Morgunblaðið - 15.03.1979, Side 37

Morgunblaðið - 15.03.1979, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979 37 Helgi Kristjánsson: Til Sigurgeirs á Selt j arnarnesi „Birth of a Nation” Ný bók frá Iceland Review Ieeland Review hefur gefið út bókina Birth of a Nation eftir Njörð P. Njarðvík. Bók þessi fjallar um sögu íslands frá upp- hafi til þess tíma er íslendingar gengu Noregskonungi á hönd. Fjallað er um fund landsins og landnám, kristnitökuna, Sturlungaöldina og átök þau er að lokum leiddu til falls þjóðveldis- ins. Gerð er rækileg grein fyrir stjórnskipan landsins á þessum tímum og helstu mönnum sem þar komu við sögu. Þar sem lítið er til af fróðleik um þetta efni á ensku er ekki að efa að bók þessari verður fagnað af þeim fjölmörgu erlendu áhuga- mönnum um Island sem kynnst hafa fornum bókmenntum okkar. Njörður P. Njarðvík Hér fá þeir tækifæri til að kynnast þeim þjóðfélagslega jarðvegi sem þessar bókmenntir spruttu úr. Bók þessi er hin fyrsta í nýjum bókaflokki, Iceland Review History Series. Hún er 96 blaðsíð- ur, í handhægu broti og í henni eru nokkur kort og skýringateikning- ar. Auglýsingastofan h.f. sá um útlit hennar en Prentstofa G. Benediktssonar um setningu og filmuvinnu. Bókin hefur áður komið út á sænsku undir nafninu Island i Forntiden, en ensku þýðinguna gerði John Porter. Kæri flokksbróðir! Við Ólsarar höfum lesið grein þína í Morgunblaðinu, „Ef skyn- semin blundar“. Við erum að mörgu leyti ánægðir með greinina en erum afar missáttir við þá hugmynd þína að kalla þingmenn „Framsóknar-Ólsara", þegar aðeins einn þeirra er slíkur. Þó er verra að forsenda þín fyrir nafn- giftinni virðist vera sú að enginn reikni með neinu frá framsóknar- þingmönnum. Sé svo finnst okkur þú gera fyrrnefndum þingmönnum fullhátt undir höfði með hugmynd þinni, því að við erum hreyknir af að vera Ólsarar og viljum meina að við séum ekki alltaf litlir og lágir. Hitt er svo aftur rétt ályktað hjá þér, að við hér vestra gerum okkur ekki alltaf rellu útaf smámunum og fylgjum gjarnan okkar kapteini þegar hann ákveður þetta eða hitt. Trúlega má líkja framsóknarþingmönnum við okkur að þessu leyti. Vil ég bara kalla þetta húsbóndahollustu og hefur það aldrei til lasta verið talið, en gerist sjaldgæft. Til þess svo að þú haldir nú ekki að við séum öskureiðir eða að ég sé þér ekki að miklu leyti sammála set eg hér dálítið leirhnoð í lokin: AUtaf þynnist flokkur Framsóknar fylgja Ola á þingi nokkrar hræður er segja gjarnan eins og við Ólsarar Amen, það er foringinn sem ræður. Allir fuglar kroppa f hvftan hrafn sá kosið, reytast fjaðrirnar af Óla. Framsókn bráðum setja þarf á safn til sýnis fyrir börn sem ganga f skóla. Helgi Kristjánsson E.s. Er ekki betra að segja mennina vara Ólafa? Vertu svo blessaður, Ilelgi Kristjánsson. Innflytjendur— Danmörk Viljum benda innflytjendum frá Danmörku á aö tilkynnt hefur veriö verkfall hafnarverkamanna í Kaupmannahöfn frá24.marz, um óákveðin tíma. Síöasta skip frá okkur fyrir verkfall er m/s Laxá sem lestar 20. marz. Umboösaðili okkar í Kaupmannahöfn er: E A BENDIX & CO A/S 17 Adelgade DK-1304 Copenhagen K sími 113343 telex 15643 HAFSKIP H.F. ^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmr •'öí2=>'*w markaður Nú veröur haldinn „Súper“-markaöur í Sýningahöllinni (Ársalir) v. Bíldshöföa _ Gjafavorur og búsáhöld Barnafatnaður Dömu- fatnaður kjólar, pils, peysur, bolir, blússur, dragtir o.fl. Barnagallar, peysur og allskonar barnaföt á aldur frá 1—7 ára. allskonar frá Glit keramik og fleira og fleira af úrvals vörum \ sem vert er aö sjá. , Herra- fatnaður Herraföt, stakir jakkar, buxur, skyrtur, peysur o.fl. Opið í dag kl. 1—6 Föstudag kl. 1—10 Laugardag kl. 9—12 Sláið til og gerið „Súper“ kaup á „Súper“-markaöi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.