Morgunblaðið - 15.03.1979, Page 38

Morgunblaðið - 15.03.1979, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979 Minning: Stefán Baldursson og Sveinbjörn Beck Stefán Baldursson Fæddur 7. desember 1960 Dáinn 6. marz 1979 Sveinbjörn Beck Fæddur 26. júlí 1960 Dáinn 6. marz 1979 Kveðja frá Menntaskólan- um í Reykjavík Tveir ungir menn, óvenjulega mannvænlegir, yfirlætislausir og duglegir, hafa verið burt kallaðir af þessum heimi svo snögglega og óvænt, að við höfum vart enn haft tíma til að átta okkur. Stórt skarð og vandfyllt hefur verið höggvið í nemendaröð Menntaskólans í Reykjavík, að ekki sé talað um bekksögnina, sem þeir sátu báðir í. Stefán Baldursson og Svein- björn Beck voru mikill sómi þessa skóla þann stutta tíma, sem við nutum samvista við þá, og harmur nemenda og kennara mikill, er slíkir öðlingar hverfa svo óvænt og óskiljanlega úr hópnum. Eg kann engin orð, er draga megi úr sorg ástvina þessara ungu manna, en nokkur huggun má það vera harmi gegn, að minning þeirra mun lifa hér í skóla, minning um góða drengi, sem sóma sér vel í hópi ágætra fyrri nemenda þessa skóla, er á undan þeim hafa safnazt til feðra sinna. Guðni Guðmundsson. Það var hljóður hópur sem sat tíma í 5. bekk X í Menntaskólanum í Reykjavík árdegis miðvikudaginn 7. marz. Þrjú auð sæti minntu á þá hörmulegu frétt, sem borizt hafði snemma um morguninn. Tveir voru horfnir úr okkar hópi, og við vissum að þeir áttu ekki aftur- kvæmt. Daginn áður hafði annar andi einkennt þennan bekk, andi bjart- sýni og lífsgleði, sem svo oft ríkir, þegar ungir eru saman komnir. Engan grunaði þá, að þessi göngu- ferð á Esju, sem þeir höfðu rætt um við okkur, fullir gáska og tilhlökkunar, myndi verða þeirra hinzta för. Við vissum öll, að þeir höfðu farið margar slíkar ferðir jafnt að sumri sem vetri, enda voru fjallgöngur og náttúruskoðun sameiginlegt áhugamál þeirra. Þeir lögðu af stað strax að loknum skóladegi og klifu fjallið, en á niðurleið brast snjóhengja og tók Stefán og Sveinbjörn með sér. Stefán Baldursson var óvenju brosmildur og bjartsýnn piltur. Hann var ritstjóri De rerum natura, blaðs Vísindafélags M.R., og nutu námshæfileikar hans og brennandi áhugi sín vel á þeim vettvangi. Sveinbjörn Beck var ekki einn þeirra, sem sífellt trana sér fram, en í augum þeirra, sem þekktu hann, var hann maður glaðlyndur og gefinn fyrir gáska. í okkar hópi naut hann sín jafnan vel, og því er skarð fyrir skildi við fráfall hans. ólafur Guðmundsson. Stefán Baldursson Fæddur 7. desember 1960. Dáinn 6. marz 1979. Þriðjudaginn 6. marz s.I. var fagurt vetrarveður, heiðskír him- inn og glampandi sólskin. Það freistaði þriggja knárra sveina úr 5. bekk X í Menntaskólanum í Reykjavík, og þeir afréðu að klífa Esjuna. Tveir þeirra komu ekki heim úr þeirri för, svo snögg geta umskiptin orðið. Annar þeirra var Stefán Baldursson, systursonur konu minnar, og skal hans minnst hér með nokkrum fátæklegum orðum. Stefán var fjallagarpur mikill, þótt ekki væri hann eldri að árum, og var félagi í Alpaklúbbnum og Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Síðasta sunnudaginn, sem hann lifði, var hann með félögum sínum á slysavakt uppi í Bláfjöllum, og var þar sem annars staðar ávallt viðbúinn. Stefán var alltaf vel búinn og aðgætinn í fjallaferðum, enda naut hann í fyrstu tilsagnar eldri bróð- ur síns, og ferðuðust þeir mikið saman. Eg minnist frásagna þeirra af ýmsum