « I I I |.| I l l l I I I I
K K
* i nifi • « «i» iimmiiimim
<41
i n< • 11 i H i i« i
I • K •
• •- R V1