Morgunblaðið - 15.03.1979, Side 46

Morgunblaðið - 15.03.1979, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979 í KVÖLD íer fram einn leikur í 2. deild karla í handknattleik. Akureyrarliðin KA og Þór leika í íþróttaskemmunni kl. 20.00. Er leikur þessara liða afar þýðingar- mikill í hinni tvisýnu stöðu í deildinni sem er með ólikindum spennandi. Eiga fimm lið ennþá möguieika á að verða í efstu sætunum. KA-menn verða að sigra í leikn- um í' kvöld til þess að halda í vonina um að verða með í topp- baráttunni. Ef að líkum lætur verður loft lævi blandið í skemm- unni þeirra Norðanmanna í kvöld, því að óvíða eru stuðnings- menn jafn ákafir í hvatningar- hrópum sinum og styðja jafn vel við bakið á sínum mönnum. Eins og sjá má á stöðunni hér á eftir getur enn allt gerst: Þróttarar ekki sammála Eyjamönnum VEGNA pistils í Morgunblaðinu föstudaginn 9. mars undir yfir- skriftinni „Eyjamenn vondir“ sjáum við okkur tilneydda til að benda á eftirfarandi: Leikir Þórs og Þróttar í 2. deild karla og kvenna í handknattleik áttu að fara fram laugardaginn 3. mars og hefjast kl. 13. Um morguninn kom í ljós, að ófært var með flug til Vestmannaeyja og hafði undirritaður þá sam- band við formann mótanefndar B.S.Í., og tjáði hann okkur að við ættum að biða fram að hádegi en ef ekki hefði rofað til með flug þá, yrði leikjunum frestað. Þessar upplýsingar létum við ganga til leikmanna okkar og báðum þá að vera i kallfæri fram að hádegi. Á hádegi kom í ljós að enn var ófært til Eyja og höfðum við þá samband við formann móta- nefndar á ný. Krafðist hann þá þess af okkur, að við færum, ef fært yrði, seinna um daginn og gistum í Eyjum, þar sem ekki yrði um ferð til baka að ræða sam- dægurs. Vorum við að vonum ekki ánægðir með það, þar sem það var allt annað en okkur hafði verið sagt fyrr um daginn, en er í ljós kom kl. 14 að flogið yrði kl. 15 létum við til leiðast og héldum út á flugvöll, bæði mfl. karla og kvenna. Er þangað kom, kom í ljós að engir dómarar voru mættir, þó formaður mótanefndar hefði fullvissað okkur um kl. 14, að þeir væru reiðubúnir að fara. Biðum við úti á flugvelli þar til vélin fór í loftið, en er við vorum að tygja okkur til heimferðar, hringdi títtnefndur formaður móta- nefndar í okkur út á flugvöll og tjáði okkur, að dómararnir hefðu ekki séð sér fært að fara, og leiknum væri frestað. Að ofangreindu má sjá, að það er ekki við okkur að sakast, að leikurinn fór ekki fram. Þá skoðun Eyjamanna að við getum eins og þeir tekið Herjólf daginn fyrir leik, getum við ekki sætt okkur við. Það ylli bæði vinnutapi og auknum ferðakostn- aði. í framhaldi af þvi viljum við benda Þórurum svo og Ákureyr- ingum á, að í 9. grein reglugerðar H.S.I. um handknattleiksmót stendur, að 2. deild skuli vera sérstök fjárhagsleg rekstrareining í hverju héraði fyir sig. Það merkir í raun að hagnaði eða tapi af 2. deild í hverju héraði fyrir sig skuli í lok keppnistimabils skipt í 8 jafnstóra hluta og greiðast eða innheimtast af hverju þátttöku- liði. í