jöklaferðum og voru þá oft sýndar litmyndir af tign fjallanna til þess að undir- strika eftir hverju væri að sækjast með slíkum ferðum. I skóla sínum var Stefán virkur þátttakandi í félagslífinu og var meðal annars ritstjóri náttúru- fræðirits skólans, „De Rerum natura", nú þegar hið sviplega slys bar að. Mikill námsmaður var hann, enda ekki langt að sækja dugnað og góðar gáfur. Foreldrar Stefáns heitins eru Baldur Jónsson, dósent, og Guðrún Stefánsdóttir mágkona mín. Þeirra sorg er sárust svo og bræðranna tveggja, en sárt er einnig fyrir afa og ömmu í Álf- heimum að sjá á eftir tveim dóttursonum, nær jafnaldra, á rúmu ári. Ég mun alltaf minnast Stefáns eins og hann var á gleðistundum fjölskyldunnar, síbrosandi með ljósu fallegu lokkana sína, fallegur ungur piltur. Megi góður guð styrkja fjöl- skylduna í söknuði og sorg. Karl Ómar Jónsson. Hörmulegir atburðir gera sjald- an boð á undan sér. Og fátt er átakanlegra en að horfa á eftir ungum og vöskum drengjum sem hverfa okkur sjónum í greipar hins óvægna sláttumanns. Stefán Baldursson var gæddur óvenjulegu lífsfjöri og áhuga á umhverfi sínu. Hann hreifst af náttúru landsins, og fjöllin töfruðu hann til sín. Hann var félagi í Hjálparsveit skáta með eldri bróð- ur sínum og lagði þar fram krafta sína af mikilli ósérhlífni. Hverja frístund notaði hann til að glíma við erfiðar fjallaleiðir og jökul- tinda. Hughreysti æskumannsins bauð byrginn öllum torfærum, og því hefur líklega stundum verið teflt á tvær hættur. Ég hef ein- hvers staðar lesið að fjallgöngur séu hættulegasta íþrótt sem til sé í heiminum. En þessi íþrótt styrkir líka bæði sál og líkama og færir mikinn unað þeim sem hana stunda. Okkar fámenna þjóð má síst við því að missa slíka drengi sem Stefán í blóma lífsins. En um slíkt er ekki spurt þegar voðaslys ber að höndum. Við sem þekktum Stefán frá bernskudögum hans vitum að hann var gæddur óvenjulegum hæfileikum og drengskap. Heið- ríkja, göfgi og mildi skein úr svip hans. Og bros hans er okkur ógleymanlegt, það lýsti allt um- hverfið og hreif með sér samferða- fólkið. Við hann voru sannarlega bundnar miklar framtíðarvonir. Ekki er að efa að hann hefði átt eftir að standa í fylkingarbrjósti, annaðhvort við mannúðarstörf eða önnur mikilvæg verkefni fyrir okkar litla þjóðfélag. Það var nóg að sjá gáfulegan svip hans og fallega brosið til að sannfærast um það að hann mundi leysa öll viðfangsefni með sóma. En vegir Guðs eru órannsakan- legir. Við sitjum hljóð og fáum enga skýringu, en oft kemur okkur í hug hið forna spakmæli, að þeir sem guðirnir elska deyi ungir. Djúp er sorg foreldra hans, Guðrúnar Stefánsdóttur og Bald- urs Jónssonar, og bræðra og ann- arra vandamanna. En minn- ingarnar eru dýrmætar, og þær eru óbrotgjarnar og munu ylja um ókomin ár. Brosið hans og góðvild- in í svipnum mun lýsa sem óslökkvandi ljós og örva vini hans til að halda uppi merki hjálpsemi, glaðlyndis og góðvildar og berjast við þau verkefni sem hann átti ólokið. Við sem erum nánir vinir og vandamenn fjölskyldú hans sendum úr nálægð og fjarlægð foreldrum hans og bræðrum og öðrum ættmennum dýpstu samúðarkveðjur. Sigríður Kristjánsdóttir. Stefán lést af slysförum þriðju- daginn 6. mars s.l. er snjóflóð féll skyndilega í Esjunni. Hann var sonur hjónanna Guðrúnar Stef- ánsdóttur og Baldurs Jónssonar, Tómasarhaga 22 í Reykjavík. Stefán hafði mikinn áhuga á útilífi og ferðalögum. í ársbyrjun 