Morgunblaðið - 15.03.1979, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979
45
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
• Frjálsræði
í viðskiptum
Það er athyglisverð grein í
Morgunblaðinu 8. mars eftir Jón
G. Sólnes um frjálsræði í
viðskiptum þessa lands. í þessari
grein tekur Jón ákveðna afstöðu í
þessum málum og vonandi verður
afstaða Sjálfstæðisflokksins eins
ákveðin og ósveigjanleg.
Það má fullyrða að meirihluti
þjóðarinnar sé meðmæltur auknu
frjálsræði í viðskiptum, en því
miður hefur enginn flokkur sýnt
tilburði í þá átt (af alvöru) að gera
viðskiptalífið opnara og leysa það
úr álögum haftakerfisins.
Það er vonandi að Sjálfstæðis-
flokkinn beri gæfa til að standa
fast á stefnu sinni og láta ekki
menga hana með samkrulli úr
öðrum flokkum, og ekki síst að
standa við þau loforð sem þeir gefa
nú um þessar mundir.
Ef þessi loforð verða svikin má
flokkurinn búast við því að verða
jafnvel minni en Framsóknar-
flokkurinn er nú orðjnn.
íslendingur.
• Lífsblik
Sólir blika í bládjúpum
geimsins, þúsundum saman. Víst
má telja að einriig þar séu lífhæfir
fylgihnettir, sem við ekki sjáum. Á
mörgum þeirra mun lífið vera
komið á margfalt hærra þroska-
stig, en við menn getum látið
okkur til hugar koma.
Lífgeislan streymir stöðugt frá
máttugum mannkynjum annarra
sólhverfa. Orka og ást og viska
berast frá háþroskaverum um
allan alheim og hefur bætandi
áhrif á allt líf, sem lægra stendur
að þroska.
Fyrir aðstreymi æðri orku
verður stöðug hafning hinna lágu
lífvera.
Hin sanna lifstefna á erfitt
uppdráttar á mörgum frumlífs-
jörðum. Til slíkra staða beina
hinir lengra komnu áhrifamætti
Hafning hinnar lágu veru, hins
óvitra manns, er takmark hins
æðri máttar. Guðleg ást leitast við
að hefja hvern mann til réttrar
áttar.
Rangstefnan, sem svo víða ríkir,
er lífstefnunni ólýsanleg hindrun.
Rangstefnuna verður að sigra um
alheim. Það er hið mikla markmið
hinnar æðstu veru. Og til þess að
það megi takast, verða frumlífs-
menn allra mannkynja að vera þar
með en ekki móti.
Einnig mannkyn okkar jarðar
verður að taka þátt í þeirri
viðleitni og Islendingar gætu haft
möguleika á að verða þar fremstir
í flokki. Því á Islandi voru fyrst
uppgötvuð lögmálin um alsam-
band lífsins og ætti því að vera hér
hægara um vik, — að koma af stað
hinni nauðsynlegu byrjun, — en í
löndum, þar sem þessi undirstöðu-
lögmál eru énn óþekkt.
Endanlegur sigur lífstefnunnar
getur ekki orðið, fyrr en helstefn-
an hefur verið sigruð og verði
megund hins illa upprætt.
Ingvar Agnarsson.
Þessir hringdu . .
• Geta þess sem
vel er gert
Ánægðir foreldrar í Vestur-
bænum hringdu:
Við viljum koma á framfæri
þakklæti til skólastjóra, tón-
menntakennara, hljómsveitar-
stjóra og raunar allra, er lögðu
hönd á plóginn að frábærri
skemmtun nemenda í Melaskólan-
um laugardaginn 10. og sunnudag-
inn 11. marz.
Það var gaman að sjá svona
stóran hóp nemenda vinna að
tónlist og það er ástæða til að
vekja athygli á þessu starfi í
skólanum.
SKAK
Umsjón:
Margeir Pótursson
í fyrstu-deildarkeppni sovézka
meistaramótsins í fyrra kom þessi
staða upp í skák stórmeistaranna
Tukmakovs, sem hafði hvítt og
átti leik, og Kochievs. Síðasti
leikur svarts var hroðalegur
afleikur. Hann lék 24... Hd2xa2? í
stað 24... Dxc4, 25. Hxc4 — Hxa2.
25. Bd5!! og svartur gafst upp, því
að hann kemst ekki hjá hrókstapi.
Röð efstu manna á mótinu varð
þessi: 1.—2. Tukmakov og
Tseshkovsky ÍO'Æ v. af 16 mögu-
legum. 3.-4. Beljavsky og
Mikhailchisin 10 v. 5.-7.
Makarichev, Razuvajev og
Timoshenko 9 v. 8.—10. Kochiev,
Sveschnikov og Jusupov 8. v. 11.
Savon Vk v.
Þá fylgja einnig velfarnaðarósk-
ir til kórsins, sem fer um næstu
helgi á kóramót á Akureyri.
• Askorun til
útyarpsráðs
— Ég undirritaður, sem
hlusta mikið á morgunútvarp, vil
koma því á framfæri við útvarps-
ráð, að hinir góðkunnu og lands-
frægu útvarpsþulir, Pétur Péturs-
son og Jón Múli Árnason, verði
látnir taka aftur til við morgunút-
varp eins og var fyrir daga
Morgunpóstsins.
— Mér finnst vanta eitthvað í
tilveruna eftir að þeir fóru frá við
þessa frábæru þjónustu sem þeir
veittu landsmönnum öllum með
skemmtilegheitum sínum og oft á
tíðum frábærum húmor og fram-
komu allri.
— Að lokum beini ég því til
útvarpsráðs og tónlistardeildar að
hafa meira af harmonikulögum og
léttum píanólögum, en minna af
mataruppskriftum á morgnana.
Á.J.J.
HÖGNI HREKKVÍSI
‘«9
P McNaught Synd., Inc.
J
£&m.1 HXAMATu£...þEltA >5C
ÓALTOG- PlPÁ£r
MANNI OG KONNA
Einar Jónsson á Einarsstöðum
veröur í bænum næstu daga.
Vlötalsbeiönum svarað í síma 31550 föstudaginn
16. marz kl. 5—7 og laugardag kl. 2—4 og
sunnudag kl. 2—4.
Finlux
LITSJÓNVARPSTÆKI
20“ .. kr. 415.000,-
— 22“ .. kr. 476.000.-
26“ .. kr. 525.000.-
SJÓNVARPSBÚDIN
BORGARTÚNI 18 REYKJAVIK SlMI 27099
Gestetner PFH LJÓSPRENTUNARVÉL
EINFÖLD, ÖRUGG EN ÖDYR
SKILAR ÞO ARANGRI SEM
LIKIST MEIR PRENTUN
EN LJÖSRITUN
ívar
Skipholti 21, Reykjavlk,
stmi 23188.
Engir rofar
eða takkar, aðeinsl
ýtt á handfang og
ljósritið er komið.
Sjúkrahús á Akureyri
Tilboö óskast í aö Ijúka frágangi skurödeildar o.fl.
í nýbyggingu viö Fjóröungssjúkrahúsiö á Akur-
eyri.
Verkinu Skal aö fullu lokiö 15. apríl, 1981.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri og
skrifstofu bæjarverkfræöings á Akureyri gegn
75.000- kr. skilatryggingu.
Tilboö veröa opnuö á skrifstofu vorri þriöjudag-
inn 24. apríl 1979, kl. 11.00, fyrir hádegi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
HAGTRYGGING HF
HAFIÐ BÍLINN VEL ÚTBÚINN í SNJÓNUM.
J
.Uíne díqtJú