dag táknaði það að félg utan Reykjavíkur skiluðu 7/8 hagnaðarins af 2. deild í sínu héraði, auk þess að greiða 1/8 hluta halla af 2. deild í Reykjavík. Staðan í dag er hins vegar sú, að Eyjamenn og Akureyringar hirða sjálfir hagnað úr sínum heimahéruðum, en H.K.R.R. greiðir halla í Reykjavík. Ástæðan fyrir því að þessari reglugerð hefur ekki verið beitt er sú að Reykjavíkurfélögin hafa sýnt fullan skilning á hinum gífur- lega ferðakostnaði er fyrst Ákur- eyrarfélögin og nú einnig Þórarar hafa vegna þátttöku í 2. deild. Ef hins vegar á að fara að krefjast þess af okkur, að við mætum á staðinn daginn fyrir leik, er ég hræddur um, að ofan- greindri reglugerð verði beitt, og þess verði krafist, að hagnaðinum af leikjum úti á landi verði skipt niður á þátttökufélögin. Með þökk fyrir birtinguna, fh. handknattleiksdeildar Þróttar. Gunnar K. Gunnarsson Spánverjar draga i land EIGI alls fyrir löngu var greint frá þvi í Mbl. að spænska knatt- spyrnusambandið hefði samið nýjar reglur sem vörðuðu hinar erlendu stórstjörnur sem leika með spænskum liðum. Nýju regl- urnar voru einfaldlega fólgnar í þvi að þegar samningar hinna erlendu leikmanna sem nú leika á Spáni rynnu út, væri óheimilt að endurnýja þá og stjörnunum gert að hverfa úr landi. Var hugmynd- in sú að opna meiri og betri möguleika fyrir unga og efnilega Spánverja, en knattspyrnuyfir- völd á Spáni telja að hinn mikli og vaxandi fjöldi erlendra leik- manna haldi ungum Spánverjum algerlega niðri. Þegar þessar ráðagerðir voru gerðar ljósar, var sýnt að leik- menn eins og Kemps, Bonhof, Bertoni og Neeskens, svo að nokkr- ir séu nefndir, yrðu fljótlega að fara að leita sér að atvinnu annars staðar. Svo þarf þó ekki að fara þrátt fyrir allt. Spænsku liðin flest sem leika í 1. og 2. deild hafa mótmælt harðlega við knatt- spyrnusambandið þar í landi, einkum vegna þess að slíkar ráðstafanir myndu koma niður á áhorfendafjölda. Knattspyrnuyfir- völdin á Spáni hafa því dregið snarlega í land og framvegis mega spænsku liðin hafa tvo erlenda leikmenn á sínum snærum plús tvo Suður-Ameríkumenn sem geta gerst spænskir ríkisborgarar og þannig gefið kost á sér í spænska landsliðið. Aðrir útlendingar verða að hafa dvalið í 10 ár á Spáni eigi þeir að vera löglegir með spænsku félagi. Spánn er nú að byggja upp nýtt landslið í knattspyrnu og hug- myndin með útlendingabanninu var m.a. sú að ungir nýliðar fengju meiri möguleika en ella. Hver veit nema að undanlátssemi knatt- spyrnuyfirvalda við almennings- álitið kunni að hafa gert að engu möguleika Spánverja á að ná langt á HM 1982? • Henning Jensen, leikmadur með Real Madrid. Hann og aðrir útlendingar fá nú að leika áfram á Spáni, sé það vilji þeirra og félaga þeirra. STAÐAN í 2. handknattleik: KR Þór Ak. Þór Ve. KA Ármann Þróttur Stjarnan Leiknir 13 8 2 3 11 7 1 3 12 6 3 3 12 7 0 5 12 6 2 4 12 4 2 6 12 5 0 7 308:263 223:195 222:223 278:241 253:240 273:262 262:251 18 15 15 14 14 10 10 0 sS/Rir® UM næstu helgi verða haldnir á Akureyri