1978 gerðist hann félagi í Hjálpar- sveit skáta í Reykjavík. Hann starfaði sem nýliði allt það ár og hlaut á þeim tíma tilskilda þjálfun í undirstöðuþáttum ferðamennsku og björgunarstarfa. Þann 16. janúar s.l. var Stefán tekinn í Hjálparsveitina sem fullgildur félagi. Þennan tíma allan sýndi hann mikinn áhuga og skilning á því margþætta starfi sem fram fer í björgunarsveit á við Hjálparsveit skáta. Þá hafði Stefan starfað nokkuð í skólaleyfum við Skáta- búðina, sem rekin er af Hjálpar- sveitinni. Því er oft haldið fram með réttu að þeir sem taka þátt í starfi björgunar- og hjálparsveita kynn- ist oft betur og tengist traustari vináttuböndum en í mörgum öðrum félögum. Ferðalögin og æfingarnar, oft við erfiðar aðstæð- ur, þjappa mönnum saman, björg- unarstörfin, þar sem reynir á samvinnu og samhæfingu, tengja hópinn enn traustari böndum. Þess vegna sakna félagarnir enn sárar vinar í stað. Það er erfitt að sætta sig við að heyra ekki framar hans glaðværa hlátur eða þurfa að viðurkenna að hans smitandi áhugasemi hvetji menn ekki fram- ar til starfa. En huggunin harmi gegn er þó minningin um góðan vin og ötulan starfsfélaga. Minn- ing sem hvetur okkur til þess að takast á við þau viðfangsefni sem okkur voru sameiginlega kær og við virtum umfram annað. Við biðjum honum blessunar og sendum innilegar samúðarkveðjur til móður hans, föður og bræðra svo og til allra annarra ættingja og vina. t Eiginmaöur minn og faðir okkar ÓLAFUR ANDRÉSSON Sogni, Kjós lést aö heimili sínu þriðjudaginn 13. þ.m. Kristín Jakobsdóttir og börn. t Útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, bURÍÐAR MARKÚSDÓTTUR, Framnosvsgi 3, veröur gerö frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 16. mars kl. 13.30. Þeim, sem vllja mlnnast hinnar létnu, er vlnsamlegast bent á Slysavarnafélag íslands eöa aörar líknarstofnanlr. Elín Guómundsdóttir Ingi Jónsson Arnbrúöur Guömundsdóttir Guömundur Ingimarsson Reynir Markússon og barnabörn. Eiginkona mín t ROSHAN EGGERTSSON lést hlnn 13. mars. Iffefnatrssöingur, Þréinn Eggertsson t GUÐMUNDUR JÓHANNSSON Aöalgötu 2, Stykkishólmi, lést í Landspftalanum 13. marz. Aöstandendur. t ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR, fyrrverandi Ijósmóöir f Vestmannaeyjum, andaöist í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur þann 13. þ.m. Aöstandandur. t Minningarathöfn um ástkæran son okkar, fööur, bróöur og mág, GRÉTAR SKAPTASON, vótstjóra, sem fórst meö vélbátnum Ver frá Vestmannaeyjum 1. marz veröur í Laugarneskirkju laugardaginn 17. marz kl. 13.30 Þurfóur Ágústsdóttir — Gunnar Skapti Kristjénsson Austurbrún 37 Jóhann Grétarsson Guöný Skaptadóttir Fisher Frank Fisher Svsinbjörg Gunnarsdóttir Jón Sigurösson Gunnar Skapti Kristjénsson t Útför INGIGERDAR GUÐNÝJAR JÓNSDÓTTUR, tré Neöra-Hrapp, fer fram frá Neskirkju föstudaginn 16. marz kl. 3 e.h. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Ifknarstofnanir. Fyrir hönd fjarstaddrar dóttur. Vandamenn. t Elginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi BRYNJÓLFUR ÚLFARSSON, Stóru Mörk, veröur jarðsunginn frá Stóradalskirkju laugardaginn 17. marz kl. 2 e.h. Guölaug Guðjónsdóttir, Úlfar Brynjótfsson, Rósa Aöalstainsdóttir, Hanna Kristfn Brynjólfsdóttir, Benedikt Sigurbergsson, Ragnheiöur Brynjótfsdóttir, Jón Þorkell Rögnvaldsson. Félagar Hjálparsveitar skáta í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.