Andrésar Andar- leikarnir á skíðum. Þetta er eitt allra fjölmennasta skiðamót sem haldið er hér á landi. Keppendur verða um 250 víðs vegar að af landinu. Einnig stendur til að keppendur komi frá Noregi. Mót þetta, sem haldið hefur verið undanfarin ár og tekist mjög vel, verður væntanlega spennandi í ár þvi að keppnishörku ungu kyn- slóðarinnar er viðbrugðið. Áhorfendur eru hvattir til að fjölmenna, og þá sérstaklega foreldrar þeirra barna sem keppa. Sigmar bjargaói Þór ÞÓRARAR í Eyjum geta þakkað markverði sfnum, Sigmari Þresti, fyrir stigið sem þeir fengu í gærkveldi úr viðureign sinni við Þróttara í 2. deildinni. Á sfðustu 5 sekúndum leiksins varði Sigmar tvívegis frá Þrótturum sem voru fríir á lfnunni, þá var staðan 16—16 og stigin skiptust milli liðanna. Þróttarar komu mjög ákveðnir til leiks og léku mjög sterkan varnarleik. Náðu þeir fljótlega yfirhöndinni og höfðu yfir 11—6 í hálfleik. Leikur Þórs hafði verið heldur fálmkenndur í fyrri hálf- leik, en í þeim síðari tóku þeir Þórarar sig verulega á, söxuðu jafnt og þétt á forskot Þróttara og tókst að jafna þegar 4 mínútur voru eftir, 14—14. Síðustu mínút- urnar var stiginn mikill darraðar- dans á fjölunum og Þróttur varð að sjá af sigrinum þegar Sigmar Þröstur tók til sinna ráða í lokin, 16—16 urðu lokatölurnar. Sigmar Þröstur og Hannes Leifsson áttu mjög góðan leik hjá Þór, en stjarna Þróttara var mark- vörðurinn Sigurður Ragnarsson. Einnig átti Einar Sveinsson stór- góðan leik. Mörk Þórs: Hannes Leifsson 4, Andrés Bridde 4, Ásmundur Friðriksson 2, Böðvar Berxþórsson 2, Ragnar Hilmarsson 1, Þór Vaitýsson 1, Þórarinn Ingi 1, Herbert Þorleifsson 1 mark. Mörk Þróttar: Einar Sveinsson 5 (2 víti), Páll Ólafsson 4, Ilalldór Harðarson 2, Sveinlaugur Kristjánsson 2, Árni Einars- son, Gunnar Gunnarsson og Jóhann Frí- mannsson 1 mark. hkj. Fredricia meistari FYRIR skömmu vann Fredricia KFUM stórsigur á Skovbakken í 1. deild danska handboitans og van- Danmerkur titiliinn þar með tryggður. Er þetta í fimmta skiptiö sepx Fredricia vinnur Danmerk^ urtitilinn. Lið Gunnars' Einarssonar, Aarhus KFUM, var lengi vel í góðri stöðu við topp deildarinnar, en gekk illa á lokasprettin- um og því fór sem fór. ) . * *l Borðtennis er lykiUinn POP GAMLI ltobson- hefur varla nokkurn tfma á ævinni skorað jafn mikið af mörkum sem nú og er þá mikið sagt. Þó hann sé að verða háiffertugur, skorar hann næstum f hverjum leik fyrir lið sitt West Ham Utd, sem reynir af alefli að klóra sig upp f fyrstu deild. Robson hefur víða leikið og jafnan verið í fremstu röð markaskorara þó að sjaidan hafi gengið jafn vel og f vetur. Robson hefur svar á reið- um höndum og borötennis- áhugamenn munu ugglaust fagna yfirlýsingu hans. Robson segir nefnilega að hann eigi þessu öllu saman að þakka þvf að hann leikiir borðtennis þrisvar í viku og fái þannig þá snerpu sem til þarf. Allir f borðtennis! IIDrútllrl KA—Pór i kvöld Tvísýn og spennandi staða í2. deild karla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.